Morgunblaðið - 25.02.2010, Qupperneq 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
TIL átaka kom í gær milli lögreglumanna og
ungmenna sem tóku þátt í mótmælum þús-
unda manna í miðborg Aþenu gegn sparnaðar-
áformum grísku stjórnarinnar vegna mikils
fjárlagahalla.
Átökin hófust þegar um 50 ungmenni
reyndu að ráðast inn í nokkur lúxushótel við
Syntagma-torgið í miðborg Aþenu. Lögreglan
beitti táragasi til að flæma ungmennin burt en
um 250 aðrir mótmælendur tóku þá að kasta
steinum og nokkrum eldsprengjum að lög-
reglumönnunum. Tveir ljósmyndarar slös-
uðust og þrír mótmælendanna voru hand-
teknir. Rúður voru brotnar í um 20 verslunum
í grenndinni.
Lögreglan áætlar að alls hafi um 27.000
manns tekið þátt í mótmælunum í Aþenu og
um 7.000 manns mótmæltu sparnaðar-
áformum stjórnarinnar á götum Þessalóníku.
Lögðu niður vinnu í sólarhring
Atvinnulífið í Grikklandi lamaðist í gær
vegna sólarhrings verkfalls samtaka ríkis-
starfsmanna og annarra verkalýðssamtaka.
Efnt var til verkfallsins til að mótmæla
áformum stjórnarinnar um að minnka fjár-
lagahallann sem nemur nú 12,7% af vergri
landsframleiðslu. Samkvæmt skilyrðum evr-
ópska myntbandalagsins má hallinn ekki vera
meiri en 3% af landsframleiðslunni.
Gríska stjórnin hefur lofað að minnka fjár-
lagahallann í 8,7% af landsframleiðslunni í ár.
Stjórnin hefur einnig heitið því að grynnka á
skuldum ríkisins með því að frysta laun ríkis-
starfsmanna, hækka meðaleftirlaunaaldurinn í
63 ár ekki síðar en árið 2015 og hækka skatta á
bensín, áfengi og tóbak. Stjórnin hefur einnig
boðað aðgerðir til að draga úr skattaundan-
skotum, en svarta hagkerfið í Grikklandi er
talið nema um 30% af vergri landsframleiðslu.
Fréttaskýrendur telja líklegt að gríska
stjórnin neyðist til að grípa til frekari
sparnaðaraðgerða á næstu mánuðum til að
fullnægja skilyrðum Evrópusambandsins.
Hugsanlegt er til að mynda að stjórnin hækki
virðisaukaskattinn sem er nú 19%.
Matsfyrirtækið Fitch ákvað í fyrradag að
lækka lánshæfismat fjögurra stærstu stærstu
banka Grikklands og það verður til þess að
dýrara verður fyrir bankana og gríska ríkið að
taka lán.
Gríska stjórnin þarf að gera stjórnvöldum í
hinum evrulöndunum fimmtán grein fyrir
sparnaðaráformum sínum ekki síðar en 16.
mars. Fjármálaráðherrar evrulandanna fimm-
tán hafa varað Grikki við því að þeir kunni að
þurfa að grípa til frekari aðgerða ef sparnaðar-
áformin, sem þegar hafa verið ákveðin, duga
ekki til að minnka fjárlagahallann.
George Papandreou, forsætisráðherra
Grikklands, sagði í viðtali við breska ríkis-
útvarpið um helgina að Grikkir óskuðu ekki
eftir beinni fjárhagslegri aðstoð annarra
aðildarlanda Evrópusambandsins. Þeir vildu
hins vegar pólitískan stuðning sem gerði þeim
kleift að taka lán á sömu kjörum og önnur lönd
á evrusvæðinu.
Reuters
Átök Lögreglumenn og mótmælendur takast á í Aþenu er um 27.000 manns söfnuðust þar saman til að mótmæla sparnaðaráformum stjórnvalda.
Atvinnulíf í Grikklandi lamaðist
Átök blossuðu upp í Aþenu þegar þúsundir manna mótmæltu sparnaðaráformum grísku ríkis-
stjórnarinnar Talið er að stjórnin þurfi að grípa til fleiri aðgerða til að minnka fjárlagahallann
RANNSÓKN vísindamanna bendir
til þess að frávik í sjávarhita í Ind-
landshafi, eða svonefnd Indlands-
hafssveifla, geti gert veðurfræð-
ingum kleift að vara við veður-
fyrirbærinu El Niño með allt að 14
mánaða fyrirvara.
El Niño fylgir hlýnun á stóru
svæði í Austur-Kyrrahafi og fyrir-
bærið hefur áhrif á veðurfar í
mörgum Kyrrahafslöndum, í sunn-
anverðri Afríku og jafnvel Evrópu.
Vísindamenn hafa hingað til að-
eins getað varað við El Niño með
nokkurra mánaða fyrirvara, en
hann er oft of skammur til að sjó-
menn, bændur og aðrir geti búið
sig undir veðurfarslegu breyting-
arnar.
Kemur um ári síðar
El Niño kemur óreglulega á
tveggja til sjö ára fresti þegar
staðvindar, sem valda hringrás
yfirborðssjávar, taka að veikjast.
