Morgunblaðið - 08.02.2010, Side 29

Morgunblaðið - 08.02.2010, Side 29
R H Ð! Fráskilin..með fríðindum SÝND Í ÁLFABAKKA HHHH - S.V.,MBL HHHH - T.V. - KVIKMYNDIR.IS TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIDI.IS Robert Downey Jr. og Jude Law eru stórkostlegir í hlutverki Sherlock Holmes og Dr. Watson HHHH „IT’S PROBABLY THE MOST PURELY FUN FILM EXPERIENCE I’VE HAD ALL YEAR. SEE IT AS SOON AS YOU CAN“ - WWW.JOBLO.COM HHH „BÍÓMYND SEM UNDIR- RITAÐUR GETUR MÆLT MEÐ...“ „SENNILEGA EINHVER ÖFLUGASTA BYRJUN SEM ÉG HEF SÉÐ...“ - KVIKMYNDIR.IS – T.V. HHHH -NEW YORK DAILY NEWS HHH „FYNDIN OG VEL LEIKIN“ - S.V. – MBL. Besti leikarinn, Robert Downey Jr. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI HHH -T.V., KVIKMYNDIR.IS TILNEFND TIL 3 GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA TILNEFND TIL 2 ÓSKARS- VERÐLAUNA nánari upplýsingar ásamt sýnishornum úr stykkjunum má finna á www.operubio.is og á www.metoperafamily.org    SIMON BOCCANEGRA                                             ENDURSÝND MIÐVIKUDAGINN 10. FEBRÚAR KL. 18.00 ÁLFABAKKA OG Á AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI OG SELFOSSI HHHH „JONZE HEFUR KVIKMYNDAÐ ÆVINTÝRI EINS OG ÞAÐ SÉ ALGERLEGA RAUNVERULEGT, SEM LEYFIR OKKUR AÐ SJÁ HEIMINN MEÐ AUGUM MAX, FULLAN AF FEGURÐ OG HÆTTU.“ - ROLLING STONE, PETER TRAVERS Byggð á einni ástsælustu sögu okkar tíma HHHH -ROGER EBERT “SANNKALLAÐ MEISTARAVERK” - FOX-TV “FÁRÁNLEGA FRÁBÆR” - ELLE MAGAZINE 7 Frábær mynd frá leikstjóranum SPIKE JONZE SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / KEFLAVÍK UP IN THE AIR kl. 8 -10:20 L WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 8 7 SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 12 THE BOOK OF ELI kl. 8 - 10:20 16 WHIP IT kl. 8 7 SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 12 THE BOOK OF ELI kl. 8 - 10:20 16 UP IN THE AIR kl. 8 - 10:20 L / SELFOSSI/ AKUREYRI hvað, verður einhverju breytt? „Já, við eigum örugglega eftir að breyta laginu eitthvað. Við ætlum að sníða það að- eins að stóru keppninni en ekkert umturna því neitt. Við gerum einhverjar breytingar.“ – Ertu búin að hugsa eitthvað um það í hverju þú ætlar að vera úti? „Já, ég er með draumaflík í kollinum en hvort hún passar endilega við þetta á eftir að koma í ljós. Ég verð í einhverju „fabulo- us“ dressi.“ – Þú vilt ekkert gefa upp um það? „Nei … (hlær) en það verður íslensk hönnun. Ég elska íslenska hönnun. Og þetta verður eitthvert rosa dívudress.“ – Hvernig ertu stemmd fyrir keppnina? „Ég hlakka bara til. Ég er rosalega ánægð með að vera að fara til Noregs, það er svona öruggt land, maður skilur tungu- málið vel og þetta verður bara eins og að vera heima hjá sér. Ég hef búið í Danmörku og við norrænu þjóðirnar erum svo líkar. Ég á örugglega eftir að stressast eitthvað þegar líða fer að þessu en ég hlakka bara til.“ – Þetta hefur verið dálítill draumur hjá þér að komast í Júróvisjón er það ekki? „Jú algjörlega. Alveg frá því ég man eftir mér … uppi í sófa að syngja í hárbursta með einhverjum lögum sem ég var alveg heilluð af. Ég hef fylgst með þessari keppni eins lengi og ég man eftir mér þannig að þetta er búið að vera á „to-do“-listanum mínum lengi. Hérna á Íslandi er þetta svo góður stökkpallur ef mann langar eitthvað lengra. Út í hinn stóra heim. En þá þarf líka að vinna vel og spila rétt úr þessu.“ – Er öðruvísi tilfinning að keppa fyrir Ís- land en þegar þú kepptir úti í Danmörku? „Já, þetta er alveg tvennt mjög ólíkt. Í Danmörku var ég alveg óþekkt andlit og rödd og hefði nánast getað gert hvað sem er og öllum hefði verið sama. Og þar var ég „surprise“-faktorinn þótt þetta hafi ekkert komið Íslendingum á óvart, sem kannski þekktu mig frá fyrra fari. Hérna heima er miklu meiri pressa, það er alltaf erfiðara að syngja fyrir fólkið sitt en ókunnuga.