SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 43

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Blaðsíða 43
31. janúar 2010 43 L öngum hefur sá leikur lokkað í samskiptum kynjanna að bregða sér í hlutverk einhvers annars. Þykjustuleikur getur tekið á sig ýmsar myndir og misjafnt hversu langt fólk gengur í þeim efnum. Sumir láta duga að leika saman maður á mann heima í svefnherbergi á meðan aðrir fara út fyrir veggi heimilisins, jafnvel til útlanda. Pör eiga það til að krydda sínar utanlands- ferðir með því að skipta um nafn, starf, þjóðerni og persónu- leika (í huganum), hittast svo eins og tveir ókunnir ein- staklingar á ákveðnum stað og kynnast hvort öðru. Leika leikinn alla leið. Endar sá spuni oftar en ekki í lostafullum kynlífsathöfnum á óvæntum stað og ekki ólíklegt að fólk uppgötvi alveg nýja hlið á makanum. Mikil ögrun og skemmtun getur falist í því að halda sér í karakter í slíkum leik og spinna framvinduna jafnóðum. Þetta er tilvalin leið til að blása nýju lífi í langtímasambönd. Svo eru það pörin sem ganga enn lengra og sækja í myrkra- herbergin svokölluðu, en slík lastabæli finnast um víða ver- öld. Þá fer fólk inn í ákveðið rými sem er svo myrkvað að engin leið er að sjá eða þekkja það fólk sem þar er fyrir. Þá er kikkið fólgið í því að vita hvorki hver snertir þig og kyssir, né hvern þú snertir og gælir við. Ókunnugleikinn og nafnleysið er algjört. Í myrkraherbergjum þessum er fólk ekki lengur persónur heldur iðandi skrokkar. Sjónleysið gerir það að verkum að þetta getur verið heppi- legt fyrir þá sem vegna útlits komast sjaldan í nána líkamlega snertingu við aðra mannveru. Þó má gera ráð fyrir að flestir þeirra sem sækja í þennan sódómíska vettvang séu þar af öðr- um ástæðum. Og öruggt má teljast að lítt verður þeim ágengt í þessum ormagryfjum sem þrá að mynda djúp tilfinn- ingatengsl við einhvern. En það eru ekki allir að leita að því sama og margar og ólík- ar hvatir liggja sjálfsagt að baki heimsókn fólks í myrkra- herbergi, hvort sem það eru einhleypingar eða pör. Ekki víst að öllum líki að renna til í sæðisslettum ókunnugra og láta hvaða hendur sem er káfa á sér. Sódóma-Gómorra er ekki fyrir alla. En snúum okkur aftur að búningum og hlutverkaleikjum. Hún er merkileg þessi þörf mannfólksins fyrir að bregða sér í allra kvikinda líki, að máta sig við hin ýmsu hlutverk. Vissulega finnast margar og ólíkar manneskjur í hverjum og einum og augljóst að aðeins örfáar þeirra fá að njóta sín yfir ævidagana. Kannski er það bara sjálfsögð skemmtun að leyfa einni og einni af þessum sem leynast fyrir innan skinn, að gægjast út um stundarsakir öðru hvoru. Margir gera sér ferð suður til hennar Ítalíu á þessum árs- tíma, nánar tiltekið til Feneyja, til að taka þátt í árlegu karni- vali sem þar stendur yfir í nokkra daga samfleytt í febrúar. Þetta er mikil og litrík hátíð sem meðal annars dregur að sér þá sem hafa unun af því að klæða sig í framandi búninga og fela sig á bak við grímur. Skipta jafnvel um kyn. Skella sér svo á dansleik þar sem enginn veit hver er hver og hvur er hvurs. Í skjóli grímunnar er líka hægt að gera ýmislegt sem annars væri alls ekki samþykkt. Aðrir bregða sér til Brasilíu í kringum páskana til að njóta ótal hörundsdökkra dillibossa sem spranga klæðlitlir þar um götur á kjötkveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro. Allt snertir þetta eitthvað inni í okkur sem tengist kynlífi á einn eða annan hátt. Og gleymum ekki karlmennskuímynd júníformsins sem dátarnir klæddust á hernámsárunum. Þau klæði áttu ekki lít- inn þátt í því að íslenskum konum hitnaði verulega að innan. Þær lágu nánast í öngviti af sælu við það eitt að horfa. Með eða án grímu? Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is Gatan mín B jörn Brynjúlfur Björnsson kvikmynda- gerðarmaður hefur búið á Túngötu sl. 14 ár. „Þegar ég var ungur maður bjó ég hérna neðar í götunni, raunar ekki á Túngötu heldur hinum megin við Bræðraborg- arstíg þar sem gatan heitir Holtsgata. Ég bjó þar rétt við hornið þannig að ég á mér langa sögu í götunni. Eftir að Landakotstúni sleppir sveigir Túngatan til vinstri og niður að sjó en það er ekki Túngata sem tekur þar við heldur fer gatan í hlykk. Ég bý í þeim enda og það er í raun allt önn- ur Túngata enda tengi ég hana frekar við Holtsgöt- una sem er svo framhald hér niður úr þótt hún heiti öðru nafni. Það er ekki alveg sama um hvora Túngötuna maður talar. Hinum megin á Túngöt- unni er meira af sendiráðum og þar er í raun allt önnur stemning.“ Róleg gata Túngatan er í grónu hverfi og því er lítið sem þar hefur breyst síðan Björn var ungur. „Ég held að gatan hafi á ytra byrðinu ekki breyst mikið á þess- um tíma. Auðvitað hrörnar sumt og annað er byggt upp og lagað. En lífið hefur náttúrlega breyst hjá mér frá því ég var hér sem barn og þangað til ég bý hér sem fullorðinn maður. Að því leyti hefur auðvitað allt breyst, hvernig maður horfir á húsin og á hlutina.“ Spurður hvað honum hafi þótt svo heillandi við Túngötuna að hann vildi flytja þangað aftur á full- orðinsárum nefnir Björn að uppeldið þar hafi haft mest um það að segja. „Er það ekki einhver inn- byggð, mannleg stilling sem við ráðum ekki við, að vilja helst búa þar sem maður er alinn upp? Svo er gatan nálægt bænum án þess þó að vera of ná- lægt. Þetta er róleg gata og hér eru engin partí. Ef maður fer í göngutúr getur maður gengið í gamla kirkjugarðinn og Hljómskálagarðinn. Maður getur notið þess sem miðbærinn hefur upp á að bjóða, sem er auðvitað margt, en þetta er samt ekki ofan í bænum,“ segir hann. Björn segir hús í fúnkisstíl vera öðrum megin við Túngötuna en hinum megin glæsileg og falleg „rjómatertuhús“. Sunnanmegin, þar sem hann býr, sé samfelld göturöð. „Götumyndin er mjög falleg og sérstök í Reykjavík og það þarf að passa vel upp á hana. Gráu fúnkishúsin eru nánast eins og hamraveggir, sérstaklega séð frá götunni, en opnast í garða sem eru töluvert lægri en húsin hinum megin því gatan er efst í brekku. Það er ansi skjólgott og fínt hér bak við húsin en það sést ekki frá götunni. Í raun snúa húsin þangað en ekki að götunni. Útsýnið er því ansi gott.“ Þessi frásögn Björns af útsýninu minnir hann á sögu sem hann heyrði um muninn á Íslendingum og Kínverjum þegar kemur að því að skoða hús. „Þegar Íslendingur skoðar hús þá horfir hann á húsið, gengur í kringum það og skoðar að innan. Hann hefur ákveðna mynd af húsinu; það er fal- legt, sérstakt og fínt og hann er ánægður með það. En þegar Kínverji skoðar hús gengur hann inn í húsið og horfir út um gluggana og athugar hvað hann sér þar og metur húsið eftir því. Hann horfir ekki á húsið heldur út úr húsinu. Það er auðvitað eina rétta leiðin til að líta á málið, eða a.m.k. ann- að sjónarhorn sem maður ætti að hafa í huga. Og útsýnið er sérlega gott hér á Túngötunni.“ ylfa@mbl.is Morgunblaðið/RAX Á sér langa sögu í götunni Túngata Su ðu rg at a 1 2 3 4 Æ gi sg at a G ar ða st ræ ti Hringbraut Hávallagata Tryggvagata VesturgataRánargataBárugataÖldugata Sólvallagata Br æ ðr ab or ga rst ígu r Vonarstræti 1 Brávallagata, þar býr dóttir mín með tveimur barnabörnum mínum. 2 Það er mjög skemmtilegt að ganga um í gamla kirkjugarðinum. 3 Pétursbúð heldur uppi merki kaupmannsins á horninu. 4 Það er fínn sparkvöllur við gamla sjómannaskól- ann á Öldugötu. Þær eru ófáar ferðirnar sem við feðgarnir höfum farið þangað í fótbolta í gegnum tíðina. Uppáhaldsstaðir Björns í hverfinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.