SunnudagsMogginn - 19.09.2010, Qupperneq 2
2 19. september 2010
4-8 Vikuspeglar
Oprah Winfrey, Teboðið og vonarstjarna Englendinga.
17 Byggt á blekkingum
Rætt við Lucy Prebble sem fjallar um græðgina og snjóboltaáhrif lyg-
innar í leikritinu Enron sem er á leið á fjalir Borgarleikhússins.
20 Vont að vera ókurteis og nískur
Töfrar leikhússins kynntir fyrir áhorfendum framtíðarinnar
22 Gleði og djúp sorg
Söngkonan Guðbjörg Magnúsdóttir, sem þekkir glímuna við sjúkdóma
af eigin raun, syngur á hátíðartónleikum Ljóssins.
27 Dansfélagar óþarfir
Stórir hópar línudansara taka samræmd, sjóðheit kántrídansspor.
28 Blautir kossar Brúnós
Raxi hleypir hundinum í rollurnar.
32 Sóknarfæri í matnum
Baldvin Jónsson vinnur ötullega að kynningu íslenskra matvæla í
Bandaríkjunum.
36 Aulinn fær upp-
reisn æru
Hjartaknúsarinn Justin Long í viðtali við
Sunnudagsmoggann
38 Balkan eða dauði!
Æringjarnir í Varsjárbandalaginu taka
balkan- og klezmertónlistina með
trompi.
40 Úr messanum
í matreiðsluna
Ítalskt og norrænt í bland hjá Jakobi
Magnússyni, veitingamanni á Horninu.
Lesbók
52 Stúdía í mannlegu atferli
Paul Auster á miklu skriði í nýjustu bók sinni Sunset Park.
54 Gægjuhneigð og kvennaval
Umsagnir um sýningar á Kjarvalsstöðum og í Nýlistasafninu.
20
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ernir Eyjólfsson af Amiinu.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún
Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri
Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson.
44
Augnablikið
Þ
að var stanslaust kapphlaup allan tímann.
Ég vaknaði rúmlega sex og fór ekki að sofa
fyrr en tólf.“ Það veður á Ómari Ragn-
arssyni þegar hann lýsir viðburðaríkum
afmælisdegi. „Brjálað að gera allan tímann!“
Afmælisbarnið, sem kallar ekki allt ömmu sína
þegar annríki er annars vegar, er enn að ná sér nið-
ur eftir hasarinn: fjölmiðlaviðtöl, æfingar, óvæntar
uppákomur, afmælisveisla, stúss og stuð, og svo
auðvitað skemmtunin í Salnum um kvöldið. „Ég
var búinn að ákveða að hafa nokkra bílana minna
við Salinn og þurfti að sinna því. Einn þeirra stend-
ur venjulega á bak við súlu í bílakjallaranum í út-
varpshúsinu, pínulítill Prinz sem er nákvæmlega
eins og fyrsti bíllinn sem ég átti, og ég var búinn að
fara með hann suðureftir. En svo var hringt í mig í
ofboði um kvöldið því þeir í útvarpshúsinu ætluðu
sjálfir að nota þennan bíl og uppgötvuðu að eigand-
inn hafði stolið honum, þannig að ég þurfti að fara
að skila honum, það var alls konar svona auka ves-
en sem bættist við.“
Einn bílanna sem skemmtunargestir Ómars gátu
barið augum var 24 ára gamall Suzuki-jeppi, og í
glugganum bæði seríós og kókflöskur. „Þegar tíma-
ritið National Geography var með úttekt á Kára-
hnjúkamálinu gerðu þeir þennan bíl að umtalsefni
og sögðu að þessi furðulegi fréttamaður svæfi í
þessum eldgamla litla jeppa uppi á hálendinu og
lifði bara á kóka kóla og seríósi,“ útskýrir sá furðu-
legi.
Óvæntu uppákomurnar náðu hámarki þegar
umhverfisráðherra tilkynnti í beinni útvarps-
útsendingu að stefnt yrði að því að afmælisdag-
urinn, 16. september, yrði gerður að degi íslenskrar
náttúru. „Það var hringt í mig og sagt að ég yrði
strax að koma upp í útvarp, og ég sagði að ég kæm-
ist ekki því ég væri fastur í búningi sem ég ætlaði að
vera í í veislu sem átti að hefjast klukkan fimm. En
þá fékk ég bara skipun og mér sagt að ég yrði að
koma og ég yrði þá bara að koma of seint í afmæl-
isveisluna. Ég veit að þegar fréttamenn segja þetta
við kollega sína þá þýðir ekki að vantreysta þeim,“
segir Ómar og er enn að endurupplifa annríkið og
eril dagsins.
En það var jú víst einhver tilgangur með öllu
þessu stússi og það er dýrmætt, segir Ómar, að nú
eigi Íslendingar loksins ákveðinn dag tileinkaðan
íslenskri náttúru, þótt það hefði svosem „mátt vera
hvaða dagur sem er,“ bætir hann hógvær við. Und-
arlegt, að við höfum ekki átt þennan dag fyrr.
„Það er tvennt sem leggur grundvöllinn að
sjálfsmynd okkar sem þjóðar og ímynd út á við og
það er land og tunga. Án þessa erum við Íslend-
ingar ekkert,“ segir afmælisbarnið með áherslu og
hefur hárrétt fyrir sér.
Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember, á fæð-
ingardegi Jónasar Hallgrímssonar, Dagur íslenskrar
náttúru 16. september, á fæðingardegi Ómars
Ragnarssonar. Tveir höfðingjar sem hafa verið
óþreytandi við að minna okkur á uppruna okkar.
Báðir vel að vegtyllunni komnir.
ben@mbl.is
Ómar Ragnarsson í essinu sínu á sjötugsafmæli sínu í Salnum í Kópavogi sl. fimmtudag.
Morgunblaðið/Eggert
Seríós og kókflöskur
20. september
Fyrirlestur Elísabetar
Jökulsdóttir, Fót-
boltasögur, er sá
fyrsti í hádegisfyr-
irlestraröðinni Hvernig verður bók
til? á vegum Bókmennta- og list-
fræðastofnunar Háskóla Íslands.
Þangað koma íslenskir höfundar
og lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd
að fullfrágenginni bók.
23. september
Námskeið hjá Heimilisiðn-
aðarfélaginu í saumi skírnarkjóla
hefst. Í fyrsta tíma sauma nem-
endur prufur en fullvinna síðan
kjólana undir leiðsögn kennara.
23. september
Októberfest á Ís-
landi skipulagt af
Stúdentaráði Há-
skóla Íslands í
samstarfi við AM Events hefst.
Við mælum með …
23. september
Leikritið Enron verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Í sýningunni fer saman
flugbeitt saga, mikið sjónarspil og leikhústöfrar. Enron fjallar um ris og
fall samnefnds stórfyrirtækis þar sem einum svívirðilegasta skandal í
sögu fjármálaheimsins er umbreytt í leikræna frásögn. Sýningin er mikið
sjónarspil þar sem töfrum leikhússins er beitt til að knýja verkið áfram
með tónlist, dansi og sjónrænum tilþrifum.
Sjónarspilið Enron