SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 44

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 44
44 31. janúar 2010 Í Bretlandi tala menn nú mikið um stúlkuna Coco Sumner, sem heitir reyndar fullu nafni Eliot Pauline Sumner. Eins og eftirnafnið gef- ur til kynna er hún dóttir tónlistarmannsins Stings, en móðir hennar er Trudie Styler. Það þótti fréttnæmt þegar Coco gerði út- gáfusamning við Island-gáfuna í hittifyrra, enda hafði lítið heyrst til hennar á tónlist- arsviðinu. Stúlkan hefur víst setið sveitt við að semja lög og hljóðrita í Svíþjóð og nú loks er fyrsta smáskífan, Caesar, væntanleg. Sú kemur út á morgun og þá kemur í ljós hvað Island-menn voru að kaupa. Hver er Coco Sumner? Coco Sumner syngur um flugnahöfðingjann á fyrstu smáskífu sinni. Spiritualized á tónleikum í Svíþjóð 2008 skömu eftir að Songs in A&E kom út. Rokkhátíðin All Tomorrows Parties verður haldin í byrjun maí og dagskráin tekur óðum á sig mynd, en umsjónarmaður hennar þetta árið er Matt Groening, faðir Futurama og Simpson-fjölskyldunnar. Nú síðast fréttist að rokksveitin geðþekka Spiritualized myndi flytja meistaraverk sitt, Ladies and Gentle- men We Are Floating in Space. Af öðrum sem þátt taka í hátíðinni má nefna Iggy & The Stooges, Built To Spill, Deerhunter, Daniel Johnston, The Resi- dents, Juana Molina, Konono N°1 og Amadou and Mariam. Ekki er uppselt á há- tíðina, því eitthvað er enn eftir af dýrustu miðunum. Upprifjun hjá Spiritualized á ATP Það var mikið fjör í músíkinni hjá menntaspírum Englands um miðjan sjöunda áratuginn. Rokkið hafði slegið í gegn meðal verkalýðsins og lægri miðstéttar en þeir sem menntaðri voru og frá stöndugum heimilum leituðu í aðra músík, hlustuðu á amer- ískan djass og framúrstefnurokk. Þegar þeir svo tóku til við að spila sjálfir varð til skemmtileg blanda af súru rokki og djass- kenndum spuna eins og til að mynda hjá þeirri ágætu hljómsveit Soft Machine. Margir helstu tónlistarmenn breskrar framúrstefnu komu við í Soft Machine í lengri eða skemmri tíma þá rúmu tvo ára- tugi sem sveitin starfaði, en upphafsmenn hennar voru þeir Robert Wyatt, Kevin Ayers, Daevid Allen og Mike Ratledge. Fyrsta skífa sveit- arinnar er iðulega talin með tímamótaverkum í bræðings- djassi, en að þessu sinni beinist athyglin að þriðju plötunni sem hét einfaldlega Third og á fer- tugsafmæli í vor. Þegar upptökur hófust á Third í apríl 1970 var sveitin skipuð þeim Robert Wyatt á trommur, Mike Ratledge á hljómborð, Hugh Hopper á bassa og Elton Dean á saxófón, en Dean var þá nýlega genginn til liðs við sveitina. Á Third eru bara fjögur lög á frumútgáf- unni, sem var tvöföld vínylplata, eitt lag á hverri plötuhlið, um tuttugu mínútur hvert. Ratledge á tvö lög, Hopper eitt og Wyatt eitt. Það lag stingur nokkur í stúf við annað á skífunni því Wyatt syngur talsvert í því, en þeir félagar hans, aðallega Ratledge, voru ekki spennir fyrir söng- músík. Þetta varð og það síðasta sem Wyatt samdi fyrir sveitina og hann hætti svo rúmu ári síðar eftir að næsta plata, Fo- urth, kom út. Eins og heyra má á Third var Soft Mach- ine mögnuð sveit og enn magnaðri með Elton Dean innanborðs því hann var framúrskarandi saxófónleikari. Hann á líka afbragðsspretti á skífunni og eins er framlag Wyatts merkilegt, og þá ekki bara fyrir lagið sem hann á á plötunni, heldur er trommuleikur hans gríðarskemmti- legur og lifandi. arnim@mbl.is Poppklassík Soft Machine – Third Súr djasskenndur spuni H var varst þú þegar Lennon var myrtur? Hvar varstu þegar tví- buraturnarnir féllu? Hvar varstu þegar þú kynntist Midlake? Fyrir mér eru þetta spurningar af