Morgunblaðið - 25.02.2010, Síða 18
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
Börn og konur á Akureyri gleðjast
sérstaklega þessa vikuna. Ástæðan
er snjór; börnum er eðlislægt að
þykja gaman þegar mjöll fyllir bæ-
inn en kvenpeningurinn stefnir á
kvennaskíðagönguna Í spor Þór-
unnar hyrnu sem verður í Hlíð-
arfjalli um helgina.
Ganga kennd við Þórunni eiginkonu
Helga magra fór fyrst fram 2008 en
sambærilegar kvennagöngur fara
árlega fram bæði í Noregi og Sví-
þjóð. Um 70 konur tóku þátt í Þór-
unnargöngunni 2008, í fyrra mættu
113 til leiks, kvenfólk á öllum aldri.
Skíðagangan er haldin í samvinnu
við Mjólkursamsöluna. Vegalengd-
irnar sem hægt er að ganga eru 3,5
eða 7,0 km. Engin tímataka er í
göngunni og er útiveran, skemmt-
unin og félagsskapurinn í fyrirrúmi.
Á leiðinni er boðið upp á veitingar og
einnig þegar komið er í mark.
Þó að gangan sé ekki opin körlum
hef ég þokkalegar heimildir fyrir því
að einhverjir þeirra gleðjist líka.
Þeir geta farið á skíði, þeyst á sleð-
anum eða bara hreinsað snjóinn af
þakinu.
Friðbjarnarhús, eitt glæsilegasta
húsið við Aðalstræti í Innbænum, er
nú komið í eigu Akureyrarbæjar.
Góðtemplarareglan afhenti bænum
það að gjöf á dögunum og nú hefur
verið auglýst eftir hugmyndum um
notkun hússins.
KFC á Íslandi hefur sótt um lóð í
miðbæ Akureyrar fyrir Kentucky
Fried Chicken veitingastað. Skipu-
lagsnefnd frestaði afgreiðslu máls-
ins á síðasta fundi en í gögnum kem-
ur fram að staðurinn eigi að vera
2000-3000 fermetrar.
„Bernskan: Krímsóda, lindubuff,
skautar og skíði. Stutt til ömmu,“
segir í skemmtilegri tilvitnun í séra
Svavar Alfreð Jónsson á heimasíðu
Akureyrarbæjar. Síðan segir: „Æsk-
an: Rúnturinn og Menntaskólinn.
Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár:
Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin.
Stutt í veiði. Framtíðin: Veitinga-
staðir og menningarlíf. Stutt til
Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veð-
ur og kirkjan á brúninni. Stutt
heim.“ Allt hárrétt...
Hljómsveitin Rokk, með Sjonna
Brink í fararbroddi, leikur á Vél-
smiðjunni á föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Íbúi við Helgamagrastræti hefur
kvartað undan hraðakstri um götuna
en skipulagsnefnd bæjarins telur
ekki ástæðu til aðgerða. Hverfið er
skilgreint sem 30 km svæði en í
mælingu framkvæmdadeildar bæj-
arins á tíu daga tímabili fyrr á árinu
var meðalhraðinn 25 km.
Íbúi við Oddeyrargötu hefur einnig
kvartað vegna hraðaksturs. Þar er
líka 30 km hámarkshraði, með-
alhraði skv. mælingu fram-
kvæmdadeildar var 37 km á tíu daga
tímabili í janúar en skipulagsnefnd
telur þó ekki þörf á úrbótum.
Hljómsveitin Todmobile verður með
tónleika á Græna Hattinum bæði á
föstudags- og laugardagskvöld. Boð-
ið verður upp á brot af því besta sem
sveitin hefur samið í gegnum tíðina.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Skapti Hallgrímsson
Gaman Börn að leik uppi á hól í Glerárhverfi í fyrradag. Engar konur voru
sjáanlegar; þær hafa sennilega verið að æfa sig fyrir Þórunnargönguna.
