Morgunblaðið - 08.02.2010, Side 32

Morgunblaðið - 08.02.2010, Side 32
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 39. DAGUR ÁRSINS 2010 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heitast 7 °C | Kaldast 0 °C Austan 8-13 m/s við suðvesturströndina, en mun hægari vindur annars staðar. Hiti 0 til 7 stig. » 10 Nýja dansverkið Endalaus eftir Alan Lucien Öyen var frumsýnt um helgina hjá Íslenska dansflokknum. »23 DANS» Endalaus dans INTERNETIл Vefsíða vikunnar er óður til súkkulaðisins. »26 Eftir sjö vikur á toppi bandaríska bíóaðsóknarlistans hefur Avatar vikið fyrir ást og róm- antík. »25 KVIKMYNDIR» Avatar af toppnum LEIKHÚS» Nýtt leikrit Skoppu og Skrítlu frumsýnt. »26 KVIKMYNDIR» Arnar Eggert fór að sjá An Education. »29 Menning VEÐUR» 1. „Ég hrökk við í bælinu“ 2. Hálfnaktar konur mótmæla 3. Ísland í riðli með Noregi 4. Ungri konu rænt í Noregi »MEST LESIÐ Á mbl.is  Lestrarfélagið Krummi hefur ákveðið að Stein- ar Bragi hljóti hina eftirsóttu Rauðu hrafns- fjöður í ár. Verð- launin eru veitt á ári hverju fyrir athyglisverðustu kynlífslýsingu í skáldverki nýliðins árs. Hlaut Steinar Bragi verðlaunin fyrir kafla úr bókinni Himinninn yfir Þingvöllum. Verðlaunin voru veitt á aðalfundi Krumma síðastliðinn föstudag. Kaflann krassandi og aðr- ar tilnefningar má sjá á www. hrafnaspark.blog.is. BÓKMENNTIR Steinar Bragi hlýtur Rauðu hrafnsfjöðrina  Á höfundahádegi í Norræna hús- inu í dag, frá kl. 12-13, ræða Haukur Ingvarsson útvarpsmaður og Pét- ur Gunnarsson rithöfundur bækur hins síðarnefnda um Þórberg Þórð- arson sem komið hafa út á síðustu árum. Þá hefur Haukur ekki síður fengist við áhugaverða hluti en ný- lega sendi hann frá sér bók um síð- ustu skáldsögur Halldórs Laxness. BÓKMENNTIR Ræða Þórberg í höfunda- hádegi í Norræna húsinu Haukur IngvarssonPétur Gunnarsson  Landsliðsmað- urinn í knatt- spyrnu Emil Hall- freðsson var glaður í bragði þegar Morgun- blaðið náði tali af honum um helgina eftir að hann hafði tryggt liði sínu Barnsley 1:0-sigur á Heiðari Helgu- syni og félögum í Watford í ensku 1. deildinni. „Þetta var bara snilldarmark hjá mér,“ sagði Emil af sinni alkunnu hógværð, en hló svo við. „Ég held því fram að ég sé alltaf frekar mikið í boltanum og ef eitt- hvað er að gerast í sókninni hjá okk- ur er ég oftast á bak við það. Ég er búinn að vera að skora mörk og leggja þau upp og finnst mér bara ganga mjög vel hérna. Það er gaman að spila á fullu og þetta er skemmti- leg deild, mikill hasar og læti,“ bætti hann við. KNATTSPYRNA „Ef það gerist eitthvað í sókn er ég á bak við það“ „ÞETTA er mikil íþrótt og var rosalega erfiður samanburður en ég náði fimm bollum réttum af átta á skemmstum tíma,“ segir kaffibarþjónninn Tumi Ferrer sem varði Íslandsmeistaratitil sinn í fagsmökkun á kaffi sem fram fór í húsnæði Kaffismiðju Íslands í gærdag. Ellefu kaffibar- þjónar tóku þátt í keppninni og má sjá einn þeirra, Karl Sigtryggsson, á meðfylgjandi mynd. Með sigrinum vann Tumi sér inn keppnisrétt á heimsmeistaramóti sem haldið verður í