SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 53

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 53
31. janúar 2010 53 Eymundsson 1 Just Take My Heart - Mary Higgins Clark 2 The Girl Who Played With Fire - Stieg Larsson 3 Meltdown Iceland - Roger Bo- yes 4 Wolf Hall - Hilary Mantel 5 The Girl Who Kicked the Hor- net’s Nest - Stieg Larsson 6 Die For You - Lisa Unger 7 Whispers Of the Dead - Sim- on Beckett 8 The Complaints - Ian Rankin 9 Run For Your Life - James Patterson 10 Girl Missing - Tess Gerritsen New York Times 1 The Help - Kathryn Stockett 2 The First Rule - Robert Crais 3 The Lost Symbol - Dan Brown 4 The Swan Thieves - Elizabeth Kostova 5 The Last Song - Nicholas Sparks 6 I, Alex Cross - James Patter- son 7 Impact - Douglas Preston 8 Treasure Hunt - John Lescro- art 9 Noah’s Compass - Anne Tyler 10 Deeper Than the Dead - Tami Hoag Waterstone’s 1 The Lost Symbol - Dan Brown 2 The Girl with the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 3 Eclipse - Stephenie Meyer 4 New Moon - Stephenie Meyer 5 Twilight - Stephenie Meyer 6 Guinness World Records 2010 7 Breaking Dawn - Stephenie Meyer 8 True Blood Boxed Set - Char- laine Harris 9 The Girl Who Played with Fire - Stieg Larsson 10 Jamie’s America - Jamie Oli- ver Bóksölulisti Aðalbókin á náttborðinu hjá mér þessa stundina er Eneasarkviða eftir Virgil í þýðingu Hauks Hannessonar. Höfundurinn var fæddur á Ítalíu árið 70 f.Kr. og lést 19 f.Kr. Ég er í mjög skemmtilegum bókmenntaklúbbi sem er Bókmenntaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar en í hon- um var ákveðið að taka fyrir fornbókmenntir fram á vor- ið, sjá nánar www.hafnarfjordur.is/bokasafn/, Lestr- arfélagið framför. Í hverjum mánuði er lesin ein bók. Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur stýrir fundum og fjallar um höfundinn og verkið í upphafi fundar. Síðan er spjallað um bókina. Eneasarkviðu munum við taka fyrir á næsta fundi. Í janúar lásum við Ódysseifskviðu Hómers. Í þessum tveimur bókum er lýsing á Trójustríði frá sjónarhóli sig- urvegarans og hins sigraða. Eneasarkviða er svar Virgils og Rómverja við Hómerskviðum Grikkja. Sagan segir frá tilurð Rómaveldis. Hetjan Eneas, sonur Venusar, á að hafa sloppið úr eldinum þegar Trója brann til grunna og tekist að bjarga kjörgripum og húsgoðum Tróju til Ítalíu og stofna þar ríki er síðar varð Rómaveldi. Eneas Trójukappi ferðast um langan veg. Við taka ástarævintýri með Dídó Karþagódrottningu og aðrar raunir. Við samning kvið- unnar sótti Virgill víða fanga, auk munnmæla- og þjóð- sagna hagnýtti hann sér óspart rit eldri höfunda, bæði Grikkja og Rómverja. Hetjukviðan um Eneas er almennt álitin meginrit rómverskrar ljóðlistar. Dauði, trygglyndi og vinátta eru aðalminnin í Eneasarkviðu og samskiptum guða og manna er lýst og þau samofin. Frægustu kvið- urnar lýsa hruni Tróju, harmsögu Dídóar drottningar og för Eneasar á fund föður síns í undirheima. Virgill naut Ágústusar keisara sem gat rakið ættir sínar til Eneasar og þar með guðanna. Af því má sjá að mark- miðið með samningu Eneasarkviðu var hápólitískt. Skáldið treysti þar grundvöll Rómaveldis. Um aldir var Virgill talinn meginskáld fornaldar og höfuðskáld Róm- verja á fyrstu öld f.Kr. Kviðurnar hafa varðveist í allt- raustum handritum frá 4.-5. öld eftir Krist. Þeir sem vilja skilja samhengið í menningu síðustu 2500 ára ættu að lesa bækur Hómers og Virgils því í þeim er mikil dramatík, mikil list. Mikil dramatík, mikil list Eneas flýr frá Trójuborg. Mynd eftir Federico Barocci. Lesarinn Anna Sigríður Einarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar B andaríski rithöfund- urinn J.D. Salinger lést í vikunni, eins og hann hefur lifað síð- ustu hálfa öldina – hljóðlega. Hann var 91 árs gamall. Frægð Salingers byggðist á fáum en afar áhrifamiklum verkum. Skáldsögunni The Catcher in the Rye, sem kom út árið 1951, sagnasafninu Nine Stories, og tveimur öðrum bókum, en í hvorri voru tvær langar sögur um Glass fjöl- skylduna; Franny and Zooey og Raise High the Roof Beam, Carpenters and Seymour: An Introduction. Miklar vonir voru bundnar við Salinger eftir að hann kom fram á ritvöllinn, enda þótti hann slá alveg nýjan tón í bandarískum bókmenntum í The Catcher in the Rye, sem kom út hér í rómaðri þýðingu Flosa Ólafssonar árið 1975 og nefndist þá Bjargvætturinn í grasinu. Ef þið raunverulega hafið einhvern áhuga á þessu, þá langar ykkur kannski fyrst að fá að vita, hvar ég fæddist, hvaða leiðindi voru í uppvext- inum, hvað foreldrar