Bónus
Gildir 25.-28. febrúar verð nú áður mælie. verð
Os brauðostur ........................... 972 1231 972 kr. kg
My samlokubrauð, 770 g ........... 198 279 257 kr. kg
N.v. ferskt nautahakk ................. 898 998 898 kr. kg
G.v ferskar grísakótelettur ........... 898 998 898 kr. kg
G.v. ferskt grísagúllas ................. 898 998 898 kr. kg
G.v. ferskt grísasnitsel ................ 898 998 898 kr. kg
Heinz tómatsósa, 2x567 g.......... 198 396 174 kr. kg
Ariel þvottaefni, 28 þvottar ......... 1.398 1459 50 kr. stk.
Lenor gulur, 2 l .......................... 298 398 149 kr. ltr
Wella sjampó+næring, 800 ml.... 699 1.196 874 kr. ltr
Fjarðarkaup
Gildir 25.-27. febrúar verð nú áður mælie. verð
Lambalærissneiðar, 1. fl............. 1.545 1.845 1.545 kr. kg
Lambainnralæri ......................... 2.498 2.998 2.498 kr. kg
Hamborgarar, 4x80 g m/brauði .. 456 548 564 kr. pk.
Móa kjúklingalæri ...................... 599 998 599 kr. kg
Móa kjúklingavængir.................. 305 508 305 kr. kg
FK kindabjúgu ........................... 398 629 398 kr. kg
Ali reykt medisterpylsa ............... 653 871 653 kr. kg
Ali ítölsk steik............................ 1.319 2.198 1.319 kr. kg
6x2 l pepsi/pepsi max +4 glös ... 1.188 1.434 198 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 25.-28. febrúar verð nú áður mælie. verð
Nautaat gúllas........................... 1.494 2.298 1.494 kr. kg
Nautaat snitsel.......................... 1.494 2.298 1.494 kr. kg
Nautaat piparsteik ..................... 1.949 2.998 1.949 kr. kg
Íslandsnaut ungnauta roastbeef.. 1.998 2.298 1.998 kr. kg
Íslandslamb ferskt læri............... 1.364 2.098 1.364 kr. kg
Holta heill kjúklingur .................. 598 949 598 kr. kg
Holta kjúklingaleggir .................. 519 798 519 kr. kg
Holta kjúklingavængir ................ 259 398 259 kr. kg
Rifsberjalegin helgarsteik ........... 1.728 2.468 1.728 kr. kg
Myllu risabrauð, 1 kg ................. 199 249 199 kr. stk.
Kostur
Gildir 25. feb.-1. mars verð nú áður mælie. verð
Goða grísalundir kryddlegnar ...... 1.874 2.498 1.874 kr. kg
Goða grísasnitsel....................... 1.274 1.698 1.274 kr. kg
Goða Bayoneskinka ................... 994 1.325 994 kr. kg
KF baconpylsa ........................... 638 805 638 kr. kg
Kirkland þvottaefni, 11,7 kg ....... 3.995 4.890 341 kr. kg
Aro Wc pappír, 10 stk. ............... 499 569 49 kr. stk.
Aro uppþvottav. töflur, 120 stk. ... 1.889 2.355 15 kr. stk.
Nopa mýkingarefni, 2 l ............... 449 589 225 kr. ltr
Örbylgjupopp, 12x100 g ............ 599 785 49 kr. stk.
Krónan
Gildir 25.-28. febrúar verð nú áður mælie. verð
Krónu kjúklingabringur ............... 1.698 1.798 1.698 kr. kg
Krónu kjúklingur, ferskur ............. 598 698 598 kr. kg
Móa kjúklingakjuðar................... 489 699 489 kr. kg
Móa kjúklingaleggir .................... 599 998 599 kr. kg
Holta buffaló/BBQ vængir í fötu .. 398 698 398 kr. pk.
Holta kjúklingastrimlar, eldaðir.... 1.836 2.295 1.836 kr. kg
Matf. kjúkl.mán. skinka/ostur ..... 1.459 2.085 1.459 kr. kg
Holta kjúklingabr. álegg.............. 2.398 2.995 2.398 kr. kg
Móa kjúklinganaggar, ferskir ....... 1.459 2.085 1.459 kr. pk.
Matf. kjúklingakjöt, fahitas ......... 1.599 2.299 1.599 kr. kg
Nóatún
Gildir 25.-28. febrúar verð nú áður mælie. verð
Grísasteik að hætti Dana............ 999 1.998 999 kr. kg
Ungnautaborgari, 90 g ............... 109 169 109 kr. stk.
