Morgunblaðið - 08.02.2010, Side 7

Morgunblaðið - 08.02.2010, Side 7
Eftir Líney Sigurðardóttir Þórshöfn | Norska skipið Heröyhav landaði um 900 tonnum af loðnu á Þórs- höfn á föstudag. Loðnan veiddist út af Borgarfirði eystri og er þokkaleg en áta finnst þó í henni. Mannskapur hefur verið ræstur á vaktir hjá Ísfélaginu og er áætlað að um helmingur aflans verði frystur á Austur- Evrópumarkað en restin í bræðslu. Bolfiskvinnsla hefur einnig verið hjá Ísfélaginu svo þörf er á aukamannskap við loðnufrystingu. Loðnufrysting hafin á Þórshöfn Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fyrst Loðnan úr Heröyhav er sú fyrsta sem er landað í Þórshöfn í vetur. Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2010 Menntun og vöxtur DAGSKRÁ Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI - Störfin og menntunin Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra Iðnmeistarakerfi í mótun Ingi Bogi Bogason, Kristrún Ísaksdóttir, Ferdinand Hansen og Baldur Gíslason greina frá stöðu þess Styrkur SI til kennslu á vinnustað verður afhentur Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík - Háskólamenntun til vaxtar Sigurður Ólafsson, fræðslustjóri Alcoa og Iðunn Kjartansdóttir sérfræðingur hjá IÐUNNI fræðslusetri - Hvernig er mannauður mótaður og metinn? Fundarstjóri er Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri MENTOR Hvernig treystir menntakerfið undirstöður atvinnulífsins? Hvaða hlutverki gegna skólar í að byggja upp íslenskt atvinnulíf? Felur hagræðingarkrafa í menntakerfinu í sér tækifæri til sóknar? Samtök iðnaðarins bjóða til málþings miðvikudaginn 10. febrúar frá kl. 9 til 12 á Grand Hóteli Reykjavík. Málþingið er opið meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Skráning fer fram á mottaka@si.is. Aukin þekking gefur iðnaðinum takmarkalausa möguleika til vaxtar og nýsköpunar. Iðnfyrirtæki treysta á öflugt menntakerfi. Málþing á Menntadegi iðnaðarins 2010 MEIRA en helmingur þjóðarinnar er nú ónæmur fyrir svínainflúens- unni A (H1N1). Búið er að bólusetja um 130.000 manns og ætla má að á bilinu 50-60.000 manns hafi fengið veikina í faraldrinum sem gekk yfir landið á síðari hluta árs 2009. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, telur að þær aðgerðir sem gripið var til, þar á meðal bólusetning gegn veikinni, hafi komið í veg fyrir sýk- ingu 30.000 manns og þar með hafi verið afstýrt 100 sjúkrahúsinnlögn- um, 10 innlögnum á gjörgæsludeildir sjúkrahúsa og einu dauðsfalli. Hann hvetur fólk til að láta bólusetja sig en nóg sé til af bóluefni. Í fréttatilkynningu frá sóttvarna- lækni kemur fram að svínainflúens- unnar verður nú ekki lengur vart hérlendis en veikin sé hins vegar vaxandi vandamál í mörgum öðrum löndum. Á hinn bóginn megi búast við nýrri bylgju síðar á þessu ári eða á því næsta, að því er segir í tilkynn- ingu frá sóttvarnalækni. Komið í veg fyrir að 30.000 manns sýktust Sóttvarnalæknir hvetur til bólusetninga ÁGÚST Ein- arsson, rektor Háskólans á Bif- röst, tilkynnti í útskriftarræðu á laugardag, að hann myndi láta af störfum 5. júní. Ágúst mun áfram starfa sem pró- fessor við skól- ann. Í ræðu Ágústs kom fram að ráðn- ingartími hans hefði runnið út í árs- byrjun en stjórn skólans beðið hann að starfa áfram og hefði hann orðið við því, enda vildi hann ljúka fjár- hagslegri endurskipulagningu í tengslum við nemendaíbúðir á Bif- röst og henni lauk nú í janúar. 63 nemendur útskrifuðust frá skólanum í dag, þar af ellefu með meistarapróf. Ágúst sagði, að staða skólans væri sterk og hagnaður hefði verið af rekstrinum á síðasta ári. Fyrir þremur árum var fjár- hagsstaðan mjög slæm en það tókst að snúa því við. Ágúst sagði, að hrunið hefði sett strik í reikninginn en tekist hefði að vinna vel úr því. Eigið fé skólans hefði aukist veru- lega undanfarin 3 ár. Sameining við aðra háskóla væri ekki á döfinni. Ágúst hættir sem rektor Ágúst Einarsson Sameining við aðra háskóla ekki á döfinni GESTUR á skemmtistað á Selfossi var gripinn glóðvolgur aðfaranótt sunnudags í stuttermabol merktum lögreglunni. Gesturinn þurfti að sjá á eftir bolnum og má búast við ákæru og dómi eins og aðrir sem láta sjá sig í þessum fatnaði án þess að hafa til þess leyfi. Um 300 stuttermabolum merkt- um lögreglu var stolið í innbroti í fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu í fyrravor. Síðan þá hafa bolirnir dúkkað upp víða um land. Í liðinni viku var 21 árs karlmaður dæmdur í 25.000 króna sekt fyrir að klæðast slíkum bol á skemmtistaðn- um Broadway í Reykjavík 1. nóv- ember í fyrra. Stutt er síðan annar maður hlaut sömu sekt, með dómi, fyrir sama athæfi. Bolirnir geta því verið dýrir, þegar upp er staðið. Þurfti að sjá á eftir lög- reglubolnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.