SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 37

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 37
31. janúar 2010 37 Jacqueline Picasso opnar sýningu á verkum bónda síns á Listahátíð 1986. Rúmum fjórum mánuðum síðar var hún öll. Morgunblaðið/RAX Fáar myndlistarsýningar hafa vakið meiri athygli á Listahátíð í Reykjavík en sýning á verkum Pablos Picassos sumarið 1986. Ekkja meistarans, Jacqueline, opnaði sýninguna sjálf. „Fjölmargir hafa verið að biðja mig um það úr öllum áttum,“ svaraði hún þegar Elín Pálmadóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, spurði hvort ekki væri mikil spurn eftir sýningu á téð- um verkum. „En ég er svo heppin að eiga rétt á að gera það sem mig langar sjálfa. Og í þetta sinn kom það til af því að ég settist niður með kaffibolla með vini mínum Erro frá Íslandi, sem stakk upp á þessu og ég féllst á það. Nú svo vildi ég halda loforðið. Lof- orðið við hann, við Íslendinga og mig sjálfa. Svo einfalt er það.“ Talið barst að bónda hennar. „Pablo vann alveg fram á síðasta dag, þegar hann var orðinn 92ja ára gam- all. Alltaf jafn afkastamikill og frjór, ég held að ekki megi finna í verkum hans seinustu tvö árin neina endur- tekningu á því sama. Hann vann án afláts, eins og ungur maður, og síð- ustu árin gat hann einbeitt sér betur en nokkru sinni. Hann hafði svo mikla sálarró, sem gerði honum fært að vinna svona vel og lengi. Það var alveg ótrúlegt.“ Rúmum fjórum mánuðum eftir komu sína á Listahátíð svipti Jacq- ueline Picasso sig lífi. Verkin segja allt Einn af forsprökkum hugmyndalist- arinnar, Lawrence Weiner, kom á Listahátíð 2000 og notaði tækifærið til að færa Háskólanum á Akureyri verk að gjöf. Við þá athöfn kom fram að yfirlýst stefna Weiners væri að færa listina út til hins almenna manns, út úr þeim fílabeinsturnum þar sem henni væri oftast fundinn staður. Það væri í fullkomnu sam- ræmi við það meginhlutverk skólans að veita almenningi aðgang að æðri menntun. Weiner sagði að stærsti kosturinn við að nota orð í skúlptúra væri sá að hann þyrfti þar fyrir utan ekki að segja mikið, því verkin segðu allt. Hann lét þess þó getið að hann hefði ekki orðið sá maður sem hann væri án bóka og að listaverkum á borð við hans væri ekki ætlað að kenna fólki eitt eða neitt, heldur einfaldlega að vera til staðar svo það gæti lært sjálft. Nútíma Jesús Kristur Hinn umdeildi Jeff Koons kom á Listahátíð 2004. Þóroddur Bjarnason blaðamaður spurði hann m.a. um verkið fræga „Michael Jackson og Bubbles“, sem var á sýningunni. „En ástæða þess að ég vann með Michael í Hversdagsleika-sýning- unni var að ég vildi að fólk myndi frelsast, þ.e. verða frjálst til að við- urkenna að þeir hlutir sem komu úr dægurmenninguni væru góðir og gildir sem menning og viðurkenna fyrir sjálfum sér að allt sem þú upp- lifir er fullkomið. Á sýningunni voru margar aðrar höggmyndir sem voru svona myndlíkingar, eins og til dæmis var höggmynd af Buster Keat- on ríðandi á smáhesti myndlíking fyrir Jesú að ríða inn í Jerúsalem. Michael Jackson var þarna sem yf- irlýsing um stórstjörnumenninguna og hvernig við blásum stjörnurnar upp. Hann var þarna sem einskonar nútíma Jesú Kristur. Hann minnti mig líka á egypska faraóinn Tut- ankhamun, en saga hans er átakanleg eins og saga Jacksons. Það er sorglegt hvað við leggjum mikið upp úr dýrk- un á fræga fólkinu en þetta hefur að gera með hið innra og ytra sem ég talaði um hér á undan.“ Af öðrum myndlistarmönnum sem átt hafa verk á Listahátíð í Reykjavík gegnum tíðina má nefna Andres Serrano, André Masson, Andy War- hol, Bruce Nauman, Cindy Sherman, Donald Judd, Edward Munch, Francisco Goya, Ilya Kabakov, Louise Bourgeois, Marc Chagall, Matthew Barney, Max Ernst, Miro, Richard Serra, Roni Horn, Spencer Tunick og Ólaf Elíasson. Lawrence Weiner afhendir Þorsteini Gunn- arssyni rektor HA verk eftir sig árið 2000. Jeff Koons sumarið 2004. Í bak- grunni eru Jackson og Bubbles. Hafði svo mikla sálarró Rithöfundar hafa ekki verið tíðir gestir á Listahátíð enda hefur Bókmenntahátíð í Reykjavík séð um að svala þorsta bókelskra. Stór nöfn hafa eigi að síður heiðrað hátíðina með nærveru sinni. Þannig var Doris Lessing gest- ur Listahátíðar árið 1986. Efnt var til dagskrár Nóbelsverðlauna- hafanum til heiðurs í Iðnó, þar sem Kristbjörg Kjeld og Arnar Jónsson lásu úr verkum Less- ing og Magdalena Schram talaði um verk hennar. Sjálf steig Lessing í pontu og var „áheyrileg og skilmerkileg og vanga- veltur