SunnudagsMogginn - 19.09.2010, Qupperneq 10
10 19. september 2010
É
g held að þeir sem ekki eru vinir eða vinkonur Jóhönnu
Sigurðardóttur, formanns Samfylkingarinnar og for-
sætisráðherra, og eru ekki heldur mægðir við Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra geti unað vel við sitt
hlutskipti.
Fræg er setningin á ensku: „With friends like that, who needs
enemies?“ Sem útleggst einhvern veginn svona á okkar ylhýra:
Hver þarf á óvinum að halda, sem á svona vini?
Þetta hefur ítrekað hvarflað að mér, frá því að niðurstaðan um
það hvaða fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde,
fulltrúar Samfylkingarinnar vilja að Alþingi ákæri og dragi fyrir
landsdóm. Vitanlega kemur ekkert á óvart að á þeim lista séu Geir
H. Haarde fyrrverandi for-
sætisráðherra og Árni M. Mat-
hiesen, fyrrverandi fjár-
málaráðherra. Hvenær hefur
Samfylkingin stillt sig um að
koma höggi á Sjálfstæðisflokk-
inn, þegar færi hefur gefist?
En að nafn Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur, fyrrverandi
formanns Samfylkingarinnar
og utanríkisráðherra, sé á list-
anum en ekki Björgvins G. Sig-
urðssonar hlýtur að hafa kom-
ið mjög mörgum á ávart og ég
held að sú undrun nái til fjöl-
margra sem aldrei hafa stutt
Samfylkinguna, sem raunar
gengur þessa dagana undir
nafninu Sundurfylkingin á
meðal gárunganna.
Á allra vitorði er að það var
Ingibjörg Sólrún sem skóp
pólitískan frama Jóhönnu; hún
gerði hana að formanni Sam-
fylkingarinnar og hún gerði
hana að forsætisráðherra. Laun heimsins eru vanþakklæti segir
einhvers staðar og í tilviki Jóhönnu í garð sinnar fyrrverandi vin-
konu kemur það mjög glöggt fram.
En þótt ráð Jóhönnu séu köld, þegar Ingibjörg Sólrún á í hlut, þá
verður ekki að sama skapi sagt að forsætisráðherrann sé huguð
kona. Hún hafði ekki kjark í sér til þess að tilkynna Ingibjörgu Sól-
rúnu hver væri endanleg niðurstaða fulltrúa Samfylkingarinnar í
þigmannanefndinni. Henni fannst augljóslega nóg að Ingibjörg
Sólrún hlustaði á fjögurfréttirnar í RÚV á laugardaginn fyrir viku.
Hvers vegna að splæsa heilu símtali á sína fyrrum nánu samstarfs-
konu og vinkonu?
Ég hitti fyrrverandi krataráðherra í búð um daginn. Hann hló
við, þegar ég spurði hann hverju þetta sætti með hana Jóhönnu og
sagði svo: „Agnes mín. Veistu ekki hvað hún Jóhanna er kaldlynd?
Þegar hún gerði stöðugan uppsteyt gagnvart Jóni Baldvin í rík-
isstjórn Davíðs Oddssonar (1991-1995) þá tók Davíð hana sér-
staklega undir sinn verndarvæng. Og hvernig launaði hún honum
skjólið?!“ spurði þessi gamli krati og glotti enn.
Og ekki tekur betra við þegar hlutur Össurar Skarphéðinssonar
utanríkisráðherra er skoðaður. Utanríkisráðherrann síkáti, sem
var – sístyggur nú – strunsar út af miðjum fundum með fýlusvip
og lemur svo frá sér hinn fúllyndasti, með biblíutilvitnunum, eins
og sannkristnum mönnum sæmir. Hann á ekki sjö dagana sæla nú,
enda mun pólitískt líf hans hafa skroppið saman undanfarnar tvær
vikur eins og lopapeysa sem óvart lendir í suðuþvotti.
Össur er, eins og alþjóð veit, svili Ingibjargar Sólrúnar en vílar
engu að síður ekki fyrir sér að setja hana á sakamanabekk, á sama
tíma og honum tekst með yfirgangi og ofbeldi að koma í veg fyrir
að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi bankaráðherra og hans
sérstaka pólitíska „babe“ verði á ákærulista Alþingis.
Nú er ekkert útséð um það hverjar verða lyktir þessa dapurlega
máls á Alþingi, þegar þetta er skrifað. Sannast sagna tel ég, að þótt
ráðherrarnir fyrrverandi hafi gert ýmis mistök í starfi í aðdrag-
anda hrunsins og vissulega sé hægt að saka þá um vanrækslu, að
útilokað sé að halda því fram að þau hafi gerst sek um glæpsamlegt
athæfi og því finnst mér að í því fælist brot á almennum mann-
réttindum að ákæra þau og draga fyrir landsdóm, án þess að þau
hafi nokkru sinni fengið að verja sig. En allt á þetta eftir að koma í
ljós, ekki satt?
