SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 45
31. janúar 2010 45
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Næstu sýningar sjá á heimasíðu Borgarleikhússins
www.borgarleikhus.is
síðustu sýningar
31. jan. og 6. og 7. feb.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
„Besta leiksýning ársins“
Mbl., GB
Mbl., IÞ
Uppl. um sýningar og miðasala 551 1200 www.leikhusid.is
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Endalaus - Febrúarsýning2010 (Stóra sviðið)
Fim 4/2 frums. kl. 20:00
Sun 7/2 kl. 20:00
Sun 14/2 kl. 20:00
Sun 21/2 kl. 20:00
Sun 28/2 kl. 20:00
Sun 7/3 kl. 20:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar
(Söguloftið)
Sun 31/1 kl. 16:00
Brúðarræninginn (Söguloftið)
Lau 30/1 kl. 20:00
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Ufsagrýlur (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fös 5/2 kl. 20:00 U
Sun 7/2 kl. 20:00
Fim 11/2 kl. 20:00
Sun 14/2 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Hádegistónleikar Óp-hópsins með Hrólfi
Sæmundssyni
Þri 23/2 kl. 12:15
Miðaverð aðeins 1.000 kr. !
Hellisbúinn
Lau 6/2 kl. 20:00
Vinsælasti einleikur allra tíma!
Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks
Lau 30/1 frums. kl. 13:00 U
Lau 30/1 2. sýn. kl. 16:00 Ö
Sun 31/1 3. sýn. kl. 13:00
Sun 31/1 4. sýn. kl. 16:00
Sun 7/2 5. sýn. kl. 13:00
Sun 7/2 6. sýn. kl. 16:00
Lau 13/2 7. sýn. kl. 13:00
Lau 13/2 8. sýn. kl. 16:00
Sun 14/2 9. sýn. kl. 13:00
Sun 14/2 10. sýn. kl. 16:00
Ein af skemmtilegustu fjölskyldusýningum landsins!
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands, birtist lands-
mönnum oft í fjölmiðlum sem álitsgjafi um pólitísk
mál. Flestir kannast við að hafa lesið viðtal við hann
í blöðunum eða séð hann í sjónvarpinu þar sem
hann ræðir um allt frá persónukjöri til ákvörðunar
Ólafs Ragnars Grímssonar um að synja Icesave-
lögunum staðfestingar. Það sem færri vita er að
Gunnar Helgi spilar á harmónikku með hljómsveit-
inni Spöðum og hefur gert undanfarin 27 ár.
Spila það sem þeim dettur í hug
„Upphaflega spilaði ég á melódikku því ég átti ekki
harmónikku. Melódikkan er hinsvegar ákaflega
takmarkað hljóðfæri svo það var gott að skipta yfir í
harmónikkuna,“ segir Gunnar Helgi. Áhuginn
kviknaði á menntaskólaárunum. „Við strákarnir
vorum þá stundum að spila í einhverjum hljóm-
sveitum. Ég spilaði á píanó en svo voru ekki píanó
alls staðar svo það var þægilegt að geta haft harm-
ónikkuna, sem er auðflytjanleg. Við fengum lánaða
harmónikku og svo fékk ég lánað til að kaupa
harmónikku, sem bjargaði málinu fyrir mig á þess-
um tíma, en maður var í námi og hafði ekki mikla
peninga.“
Tónlistin sem Spaðar spila er afar fjölbreytt. „Það
er varla hægt að segja að það sé heil brú í tónlistar-
vali Spaða. Við spilum bara það sem okkur dettur í
hug að spila þá stundina. Það getur verið allt frá
blús yfir í klezmer-tónlist, kántrí, franska eða írska
tónlist, og svo bara heimasmíðað efni sem er sífellt
fyrirferðarmeira.“ Spaðar æfa einu sinni í viku.
„Þetta er eins og vel stabilíseraður saumaklúbbur,“
segir Gunnar Helgi.
Félagslegt fyrirbæri
Spaðar koma sjaldan fram og hafa reynt að halda
eitt stórt ball á hverju ári. „Það hefur verið vel
lukkað en við viljum ekki ofnýta þessi mið. Ég veit
ekki hvort fólk endist að mæta á mörg böll með
okkur.“ Aðspurður segir Gunnar Helgi nauðsynlegt
að eiga sér áhugamál sem er ólíkt vinnunni. „Það er
mjög félagslegt að vera í hljómsveit. Einnig er gam-
an að gera eitthvað annað en það sem maður er allt-
af að gera í félagslífinu, brjóta upp tilveruna.