“ – En kannski líka skemmtilegra að syngja fyrir þjóðina sína? „Já, ekki spurning. Ég var mjög fegin í fyrra að vera ekki fulltrúi Dana á móti Jó- hönnu Guðrúnu og Íslandi. Það hefði verið ofsalega skrýtin tilfinning. Ég hefði alveg tekið að mér það hlutverk og gert eins vel og ég gat og allt það, en það hefði öruggleg verið mjög skrýtið. Ég fann það mjög vel þegar ég var úti í Moskvu með Jóhönnu, ég fann að ég var í rétta liðinu. Ég er mikill Ís- lendingur.“ Morgunblaðið/Eggert Sigur Hera var sigurreif eftir að tilkynnt var að lag hennar og Örlygs Smára hefði unnið. Sprækir Hvanndalsbræður fóru á kostum. Gítarspil Matti Matt flutti lagið „Out of Sight“. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2010 kynnist Jenny svo ungum manni, töluvert eldri þó, ofursjarmerandi og siðfáguðum með mikið umleikis (leikinn af Sarsgaard, sem út- litslega er eins og sonur Kenneths Branaghs og Ewans McGregors). Fljótlega sér hún ekki sólina fyrir honum og þeim heimi sem hann lifir í, sem einkennist af glysi og glaum. Skyndilega er hún stödd á krossgötum. Á hún að feta námsbrautina sem hún gæti svo hæglega? Og til hvers? Eða stökkva á áhyggjulaust líf með manni sem mun sjá um allar hennar þarfir? Fyrri kosturinn virðist leiðigjarn en felur í sér gróða sem ekki er hægt að meta til fjár. Hinn seinni er mun meira freistandi en felur um leið í sér mikla áhættu. Hornby varpar hér fram lífsspurningum sem eru í grunninn fremur einfaldar, en að sama skapi mikilvægar. Myndin rúllar áfram hægt og örugglega; tempóið er jafnt og áhorfandinn er ekki settur í tilfinn- ingalegt uppnám með tárframleiðandi Sigur Rósar-strengjum. Þessi mjúki Hornby-ismi sem við þekkjum úr fyrri myndum er ein- kennandi, en undir niðri gárar óræð spenna. Maður finnur að eitthvað alvarlegt á eftir að gerast en það er aftur á móti á huldu hvað það er. Húmorinn er í fyrsta sinn not- aður sparlega en rómantísk sýn Hornbys á lífið er hins vegar fyrir hendi sem áður. Sterkustu punktar myndarinnar læðast nánast aftan að manni, eins og þegar kenn- ari Jenny segir við hana: „Það mun nísta hjarta mitt ef þú gerir það ekki,“ og vísar í pælingar Jenny um að fara ekki í Oxford. An Education er mynd sem lætur ekki mikið yfir sér og það er ekki hægt að segja að maður hafi verið upprifinn í lokin. Þrem- ur dögum síðar er hún þó enn í hausnum á mér … þar sem hún vex hægt og örugglega. An education er byggð á handritiNicks Hornbys sem hann byggðisíðan á sjálfsævisögulegri ritgerðeftir bresku blaðakonuna Lynn Barber. Bækur Hornbys hafa gjarnan ratað á hvíta tjaldið, þannig eru þær stílaðar, og eru About a Boy og High Fidelity kunnustu dæmin um slíkt. Í þeim fléttar Hornby ástríðum hins „venjulega“ karlmanns (tón- list, fótbolti, sjónvarpsgláp o.fl.) saman við dýpri vangaveltur um tilgang og tilgangs- leysi lífsins, vanalega í gegnum ástar- flækjur söguhetjunnar. Hornby hefur vald- ið þessu svona og svona en nýverið hefur gætt framfara í þessum efnum, sjá t.a.m. nýjustu skáldsögu hans, Juliet, Naked (sem verður pottþétt að kvikmynd í nánustu framtíð). Sama má segja um þessa mynd hér, en í fyrsta skipti er söguhetjan kona, eða öllu heldur sextán ára táningur. Sögusviðið er London árið 1961. Jenny (af- ar vel leikin af Mulligan) er bæði eldklár og snoppufríð og lífið blasir við henni. Nám við Oxford er næsta skref og á því hamrar elsk- andi en um leið strangur faðirinn (sem er frábærlega leikinn af Molina). Dag einn Gull og grænir skógar Sambíóin Álfabakka og Kringlunni An Education bbbbn Leikstjórn: Lone Scherfig. Aðalleikarar: Peter Sarsgaard, Carey Mulligan, Alfred Molina, Emma Thompson. ARNAR EGGERT THORODD- SEN KVIKMYNDIR Á krossgötum Val Jenny stendur á milli þess að mennta sig og þess að láta mann sjá um sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.