svip- uðum meiði, þótt vitanlega séu viðburðir þessir algjörlega ósambærilegir, að eðli og stærð. Ég man nefnilega gjörla hvar ég var þegar ég kynntist Midlake í fyrsta skiptið. Þetta segir svolitla sögu um þann sess sem þessi hljómsveit skipar í huga tónlistar- áhugamanna. Ja, að minnsta kosti þess sem þetta ritar. Þetta var sumarið 2006. Á þessum tíma bjó ég einn í tveggja herbergja íbúð á Berg- þórugötu, fjölskyldulaus blaðamaður á Við- skiptablaðinu. Á nóttunni horfði ég á sjón- varpið. Þar staðnæmdist ég gjarnan við norsku stöðina NRK2. Á henni voru sýnd tónlistar- myndbönd á nóttunni, oft með ferskum og flinkum tónlistarmönnum; norskum og ekki norskum. Eitt alls ónorskt lag, með ónorskri hljóm- sveit, vakti mikla forvitni mína. Þar var á ferðinni sveit sú er hér er til umfjöllunar, Midlake. Lagið var „Young Bride“. Ég varð mér snarlega úti um hina ónorsku plötu sveitarinnar, sem þá var reyndar ekki komin formlega út, The Trials of Van Occupanther. Platan sú heltók mig undir eins. Ég veit ekki hversu oft ég spilaði hana á næstu mán- uðum; líklega mörg hundruð sinnum, án þess að fá á henni minnsta leiða. Tónlistin var margslungin en um leið grípandi og tilfinn- ingarík. Það fyrsta sem kom í hugann voru tónar áttunda áratugarins – til að mynda minnti stef lagsins Roscoe mjög á upphafslag MASH-þáttanna gömlu og góðu. Það er þess vegna kaldhæðni örlaganna að Noregur skuli hafa leikið lykilhlutverk í að færa mér þessa stórkostlegu hljómsveit. Dá- læti mitt á Noregi er lýðum ljóst en það dálæti er blandað þónokkru fálæti því aðdáun mín á norskri þjóð er ekki alls kostar fölskvalaus. Palladómur og alhæfing mín um norska þjóð er þessi: Norðmenn eru leiðinlegir snillingar. Hvað sem því líður kom ég tónunum sam- stundis á framfæri við Árna Matthíasson sem enn var auðvitað mikill vinur minn þótt ég hefði yfirgefið Morgunblaðið um stund. Hann kom boðskapnum snarlega á framfæri við hina íslensku þjóð sem hafði ekki hugmynd um lykilhlutverk hinna norsku sáttasemjara í því afreki. Enda er hætt við því að Íslend- ingar hefðu ekki tekið Midlake þeim opnu örmum sem raunin varð hefðu þeir vitað af því. Midlake frá Noregi Kynni af Texas-sveitinni Midlake eru ævintýri, með hánorsku ívafi. Það vita ekki margir Íslendingar. Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is Eftir hina frábæru The Trials of Van Occupanther árið 2006 er nú komið meistaraverkið The Courage of Others. Á morgun kemur þriðja stóra plata Midlake, The Courage of Others. Á henni taka Mið- vatnsmenn skarpa beygju í áttina til engilsaxneskrar þjóðlagatónlistar, án þess þó að glata sérkennum sínum. Platan er nokkuð þung- lamaleg og seintekin. Við fyrstu hlustun virðist ekki vera mikill munur á lagasmíð- unum, en þegar platan hefur fengið að rúlla nokkrum sinn- um koma töfrarnir í ljós. Tim Smith og félagar hafa náð hinu óhugsandi takmarki, að gera betur en síðast. „Winter Dies“ og „Bring Down“ eru há- punktar þessa mikla meist- araverks. Hugrekki The Courage of Others. Meistara- verk #2 Tónlist Margir bíða næstu plötu söngkonunnar Jo- anna Newsome með öndina í hálsinum, enda er komið á fjórða ár síðan platan magnaða Ys kom út. Nú hillir loks undir út- gáfu á nýrri skífu og það engan smáskammt af músík því platan, Have One On Me, verður þreföld, þ.e. þrír diskar af tónlist, nú eða þrjár vínylskífur = sex plötuhliðar fyrir þá sem enn hlusta á slíkt. Hægt er að heyra eitt lag af plötunni á vefsetri Drag City, lagið 81, en hún kemur annars út 23. febrúar. Söngkonan snjalla Joanna Newsome. Sex plötuhliðar af Joanna Newsome

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.