sumar. Hann hafnaði í 19. sæti á mótinu í fyrra en stefn- ir ótrauður hærra í ár. Ellefu kaffibarþjónar á Íslandsmótinu í fagsmökkun á kaffi „Þetta er mikil íþrótt“ Morgunblaðið/Kristinn NÝTT leikrit eftir Auði Jóns- dóttur verður sett upp í Borg- arleikhúsinu á næsta ári. Verk- ið skrifaði Auð- ur sem hirð- skáld leik- hússins, en hún hlaut þá útnefn- ingu í fyrra. Ný- lega tók svo Jón Gnarr við titl- inum. Leikritið hefur hún nefnt Hótel Reykjavík og fjallar það um leikhóp sem kemur saman í jarðarför. Auður segir leikritið hafa verið lengi að malla hjá henni, en að þessi tími hafi verið mjög gjöfull. „Þetta var skemmtilegt tækifæri fyrir mig persónulega og starfs- lega séð fór ég að fást við nýtt form, leikritagerð. Ég hef verið áhugasöm um leikhúsformið en ekki sinnt því þar til ég fékk þetta tækifæri. Þessi tími hefur verið mikill skóli.“ | 23 Auður Jónsdóttir Saman í jarðarför Setja upp Hótel Reykjavík Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FYRIR nokkrum árum hefðu nýlið- ar í björgunarsveit rekið upp stór augu ef í þeirra hóp hefði bæst rúm- lega þrítugur, hvað þá fertugur eða fimmtugur nýliði. Á síðustu árum er á hinn bóginn orðið mun algengara að fólk sem telst ekki lengur til ung- lamba hefji nýliðaþjálfun. Ein þeirra er Íris Lind Sæmunds- dóttir, 33 ára lögfræðingur í utan- ríkisráðuneytinu, sem hóf nýliða- þjálfun hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í fyrrahaust. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á úti- vist og gönguferðum en hafi ekki mikið hugsað um að ganga í björg- unarsveit fyrr en hún var hvött til þess af skólasystur sinni úr laga- deildinni sem byrjaði í nýliðaþjálfun 2008. „Ég hélt alltaf að nýliðar í björg- unarsveit þyrftu að vera hetjur og kunna allt og vita allt um starf björgunarsveitarmannsins. En síðan sá ég að það er pláss fyrir alla, reynt sem óreynt útivistarfólk,“ segir Íris Lind sem er afar ánægð með vistina í nýliðahópnum. Nýliðaþjálfunin sé afar markviss. Alls ekki of tímafrekt Íris Lind segir að þátttaka í björgunarsveit sé alls ekki of tíma- frek, ein til tvær helgar í mánuði fari í námskeið, ferðir og annars konar þjálfun. Í björgunarsveitarferðum geti fólk lagt áhyggjur vegna vinn- unnar á hilluna og fengið frið frá daglegu stressi. „Þetta er heimur út af fyrir sig og þú gleymir öllu öðru.“ Nýliðar á öllum aldri  Sífellt algengara að fólk á milli þrítugs og sextugs gangi í björgunarsveit  Fá markvissa þjálfun í fjallamennsku Á fjöllum Íris Lind búin að leggja lagasafnið til hliðar í bili a.m.k. Meðal þess sem nýliðarnir þurfa að læra er að ganga á mannbroddum. Að ýmsu er að gæta þegar langir og beittir mannbroddar eru komnir undir gönguskóna. Óvanir eiga það m.a. til að krækja broddunum í buxna- skálmar sínar þannig að þeir falli við og húrri niður fjalls- hlíðar á mikilli ferð. Í slíkum tilfellum má nota mannbrodd- ana og raunar ísaxir einnig til að stöðva rennslið en það er alls ekki sama hvernig það er gert. Læra að ganga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.