mínir höfðu fyrir stafni áður en ég fæddist og allt þetta Davíð Kopperfíld-kjaftæði. Þetta er fyrsta setning „Bjargvættarins“ og með henni ryðst Holden Caulefield fram á sjónarsviðið. Þessi kjaftfori unglingur sem hafði verið rekinn úr skóla varð kunnasti óknyttapiltur banda- rískra bókmennta síðan Mark Twain skrifaði um Stikilsberja- Finn. Orðræða Caulfield einkennist af slettum og slangri þess tíma þegar Salinger skrifaði söguna – og tókst Flosa eftiminnilega að færa andblæ enska frumtextans inn í íslensku. Sjónarhorn sögunnar vakti gríðarlega athygli þegar hún kom fram, skilningurinn sem birtist á afstöðu og hug- myndum unglingsins, og efa- semdirnar um heim hinna full- orðnu. Menningarrýnir The New York Times segir að skáldsagan hafi „hitt á taug í andrúmslofti kalda stríðsins og varð hún fljótlega költ-fyrirbæri, sér- staklega meðal ungra lesenda. Að lesa „Bjargvættinn“ varð einskonar manndómsvígsla.“ Skáldsagan nýtur enn mikilla vinsælda og enn, nærri 60 árum eftir að hún kom fyrst út, selj- ast árlega 250.000 eintök af henni í kilju. Margir hafa orðið fyrir upp- ljómun við lestur sögunnar; sumir hafa ákveðið að verða rithöfundar en aðrir leita á vafasamari brautir: Mark David Chapman sem myrti John Len- non árið 1980, sagði að útskýr- ingu á morðinu mætti finna á síðum The Catcher in the Rye. Rústaði smásögunni Tveimur árum eftir útkomu „Bjargvættarins“ sendi Salinger frá sér sagnasafnið Nine Stories og voru margir gagnrýnendur enn hrifnari af þeirri bók en þeirri fyrri. Sögur bókarinnar voru lofaðar fyrir skarpa sam- félagslega rýni, afar raunsæisleg samtöl, og fyrir að rústa hinni hefðbundnu uppbyggingu „smásögu“, með upphafi, miðju og endi, á meistaralegan hátt. Eftir að Nine Stories kom út, árið 1963, má segja að Salinger hafi flúið bókmenntaheiminn. Hann bannaði að myndir af sér birtust á bókakápum, skipaði umboðsmanni sínum að brenna allan póst frá aðdáendum og flutti á stóra landareign í New Hampshire. Eftir það dró veru- lega úr birtum skrifum hans. Seinni bækurnar tvær komu á prent 1961 og 1963 og það síð- asta sem kom frá Salinger var sagan „Hapworth 16, 1924,“ sem fyllti næstum heilt tölublað af The New Yorker 19. júní árið 1965. Í 45 ár hefur J.D. Salinger því verið lifandi en þögul goðsögn. Ýmist kallaður vitleysingur eða bandarískur Tolstoy. Margra áratuga þögn Í lokakafla „Bjargvættarins“ segist Caulfield ekki hafa neitt meira að segja: Ef til vill gæti ég sagt ykkur, hvað ég gerði, eftir að ég kom heim, hvernig ég veiktist og allt það, og hvaða skóla ég á að fara í næsta haust, þegar ég losna héðan, en mig langar ekkert að segja frá því. Svo sannarlega ekki. Svo sannarlega var það ekki margt sem Salinger hafði að segja umheiminum síðustu ára- tugi, hversu mjög sem blaða- menn og aðdáendur reyndu að ná af honum tali. Setið var fyrir rithöfundinum við hálf-víggirt heimili hans í Cornish, fólk reyndi að sjá honum bregða fyrir og ef það tókst mátti stundum lesa um viðburðinn, og af og til fóru sögur á kreik um væntanlegt efni frá meist- aranum. En ekkert birtist og hann þagði. Hafði einfaldlega ekki meira að segja. efi@mbl.is Caulfield kveður Rithöfundurinn J.D. Salinger þegar enn mátti taka af honum mynd. Sturla Friðriksson er ekki bara einn víðförlasti Ís- lendingur sem um get- ur heldur hafa fáir komið á jafnmarga framandi staði í veröldinni og hann. Hér rekur Sturla ferðalög sín bæði á eigin veg- um og Alþjóðanáttúruverndarsjóðs- ins s.l. 60 ár, allt frá suðurskauti til norðurpóls, hringinn í kringum jörð- ina og víðast hvar milli himins og jarðar. Í ferðalýsingum sínum veitir Sturla lesandanum einstaka innsýn náttúrufræðingsins í þau lífríki sem fyrir augu hans ber, mannlíf og þjóðlífshætti. H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N Önnur bókin sem kemur út í ritröð Gunnars Karlssonar, Handbók í ís- lenskri mið- aldasögu. Hér er safnað sam- an vitneskju um náttúru- legar aðstæð- ur Íslendinga á miðöldum. Fjallað er um landslagsbreytingar, landkosti og loftslag, einnig um fólksfjölda og landnýtingu, kvikfjárrækt, jarðyrkju, sjávarútveg, hitagjafa, saltnám, trjá- reka, járnvinnslu, brennisteinsnám, fálkaveiðar og verslun. Hér er þess freistað, líklega í fyrsta sinn, að setja fram í tölum heildaryfirlit yfir búfjár- eign og sjávarafla landsmanna á tímabilinu, einkum á grundvelli ný- legra fornleifarannsókna. Lífsbjörg Íslendinga Frá 10. öld til 16. aldar Gunnar Karlsson Heimshornaflakk Sturla Friðriksson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.