Sjórinn í vestanverðu Kyrrahafi
tekur að hlýna og hlýi sjórinn
breiðist síðar austur um. Þetta
veldur miklum breytingum á úr-
komu, flóð og aurskriður verða al-
gengari í löndum, sem eru yfirleitt
þurrviðrasöm, og þurrkar verða í
Vestur-Kyrrahafi. Breytingar
verða einnig á sjávarstraumum.
Á eftir El Niño kemur kaldara
tímabil, sem nefnist El Niña, en
það hefst yfirleitt um ári síðar.
Veðurfræðingar við japanska
stofnun, sem rannsakar loftslags-
breytingar í heiminum, telja að
svonefnd Indlandshafssveifla (Indi-
an Ocean Dipole) geti verið fyr-
irboði El Niño. Þessi sveifla var
fyrst skilgreind árið 1999 og hefur
komið á um það bil tveggja ára
fresti. Rannsókn vísindamannanna
á veðurgögnum frá 1981 til 2009
leiddi í ljós að þegar Indlandshafs-
sveiflan var í „neikvæðum fasa“ –
þegar sjórinn var hlýr í vestur-
hlutanum og kaldur í austurhlut-
anum – hófst El Niño-tímabil í
Kyrrahafinu rúmu ári síðar.
Skýrt er frá niðurstöðum rann-
sóknarinnar í tímaritinu Nature
Geoscience.
Vísindamenn segja þó að rann-
saka þurfi þetta lengra aftur í tím-
ann þar sem aðrar rannsóknir á
sjávarhita frá 1890-2008 bendi til
þess að Indlandshafssveiflan kunni
að vera breytileg. Heimildir: NOAA, NASA, Veðurstofa Ástralíu
VEÐURFYRIRBÆRIÐ EL NIÑO
Veðurfyrirbærið El Niño getur ýmist valdið óvenjumiklum þurrkum eða flóðum víða um heim, auk skógarelda sem valda
aukinni losun gróðurhúsalofttegunda
ÁHRIF EL NINO Á VEÐURFAR
Hlýr sjávarstraumur, sem færist suður frá miðbaugi og kemur stundum til Perú um
jólaleytið, nefnist El Niño sem þýðir 'drengurinn' á spænsku og er þá átt við Jesú-
barnið. Hann kemur óreglulega á 2-7 ára fresti og hefur flókin veðurfarsleg áhrif
Dæmi-
gerð
staða háþrýsti-
svæða á vorin
Yfirborð
staðvindar
Tahiti
Walke
r-
hring
rásin
Kaldu
r
sjór
Kaldu
r sjór
strey
mir u
pp á
yfirbo
rðið
Hlýr s
jór
Kaldu
r sjór
Darwin
Tahiti
Hlýr s
jór
Kaldu
r sjór
Upps
treym
i kald
s sjáv
ar
minn
kar
Walke
r-
hring
rásin
Kaldu
r
sjór
MIÐB
AUGU
R
Darwin
ÁHRIF EL NIÑO Í HEIMINUM
Svæði sem verða oftast fyrir áhrifum
Votviðra-
samara
HlýrraÞurrara
MIÐBAUGUR
SUÐUR-
SVEIFLUSTUÐULL
Segir til um sveiflur í loftþrýstings-
mismun milli Tahiti og Darwin í Ástralíu
20
0
-20
-40
1950 1960'55 '65 '75 '85 '95 '051970 1980 1990 2000 '10
Jákvæð gildi benda oft
til La Niña-tímabila
Neikvæð gildi benda oft
til El Niño-tímabila
El Niño-tímabil
EL NIÑO-ÁR
Staðvindar veikjast eða
breyta um átt
Hlýr sjór og regn-
ský færast austar,
venjulega í
a.m.k. 3-5
mánuði
Óvenju-
þurrkasamt
verður í Asíu
El Niño kemur óreglulega á tveggja
til sjö ára fresti, að meðaltali fjögurra ára
1
2
3
Staðvindar ýta yfirborðs-
sjó vestur á bóginn
VENJULEGT ÁR
Hlýrri sjór vermir
loftið og regnský
myndast
Kaldur sjór streymir
upp og kælir loftið,
þannig að loftslagið
á svæðinu verður
svalara og
þurrara
1
2
3
Hægt að vara við
El Niño með 14
mánaða fyrirvara?
Kvöldið áður en Grikkir efndu til sólarhrings
verkfalls var efnt til fjölmennra götumót-
mæla í spænskum borgum vegna áforma rík-
isstjórnar Spánar um að hækka eftir-
launaaldurinn úr 65 árum í 67. Fjárlagahalli
landsins nemur nú 11,4% af vergri lands-
framleiðslu og stjórnin hefur boðað
sparnaðaraðgerðir næstu fjögur árin til að
minnka hallann í 3% af landsframleiðslunni.
Í grannríkinu Portúgal hafa samtök opin-
berra starfsmanna boðað sólarhrings verk-
fall 4. mars til að mótmæla áformum
stjórnarinnar um að frysta laun þeirra.
Stjórnin stefnir að því að minnka fjár-
lagahallann um eitt prósentustig í ár, eða í
8,3% af vergri landsframleiðslu. Búist er við
fleiri verkföllum á evrusvæðinu á næstu
mánuðum vegna efnahagsaðgerðanna.
Fjöldamótmæli og verkföll víða á evrusvæðinu