Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
KARLMAÐUR var í Héraðsdómi
Suðurlands í gær sýknaður af ákæru
um að hafa framið kynferðisbrot
gagnvart sjö ára gamalli dóttur
sinni. Maðurinn neitaði að hafa fram-
ið brotin. Stúlkan er greind með
væga þroskahömlum og er einnig of-
virk og með athyglisbrest.
Maðurinn var ákærður fyrir gróf
kynferðisbrot gegn dóttur sinni.
Upphaf kærunnar má rekja til þess
að vinkona móður stúlkunnar og
starfsmaður skóla hennar upplýsti
skólastjóra um áhyggjur móðurinn-
ar vegna þess að klámefni fannst á
diski í herbergi stúlkunnar og að
stúlkan kynni að vera að horfa á
klámmyndir með föður sínum.
Hafði skólastjóri samband við
barnaverndarnefnd sem hóf athugun
á málinu, sem meðal annars fólst í að
tekið var könnunarviðtal við stúlk-
una í Barnahúsi. Kom þar fram hjá
stúlkunni að hún ætti leyndarmál
með pabba sínum sem hún mætti
ekki segja frá en sagðist ætla að
segja móður sinni frá því að viðtalinu
loknu.
Dómarar málsins skoðuðu mynd-
upptökur af skýrslutöku yfir stúlk-
unni og mátu framburð hennar út af
fyrir sig trúverðugan. Hins vegar
var framburður stúlkunnar um
margt óljós um það hvernig atvik
voru þegar pabbi hennar átti að hafa
brotið gegn henni, hvar það gerðist
og hversu oft. Segir í niðurstöðu
dómsins að framburður stúlkunnar
fái ekki stoð nema að hluta til í frá-
sögnum annarra af því hvað hún
sagði þeim. Samkvæmt þessu, og
gegn eindreginni neitun mannsins,
verði ekki talið að fram sé komin
næg sönnun.
Sigríður Björnsdóttir hjá samtök-
unum Blátt áfram segir það óeðlilegt
að klámefni sé inni í herbergi hjá
ungu barni. Það að barn segi að það
eigi sér leyndarmál sem því finnist
erfitt að tjá sig um bendi til þess að
eitthvað hafi gerst. Það geti hins
vegar verið erfitt fyrir réttinn að
byggja á einhverju þegar barnið eigi
erfitt með að tala um hlutina. Það sé
einkenni á kynferðisbrotamálum þar
sem börn eiga í hlut að barnið sé
uppfullt af skömm og kenni sér um.
egol@mbl.is
Faðirinn sýknaður
Í HNOTSKURN
»Vitni sem komið höfðu aðkennslu eða umönnun
stúlkunnar á árunum 2008 og
2009 sögðu að þau hefðu veitt
því eftirtekt að stúlkan ætti
það til, umfram aðra krakka,
að leika sér á kynferðislegan
hátt með dúkkur.
Framburður 7 ára stúlku með þroskahömlun talinn óskýr
og faðir hennar því sýknaður af ásökunum um kynferðisbrot
UNNENDUR meistaramatseldar geta fram á sunnudag
notið góðra kræsinga á nokkrum veitingastöðum borg-
arinnar. Hin árlega menningarhátíð Food and Fund
var sett í gær með viðhöfn, í níunda sinn. Innlendir og
erlendir kokkar verða á ferðinni á eftirtöldum stöðum:
Dill, Einar Ben, Fiskfélagið, Fiskmarkaðurinn, Grand
hótel, Grillið, Hótel Holt, La Primavera, Nauthóll, Perl-
an, Silfur, Við Tjörnina og Vox.
Morgunblaðið/Kristinn
Matar- og menningarhátíðin Food and Fun í níunda sinn
Matarkræsingar um borg og bý
FRESTUR
þeirra sem fengu
bréf frá rann-
sóknanefnd Al-
þingis til að gera
athugasemdir
rann út í gær.
Páll Hreinsson,
formaður nefnd-
arinnar, sagði í
gær að nefndin
stefndi að því að verða búin að fara
yfir athugsemdirnar á föstudaginn
og þá gæti hún metið betur hversu
mikil vinna væri eftir hjá henni.
Athugasemdirnar snúast um af-
mörkuð atriði sem nefndin hefur til
athugunar í skýrslu sinni til Alþing-
is með tilliti til þess hvort um mis-
tök eða vanrækslu hafi verið að
ræða við framkvæmd laga og
reglna um fjármálastarfsemi á Ís-
landi og eftirlit með henni. 12 ein-
staklingar fengu bréf frá nefndinni.
egol@mbl.is
Fresturinn til and-
mæla rann út í gær
Páll Hreinsson
KARLMAÐUR
sem ekið var á, á
mótum Lauga-
vegar og Vega-
mótastígs, að-
faranótt
laugardagsins
24. janúar 2009,
lést sunnudaginn
21. febrúar sl.
Hann hét Hörður
Heimir Sigurðs-
son, fæddur 3. júní 1982. Hörður
var til heimilis að Birkibergi 32 í
Hafnarfirði. Hann var ókvæntur og
barnlaus.
