Morgunblaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 ✝ Kristín GuðlaugBárðardóttir fæddist á Laufási á Hellissandi 21. desem- ber 1921. Hún lést á gjörgæsludeild Land- spítalans í Fossvogi þriðjudaginn 16. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðlaug Péturs- dóttir frá Ingjaldshóli, f. 13.8. 1895, d. 16.2. 1986, og Bárður Helgi Jónasson frá Hellis- sandi, skipstjóri, f. 13.6. 1894, d. 25.7. 1964. Systkini Kristínar eru: Valný, f. 1917; Gunnleif, f. 1919, d. 2002; Pétur, f. 1920; Guðrún, f. 1924; Jón Jónas, f. 1925. Kristín giftist Magnúsi Gunnari Magnússyni, f. 11.1. 1920, d. 1.8. 1986, aðalvarðstjóra hjá lögregl- unni í Reykjavík, 24. desember 1944. Þau eignuðust fimm börn: 1) Símon Vilberg, f. 9.2. 1944, starfs- maður Orkuveitu Reykjavíkur, maki Eygló Andrésdóttir, fyrrv. fasteigna hjá Hagaskóla, maki Guðbjörg Rós Haraldsdóttir (þau skildu). Þeirra börn eru: a) Krist- rún Dagný, maki Gerardo Jesus Cano. Dóttir þeirra er: Eyrún Rós, b) Sæþór Ægir, maki Erna Traustadóttir og eiga þau þrjú börn: Matthías Mána; Freyju og Vigni, c) Haraldur Gunnar, sam- býliskona Guðrún Guðmundsdóttir. Haraldur Gunnar á soninn Grétar Snæ frá fyrra sambandi, d) Karit- as Eyrún. Maki Matthíasar er Katrín Eiríksdóttir, bankamaður, og á hún tvo syni frá fyrra hjóna- bandi. 5) Dagný Dóra Gunn- arsdóttir, f. 27.10. 1962 ferðafræð- ingur, maki Halldór Diego Guðbergsson, varðstjóri hjá Strætó BS. Barn þeirra er Gunnar Magn- ús. Halldór á tvær dætur frá fyrra hjónabandi. Kristín fór ung að heiman suður til Reykjavíkur, aðeins þrettán ára gömul og var í vist eins og tíðk- aðist mikið í þá daga. Mikill kær- leikur og samstaða var ávallt á milli systkinanna og hafa þau haldið mjög góðu sambandi alla tíð. Samhliða húsmóðurstörfum starfaði Kristín hjá Þvottahúsi rík- isspítalanna og Saumastofunni Al- ís. Kristín verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 25. febrúar 2010, og hefst athöfnin kl. 13. starfsmaður Orku- veitu Reykjavíkur, f. 13.2. 1939. Barn þeirra: Sunna Krist- ín, maki Óttar Rolfs- son. Barn þeirra er: Embla Sól. 2) Jóna Guðrún, f. 21.8. 1946 verslunarmaður, maki Jón Sveinn Friðriksson, múrari. Börn þeirra: a) Kristín Gunný, maki Hafsteinn Eyvinds- son. Barn þeirra er: Hafsteinn. Kristín Gunný á dótturina Evu Rún frá fyrra sambandi. Hafsteinn á þrjá drengi frá fyrra hjónabandi, b) Herdís Sölvína, maki Haraldur Pétursson. Dætur þeirra eru: Hulda og Thelma Rut, c) Friðrik Ellert, maki Vilborg Stefánsdóttir. Börn þeirra: Daníel Már; Andrea Rut og óskírð stúlka, d) Gunnar Örn. 3) Jóhann Magnús, f. 28.4. 1949, glerslípunarmeistari, d. 9.5. 1997. 4) Matthías, f. 8.7. 1950, prentsmiður, nú umsjónarmaður Elsku mamma. Ég vil þakka þér fyrir þann kær- leik, ást og umhyggju sem þú sýndir mér, konu minni, börnum og barna- börnum alla tíð. Hafðu þökk fyrir allt. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Blessuð sé minning þín. Hvíl í friði. Þinn sonur, Matthías. Elsku mamma mín. Með söknuð í hjarta og tár á hvarmi kveð ég þig nú. Hafðu þökk fyrir allan kærleikann og umhyggj- una í gegnum árin og að vera minn besti vinur. Ég mun ávallt geyma minninguna um þig í huga mínum og hjarta og hafa hana að leiðarljósi í lífinu. Hvíldu í friði og megi Guðs englar umvefja þig hlýju og kærleik. Ó, mamma mín, nú leiðir skilja að sinni, og sorgartárin falla mér á kinn, en hlýjan mild af heitri ástúð þinni, hún mýkir harm og sefar söknuðinn. Í mínum huga mynd þín skærast ljómar, og minningin í sálu fegurst ómar. Þú móðir kær þér aldrei skal ég gleyma, þinn andi fylgi mér á lífsins strönd. Ég vil í hjarta heilræðin þín geyma og halda fast í Drottins styrku hönd. Með huga klökkum kveð ég góða móður. Ó, mamma mín, þú lífs míns stærsti sjóður. (Árni Gunnlaugsson.) Þín dóttir, Dagný. Elsku besta amma mín, nú þegar þú hefur kvatt okkur koma upp í huga mér margar góðar minningar. Það var alltaf svo notalegt að koma til þín í heimsókn, þú tókst vel á móti öllum og öllum leið vel í þinni nærveru. Heima hjá þér var allt fágað, stílhreint og fallegt. Þú varst með afbrigðum myndarleg, alltaf lagðir þú á borð fallegan dúk og heimabakað bakkelsi og allskyns kræsingar þegar gesti bar að garði. Þú hafðir gaman af að spjalla yfir kaffibolla um gömlu góðu dagana og rifjaðir gjarnan upp æskudaga þína, og fræddir mig um löngu látna ætt- ingja. Þú bjóst