Morgunblaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 23
Umræðan 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
FÆR ÍSLAND þann stuðning
sem þarf til að koma okkur út úr
kreppunni frá „vinum“ okkar í Evr-
ópu? Sumir halda því fram að við
þurfum nýjan gjaldmiðil, stórar og
sterkar þjóðir til að passa upp á okk-
ur. Grikkland er skemmtilegt dæmi
um við hverju er að búast frá ESB
varðandi stuðning á ögurstund.
Ástandið í Grikklandi er vægast
sagt slæmt, landið rambar á barmi
þjóðargjaldþrots, fjöldaverkfalla og
almennra óeirða. Fjárlagahalli
Grikklands var tæp 13% á síðasta ári
en leyfilegur hámarkshalli sam-
kvæmt Evrópusambandinu er rúm
3%. Þar að leiðandi fer Evrópusam-
bandið fram á að Grikkland skeri
niður hjá sér til að mæta kröfum
sambandsins.
Það hefur valdið miklum usla með-
al almennings í Grikklandi, opinberir
starfsmenn hafa lagt niður störf og
fjölmenn mótmæli eru á götum úti.
Landið datt mikið til úr sambandi við
umheiminn um tíma og hafa stjórn-
völd áhyggjur af að upp úr sjóði á
götum úti. Hvað gerir Evrópusam-
bandið? Evrópusambandið hefur
svipt Grikkland atkvæðisrétti sínum
á fundi sem verður haldinn í næsta
mánuði og jafnvel þó að þessi
ákvörðum skipti litlu máli í praksís
er í henni fólgin ákveðin niðurlæg-
ing.
ESB hyggst skikka Grikki til að
skera niður og hækka skatta meira
en þeir hafa þegar gert og þurfa þeir
að mæta kröfum ESB um niðurskurð
og skattahækkanir fyrir 16. næsta
mánaðar. Ef Grikkir verða ekki við
kröfum ESB mun sambandið taka
yfir efnahagsstjórn landsins og skera
niður eftir eigin geðþótta. Til þess
munu þeir nýta sér ákvæði 126.
greinar Lissabonsáttmálans. Það
sýnir fram á að þegar í harðbakkann
slær hafa ríki innan ESB lítið um það
að segja hvort eða hvernig þau tak-
ast á við vandann.
Hvað kemur þetta Íslandi við? Jú,
á Íslandi í dag er mikil umræða um
nauðsyn þess að gerast aðilar að
ESB til þess að að hafa eitthvert
bakland þegar kreppir að. Gætum
við ekki dregið ákveðinn lærdóm af
afskiptum Evrópusambandsins af
málefnum Grikkja og hörku í þeirra
garð? Sem dæmi þá hefur Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn ekki krafið okk-
ur um nándar nærri eins mikinn nið-
urskurð eða beitt viðlíka hörku í
samskiptum. Ísland er tölfræðilega
séð mun verr statt en Grikkland,
fjárlagahalli Íslands er um 20% en
fjárlagahalli Grikklands er „ein-
ungis“ 13%, skuldatryggingaálag til
fimm ára á Íslandi er tæplega 600
punktar en Grikklands um 300
punktar. Hvað segir þetta okkur?
Halda Íslendingar í raun og veru að
Evrópusambandið veiti okkur ein-
hverjar undanþágur frá viðmiðum
sínum og ef svo verður hvað mun það
kosta okkur? Erum við tilbúin til að
fórna auðlindum okkar fyrir enn
grimmari niðurskurð á tímum efna-
hagslegrar óvissu? Ætlum við að
gangast undir alræðisvald frá Bruss-
el eða veljum við að vera frjáls og
óháð þjóð sem markar sína eigin
stefnu?
ESB, vinur í raun?
Eftir Baldur Inga Halldórsson,
Guðjón Ebba Guðjónsson og
Hinrik Þór Svavarsson
» Fær Ísland þann
stuðning sem þarf til
að koma okkur út úr
kreppunni frá ESB?
Getum við lært eitthvað
af atburðunum sem eru
að gerast í Grikklandi?
Baldur Ingi
Halldórsson
Baldur Ingi er verslunarmaður og
gjaldkeri Ísafoldar, Guðjón er örygg-
isvörður og ritari Ísafoldar, Hinrik er
verkamaður og í stjórn Ísafoldar.
