Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 17

Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 DÝRKENDUR falla í trans á Cap Go Meh- hátíðinni í kínversku hofi í Pontianak í Vestur- Kalimintan-héraði í Indónesíu. Hátíðin markar lok hátíðarhalda í tilefni af því að ár tígursins gekk í garð 14. þessa mánaðar samkvæmt kín- verska tímatalinu. Reuters KÍNVERSKU NÝÁRSHÁTÍÐINNI LOKIÐ Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur An- gie Sanselmente Valencia, þrí- tugri nærfatafyr- irsætu, sem lög- regla grunar um að reka einn víð- tækasta eitur- lyfjasmyglhring heims. Í blaðinu Daily Telegraph segir að Valencia sé talin hafa fengið til liðs við sig fagrar konur og fengið þær til að flytja eiturlyf til Evrópu og Norður-Ameríku gegn greiðslu. Talið er að margar kvennanna séu fyrirsætur, sem tekið hafi þátt í al- þjóðlegri samkeppni. Haft er eftir Valenciu að hún lýsi þeim sem „ógr- unsamlegum, fallegum englum“. Í desember var 21 árs gömul kona tekin með 55 kíló af kókaíni í Buenos Aires og sagði hún til Val- enciu og lýsti aðferðum hennar. Valencia hefur síðan verið á flótta og er talið að hún sé annaðhvort í Argentínu eða Mexíkó. Fyrirsæta höfuðpaur glæpahóps Eitt stærsta eitur- lyfjagengi heims Angie Sanselmente Valencia FÆRST hefur í vöxt að nauðgarar noti lyf til að slæva fórnarlömb sín tímabundið í því skyni að nauðga þeim, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðafíkniefnaráðsins (INCB). Þekktast þeirra lyfja, sem notuð eru í þessum tilgangi, er svefnlyfið Rohypnol. Alþjóðafíkniefnaráðið segir að hertar alþjóðlegar reglur hafi orðið til þess að dregið hafi úr notkun Rohypnols í þessum tilgangi en nauðgarar noti í auknum mæli önnur lyf sem reglurnar ná ekki til. Fíkniefnaráðið hvetur því stjórnvöld til að setja þessi lyf á lista yfir efni sem lúta ströngum reglum. Fram- leiðendur lyfjanna eru einnig hvattir til að nota litarefni eða bragðefni til að torvelda nauðgurum að nota þau. Lyfin eyðast svo hratt í líkaman- um að yfirleitt er of seint að mæla þau sólarhring eftir að þau eru not- uð. Þeim er gjarnan laumað í drykk hjá fórnarlambinu, en oft er auðvelt að koma því við ef áfengi er haft um hönd og fólk ekki á varðbergi. Rohypnol og svipuð lyf hafa þau áhrif að fólk verður sljótt og ófært um að verjast. Og þegar áhrifin eru horfin er sú eða sá sem nauðgað var yfirleitt ekki fær um að rifja upp at- burðarásina, lyfið þurrkar að mestu út minnið meðan það virkar, að sögn Alþjóðafíkniefnaráðsins. Mörg dæmi munu vera um það hérlendis að konum hafi verið gefið Rohypnol eða svipuð lyf en sönnunarbyrðin er erfið. Varað við „nauðgunarlyfjum“ DANSKA ríkisstjórnin sagði í nýrri stefnuyfirlýsingu, sem birt var í gær, að hún hygðist skipleggja aðra at- kvæðagreiðslu um það hvort Danir ættu að taka upp evru. Ekki var til- tekið hvenær atkvæðagreiðslan ætti að fara fram. Yfirlýsingin var rökstudd þannig að með því að vera utan evrusvæð- isins væri unnið gegn hagsmunum Dana og það sama ætti við um aðrar undanþágur frá Evrópusamstarfinu, sem samið hefði verið um eftir að Danir höfnuðu Maastricht-sáttmál- anum árið 1992. Telja slæmt að vera fyrir utan „Við sjáum nú afleiðingarnar af stöðu okkar hvað varðar sameigin- legu myntina nú þegar löndin á evru- svæðinu eru að styrkja samstarf sitt,“ segir í stefnuyfirlýsingu stjórn- arinnar. Því er bætt við að efnahagur Danmerkur hafi orðið fyrir meiri skakkaföllum vegna þess að Danir eru utan evrusvæðisins en orðið hefði væru þeir innan þess. Nýja stefnuskráin var gefin út í kjölfar rækilegrar uppstokkunar í stjórn Lars Løkke Rasmussen for- sætisráðherra. Þegar Rasmussen tók við embætt- inu af Anders Fogh Rasmussen í fyrra sagði hann að þjóðin fengi að kjósa um undanþágurnar frá sam- starfinu um sameiginlegar varnir, í réttarmálum, um ríkisborgararétt og evruna fyrir lok þessa kjörtíma- bils, sem er 2011. Danir höfnuðu evrunni í þjóðarat- kvæði árið 2000. 53% kjósenda greiddu atkvæði gegn henni. kbl@mbl.is Reuters Evruatkvæði Lars Løkke Rasmussen ætlar að láta kjósa um evruna. Boða þjóðarat- kvæði um evru STEFNUSKRÁIN »Í stefnuskrá uppstokk-aðrar ríkisstjórnar Dana segir að Danmörk eigi að vera eitt þeirra tíu landa heims þar sem fólk er langlífast. »Stefnt er að því að opin-beri geirinn verði sá skil- virkasti í heimi og skriffinnsk- an minnst. »Ætlunin er að Danmörkverði meðal þeirra þriggja landa sem eru með besta nýt- ingu í orkumálum. Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010 um gildi laga nr. 1/2010 Kjörstaðir í Reykjavík Í Reykjavíkurkjördæmi suður: Í Reykjavíkurkjördæmi norður: Hagaskóli Ráðhús Hlíðaskóli Kjarvalsstaðir Breiðagerðisskóli Laugardalshöll Ölduselsskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi Íþróttamiðstöðin Austurbergi Borgaskóli Árbæjarskóli Ingunnarskóli Ingunnarskóli Klébergsskóli Kjörfundur hefst laugardaginn 6. mars kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli kjósenda er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördegi og þar verða atkvæði talin. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur á kjördegi og þar verða atkvæði talin. Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars nk. liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 26. febrúar nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá á vefnum www.kosning.is. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemdum vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá. Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður Skrifstofa borgarstjórnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.