SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 34
34 31. janúar 2010
Yehudi Menuhin, eitt mesta séní tónlistarsög-
unnar, á æfingu í Laugardalshöllinni 1972.
M
argur mun fagna því að á
þessari fyrstu alþjóðlegu
listahátíð Íslands eigum við
ekki sjálfir að tala, né heyra
aðra menn tala um list, heldur verður hér
geingið beint að kjarna hlutanna sem er
listsköpunin sjálf. Hér hafa þeir menn ein-
ir verið til kvaddir sem munu þyrma okk-
ur við ofmiklu tali. Það er hamingja okkar
núna að hafa feingið hingað til okkar
nokkra þá meistara heimslistarinnar, sem
hvert listrænt hjarta fer að slá örar af því
einu að heyra nöfn þeirra nefnd. Listin er
sköpun sem gerir orð marklaus. Ég vona
að hér fái listin að tala beint við sálina.“
Þannig komst Halldór Laxness að orði í
ávarpi við setningu fyrstu Listahátíð-
arinnar í Reykjavík árið 1970. Og nób-
elsskáldið hitti naglann á höfuðið, það
voru sannkallaðir meistarar heimslist-
arinnar sem drápu hér niður fæti þetta
sumar.
Vladimir Ashkenazy bjó hér á landi á
þessum tíma og lagði gjörva hönd á plóg-
inn við undirbúning hátíðarinnar. Það var
ekki síst honum að þakka að hingað
stefndu skónum virtúósar á sviði sígildrar
tónlistar, André Previn, Itzhak Perlman
og hjónin Daniel Barenboim og Jacqueline
du Pré.
Fellur í miklum haddi
Barenboim og du Pré voru eitt umtal-
aðasta parið í tónlistarheiminum á þessum
Oscar Peterson lék með Niels Henning
Ørsted Pedersen sumarið 1978.
Tenórsöngvarinn Luciano heitinn Pavarotti þenur raddböndin á tónleikum á Listahátíð í Reykjavík 1980.
Geingið beint að kjarna
Daniel Barenboim í heimsókn hjá Þórunni og Vladimir Ashkenazy á heimili þeirra í Reykjavík.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Listahátíð í Reykjavík fagnar 40 ára afmæli
sínu á árinu. Fjölmargir heimsfrægir lista-
menn hafa heiðrað landann með nærveru
sinni gegnum tíðina og hér eru í máli og
myndum tínd til nokkur atriði sem mörk-
uðu varanleg spor í sögu hátíðarinnar.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Listahátíð í Reykjavík 40 ára
Listahátíð í Reykjavík hefur löngum gert
dægurtónlist hátt undir höfði. Á engan við-
burð er þó hallað þótt fullyrt sé að koma
rokksveitarinnar goðsagnakenndu Led Zep-
pelin á fyrstu hátíðina 1970 standi upp úr.
Robert Plant og félagar voru þá á hátindi
frægðar sinnar.
Skriftir og meiri skriftir. Þannig lýsti Stefán
Halldórsson, blaðamaður Morgunblaðsins,
42 klukkustunda dvöl Led Zeppelin á Íslandi
sumarið 1970. Hver einasti maður sem
komst í námunda við kappana freistaði
þess að fá þá til að skrifa nöfnin sín á ein-
hvern hlut, pappírsbleðil, mynd, skó, hand-
legg, maga, kinn.
Stefán var á Keflavíkurflugvelli þegar goð-
in lentu og lýsir því þegar stóra stundin rann
upp. „Robert Plant, söngvarinn, gekk fyrstur
út, en síðan komu þeir einn af öðrum, John
Bonham, Jimmy Page og John Paul Jones,
eltir af umboðsmönnum og burðarkörlum.“
Page sat stuttlega fyrir svörum hjá Stefáni
og var spurður hvort sveitin hefði ferðast
Eyjólfur sundkappi
hafði hemil á múgnum
Tærnar á Robert Plant vöktu sérstaka at-
hygli en þessi mynd birtist með umsögn um
tónleika Led Zeppelin í Morgunblaðinu.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Robert Plant, Jimmy Page og John Paul Jones á tónleikum í Laugardalshöllinni 1970.