Guðjón Ebbi
Guðjónsson
Hinrik Þór
Svavarsson
JÆJA Jóhanna,
þinn tími er svo sann-
arlega kominn, já bara
orðin „slökkviliðs-
stjóri“.
Ég er nú ekki flug-
freyja svo ég talaði við
þá hjá slökkviliðinu og
þeir sögðu mér að það
væri jú sett díselolía á
slökkvibílana en þeir
setja hana á litla tank-
inn, á stóra tankinn
sem dælt er úr á eldinn setja þeir
vatn! Það er nefnilega þeirra tak-
mark að slökkva eldinn.
Ætlar þú að segja mér að þú
takir ekki eftir að eldurinn er orð-
inn að stóru báli og þú heldur bara
áfram að dæla olíu á bálið? Var það
kannski ætlun þín að magna bálið?
Núna fer að koma að því að ís-
lenska þjóðin fái að kjósa um þessi
„frábæru“ Icesave-lög ykkar Stein-
gríms.
Í aðdraganda þessara kosninga
ætla ég að leyfa mér að benda þér
á að ef fréttaflutningurinn af þess-
um heimatilbúna hræðsluáróðri
þínum á að vera með sama hætti
og verið hefur þá gæti þér mögu-
lega tekist að magna bálið svo mik-
ið að fólkið í landinu samþykki lög-
in.
En hvað tekur svo við? Ætlar þú
að segja svo við þetta sama fólk að
af því að það var svo vitlaust að
samþykkja lögin þá verði það að
samþykkja inngöngu í ESB til að
eiga möguleika á að bæta fyrir mis-
gjörðir sínar?
Nei, Jóhanna, Íslendingar eru
ekki svona heimskir! Þið samfylk-
ingarfólk eruð búin að reyna að
telja okkur trú um að ef við bara
sækjum um aðild að ESB þá muni
íslenska krónan styrkjast. Það
þurfti að sækja um aðild strax af
því að Olli „hreini“ væri stækk-
unarstjóri ESB, hann er sænskur
og æðislegur, en hann er bara nú
þegar hættur sem stækkunarstjóri
og krónan styrktist ekki neitt.
Þetta eru draumórar hjá ykkur
samfylkingarfólki, sem eruð nú
þegar búin að snúa þessu upp í
mestu martröð Íslandssögunnar.
Það er í lagi að láta sig dreyma, en
hafðu þessa drauma út af fyrir þig
og reyndu ekki að nauðga Íslandi
inn í ESB með þessum hætti eða
öðrum.
Hvernig ætlar þú, Jóhanna Sig-
urðardóttir, að fara að því að borga
100-200 milljarða í vexti af Icesave
á ári í 7 ár? Aflaverðmæti á Ís-
landsmiðum upp úr sjó er núna
u.þ.b. 200 milljarðar á ári, þá á eft-
ir að borga allan kostnað við að ná
í aflann. Álverin skila engu í þjóð-
arbúið (svo segir Steingrímur eða
er hann kannski að ljúga?) og land-
búnaðurinn er varla að
skila svo miklum
gjaldeyri. Ætlaðir þú
kannski að reyna að
borga þetta með ag-
úrkum?
Nei, það sjá það all-
ir sem vilja sjá það að
þú ætlaðir auðvitað
aldrei að borga þetta
og getur aldrei borgað
þetta, inngangan í
ESB á að bjarga öllu.
Eitt skaltu líka vita,
að það er alveg sama
hvað þú skattpínir okkur almenn-
ing í landinu, þú getur aldrei borg-
að erlendar skuldir með Matador-
peningum!
Hvenær ætlar þú að játa þig
sigraða í þessu máli? Ég verð nú
bara að hryggja þig með því að
Davíð Oddsson hafði að minnsta
kosti rétt fyrir sér í því að eina
leiðin út úr þessum ógöngum er að
setja á þjóðstjórn í landinu og ís-
lenska þjóðin á fá að fá að velja
menn í hana samhliða þjóð-
aratkvæðagreiðslunni um Icesave.