Köld eru
þeirra ráð
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Össur
Skarphéðinsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
’
Hann á ekki sjö
dagana sæla
nú, enda mun
pólitískt líf hans hafa
skroppið saman und-
anfarnar tvær vikur
eins og lopapeysa
sem óvart lendir í
suðuþvotti
7:00 Vakna, róleg nótt á
vaktinni, fékk að sofa.
7:15 Allir komnir á fætur, bý
til nesti fyrir grunnskólanem-
ann. Leikfimi, sturta, morg-
unmatur, viðra hundana.
9:00 Mætt í vinnuna. Tekið
er á móti aðgerðarsjúklingum
dagsins til klukkan 10 en jafn-
framt því koma inn af götunni
önnur dýr sem eitthvað þarf að
skoða.
10:00 Töflufundur. Þá
skipta dýralæknarnir á spít-
alanum með sér verkum og
ákveða hver geri hvað. Tek að
mér tannhreinsanir í dag.
10:00 -12:00 Hreinsa
tennur í gömlum hundi og þrí-
fættum ketti. Að því loknu fer
ég á stofuna og tek inn þá sem
koma í eftirlit eftir aðgerðir eða
endurkomur vegna lengri með-
höndlunar. Fyrst kött sem var
keyrt á fyrir nokkru og lask-
aðist í munni, hann er allur að
hressast og farinn að nærast
vel, útskrifa hann. Þá eldri tík
með sýkingu í fæti, hún er
miklu betri og er sömuleiðis út-
skrifuð. Að lokum tík sem er
með ofnæmi, hún útskrifast
líklega aldrei blessunin. Vill til
að mér og eigandanum er vel til
vina og eftir skoðun, með-
höndlun og spjall um fram-
haldið ákváðum við að skreppa
saman í hádegismat.
13:00 Kem úr mat og sest
við tölvuna, þarf að svara
tölvupósti, yfirfara svör úr
blóðprufum, hringja í eigendur
og ræða það allt. Fara yfir lyfja-
birgðir.
14:00 Röntgenframkallarinn
okkar kominn í lag og allir
glaðir. Höfum beðið eftir vara-
hlut síðan á fimmtudag og loks-
ins hægt að mynda, nokkrir
hestar bíða fyrir utan á kerrum.
Eiga að fara í útflutning ef þeir
standast skoðun.
14:30 - 18:00 Inn koma
nokkrir gamlir félagar sem ég
hef séð um í gegnum tíðina, tík
með hornhimnu-sár, hundur
með gigt og annar sem er með
viðkvæma meltingu. Inn á milli
koma hundar og kettir í reglu-
bundna heimsókn, bólusetn-
ingar og ormahreinsanir. Einn
kött þarf að sauma eftir slags-
mál og annar þarf að fá að sofna
svefninum langa enda orðinn 19
ára og afar lasburða.
Röntgenframkallarinn bilar
aftur og enginn er glaður,
hringjum aftur í viðgerð-
armanninn sem kemur um-
svifalaust og lagar, allt virkar
og við öndum léttar.
Þá er klukkan orðin hálf sjö
og við búin að tæma húsið, set
símsvarann á og fer heim með
vaktsímann í vasanum. Á leið-
inni heim hringir eigandi tíkur
sem er í goti, ræðum málið og
ákveðum að bíða og sjá. Næ að
borða kvöldmat með fjölskyld-
unni og horfa á fréttir. Nokkur
símtöl á vaktinni, ekkert sem
þarf að útkall í.
21:30 Kvöldganga með
hundana.
22:30 Ákveð að hátta og
fara uppí, síminn á náttborð-
inu.
Dagur í lífi Ólafar Loftsdóttur, dýralæknis á Dýraspítalanum í Víðidal
Morgunblaðið/RAX
Dýrin mín stór og smá
Þessi mynd var tekin þegar
kaffihúsið Mokka við Skóla-
vörðustíg var opnað árið 1958,
en á henni má sjá forláta kaffi-
vél. Guðmundur Baldvinsson,
„forstöðumaður kaffistofunn-
ar“, eins og hann er titlaður í
grein í Morgunblaðinu, stendur
við vélina góðu. Kaffihúsið, sem
er orðin hálfgerð stofnun í sam-
félaginu, var þá sem nú skreytt
myndum góðra listamanna.
Úr myndasafni
Kaffihúsið
Mokka
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon