SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 35

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 35
31. janúar 2010 35 árum, bráðung og þrútin af hæfileikum. Hún sellisti en hann píanóleikari og hljómsveitarstjóri. „Sellóleikarinn Jacqueline du Pré er ung kona, ljós á húð og hár, sem fellur í mikl- um haddi niður yfir axlirnar og hún brosir mikið. Það er einhver póetískur blær yfir henni, ekki síður þegar hún talar. Þetta er sýnilega hamingjusöm ung kona, ánægð með lífið.“ Þannig lýsir blaðamaður Morgunblaðs- ins du Pré í upphafi samtals þeirra sem fram fór á Hótel Sögu fyrir tónleikana á Listahátíð. Ekki er allt sem sýnist. Í viðtalinu lýsir du Pré meðal annars að- dáun sinni á Íslandi. „En hér virðist allt svo hreint og ótrúlega rólegt og kyrrlátt í samanburði við aðrar stórborgir. Mér finnst svo indælt að sjá svo mikið af græn- um blettum í kringum hvert hús og loftið er svo tært. […] Ég elska svalt loftslag, mikla víðáttu og fjallalandslag – eða yf- irleitt óspillt land.“ Tísku bar einnig á góma en blaðamaður hafði áhyggjur af því að minipilsin væru afleit fyrir sellóleikara. „Jú, en ég leik ekki í minipilsi. Ég er alltaf í víðum og efn- ismiklum pilsum, einmitt af þeirri ástæðu. Annars fara pilsin langt upp um mann og það er ekki beint fallegt að sjá framan úr sal þessar löngu lappir og uppflett pils,“ svaraði Jacqueline du Pré og hló hjart- anlega. Sem kunnugt er varð ferill du Pré styttri en til stóð. Hún greindist með MS- sjúkdóminn árið 1973 og neyddist til að leggja sellóið á hilluna. Hún lést árið 1987, aðeins 42 ára að aldri. Aldrei séð þreyttari mann Við komuna til landsins baðst Barenboim undan viðtali við Morgunblaðið vegna þreytu. Hann hafði ekki sofið í sólarhring. Lét blaðamaður þess getið að aldrei hefði hann séð þreyttari mann, þar sem Bar- enboim tvísteig órakaður og sljór af þreytu framan við móttökuborðið á Hótel Sögu, því herbergið hans var ekki tilbúið. Barenboim sneri aftur á Listahátíð í Reykjavík árið 1974. Blaðamaður Morgunblaðsins hafði ímyndað sér Itzhak Perlman grannan og fíngerðan mann og brá því í brún þegar hönd hans hvarf í hönd ísraelska fiðluleik- arans þegar þeir heilsuðust. Perlman, sem var aðeins 24 ára á þessum tíma, lýsir í viðtalinu tildrögum þess að hann flutti til Bandaríkjanna en það atvikaðist þannig að sjónvarpsmaðurinn kunni Ed Sullivan fékk hann til að koma fram í dagskrá helg- aðri Ísrael. Eftir það afréð Perlman að verða um kyrrt og halda áfram í tónlist- arnámi. Spurður um deilur Ísraela og Araba kveðst Perlman vonast eftir friði en bætir svo við: „Ísrael verður aldrei sigrað í styrj- öld. Það er bara spurning um, hversu dýr- keyptir sigrarnir verða og hversu mikið Morgunblaðið/Emilía „Litlu hjónin“ André Previn og Mia Farrow á Keflavíkurflugvelli 1972. Þau voru elskuleg. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Myndin fræga af Herbie Hancock á Austurvelli. hlutanna Djassmeistarinn Benny Goodman var hress við komuna til landsins sumarið 1976. Jacqueline du Pré var undrabarn í sellóleik. víða. „Já, við höfum komið víða við, en satt best að segja, þá eru þessi ferðalög farin að verða dálítið þreytandi, sérstaklega þó í Bandaríkjunum.“ Æstur múgurinn elti Zeppelin-menn á röndum, fyrst á Hótel Sögu og síðan á æf- ingu í Laugardalshöllinni. Þar þurfti ekki minni mann en Eyjólf Jónsson, sundkappa og lögregluþjón, til að sjá til þess að enginn slyppi inn í helgidóminn. Úr höllinni lá leiðin á kveðjudansleik hljómsveitarinnar Trúbrots í Glaumbæ. Shady Owens og Karl Sighvatsson voru að hætta. Enn áttu Plant og félagar fótum sín- um fjör að launa og fenginn var dyravörður til að stjórna umferðinni framhjá borði þeirra. „Beðið var um bjór. Því miður, ekki til,“ skrif- ar Stefán. „Jæja þá, kampavín. Alveg sjálf- sagt, og síðan voru kampavínsflöskur drifn- ar á borðið. Það er mikil og merkileg list að opna slíkar flöskur, en John Bonham, trommarinn, var alveg eldklár í þeirri list eins og svo mörgum öðrum. Og Led Zeppelin skáluðu.“ Áratug síðar féll Bonham frá. Banamein hans var áfengiseitrun. Burðarkarlarnir gengu út Vel lá á Zeppelin-mönnum og föruneyti þeirra og Stefán veitti því athygli að „burð- arkarlarnir“ voru fljótlega komnir með sína stúlkuna hver upp á arminn. Hljómsveitarmeðlimir sátu að sumbli um stund, að Jones undanskildum. Hann fór heim á hótel, örmagna eftir skriffinnskuna. Hinir héldu sem leið lá í partí. Greininni í Morgunblaðinu fylgir mynd af liðsmönnum Zeppelin og fleirum fyrir framan hús með áletruninni „rakari“. Í myndatexta segir: „Því miður skildu hvorki Led Zeppelin né aðstoðarmennirnir íslenzku og því gengu þeir óklipptir framhjá rakarastofunni.“ Zeppelin-menn virðast hafa kunnað vel við sig á Íslandi, alltént sömdu þeir síðar óð til landsins, Immigrant Song. Sem frægt er. Stefán Halldórsson var í hópi fimm þús- und ungmenna á tónleikum Led Zeppelin í Laugardalshöll kvöldið eftir. Látum þessi orð hans um þá upplifun duga: „Þetta voru stærstu og merkilegustu bítlatónleikar sem haldnir hafa verið hér á landi, frá því að bítla- hljómleikasögur hófust.“David Bowie hélt tónleika á Listahátíð 1996. Hann var brosti blítt framan í fjölmiðlafólk. Morgunblaðið/Ásdís

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.