Morgunblaðið - 08.02.2010, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2010
www.noatun.is
ÍM BLANDAÐIR
KJÚKLINGABITAR
KR./KG
498
OG GOTT!
ÓDÝRT
Við gerum
meira
fyrir þig
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
SVIPTINGAR urðu í prófkjörum
stjórnmálaflokkanna um helgina
þar sem nýliðar sigruðu en sitjandi
fulltrúar í sveitarstjórnum fengu
ekki brautargengi. Þetta gerðist til
dæmis á Álftanesi, þar sem Snorri
Finnlaugsson náði efsta sæti. Guð-
mundur G. Gunnarsson oddviti
flokksins og fv. bæjarstjóri komst
ekki í hóp sex efstu.
Snorri var bæjarfulltrúi á Álfta-
nesi 1998 til 2005 og sat í bæj-
arstjórn í Árborg fyrrihluta þess
kjörtímabils sem nú er að líða.
Öðru sætinu á Álftanesi náði sitj-
andi bæjarfulltrúi, Kristján Guð-
laugsson.
Breytingar hjá VG
Sviptingar urðu hjá Vinstri
grænum á Akureyri. Þar sigraði
Andrea Hjálmsdóttir háskólakenn-
ari og mun leiða lista flokksins í
bæjarstjórnarkosningunum í vor.
Edward Huijbens verður í öðru
sæti. Sitjandi bæjarfulltrúar VG á
Akureyri höfðu ekki hljómgrunn
meðal þeirra sem kusu í forvali
flokksins þar, því Baldvin H. Sig-
urðsson sem leiddi lista flokksins í
síðustu kosningum lenti í 3. sæti og
Kristín Sigfúsdóttir í því sjötta.
Tekið skal fram að hjá VG á Ak-
ureyri á enn eftir að telja atkvæði
sem bárust með pósti en ólíklegt
verður að teljast að það raski nið-
urstöðunum um neitt sem nemur.
Hjá Vinstri grænum í Reykjavík
kepptu borgarfulltrúarnir Þorleifur
Gunnlaugsson og Sóley Tóm-
asdóttir bæði um oddvitasætið. Þau
komu bæði inn í borgarstjórn á
kjörtímabilinu eftir að sitjandi
fulltrúar flokksins þar tóku sæti á
Alþingi. Í krafti þess keppti Þor-
leifur að því að leiða listann áfram
en laut í lægra haldi fyrir Sóleyju.
Nýliðinn Líf Magneudóttir náði 3.
sætinu og Elín Sigurðardóttir því
fjórða.
Sömu menn í Garðabænum
Í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í
Grindavík fékk Guðmundur Pálsson
flest atkvæði og leiðir listann í vor.
Vilhjálmur Árnason varð 2. og
Magnús Már Jakobsson 3. en þeir
Guðmundur kepptu um efsta sætið.
Vilhjálmur og Magnús eru nýliðar í
bæjarmálum í Grindavík.
Hjá Sjálfstæðisflokknum í Mos-
fellsbæ sigraði Haraldur Sveinsson
bæjarstjóri og fékk 671 atkvæði í
efsta sætið eða 83,5%. Herdís Sig-
urjónsdóttir náði 2. sæti og Bryndís
Haraldsdóttir því þriðja.
Gamalreyndir jaxlar í bæjarmál-
unum náðu fjórum efstu sætunum í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Garðabæ. Alls tók 1.651 þátt eða
tæplega 60%. Erling Ásgeirsson
mun leiða listann líkt og hann gerði
í síðustu kosningum. Hann fékk 767
atkvæði í 1. sætið.
Páll Hilmarsson náði 2. sæti,
Stefán Konráðsson því 3. og Sturla
Þorsteinsson 4. sæti. Allir hafa þeir
lengi starfað á vettvangi Sjálfstæð-
isflokksins, rétt eins og Áslaug
Hulda Jónsdóttir sem hafnaði í 5.
sætinu.
Nýliðar náðu árangri
Víða sviptingar í prófkjörum Konur áberandi meðal nýliða hjá Vinstri græn-
um Sömu oddvitar áfram hjá Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ og Mosfellsbæ
Álftanes
Úrslit úr prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
Sæti Atkv. í sæti.