hennar um skáldsöguna mjög fróðlegar svo og áhrif upplýsingamiðla á bókmenntir síðustu ára sérstaklega“, að dómi Jóhönnu Kristjónsdóttur sem ritaði umsögn um dag- skrána í Morgunblaðið. Jóhönnu þótti sviðið í Iðnó á hinn bóg- inn snautlegt og nöturlegt og umræður á eftir erindi Lessing of langar. Annað nóbelsskáld, Seamus Heaney, kom fram á Listahá- tíð 2004. Pétur Blöndal, blaðamaður Morgunblaðsins, bað hann um ráð handa ungum skáldum sem væru að byrja að hasla sér völl. „Lesið skáldin sem vekja ykkur til lífsins, hvort sem þau njóta almennrar virðingar eða ekki. Lesið skáldin sem þið virðið og vitið að eruð betri en þið. En ekki vera of hrokafull til að lesa skáldin, sem þið vitið innst inni að eru ekki svo góð, en veita ykkur samt innblástur. Á þann veg fáið þið ef til vill bæði sjálfstraust og örvun. En þegar allt kemur til alls, þá mun reynsla annarra ekki gera ykkur mikið gagn,“ svaraði Heaney. Í samtalinu upplýsti Heaney að hann notaði ekki tölvupóst. „Ég hef enga þörf fyrir að heyra frá fólki sem vill ná tali af mér. Mér skilst að með tölvupóstfang sé maður varnarlaus. Fólk geti dælt inn skilaboðum. Ég hef engan áhuga á því að fá boð um að fara neitt, ég vil ekki beiðnir um viðtöl, ég vil ekki fyr- irspurnir frá nemendum. Í hvert skipti sem ég svara ekki, þá er ég sekur. Aðferðir nítjándu aldar myndu alveg duga mér.“ Nóbelsskáldið Seamus Heaney kom árið 2004. Doris Lessing kom á Listahátíð 1986. Hér er hún ásamt hjónunum Birgi Sigurðssyni og Elsu Stefánsdóttur. Lesið skáldin sem vekja ykkur til lífsins mann Morgunblaðsins en lét þess getið að sig hefði lengi langað til þess að koma til Ís- lands og því þegið boð Listahátíðar með þökkum. Hápunkturinn á Listahátíð 1980 voru tónleikar ítalska tenórsöngvarans Lucianos Pavarottis ásamt Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. „Það var ekki aðeins að Ashkenazy hvetti mig, hann beinlínis skipaði mér að fara til Íslands og syngja þar,“ sagði Pav- arotti við Morgunblaðið. Talið barst að holdafari og Pavarotti árétt- aði að hann væri alls ekki of feitur „og það er útbreiddur misskilningur að söngvarar verði að vera feitir. Þeir verða hins vegar að vera þéttbyggðir, eins og íþróttamenn, til að hafa eitthvað til að styðjast við“. Og hananú! Í samtalinu kvaðst Pavarotti eiga fimm góð ár eftir sem söngvari. Þau urðu all- nokkru fleiri. Seint verður sagt að Listahátíð í Reykja- vík hafi sniðgengið djassgeggjara gegnum tíðina en fjöldinn allur af djasstónlist- armönnum í fremstu röð hefur stungið við stafni á hátíðinni. Goodman ætlaði í lax Elín Pálmadóttir blaðamaður lýsti Benny Goodman sem hlýlegum og broshýrum eldri manni en meistari sveiflunnar var orðinn 67 ára þegar hann kom á Listahátíð 1976. „Nú er ekki skroppið í 52. götu til að taka lagið, eða hvað?“ spurði Elín. „Nei, það er næstum búið að vera,“ svaraði Goodman um hæl. „Sjálfur fer ég þangað aldrei. Það er of seint á kvöldin fyrir mig nú orðið.“ Í samtalinu kemur fram að Goodman var mikill áhugamaður um laxveiðar og eftir tónleikana hugðist hann renna fyrir lax norður í Víðidalsá með Ingimundi Sig- fússyni. Morgunblaðið spurði Oscar Peterson að því á Listahátíð 1978, þegar hann lék með Niels-Henning Ørsted Pedersen, hvaða tilfinningar hann vildi vekja hjá áhorf- endum. „Aðeins þær tilfinningar sem tón- listin vekur hjá þeim hverjum og einum, stundum gleði og stundum kannski of- boðlitla sorg. Ef þetta tekst er ég ánægð- ur.“ Dave Brubeck var orðinn 65 ára þegar hann stakk við stafni á Listahátíð 1986. Í samtali við Morgunblaðið fyrir tónleikana gaf hann ekki upp hvað yrði leikið. „Þeir sem ákveða slíkt fyrirfram ættu að snúa sér að sígildri tónlist.“ Herbie Hancock, sem kom á sömu hátíð, var ekki heldur búinn að ákveða efnisskrána þegar Morgunblaðið hitti hann að máli. Á tónleikunum spilaði hann einn á órafmagnað píanó. „Það er heldur óvanaleg reynsla fyrir mig að halda tón- leika sem þessa, ég hef aðeins gert það fimm sinnum áður. Ég er því mjög spenntur sjálfur að sjá hvernig þeir verða,“ sagði Hancock. Meðan Hancock var staddur hér á landi náði Morgunblaðið frægri mynd af honum á Austurvelli. ’ Talið barst að holdafari og Pavarotti árétt- aði að hann væri alls ekki of feitur „og það er útbreiddur mis- skilningur að söngv- arar verði að vera feitir. Þeir verða hins vegar að vera þétt- byggðir, eins og íþróttamenn, til að hafa eitthvað til að styðjast við.“

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.