Það er fullt af góðu fólki í öllum
stjórnmálaflokkum á Íslandi og úti
í samfélaginu líka sem þið alþing-
ismenn gætuð tilnefnt og fólkið svo
kosið um í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni. Það er fyrir löngu orðið tíma-
bært að hætta þessum ásökunum
fram og til baka, hverjum þetta og
hitt sé að kenna, við getum ekkert
annað úr því sem komið er en að
treyst rannsóknarnefndinni fyrir
því að „sannleikurinn“ komi í ljós.
Það kæmi mér ekki á óvart að
ómældur tími færi í það hjá ykkur
alþingismönnum að rífast um nið-
urstöðu skýrslunnar og landið yrði
þá stjórnlaust á meðan. Það er nú
ekki á bætandi.
Að lokum ætla ég nú að hrósa
þér aðeins, svo þetta sé nú ekki allt
saman neikvætt hjá mér, fyrir að
senda Steingrím J Sigfússon til
Noregs tveimur dögum eftir að Ís-
land lenti í ruslflokki hjá erlendum
matsfyrirtækjum og fá lán! Þetta
er alveg örugglega Íslandsmet ef
ekki eitthvað merkilegra en það.
Hvað gerði hann, hótaði hann því
að flytja til Noregs ef hann fengi
ekki lánið?
Opið bréf til
Jóhönnu
Sigurðardóttur
Eftir Guðmund
Karl Bergmann
» Það er í lagi að láta
sig dreyma, en hafðu
þessa drauma út af fyrir
þig og reyndu ekki að
nauðga Íslandi inn í
ESB með þessum hætti
eða öðrum.
Guðmundur Karl
Bergmann
Höfundur er húsasmíðameistari
og áhugamaður um að búa áfram
á Íslandi.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Bridsfélag
Akureyrar
Síðastliðinn þriðjudag var spilað
fyrra kvöld af tveimur í Góutvímenn-
ingi félagsins. Þrjú efstu sætin tóku
nokkuð afgerandi forystu þar sem
fjórða sætið er með 51,1 % skor.
Staða þriggja efstu para var eftirfar-
andi:
64,4% Frímann Stefánss. – Reynir Helgas.
63,0% Gylfi Pálss. – Helgi Steinsson
60,4% Ævar Ármannss. – Árni Bjarnas.
Seinna kvöldið verður spilað næst-
komandi þriðjudag.
Frekari upplýsingar má nálgast
www.bridge.is/felog
Bridsfélag Reykjavíkur
Að loknum 3 kvöldum af 4 í Að-
altvímenningi BR 2010 er staðan
æsispennandi á toppnum
Örfá stig skilja að 1.-3. sætið.
Helgi Bogas. - Gunnlaugur Karlsson 56,8%
Hermann Friðrikss. - Jón Ingþórss. 56,7%
Guðjón Sigurjónss. - Ísak Ö. Sigurðss. 56,7%
Gullsmárinn
Spilað var á 14 borðum í Gull-
smára mánudaginn 22. febrúar.
Úrslit í N/S
Dóra Friðleifsd. - Heiður Gestsd 329
Elís Kristjánsson - Páll Ólason 326
Jens Karlsson - Sæmundur Björnss. 311
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 297
A/V
Bragi Bjarnason - Magnús Ingólfss. 350
Þorsteinn Laufdal - Jón Stefánsson 344
Skúli Sigurðss. - Þorleifur Þórarinss. 305
Viðar Jónsson - Sigurður Björnsson 292
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
.
Föstudaginn 5.mars kemur út hið
árlega Fermingarblað Morgunblaðsins.
Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin-
sælustu sérblöðum Morgunblaðsins í
gegnum árin og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
Fermingarblaðið verður borið frítt inn
á heimili allra fermingarbarna á öllu
landinu.
Látið þetta glæsilega Fermingarblað
ekki framhjá ykkur fara.
MEÐAL EFNIS:
Veitingar í veisluna.
Mismunandi fermingar.
Skreytingar í veisluna.
Veisluföng og tertur.
Fermingartíska.
Hárgreiðsla fermingarbarna.
Fermingarmyndatakan.
Fermingargjöfin í ár.
Hvað þýðir fermingin.
Viðtöl við fermingarbörn.
Nöfn fermingarbarna.
Fermingarskeytin
Og fullt af öðru
spennandi efni.
FERMINGAR
PANTAÐU AU LÝSINGAPLÁSS FYRIR 1. MARS
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 1. mars.
Ferm
ing