1. Snorri Finnlaugsson 108 1.
2. Kristinn Guðlaugsson 136 1.-2.
3. Kjartan Örn Sigurðsson 107 1.-3
4. Hjördís Jóna Gísladóttir 148 1.-4.
5. Guðjón Andri Kárason 158 1.-5.
6. Elías Jakob Bjarnason 150 1.-6.
Oddviti sjálfstæðismanna á
Álftanesi ekki meðal sex efstu í
prófkjöri. Sóley sigraði hjá VG í
Reykjavík og nýliðinn Andrea
Hjálmsdóttir náði efsta sætinu í
forvalinu á Akureyri
Garðabær
Úrslit úr prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
Sæti Atkv. í sæti.
1. Erling Ásgeirsson 767 1.
2. Páll Hilmarsson 797 1.-2
3. Stefán Konráðsson 769 1.-3
4. Sturla Þorsteinsson 977 1.-4
5. Áslaug Hulda Jónsdóttir 977 1.-5
6. Ragný Þóra Guðjohnsen 846 1.-6
Reykjavík
Úrslit úr prófkjöri
Vinstri-grænna
Sæti Atkv. í sæti.
1. Sóley Tómasdóttir 439 1.
2. Þorleifur Gunnlaugsson 493 1.-2
3. Líf Magneudóttir 518 1.-3
4. Elín Sigurðardóttir 366 1.-4
5. Davíð Stefánsson 354 1.-5
6. HermannValsson 369 1.-6
Grindavík
Úrslit úr prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
Sæti Atkv. í sæti.
1. Guðmundur Pálsson 138. 1.
2. Vilhjálmur Árnason 112 1.-2.
3.Magnús Már Jakobsson 115 1.-3
4. Jóna Rut Jónsdóttir 104 1. -4
5. Guðbjörg Eyjólfsdóttir 106 1.-5.
6. Svana Björk Jónsdóttir 96 1.-6.
Mosfellsbær
Úrslit úr prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
Sæti Atkv. í sæti.
1. Haraldur Sveinsson 671 1.
2. Herdís Sigurjónsdóttir 364 1.-2
3. Bryndís Haraldsdóttir 340 1.-3
4. Hafsteinn Pálsson 324 1.-4
5. Kolbrún Þorsteinsdóttir 343 1.-5
6. Rúnar B. Guðlaugsson 323 1.-6
Akureyri
Úrslit úr prófkjöri
Vinstri-grænna
Sæti Atkv. í sæti.
1. Andrea Hjálmsdóttir 249 1.
2. Edward Huijbens 235 2.
3. Baldvin H. Sigurðsson 188 3.
4. Sóley Björk Stefánsdóttir 185 4.
5. Daði Arnar Sigmarsson 237 5.
6. Kristín Sigfúsdóttir 326 6.
„Það er greinilegt að fólk vildi breytingar,“ segir Snorri Finnlaugsson,
sigurvegari í prófkjöri sjálfstæðismanna á Álftanesi. Hann segir verk að
vinna við að greiða úr flækju í fjármálum bæjarins. „Við þurfum að
vinna úr þessari stöðu,“ segir Snorri sem telur líklegt að kosið verði á
Álftanesi í vor, þótt sameining við annað sveitarfélag sé stíft rædd.
„Það veldur vonbrigðum að ekki skuli vera kona í þessum hópi,“ segir
Erling Ásgeirsson. Karlar skipa fjögur efstu sætin á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Garðabæ og verður Erling oddviti listans.
„Það er mikilvægt að hafa öfluga rödd sem ver velferðarkerfið,“ segir
Andrea Hjálmsdóttir sem náði efsta sæti í forvali VG á Akureyri. „Það
hefur verið kallað eftir nýju fólki og ég ákvað að svara því kalli. Það er
frábært að kjósendur skuli vera sammála því.“ Ekki náðist í Baldvin H.
Sigurðsson oddvita flokksins á Akureyri sem ekki fékk brautargengi í
prófkörinu nú.
Guðmundur Pálsson, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í
Grindavík, segist hafa háð varnarbaráttu í prófkörinu en róstur hafa
verið í bæjarpólitík í Grindavík síðustu misserin. „Við stefnum að því að
mynda sterkan meirihluta eftir kosningar,“ segir Guðmundur.
Engar konur ofarlega – vonbrigði í Garðabæ
Snorri
Finnlaugsson
Erling
Ásgeirsson
Andrea
Hjálmsdóttir
Guðmundur
Pálsson
ÞÖRUNGAVINNSLAN á Reykhól-
um var um helgina útnefnd fyr-
irmyndarfyrirtæki VÍS í öryggis-
og forvarnamálum árið 2010. Fyr-
irtækið fékk líka forvarnaverðlaun
VÍS eins og Bílson bílaverkstæði og
Strætó bs.
