Morgunblaðið - 25.02.2010, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010
HLJÓMSVEITIN Tepokinn heldur tónleika í Kjallara Cafe
Cultura við Hverfisgötu á fimmtudagskvöld, en tónleikarnir
eru liður í tónleikaröð djassklúbbsins Múlans.
Tepokinn varð til sem sumarstarfshópur á vegum Hins húss-
ins sumarið 2006 og þá sem kvartett. Upphaflega var áhersla
lögð á djassstandarda, en sumarið eftir var unnið að þjóðlaga-
tónlist frá ýmsum áttum m.a. frá Suður-Ameríku og þá varð
hljómsveitin kvintett. Upp frá því hefur Tepokinn að mestu
leikið salsatónlist og hefur enn stækkað, því nú slæst söngv-
arinn og slagverksleikarinn Ibirocay Regueira í hópinn, en
hann er búsettur á Íslandi og starfar sem danskennari hjá
Salsa Iceland.
Regueira lærði djass- og söngleikjadans, ballett og nútíma-
dans í Ballettakademíu Stokkhólms, en hefur einnig starfað
við tónlist og leikið á slagverk í hljómsveitum ásamt því að
syngja.
Tepokann skipa auk Ibirocay Regueira þeir Jóhannes Þor-
leiksson, trompet- og slagverksleikari, Eyjólfur Þorleifsson
saxófónleikari, Vignir Þór Stefánsson píanóleikari, Leifur
Gunnarsson bassaleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson
trommuleikari.
Á tónleikunum á fimmtudagskvöld, sem hefjast klukkan 21,
hyggjast Tepokamenn leika tónlist sem er ný á efnisskrá
hljómsveitarinnar.
Tepokasalsa í Cafe Cultura
Morgunblaðið/Ómar
Múlastuð Tepokinn byrjaði í djassi og endaði í salsa. Tepokinn var í upphafi kvartett.
Eftir Atla Vigfússon
laxam@simnet.is
Það verður mikið um að veraí leikhúsinu á Breiðumýri íÞingeyjarsveit um helginaen þá verður nýr söng-
leikur, Ólafía, frumsýndur. Söng-
leikurinn er eftir Hörð Þór Benón-
ýsson en tónlistin er eftir Jan
Alavere sem jafnframt er tónlistar-
stjóri.
Ólafía er samtímaverk sem fjallar
um unglinga á framhaldsskólastigi
og fjölskyldur nokkurra þeirra.
Verkið heitir eftir einni persónunni
sem leikin er af Gígju Valgerði
Harðardóttur, en hún er dóttir höf-
undarins og er ekki óvön sviðinu því
hún hefur jafnhliða skólagöngu
sinni stigið mörg spor á fjölunum í
Reykjadal.
Daglegt líf unglinganna er um-
fjöllunarefnið, það áreiti sem sumir
þeirra búa við, freistingar nútímans,
vímuefni, útlitsdýrkun o.m.fl.
Mikið er af tónlist í verkinu,
sautján lög, allt frá ballöðum upp í
rokktónlist. Hörður Þór sem samdi
alla textana segir að hugmyndin að
verkinu hafi kviknað sl. haust þegar
hann og Jan Alavere hafi borið sam-
an bækur sínar, en Jan var með
mikið af frumsömdum lögum sem
hann hafði ekki fundið farveg fyrir.
Í framhaldi af því sömdu þeir við
leikdeild ungmennafélagsins Efl-
ingar og þar með hófst ferlið.
Hafa sýnt tvisvar
í Þjóðleikhúsinu
Í Reykjadal er áratuga hefð fyrir
leikstarfsemi af ýmsu tagi og við val
á verkefnum hjá leikdeildinni hefur
iðulega verið miðað við að nem-
endur Framhaldsskólans á Laugum
hefðu tækifæri til þess að koma að
sýningum, ýmist sem leikarar eða
starfsmenn. Skólinn hefur síðan
metið vinnu nemendanna til eininga
og þeir fengið starfið metið sem val-
áfanga við skólann. Þannig hafa
verið slegnar tvær flugur í einu
höggi með vinnu sem nýtist sem
hluti af námi og hafa nemendur um
leið öðlast reynslu sem eflir þá og
styrkir.