Ungnautalund, erlend ................ 2.999 3.998 2.999 kr. kg
Ungnauta innlæri, danskt ........... 1.979 3.298 1.979 kr. kg
Ungnautagúllas ......................... 1.698 2.198 1.698 kr. kg
Ungnautasnitsel ........................ 1.798 2.398 1.798 kr. kg
Ungnautafille ............................ 2.898 3.898 2.898 kr. kg
Ungnauta Rib Eye ...................... 2.998 3.498 2.998 kr. kg
Ungnautahakk........................... 1.098 1.398 1.098 kr. kg
Meistara möndlukaka ................ 399 625 399 kr. stk.
Þín verslun
Gildir 25. feb.-3. mars verð nú áður mælie. verð
Folaldagúllas úr kjötborði ........... 1.598 1.898 1.598 kr. kg
Folaldasnitsel úr kjötborði .......... 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Folaldafile úr kjötborði ............... 2.398 2.889 2.398 kr. kg
Ísfugls kjúklingur, heill ................ 682 975 682 kr. kg
Daloon kínarúllur, ofn, 720 g ...... 798 998 1.109 kr. kg
Myllu hjónabandssæla ............... 669 998 669 kr. stk.
Swiss Miss kakó í dós, 737 g...... 698 875 948 kr. kg
Lambi salernisrúllur, hvítar, 6 rl. .. 485 625 81 kr. stk.
Neutral taumýkir, 1.000 ml......... 479 619 479 kr. ltr
Skittles ávaxtahlaup, 195 g ........ 389 519 1.995 kr. kg
helgartilboð
Góð kaup í kjöti
Morgunblaðið/Ómar
ÞAÐ hefur góð áhrif á málfærni ein-
staklinga sem fengið hafa heilablóð-
fall að kenna þeim að syngja. Þetta
eru niðurstöður rannsóknar sem
Gottfried Schlaug, prófessor í
taugafræðum við Beth Israel Deaco-
ness læknamiðstöðina og læknadeild
Harvard háskóla, fór fyrir og greint
var frá á fréttavef BBC.
Söngurinn er talinn nýta annað
svæði heilans en málið og hefur gef-
ist vel við að breyta boðleiðum heil-
ans og hjálpa sjúklingum að öðlast
málið á ný. Þegar er farið að nýta
söng sem læknisfræðilega aðferð, en
tækninni var fyrst beitt eftir að í ljós
kom að einstaklingar sem fengið
höfðu heilablóðfall gátu sungið þrátt
fyrir að geta ekki talað.
Flestar tengingar sem stjórna
hreyfingu og heyrn eru í hægra
hveli heilans. „En það er eins konar
samsvarandi hola vinstra megin,“
segir Schlaug. „Einhverra hluta
vegna skortir tengslin þannig að
vinstra hvelið er meira nýtt fyrir
málnotkun. Hafi það hvel skaddast á
hægra hvelið í erfiðleikum með að
gegna því hlutverki.“
Séu orðin hins vegar færð yfir í
söng myndast nauðsynlegar teng-
ingar í hægra hvelinu. „Tónlist kann
að vera önnur leið til að tengja hluta
heilans sem skortir tengingar.“
Söngstöðvarnar geta þjálf-
að upp málþroskann á ný
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Söngur Nýtir önnur svæði heilans
en talstöðvarnar gera.
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
MEÐAL EFNIS:
Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar.
Viðtal við formann Ímark.
Hvernig má bæta ímynd Íslands
með markaðssetningu.
Neytendur og auglýsingar.
Góð ráð fyrir markaðsfólk
Hverjir keppa um Lúðurinn?
Viðtöl við fólkið á bak við
tjöldin í bransanum.
Niðurstöður úr árlegri könnun
Capacent meðal auglýsenda.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni.
ÍMARK
ÍSLENSKI M RKAÐSDAGURINN
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn 26. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út sérblað
fimmtudaginn 4.mars og er
tileinkað Íslenska markaðs-
deginum sem ÍMARK stendur
fyrir þann 5.mars.