yfir mikilli visku og hlýju viðmóti. Alltaf leið manni bet- ur eftir að hafa heimsótt þig. Þú varst mikil fjölskyldumanneskja og þótti þér mjög annt um börnin þín og fólkið þitt. Þú hélst alltaf utan um hópinn þó að barnabörnin og langömmubörnin voru orðin mörg. Þú varst afar glæsileg kona, það geislaði af þér fegurðin, alltaf varstu vel til höfð, sannkölluð hefð- arfrú. Þú varst afar trygglynd kona og eftir að afi Gunnar kvaddi þennan heim árið ’86 varstu ein. Þú sagðist ekki vilja sjá neinn annan mann en afa. Elsku amma mín, ég kveð þig með miklum söknuði og þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum sam- an. Þú verður ávallt geymd í hjarta mínu. Megi almáttugur Guð um- vefja þig að eilífu. Ókvíðinn er ég nú, af því ég hef þá trú, miskunn Guðs sálu mína mun taka í vöktun sína. Hvernig sem holdið fer, hér þegar lífið þver, Jesús, í umsjón þinni óhætt er sálu minni. (H. Pétursson.) Þín, Kristrún Dagný Matthíasdóttir. Elsku amma okkar, hlýjan frá þér og góðmennskan var alltaf til stað- ar, maður gat komið í Stífluselið og átt góðar stundir með þér og þú varst svo glæsileg og fín. Kræsingarnar voru alltaf á borð- um þegar gesti bar að garði, sjaldan sem maður fór svangur heim. Þú átt sérstakan stað í hjarta okkar. Við kveðjum þig, amma Kristín, með söknuði en vitum að þú ert á góðum stað. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Guð geymi þig, elsku amma, og varðveiti. Þínir sonarsynir, Sæþór, Haraldur Gunnar og fjölskyldur. Elsku amma Kristín. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, ég vildi óska að þær hefðu verið fleiri. Ég sakna þín og gleymi þér aldr- ei. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Þín, Karítas Eyrún. Með örfáum orðum vil ég kveðja þig, elsku amma mín. Ég átti öll mín uppvaxtarár hjá þér og afa yndislegar minningar sem ég mun eiga. Það voru forrétt- indi að alast að mestu leyti upp hjá ykkur, elsku amma mín, og fyrir það er ég ævinlega þakklát. Ekki nóg með að vera búin að ala upp 5 börn og koma þeim til manns, held- ur tókst þú við barnabörnunum þín- um líka og sinntir uppeldinu af hlýu, Kristín Guðlaug Bárðardóttir Gott verð - Góð þjónusta STEINSMIÐJAN REIN Viðarhöfða 1, 110 Rvk Sími 566 7878 Netfang: rein@rein.is www.rein.is ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, Réttarholti, Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði miðvikudaginn 17. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rúnar Guðjón Guðmundsson, Sylvía Hallsdóttir, Guðný Anna Guðmundsdóttir, Björn Gunnar Jónsson, Magnús Helgi Guðmundsson, Halla Þórhallsdóttir, Birgir Þór Guðmundsson, Þóranna Rafnsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.  Látin er ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA ÞORSTEINSDÓTTIR píanókennari, áður til heimilis að Nesvegi 76, Reykjavík. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 11.00. Lára K. Guðmundsdóttir, Guðrún Edda Guðmundsdóttir, Finnbogi Rútur Hálfdanarson, Emil Gunnar Guðmundsson, Þórunn Hulda Guðmundsdóttir, Bjarni Lárusson, Hulda Birna Guðmundsdóttir, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir, Óskar Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær vinur, bróðir og mágur, GUÐMUNDUR ÁSBJÖRNSSON, Faxastíg 22, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þriðjudaginn 23. febrúar. Fyrir hönd annarra vandamanna, Sigurlaug Ólafsdóttir, Fjölnir Ásbjörnsson, Guðlaug Kjartansdóttir, Garðar Ásbjörnsson, Ásta Sigurðardóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN ÖRN KRISTJÁNSSON, Hólagötu 37, Njarðvík, lést á Landspítalanum í Reykjavík þriðjudaginn 23. febrúar. Útför verður auglýst síðar. Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir, Kristján Örn Kristjánsson, Ellert Stefán Birgisson, Ásthildur Lísa Guðmundsdóttir, Eydís Stefanía Kristjánsdóttir, Pétur Ingi Kolbeins, Þorsteinn Hermann Kristjánsson og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÖRN ÁRNASON skógfræðingur, Laufbrekku 17, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, fimmtu- daginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 15.00. Árni Guðmundsson, Sigríður Huld Konráðsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Úlfur Guðmundsson, Hróbjartur Örn Guðmundsson, Elín Björg Héðinsdóttir, Sigurveig Guðmundsdóttir, Böðvar Thorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.