Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 8

Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÞETTA er undanbragðalaust sjón- armið heimildarmanna innan lífeyr- issjóða og í launþegahreyfingunni. Mætti slá því föstu eins og umræð- an er að þróast innan lífeyrissjóð- anna, að fjárfestingarsjóður þeirra, Framtakssjóður Íslands, muni t.a.m. ekki verða meðfjárfestir í Högum með fyrrverandi eigendum félagsins, sem fengið hafa forkaups- rétt, þegar hafist verður handa við sölu þess félags. 16 lífeyrissjóðir standa að Fram- takssjóðnum sem ætlað er að fjár- festa í fyrirtækjum sem eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll og skuldbundu sig til að leggja honum til 30 milljarða í hlutafé. Sjóðurinn á að verða áhrifa- fjárfestir. „Þar sem við förum inn gerum við það myndarlega til að hafa áhrif. Við erum ekki bara að koma með peninga til að fylla upp í eyður hjá öðrum,“ segir Ágúst Ein- arsson stjórnarformaður. Göngum í takt Hvassri viðvörun og áskorun stjórnar Kennarasambands Íslands um að sjóðirnir fjárfesti ekki í fyr- irtækjum sem eru í eigu eða undir stjórn aðila, sem áður hafa valdið sjóðunum alvarlegu fjárhagstjóni er vel tekið á vettvangi lífeyrissjóð- anna. Haft var eftir Arnari Sig- urmundssyni, formanni Lands- samtaka lífeyrissjóða, í Morgunblaðinu í gær að þetta væri brýnt mál sem rætt yrði nánar. „Ég heyri það sem Eiríkur Jónsson [for- maður KÍ] segir og hef engar at- hugasemdir við það,“ segir Ragnar Önundarson, formaður stjórnar Líf- eyrissjóðs verzlunarmanna. „Við göngum í takt með lífeyrissjóðunum í þessu,“ segir Ágúst Einarsson. Samskonar mat verði haft að leið- arljósi á vettvangi Framtakssjóðs- ins, sem er að ganga frá fjárfesting- arstefnu sinni. „Við erum hluti af samfélaginu, okkar hlutverk er að vera leiðandi í endurreisninni og það verður að gerast í sátt við þjóð- félagið sem er verið að endurreisa.“ Lífeyrissjóðirnir glíma hins vegar þessa dagana við stór álitamál vegna skuldameðferðar og nauða- samninga um fyrirtæki sem bank- arnir hafa tekið yfir, þar sem lífeyr- issjóðir eru meðal stórra kröfuhafa. Tugir milljarða geta verið í húfi fyr- ir sjóðina og togast á sjónarmið um siðferðileg gildi og kalt mat á því hvaða leiðir eru færar til að end- urheimta fé sjóðanna. Jafnvel þó það þýði að viðkomandi banki ákveði að afhenda fyrirtækið fyrri eigendum á nýjan leik. „Það er hægara um að tala en í að komast,“ segir stjórnarmaður í stórum lífeyr- issjóði, sem bendir á að miklu skipti fyrir hagsmuni sjóðfélaga hvaða leið verður fyrir valinu við skulda- meðferð fyrirtækja. Spurningin snúist á endanum um það hvort sjóðfélagar eru reiðubúnir að láta peningalega hagsmuni víkja og sætta sig við skerðingu lífeyrisrétt- inda hjá sjóðnum af hugsjónaástæð- um ef svo ber undir. Stjórnarmaður í öðrum sjóði segir mikil fundarhöld eiga sér stað hjá stjórn sjóðsins um þessi álitamál. Málefni Bakkavarar Group eru sérstaklega nefnd til sög- unnar í þessu samhengi. Fram kom í fréttaskýringu hér í blaðinu fyrir skömmu að nauðasamningarnir sem lagðir voru fyrir kröfuhafa fela í sér að Lýður og Ágúst Guðmundssynir munu stýra Bakkavör áfram. Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins eru meðal stærstu kröfuhafa auk Arion banka og þrotabúa Kaupþings og Glitnis. Skuldin við íslensku kröfu- hafana er 60 milljarðar og engar eignir í félaginu. Fallast á nauðasamninga eða keyra félög í þrot Viðmælandi segir miklar umræð- ur fara fram um þessa valkosti, hvort réttlætanlegt sé að fallast á nauðasamninga og bjarga ein- hverjum fjármunum eða láta allt fara í gjaldþrot, sem hefði í för með sér að lífeyrissjóðirnir þyrftu að af- skrifa skuldabréfin að fullu ,,Það er þetta sem menn standa frammi fyr- ir.“ Oftast ráði viðskiptabankinn ferðinni og hanni lausnirnar sem sjóðirnir þurfi síðan að samþykkja eða hafna. Þar liggur vandinn. Glíma við siðferðisspurningar Morgunblaðið/Golli Rík ábyrgð Lífeyrissjóðunum er falið að gæta lífeyris landsmanna en þeir eru um leið mikilvægasta fjárfestingarafl landsins um þessar mundir. Forsvarsmenn þeirra standa frammi fyrir kröfum um siðferði og samfélagslega ábyrgð.  