SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 47

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Page 47
31. janúar 2010 47 LÁRÉTT 1. Rámur fær skriffæri fyrir mikið afl rafmagns. (8) 4. Mæður sem fá blóm? (7) 8. Lita anda vegna röksemdarfærslna. (11) 11. Svipuð föt á látna. (8) 13. Hver einasta ung verður ljúflingur. (10) 15. Niður við úthellingu í átt. (9) 16. Stórar fá sótthreinsunarefni frá yfirmönnum. (7) 17. Fleti vill mögulega gera. (2,3,4) 19. Tré hjá báli fyrir það sem menn lifa á. (9) 22. Fá sár og hviðu við að afmarkast. (10) 25. Krydd skógardýrs? (11) 27. Fjörugrös gera hana líflega. (6) 28. Leikur sem sem hljómar eins og upphæð. (9) 29. Sést til speldisins á endanum. (7) 31. Ó, ekki gleyma tíma í góðu árferði. (8) 32. Ekki vitlausar umbætur. (11) 33. Miðaðist við að hreyfðist. (5) LÓÐRÉTT 1. Brjálaður án hugrænnar atferlismeðferðar? (8) 2. Frekar sáð einhvern veginn í skjali. (9) 3. Skartgripur á Snælandi. (4) 5. Maður sem rær tvisvar er margslunginn. (9) 6. Ærum með loki úr einhvers konar veðurtæki. (11) 7. Umyrðalaust tapar taum á því sem er óskemmt. (7) 9. Gjöri eðlu úr landsvæði. (9) 10. Eins mikið styrki jafna útkomu. (9) 12. Að slá varnagla vegna bókar frá Ásprenti. (7) 14. Kopar í leir. (3) 18. Afbrotamaður sem er alltaf í tröppum. (10) 20. Að brambolti loknu kemur uppáhald. (9) 21. Mér heyrist þekkt dýr þurfa tilbeiðslu. (6) 22. Stól látið fljóta næstum því á þessum tíma. (10) 23. Tekur afi einhvern veginn á digrum. (8) 24. Góður staður fyrir atkvæðagreiðslu? (10) 26. Lélegur hestur er kjánalegur án þess að egna nokkurn. (6) 30. Starf sem felst í rispu á efni. (6) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg- ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 31. janúar rennur út föstudaginn 5. febrúar. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 7. febr- úar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 24. janúar sl. er Ingveldur Gunnarsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Oliver Twist eftir Charles Dickens. JPV gefur út. Krossgátuverðlaun HJÖRVAR Steinn Grétarsson bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn þegar hann tryggði sér titilinn skákmeistari Reykjavík- ur 2010 með því að leggja Hall- dór Grétar Einarsson að velli sl. miðvikudagskvöld. Þar með var Hjörvar kominn með 7½ vinning úr átta skákum og útilokað að nokkur annar keppandi gæti náð honum en lokaumferðin fór fram á föstudaginn. Hjörvar Steinn vann einnig haustmót TR með viðlíka yfirburðum og sá eini sem markað hefur á hann í þessum tveimur mótum er Sig- urbjörn Björnsson. Hann hækk- ar um meira 30 elo-stig fyrir frammistöðuna sem reiknast upp á vel yfir 2.600 stig. Skákþingið nú er vel skipað og vel að því staðið af hálfu TR sem nýverið landaði samstarfssamn- ingum við leikjaframleiðandann CCP og MP banka. Ýmsir hafa greinilega mætt til leiks til að hita sig upp fyrir stórmót vetr- arins og má þar nefna þá sem koma næstir á eftir Hjörvari í 2.-4. sæti þá Björn Þorfinnsson, Ingvar Þ. Jóhannesson, Sig- urbjörn Björnsson en þeir voru allir með 6 vinninga. Bragi Þor- finnsson var með 5½ vinning ásamt nokkrum öðrum en fyr- irfram mátti búast við baráttu hans og Hjörvars um efsta sætið. Klaufaskapur Braga í lykilskák- inni við Hjörvar og síðar gegn Sverri Þorgeirssyni hlýtur að kenna þessum öfluga skákmanni að stundum er betri einn fugl í hendi en tveir í skógi. Mestri stigahækkun meðal keppenda fagna Örn Leó Jóhannsson og Tinna Kristín Finnbogadóttir. Ýmsar aðrar niðurstöður má lesa út úr mótstöflunni. Bjarni Jens Kristinsson virðist seint ætla að láta af þeirri venju sinni að sækja bróðurpart vinning- anna á lokasprettinum. Í átt- undu umferð mætti hann hinum þrautreynda meistara Hrafni Loftssyni sem hefur verið iðinn við kolann síðustu misseri eftir langt hlé. Sigur hans sýnir svo ekki verður um villst hversu margir sterkir skákmenn taka þátt í mótinu: Skákþing Reykjavíkur 2010; 8. umferð: Hrafn Loftsson – Bjarni Jens Kristinsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 a6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 b5 6. Bd3 Bc5 7. Rb3 Ba7 8. 0-0 Re7 9. De2 0-0 10. Be3 Rbc6 11. Bxa7 Hxa7 12. f4 Rb4 13. Df2 Hc7 14. Hfd1 Bb7 15. Rc5 Dc8 16. Rxb7 Dxb7 17. Bf1 Hfc8 18. a3 Rbc6 19. e5 Ra5 20. Hd2 h6 21. Bd3 Rc4 22. Bxc4 bxc4 23. Hb1 Hb8 24. g3 Rf5 25. Dg2 Db6+ 26. Df2 Da5 27. g4 Re7 28. De3 Hcb7 29. Hbd1 Hxb2 30. Re4 Rd5 31. Df3 c3 32. He2 Hb1 33. Hee1 Hxd1 34. Hxd1 Db6+ 35. Kh1 De3 36. Dxe3 Rxe3 37. Hc1 Hc8 38. Rd6 Hc5 39. h3 Ha5 40. He1 Rd5 41. f5 Hxa3 42. Hb1 f6 43. Hb8+ Kh7 44. Rf7 g6 45. Hb7 Ha1+ 46. Kh2 gxf5 47. gxf5 Hc1 48. Hxd7 Hxc2+ 49. Kg3 Hd2 50. fxe6 c2 51. exf6 Rxf6 52. Hc7 Rd5 53. Hc6 Hd3+ 54. Kg4 Hc3 55. Hxc3 Rxc3 56. e7 c1=D 57. e8=D Dd1+ 58. Kh4 Dd4+ 59. Kg3 Re4+ 60. Kf3 Df2+ – og hvítur gafst upp. Kramnik efstur á Corus-mótinu Miklar sviptingar hafa átt sér stað á Corus-mótinu í Wijk aan Zee og Vladimir Kramnik náði óvænt forystunni þegar hann sigraði Magnús Carlsen með svörtu í 9. umferð og er nú með 7 vinninga af 10 mögulegum. Alexei Shirov hefur misst flugið eftir að hafa unnið fimm fyrstu skákir sínar. Hann er þó í 2.-3. sæti ásamt Magnúsi en síðan koma Anand heimsmeistari, Na- kamura, Ivantsjúk og Dom- inguez með 5½ v. Mótinu lýkur um helgina. Hjörvar Steinn Grétarsson skákmeistari Reykjavíkur 2010 Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skák Nafn Heimilisfang Póstfang

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.