Ánægjan er mjög tengd því, tónlistin er auðvitað
partur af þessu en ekki endilega aðalatriðið.“
ylfa@mbl.is
Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands er liðtækur á harmónikkuna.
Morgunblaðið/Ómar
Hin hliðin
Á harmónikku í Spöðum
I
llmenni íþróttaheimsins
hafa ætíð þótt áhugaverð og
mikið verði skrifað um
íþróttakappa á borð við O.J.
Simpson og Mike Tyson. Ein
frægasta konan sem hampað hef-
ur illmennatitlinum er án efa
skautadrottningin, nú eða norn-
in, Tonya Harding. Hún steig
fyrst á skauta aðeins fjögurra ára
gömul og vakti fljótt athygli
vegna hæfileika sinna. Að sögn
Harding sætti hún ofbeldi af hálfu
móður sinnar í æsku en móðirin
hefur ætíð neitað þeim ásök-
unum. Hún flosnaði upp úr skóla
á unglingsárum og gifti sig aðeins
19 ára gömul. Hún klifraði fljótt
og örugglega upp metorðastiga
skautaheimsins og varð fyrst
bandarískra kvenna til að ná full-
komnum þreföldum Axel, sem er
álitið eitt erfiðasta stökkið á list-
skautum. Hún varð Bandaríkja-
meistari árið 1991 og ferill hennar
náði það ár hæstu hæðum. Frá og
með þeim tíma virtust vand-
ræðalegar fregnir af Harding
verða daglegt brauð. Hún mætti
of seint á stórmót, seinna hætti
hún í miðri keppni og sagði
skauta sinn of lausan og enn síðar
kvaðst hún ekki geta keppt vegna
kviðverkja. Þessar fréttir blikn-
uðu þó þegar upp komst að Har-
ding hefði átt í þátt í því að ráðist
var á helsta keppinaut hennar,
Nancy Kerrigan, á bandarísku
meistaramóti á skautum. Eig-
inmaður Harding og lífvörður
réðu mann til að brjóta hnéskeljar
Kerrigan, sem í kjölfarið þurfti að
hætta keppni vegna meiðsla.
Harding hylmdi yfir með eig-
inmanni sínum og lífverði og
hampaði sigri á þessu sama móti.
Vegna þessa atburðar var Har-
ding vikið úr Ólympíuliðinu og
skautaferli hennar svo að segja
lokið og ferill hnignunar hafinn.
Ekki löngu seinna lak út kyn-
lífsmyndband með Harding og
fyrrverandi eiginmanni hennar,
hún var „púuð“ niður af sviði þar
sem hún kom fram ásamt hljóm-
sveit sinni, hún keyrði á tré og
hljóp af vettvangi og seinna var
hún tekin fyrir að keyra undir
áhrifum. Eftir nokkrar mis-
heppnaðar tilraunir til end-
urkomu í skautaheiminn lagði
hún skautana á hilluna og batt á
sig boxhanska. Boxferillinn stóð
aðeins yfir í tvö ár eftir þrjá sigra
og jafnmarga ósigra. Í síðasta
bardaganum var enn og aftur
„púað“ þegar Harding steig inn í
hringinn og virtust áhorfendur
ekki geta litið fram hjá Kerrigan-
atvikinu. Harding kvaðst ekki
geta haldið áfram í boxinu sök-
um astma, lagði boxhönskunum
og tók skautana fram aftur. Í dag
kennir hún börnum listir á ísn-
um og kemur stöku sinnum fram
sjálf. Það efast enginn um að To-
nya Harding er mikil íþróttakona
og gæti eflaust lagt fyrir sig hvaða
íþrótt sem væri með góðum ár-
angri ef tekið er mið af getu
hennar í listskautum og boxi,
eins ólíkar íþróttagreinar og þær
eru. Þrátt fyrir það er harla ólík-
legt að henni verði nokkru sinni
fyrirgefið að hafa lagt á ráðin að
eyðileggja feril keppinautar síns
og flestir tengja enn þann dag í
dag nafn skautanornarinnar við
nafn Nancy Kerrigan skauta-
drottningarinnar.
signyg@mbl.is
Tonya Harding í dag.Harding á hátindi feril síns.
Hvað varð um …
Tonya
Harding?