Lífeyrissjóðir munu forðast fjárfestingar með útrásarvíkingum  Takast á við álitamál um endur- heimt peninga í nauðasamningum eða hvort keyra á félög í þrot þótt það kosti skerðingu lífeyrisréttinda Enginn hljómgrunnur er fyrir því innan öflugustu lífeyrissjóða landsmanna að sjóðirnir fjárfesti í fyrirtækjum sem verða undir stjórn eða að einhverju leyti í eigu umdeildra útrásarvíkinga. Þótt forsvarsmenn Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna segi að Hagar verði skoðaðir eins og aðrir fjár- festingarkostir þegar söluferlið hefst hafa mál þess ekkert komið inn á borð sjóðsins. Ákvarðanir Arion banka um málefni Haga eru gagnrýndar af mönnum sem fara með málefni lífeyrissjóða. Bank- inn hafi látið sér til hugar koma að ákveða sjálfur fyrir væntanlega fjárfesta hverjir verði meðfjár- festar og um leið stjórnendur fé- lagsins en ætli svo stórum sjóð- um á borð við lífeyrissjóði, „sem eru fullir af almannafé að sitja bara í aftursætinu hjá þeim. Þetta gengur ekki upp. Þetta er bara ekki gert svona,“ segir viðmæl- andi sem gjörþekkir þessi mál. Greinilegt sé að bankinn hafi ver- ið að þreifa sig áfram og virðist líða fyrir að þá sem þar halda um stjórnvölinn skorti starfsreynslu á þessu sviði. Nú virðist bankinn hafa bakkað frá fyrri hugmyndum fyrir jól þeg- ar áform voru uppi um að bankinn myndi eiga 49%. Bankinn komi ekki eingöngu fram í hlutverki lánveitanda og veðhafa heldur hafi blandað sér í eignaraðildina. Virðist líða fyrir reynsluskort á þessu sviði Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÞAÐ er verið að draga okkur á asnaeyrunum. Láta okk- ur bíða og bíða og reyna þannig að drepa niður áhuga heimafólks á þessu,“ segir Garðar Páll Vignisson, bæj- arfulltrúi í Grindavík. Grindvíkingar telja sig hafa loforð tveggja ráðherra um heimild til stofnunar menntaskóla í bænum en fá ekki formlega staðfestingu þess. Áhugi hefur verið á að koma upp framhaldsnámi í Grindavík í nokkur ár. Sérstakur verkefnisstjóri hefur unnið að málinu í bráðum tvö ár. Menntamálaráðuneytið skipaði starfshóp sem lokið hefur störfum. Grindavíkurbær hefur lýst sig reiðubúinn að leggja fjármuni í verkefnið. Tilbúin er áætlun um að hefja kennslu fyrsta árgangsins á komandi hausti. Búið var að útvega húsnæði og stundaskráin tilbúin. Katrín Jak- obsdóttir menntamálaráðherra og Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra hafa gefið munnleg loforð um að skólastarf hæfist í haust, að því er fram kemur í bókun á bæjarstjórnarfundi fyrr í mánuðinum. En það stendur á formlegu svari menntamálaráðu- neytisins. „Við erum búin að bíða ansi lengi eftir skrif- legu svari, það er farið að skipta mánuðum. Við getum ekki gert ráðstafanir um framtíð barnanna okkar nema hafa formlega heimild ráðuneytisins. Það virðist vera einhver andstaða í ráðuneytunum,“ segir Garðar Páll sem mikið hefur unnið að framgangi málsins. „Við erum að falla á tíma með að byrja í haust.“ Hugmynd Grindvíkinga var að stofna sjálfstæðan skóla en ráðuneytið vildi að skólinn yrði útibú frá öðrum framhaldsskóla. Rætt hefur verið óformlega við stjórn- endur Flensborgarskóla í Hafnarfirði um samstarf. Spurður um hugsanlega samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja segir Garðar að skoðanir stjórnenda þess skóla og Grindvíkinga um framtíðina fari ekki saman. „Fullnýting hugar og handa“ Hugmyndir eru uppi um að framhaldsskóli í Grindavík verði með svipuðu sniði og Menntaskóli Borgarfjarðar. Boðið verði upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs. Um 50 nemendur eru í hverjum árgangi grunnskóla í Grindavík og skólinn myndi þá byrja með um 50 nem- endur en verða 150 til 200 manna skóli eftir fáein ár. Garðar Páll telur að framhaldsskóli muni hafa mikla þýðingu fyrir Grindavík, ekki aðeins í aukinni menntun ungmenna. „Þetta er stóriðjan okkar, ekki með útsölu á orku heldur fullnýtingu hugar og handa.“ Verið að drepa niður áhuga heimafólks Morgunblaðið/Árni Sæberg Einbeittar Hugsanlegir nemendur í nýjum framhalds- skóla í Grindavík taka þátt í körfuboltamóti.  Grindvíkingar óánægðir með að fá ekki staðfestingu á loforðum um framhaldsskóla SAMNINGUR um uppbyggingu svokallaðrar Fab Lab-smiðju á Sauðárkróki var undirritaður í gær. Fulltrúar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Sveitarfé- lagsins Skagafjarðar, Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands og Há- tækniseturs Íslands undirrituðu samninginn. „Fab Lab á Sauðárkróki mun hefja starfsemi í verknámshúsi Fjölbrautaskólans síðari hluta sumars. Smiðjunni er ætlað að gefa frumkvöðlum, nemendum, almenningi og starfsmönnum fyr- irtækja og stofnana tækifæri til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni,“ segir í frétt frá sveitarfélaginu Skagafirði. Fab Lab stendur fyrir Fabri- cation Laboratory og átti hinn virti MIT-háskóli í Bandaríkj- unum frumkvæði að stofnun Fab Lab. Slíkar starfrænar smiðjur eru t.d. víða í Bandaríkjunum, Gana, Suður-Afríku, Kostaríku, Indlandi og á Spáni auk Vest- mannaeyja en þar opnaði Nýsköp- unarmiðstöð Íslands Fab Lab árið 2008. Fab Lab opnuð á Sauðárkróki  Verður smiðja fyrir frumkvöðla Fab Lab Samningurinn um Fab Lab var undirritaður á Sauðárkróki í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.