Ökumaður bifreiðarinnar játaði
fyrir dómi að hafa ekið á manninn,
drukkinn og undir áhrifum vímu-
efna, of hratt og með of marga far-
þega. Hann stakk einnig af eftir
ákeyrsluna. Maðurinn var í sept-
ember dæmdur í þriggja og hálfs
árs fangelsi fyrir ákeyrsluna auk
fleiri brota.
Lést eftir ákeyrslu
fyrir rúmu ári
Hörður Heimir
Sigurðsson
ANNE Siebert, fulltrúi Samfylking-
arinnar í peningastefnunefnd
Seðlabankans, fær um 2.000 pund í
laun á mánuði, jafnvirði um 400
þúsund króna, auk greiðslna fyrir
kostnað við flug og gistingu. Þetta
kom fram í svari Gylfa Magnús-
sonar, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, á Alþingi í gær. Daniel
Gros, fulltrúi Framsóknarflokks í
peningastefnunefnd, er með 117
þúsund krónur á mánuði.
Með 400 þúsund
krónur á mánuði
MP Reykjavíkurskákmótið hófst í
gær í Ráðhúsi Reykjavíkur og var
aðsókn mikil. Þetta er 25. Reykja-
víkurskákmótið en fyrsta mótið var
haldið árið 1964. Þátttakendur eru
rösklega 100 og frá 22 löndum og
þar af eru 22 stórmeistarar.
Á efstu borðunum urðu úrslit
hefðbundin, hinir stigahærri sigruðu
hina stigalægri. En úkraínski stór-
meistarinn Yuri Kuzubov þurfti svo
sannarlega að hafa fyrir sigri sínum
gegn Guðmundi Halldórssyni og
Rússinn Alexei Dreev að hafa sig all-
an við til að leggja Þorvarð F. Ólafs-
son, segir í fréttatilkynningu.
MP banki og Skáksamband Ís-
lands hafa gert með sér samstarfs-
samning um stuðning bankans við
mótið næstu þrjú árin og er grund-
völlur mótanna þar með tryggður.
Aðgangur er ókeypis en önnur um-
ferð fer fram í dag og hefst kl. 15:30.
Skákskýringar hefjast um 17:30.
kjon@mbl.is
Þjarmað hressilega
að stórmeisturunum
Góð aðsókn á 25.
Reykjavíkurskák-
mótinu í gær
Morgunblaðið/Ómar
D-4? Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri opnar mótið með fyrsta leikn-
um í skák Ivans Sokolovs frá Bosníu og Fionu Steil-Antoni frá Lúxemborg.
„SVÍAR eiga að slíta þau tengsl sem
eru á milli láns til Íslendinga og
lausnar Icesave-deilunnar,“ segir
Hans Linde, þingmaður hins sænska
Vinstri flokks (Vänsterpartiet), sem
staddur er hér á landi. Hann segir
þingmenn frá flokknum hafa komið
til Íslands til að kynna sér hvernig
endurreisn efnahagslífsins gangi.
Líta verður á Icesave-málið sem
tvíhliða deilu milli Íslendinga annars
vegar og Breta og Hollendinga hins
vegar, segir Linde. Því hafi hann
fært rök fyrir því á sænska þinginu
að rangt sé að tengja lán frá Norð-
urlandaþjóðunum og Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum við lyktir málsins.
Ekki varð vart við mikil viðbrögð
við þeim röksemdaflutningi, segir
Linde, sem kveðst þó munu halda
áfram slíkri umræðu þegar hann
kemur aftur til Svíþjóðar.
Hann segist telja að almenningur
í Svíþjóð finni fyrir norrænni sam-
kennd og svíði að sjá hvernig Norð-
urlandaþjóðirnar hafi tekið málstað
Breta og Hollendinga frekar en Ís-
lendinga. hlynurorri@mbl.is
Lánin
verði ekki
skilyrt
Systurflokkur VG vill
að Svíar styðji Ísland
RAGNA Árna-
dóttir dóms-
málaráðherra
sagði á Alþingi í
gær að 170 ein-
staklingar hefðu
verið teknir til
skýrslutöku hjá
sérstökum sak-
sóknara, af þeim
hefðu á milli 40 og
50 réttarstöðu
sakbornings. Sextíu mál hefðu verið
tekin til rannsóknar en kæru vísað
frá í sautján og einu vísað til annars
embættis. Ragna benti á að þegar
embættið tók til starfa voru fjórir
fastráðnir starfsmenn. Í dag væru
þeir 25 og myndi fjölga um þrjá á
næstunni. Auk þess væru sjö erlendir
sérfræðingar til halds og trausts.
Einnig nefndi Ragna að skila-
nefndir föllnu bankanna hefðu fengið
erlenda sérfræðinga til að fara yfir
gögn þeirra og léki grunur á sak-
næmu athæfi bæri þeim að vísa mál-
um til embættis sérstaks saksóknara.
andri@mbl.is
170 teknir til
skýrslutöku
Ragna
Árnadóttir
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
10
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30 s: 522 4500 www.ILVA.is
LJÓS Í
TILVERUNA
Lanterne. Kertalukt. 21x17 cm. Verð 1.995,-
26x21 cm. Verð 3.495,- 33x25 cm. Verð 4.995,-