Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 6

Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is SKÓLAHREYSTI, liðakeppni grunnskóla í kraftagreinum og hraðaþraut, hefst í Austurbergi í dag, en keppnin hefur farið fram árlega síðan 2005 að frumkvæði hjónanna Andrésar Guðmunds- sonar og Láru B. Helgadóttur. Fyrsta árið kepptu sex skólalið, en að þessu sinni eru 120 skólar skráð- ir til leiks og hafa aldrei verið fleiri. Keppnin er svæðaskipt og er fjögurra manna skólaliðunum skipt í 10 riðla. Riðlakeppnin fer fram fjóra fimmtudaga í röð og lýkur henni 18. mars. Efstu liðin í hverj- um riðli ásamt tveimur stigahæstu liðunum þar á eftir mæta síðan í úr- slitakeppnina í Laugardalshöll 29. apríl. Rúmlega 13.000 áhorfendur Í hverju liði eru tvær stúlkur og tveir piltar sem skipta keppnis- greinunum á milli sín. Keppendur hafa fengið mikinn stuðning frá skólafélögum sínum og í fyrra dró keppnin að sér meira en 13.000 áhorfendur. Keppt verður í þremur riðlum í dag. Í 1. riðli eru 11 skólar á Suður- landi og hefst keppni þeirra klukk- an 13.00. Kl. 16.00 byrjar keppni í 2. riðli þar sem eru lið 16 skóla í Reykjavík og keppni 3. riðils, 11 skóla í Reykjavík, byrjar kl. 19.00. Með Morgunblaðinu í dag fylgir sérstakt blað um Skólahreysti. Morgunblaðið/Ómar Sterk Eva Hlín Harðardóttir úr Foldaskóla tók 60 armbeygjur í keppninni fyrir tveimur árum. Skóla- hreysti í sjötta sinn Lið 120 grunnskóla keppa og aldrei fleiri „ÞAÐ ER mikið fjör í kiðlingunum,“ segir Vil- hjálmur Grímsson, bóndi á Rauðá í Þingeyjarsveit, en huðnurnar hans báru allar á níu daga tímabili, frá 11.-20. febrúar, sem Vilhjálmur segir frekar óvenjulegt. Á Rauðá eru 13 geitur, 12 huðnur og einn hafur. Kiðlingarnir, sem eru 15 talsins, eru í öllum litum. Rauðá er eina geitabúið á stóru svæði og skólahópar koma oft í heimsókn til að skoða geiturnar. „Oft fleiri hundruð á ári,“ segir Vil- hjálmur. Geitabúskapurinn er aðeins aukabúgrein á Rauðá en þar er einnig fjárbúskapur og nauta- bú. Ekki tíðkast að gefa geitunum nafn á Rauðá, en þó heitir sú elsta Killa. Þessi nýborni kiðling- ur fer á fjöll í vor með hópnum en geiturnar ganga frjálsar á sumrin þar til fer að snjóa. Löng hefð fyrir geitabúskap á Rauðá í Þingeyjarsveit Morgunblaðið/Atli Vigfússon Allar huðnurnar báru á níu dögum HALDIN var opin málstofa á vegum sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytisins í gær í Reykjavík um veiðar og vinnslu makríls og meðal ann- ars var þar birt skýrsla vinnu- hóps um veiðarnar. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda- stjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir margt fróðlegt hafa komið fram og umræðurnar hafi verið gagnlegar. „Þetta var allra fínasti upplýsingafundur, menn voru að deila með sér ýmiss konar þekkingu,“ seg- ir Friðrik. „Þarna voru fyrirlestrar um allt sem lýtur að makrílveiðum, vinnslu og sölu og líka fiskifræðinni.“ Hann er spurður um fund í Noregi sem íslenskir fulltrúar munu taka þátt í eftir tvær vikur en þar verður rætt um heildarstjórnun makrílveiða. „Ég tel engar líkur á að það verði nokkur ár- angur af þeim fundi. En þetta er eitt skref á langri leið. Þetta er í fyrsta sinn sem Noregur og Evr- ópusambandið axla ábyrgð og viðurkenna að Ís- land sé strandríki með fullan rétt til að taka þátt í stjórnun veiða úr þessum stofni, þá kröfu höfum við gert í meira en áratug. En það ber svo mikið á milli að engar líkur eru á að samningar takist, þeir ætla okkur bara eitthvert smáræði.“ kjon@mbl.is „Engar líkur á að samningar takist um heildarstjórnun“  Framkvæmdastjóri LÍÚ segir of mikið bera á milli í deilunum um makrílkvóta Í HNOTSKURN »Makrílveiðar hafa á seinni árum orðiðumtalsverður hluti af sjávarútvegi Ís- lendinga. En margir benda á að brýnt sé að ná hámarksarði af veiðunum með því að nýta sem mest til manneldis í stað þess að bræða megnið af fiskinum. » Íslendingar hafa úthlutað sér einhliðakvóta af þeim makríl sem veiðist í lög- sögu landsins. Veiðikvótinn er á þessu ári 130 þúsund tonn. Friðrik J. Arngrímsson Eftir Andra Karl andri@mbl.is SNÖRP orðaskipti urðu á Alþingi í gær í kjölfar fyrirspurnar Sigurgeirs Sindra Sigurgeirssonar, varaþing- manns Framsóknarflokks, til utanrík- isráðherra um þær stjórnsýslubreyt- ingar sem gera þarf áður en Ísland telst tækt til inngöngu í Evrópusam- bandið. Þingmenn allra flokka – utan Hreyfingarinnar – létu til sín taka og sitt sýndist hverjum um ágæti fyrir- hugaðra aðildarviðræðna. Landsbyggðarþingmenn voru áber- andi í umræðunni, s.s. Vigdís Hauks- dóttir, þingmaður Framsóknarflokks, Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Höfðu þær uppi stór orð um þá ákvörðun Alþingis að halda í aðild- arviðræður. Ein bað landsmenn að muna þennan örlagadag enda væri ríkisstjórnin að hefja baráttu fyrir ESB en láta barátt- una um heimilin lönd og leið. Önnur sagði aðildarumsóknina arfavitlausa og hún sæi eftir hverri krónu. Raunar gæti enginn sagt til um kostnaðinn þannig að Íslendingar væru að afhenda óútfylltan tékka. Öllu hógværari voru þær Ragnheið- ur Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, og Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks. Báðar vildu þær að spöruð yrðu gífuryrðin. Siv minnti á að meirihluti Alþingis hefði samþykkt að halda í þessa vegferð – og Framsóknarflokkur hefði ályktað að fara í viðræður með skilyrðum. Ragnheiður benti á að enn ætti eftir að semja og sjá hvað kæmi út úr við- ræðunum og að það væri þjóðarinnar að kjósa um inngöngu. Ágæti aðildarviðræðna kom til umræðu á þingi  Þingmaður bað landsmenn að muna þennan örlagaríka dag » ESB-umsóknin að- eins óútfylltur tékki » Meirihluti Alþingis samþykkti Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16 Listmunauppboð á næstunni Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 551-0400, 896-6511 (Tryggvi), 845-0450 (Jóhann) Erum að taka á móti verkum núna í Galleríi Fold við Rauðarárstíg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.