Búið að gefa út geisladisk
með lögunum úr Ólafíu
Samvinnan við Laugaskóla hefur
vakið nokkra athygli og á liðnum
árum hafa sýningar á vegum Efl-
ingar verið tvisvar sinnum valdar til
flutnings í Þjóðleikhúsinu. Má þar
nefna Landsmótið, en Hörður Þór
er annar tveggja höfunda þess
ásamt Jóhannesi Sigurjónssyni.
Að fara í leikhúsið á Breiðumýri
er orðið fastur liður í menningarlíf-
inu í Þingeyjarsýslu og nágrenni.
Það er sett upp sem kaffileikhús því
gestum gefst kostur á að kaupa sér
kaffi og meðlæti enda sitja allir við
borð og þykir sú skipan hafa gefist
mjög vel.
Í Ólafíu eru alls 25 leikarar og
leikstjóri er Arnór Benónýsson.
Hljómsveitina skipar auk Jans Ala-
vere, þeir Pétur Ingólfsson, Sig-
urður Illugason og Þórgnýr Val-
þórsson. Æfingar hófust um miðjan
október og samhliða þeim var ráðist
í upptökur á tónlist verksins og er
búið að gefa út geisladisk með lög-
unum sem verður til sölu á leiksýn-
ingunum.
Söngleikur
með ballöðum
og rokktónlist
Ljósmynd/Atli Vigfússon
Ólafía Verkið fjallar um unglinga á framhaldsskólastigi og fjölskyldur nokkurra þeirra.
Nánari upplýsingar um tíma og
sýningar má finna á www.leik-
deild.is.
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
"Ein besta mynd ársins"
New York Observer
HHHH
"Einstök skemmtun"
Ebert
SÝND Í KRINGLUNNI
ÞAÐ ERU TVÆR HLIÐAR
Á ÖLLUM MÁLUM
Frá framleiðandanum Sigurjóni
Sighvatssyni kemur ein af
stórmyndum ársins
„BESTA KVIKMYND SEM HEFUR VERIÐ
FRAMLEIDD SÍÐASTLIÐINN 20 ÁR.“
- DAVID LETTERMAN
HHHHH
„THE BEST MOVIE I'VE SEEN IN 2009. TOBEY
MAGUIRE GIVES THE PERFORMANCE OF HIS
CAREER. NATALIE PORTMAN DESERVES AN
OSCAR NOMINATION.“
- RICHARD ROEPER, RICHARDROEPER.COM
HHHH
„BROTHERS IS ARGUABLY THE MOST SUCCESS-
FUL REMAKE OF A FOREIGN FILM SINCE MAR-
TIN SCORSES REWORKED INFERNAL AFFAIRS
INTO THE DEPARTED.“
- 88REELVIEWS - JAMES B.
HHHH
„POWERFUL AND GRIPPING! AN ABSOLUTELY MESMERIZING
MOTION PICTURE EXPERIENCE. JIM SHERIDAN HAS MADE AN
OSCAR-WORTHY MUST-SEE MOVIE FOR OUR TIMES. TOBEY
MAGUIRE DELIVERS THE BEST PERFORMANCE OF HIS CAREER.
NATALIE PORTMAN IS TERRIFIC.“
- PETE HAMMOND, BOXOFFICE MAGAZINE
TILNEFND TIL
2 ÓSKARS-
VERÐLAUNA
Morgan Freeman
er tilnefndur fyrir besta
leik í aðalhlutverki.
Matt Damon
er tilnefndur fyrir besta
leik í aukahlutverki.
Clint Eastwood leikstýrir
hér frábærri mynd um
það hvernig Nelson
Mandela sameinaði
Suður Afríku
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
/ KRINGLUNNI
BROTHERS kl. 5:40D - 8:10D - 10:30D 12
INVICTUS kl. 5:30 - 8 - 10:40 L
VALENTINE'S DAY kl. 5:40D - 10:40D L
MAYBE I SHOULD HAVE kl. 8 UPPSELT L
/ ÁLFABAKKA
BROTHERS kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 TOY STORY 2 - 3D m. ísl. tali kl. 5:50 3D L
VALENTINE'S DAY kl. 5:30 - 8D - 10:40D L DIGITAL THE BOOK OF ELI kl. 10:20 16
VALENTINE'S DAY kl. 8 - 10:40 VIP-LÚXUS AN EDUCATION kl. 5:50 L
THE WOLFMAN kl. 8 - 10:20 16 SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 12
UP IN THE AIR kl. 8 L BJARNFREÐARSON kl. 5:50 L
UP IN THE AIR kl. 5:50 VIP-LÚXUS