Forvarnaverðlaun VÍS voru nú
veitt í fyrsta sinn. Þeim er ætlað að
undirstrika mikilvægi þess að vinna
skipulega að öryggis- og forvarna-
málum og verða veitt árlega við-
skiptavinum VÍS, sem skara fram
úr í öryggis- og forvarnamálum.
Þau eru jafnframt þáttur í breyttri
forvarnastefnu VÍS.
Þörungavinnslan
til fyrirmyndar
AFLEIÐINGAR af fyrningarleið-
inni og afnámi sjómannaafsláttar
eru spurningar sem verða í brenni-
depli á fundi í Valhöll á Eskifirði kl.
17 í dag. Sjávarútvegur í óvissu er
yfirskriftin. Ræðumenn verða Egg-
ert B. Guðmundsson forstjóri HB-
Granda, Gunnþór Ingvason formað-
ur Útvegsmannafélags Austur-
lands, Smári Geirsson bæjarfulltrúi
í Fjarðabyggð og Sverrir Mar Al-
bertsson framkvæmdastjóri Afls –
starfsgreinafélags. sbs@mbl.is
Ræða fyrningarleið
og afnám afsláttar
UM 300 manns sóttu 10. kröfufund
Nýs Íslands á Austurvelli á laugar-
dag. Samtökin segja að enn hafi
skuldsettum heimilum engar lausn-
ir verið boðnar og þúsundir sitji í
súpunni. Stjórnvöld firri sig ábyrgð
og vísi málum til banka sem stundi
blekkingar. Því verði stjórnvöld að
bregðast við kröfum um leiðrétt-
ingu og afnema verðtryggingu.
Í dag, þriðjudag, funda forsvars-
menn Nýs Íslands með Birnu Ein-
arsdóttur, bankastjóra Íslands-
banka, og vænta þess að hún svari
gagntilboði samtakanna um leið-
réttingu vegna bílasamninga sem
samtökin vilja að verði á svipuðu
róli og var 2008.
Segja að þúsundir
sitji í súpunni
Mótmæli Frá mótmælafundi samtakanna
Nýs Íslands á Austurvelli sl. laugardag.
STEINBÍTSHRYGNA hrygndi í
búri í Fiskasafninu í Vest-
mannaeyjum í gær. Að hætti slíkra
fiska gætir hún hrogna sinna vel og
hafði hringað sig utan um þau þeg-
ar meðfylgjandi mynd var tekin.
Steinbítur hrygnir árlega í safn-
inu, oftast í desemberbyrjun. Um
hrygningartímann missir steinbít-
urinn tennur og étur ekkert.
Skömmu eftir frjóvgun hrygnir
steinbítshrygnan um 6.000 eggjum
sem hún klappar saman í stóran
kökk. Eftir það tekur hængurinn
við og gætir hrognanna í þrjá mán-
uði, eða uns þau klekjast út.
Steinbítshrygna
hrygnir í Eyjasafni
Steinbítur Eggin eru 6.000 og
þeirra gætir hrygnan vel.
Ljósmynd/Fiskasafnið í Eyjum
ÓVISSA ríkir um hvernig skorið
verður niður í rekstri Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja. Á föstudag
var tilkynnt að stjórnendur HSS
myndu endurskoða fyrri niður-
skurðaráform sín en framkvæmda-
stjóri HSS vill ekki tjá sig um hvern-
ig honum verður háttað.
Á fundi stjórnenda stofnunarinnar
og heilbrigðisráðherra fyrir helgina
var farið farið ítarlega yfir stöðu
stofnunarinnar og niðurskurð á
framlögum. Eftir fundinn var til-
kynnt að áhrif niðurskurðarins hefðu
verið ofmetin.
En hvað olli því að niðurskurður á
fjárframlögum til HSS var ofmetinn
þannig að ekki þarf að skerða þjón-
ustuna jafnmikið og talið var í fyrstu
og hverju munar þar í fjárhæðum?
„Ég get ekkert tjáð mig um þetta.
Staðan er viðkvæm,“ segir Sigríður
Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri
HSS, í samtali við Morgunblaðið.
Á vefsetri Víkurfrétta er undir-
skriftalisti þar sem niðurskurði á
HSS er mótmælt. Um 5.600 manns
höfðu skrifað undir síðdegis í gær.
sbs@mbl.is
Borgarafundur um
heilbrigðisstofnunina
Tjáir sig ekki um
hvernig niðurskurði
verður háttað
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason