SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Blaðsíða 10
10 7. nóvember 2010
F
yrr í vikunni voru fréttir bæði í Morgunblaðinu og
öðrum fjölmiðlum, þess efnis að slitastjórn Glitnis
hefði sent dómstólnum í New York, þar sem slita-
stjórnin rekur skaðabótamál sitt á hendur fyrrverandi
eigendum og stjórnendum Glitnis, fundargerðir FL Group frá
haustinu 2007, sem óskað var eftir að fá frá Stoðum strax í vor.
Með herkjum tókst slitastjórninni að knýja þessi gögn út úr
Stoðum, en ef marka má orð Steinunnar Guðbjartsdóttur, for-
manns slitastjórnarinnar, hér í Viðskiptablaði Morgunblaðsins á
fimmtudag var slíkt alls ekki auðsótt mál.
Meðal þeirra gagna sem
send voru er minnisblað frá
haustinu 2007, sem merkt var
sem trúnaðarskjal og und-
irritað af Hannesi Smárasyni,
þáverandi forstjóra FL Group.
Í því trúnaðarskjali kemur
fram með skýrum hætti að
Hannes sagði ósatt í eið-
svörnum vitnisburði sínum
fyrir dómstólnum í New York
þegar hann sagði að hann
hefði ekki verið í aðstöðu til
að veita lán eða ábyrgðir fyr-
ir hönd Glitnis og hann hefði
aldrei reynt nokkuð í þá
veru. Orðrétt segir í minn-
isblaði Hannesar: „FL Group
mun hlutast til um að Glitnir
klári samkomulag við Hnot-
skurn um losun á 250 millj-
ónum á morgun, en félagið
(Hnotskurn) hefur verið í
viðræðum við Glitni um þau
viðskipti.“
Fléttan snerist að þessu
sinni um yfirtöku FL Group á Tryggingamiðstöðinni og Hannes
Smárason, forstjóri FL, sem var stærsti hluthafinn í Glitni,
þurfti að beita skuggastjórnunartaktík sinni í bankanum, sem
sögð var honum og viðskiptafélaga hans, Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni, afar töm stjórnunaraðferð, til þess að viðskiptin gengju
eftir.
Skömmu síðar, eða hinn 25. september 2007 var svo ákveðið á
fimmtán mínútna löngum stjórnarfundi FL Group að kaupa
Tryggingamiðstöðina og kaupin yrðu fjármögnuð með útgáfu
nýs hlutafjár í FL Group til handa hluthöfum Trygginga-
miðstöðvarinnar. Allt hljómar þetta ósköp kunnuglega, ekki
satt? Ákveðið að kaupa eins og eitt nýtt fyrirtæki, í þessu tilviki,
eitt stykki tryggingafélag og fjármagna kaupin með útgáfu nýs
hlutafjár og þar sem auðvitað þurfti Hnotskurn (Katrín Péturs-
dóttir og Gunnlaugur Gunnlaugsson) að sjá eitthvert reiðufé í
viðskiptunum, þegar þau seldu sinn hlut, þá var málið einfalt –
kippa bara í spottann Lárus Welding, bankastjóra Glitnis, og
stjórn Glitnis, þar sem m.a. sat Jón Sigurðsson, fyrir hönd FL
Group, en hann var þá starfsmaður FL og málið var í höfn.
Smám saman eru klækir hinna föllnu útrásarvíkinga og ótrú-
lega óprúttin vinnubrögð að koma betur og betur í ljós.
Hvort þetta nýjasta dæmi um eiðsvarin ósannindi Hannesar
Smárasonar fyrir dómstóli í New York mun einhverju breyta
um framvindu málsins þar vestra, get ég ekki með nokkru móti
lagt mat á, en hlýtur ekki að koma að því einn góðan veðurdag,
að þau sem nú hafa verið dregin fyrir dómstól í New York, en
þau eru Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorsteinn Jónsson, Jón Sig-
urðsson, Lárus Welding, Pálmi Haraldsson, Hannes Smárason
og Ingibjörg Pálmadóttir, og munu væntanlega ásamt fleirum
verða dregin fyrir íslenska dómstóla, þurfi að horfast í augu við
sínar fyrri gerðir og axla ábyrgð samkvæmt því?
Landsmenn hafa sýnt mikið langlundargeð á flesta lund, allar
götur frá hruni. Ef marka má þann mikla óróleika sem nú brýst
út hvað eftir annað, m.a. með mótmælum á Austurvelli, sívax-
andi biðraðir atvinnulausra og skuldugra fjölskyldna eftir mat-
argjöfum í viku hverri, er alls ekki útilokað að biðlund íslensks
almennings sé á þrotum. Hvað gerir Jóhanna þá? Varla segir hún
enn á ný: „Þetta skýrist allt í næstu viku.“ Eða hvað?
Eiðsvarin
ósannindi
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hannes
Smárason
Jón Ásgeir
Jóhannesson
’
Hannes þurfti
að beita skugg-
astjórnunar-
taktík sinni í bank-
anum, sem sögð var
honum og viðskipta-
félaga hans, Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni,
afar töm stjórnunar-
aðferð.
7:30 Vekjaraklukkan á sím-
anum byrjar að hringja og ég er
ekki sátt, mig langar að sofa að-
eins lengur þar sem að ég heyri í
rokinu úti!
8:00 Búin að snúsa í hálftíma
þannig að best að fara að koma
sér fram úr til að gera allt tilbúið
fyrir daginn. Byrja á að kveikja á
fm 957 og hlusta á Svala og fé-
laga. Finn föt á Emilíu 5 ára
dóttur mína áður en farið er í
leikskólann. Nýi snjógallinn er
vel merktur fyrir leikskólann.
8:30 Byrja að reyna að vekja
restina af fjölskyldumeðlim-
unum sem sofa enn, þar með
talin leikskólastelpan.
8:45 Emilía kemur fram með
stírurnar í augunum og fær sér
smájógúrt í morgunmat áður en
hún fer að klæða sig.
9:15 Það getur tekið langan
tíma fyrir 5 ára skvísur að klæða
sig á morgnana en loksins erum
við mæðgur tilbúnar, kyssi
manninn bless og við drífum
okkur út í rokið og hlaupum inn
í bíl og brunum á leikskólann.
9:25 Legg af stað í vinnuna,
stilli útvarpið frekar hátt og
þeysist um götur borgarinnar í
morgunumferðinni þar sem
leiðin liggur í Borgartún á
snyrtistofuna Verði þinn vilji
þar sem ég starfa sem snyrti-
fræðingur.
9:40 Komin í vinnuna og
venjulegur dagur tekur við,
sinna þörfum viðskiptavina,
kynnast fullt af nýju og
skemmtilegu fólki og svara í
símann og taka við bókunum.
10:00 Fyrsti viðskiptavinur
af mörgum þennan dag er kom-
inn og alvaran tekin við. Allar
mögulegar vaxmeðferðir, þó
aðallega brasilískt vax, neglur
snyrtar á bæði höndum og fót-
um, andlit hreinsuð, augabrúnir
og augnhár lituð og axlir nudd-
aðar á meðan viðskiptavinurinn
lætur fara vel um sig í stólnum
og hlustar á rólega tónlist með-
an rokið og kuldinn blæs fyrir
utan gluggann.
16:00 Vaxsendingin okkar
kemur í hús ásamt öðrum
vörum og er gengið frá þeim í
hillur, pappakassar brotnir
saman og hent út í bíl þar sem
þeir fara beint í Sorpu.
17:00 Vinnudeginum lýkur.
17:15 Komin í vinnuna hjá
manninum mínum þar sem Em-
ilía situr kát að horfa á barnaefni
í sjónvarpinu.
17:20 Hendist í búðina og
kaup í matinn, kjötbollur með
kartöflumús og brúnni sósu var
á óskalistanum hjá feðginunum í
dag.
18:00 Feðginin koma heim
og við kúrum saman í sófanum
og horfum á barnatímann.
19:00 Kjötbollurnar loksins
tilbúnar og smakkast líka svona
ljómandi vel með öllu meðlæt-
inu og þá sérstaklega rabarbar-
asultunni sem verður að vera
með kjötbollunum.
20:00 Búið að ganga frá eftir
matinn. Þá er stelpan sett í nátt-
fötin og leiðin liggur inn í rúm
þar sem hún fær að horfa á eina
stutta teiknimynd áður en hún
fer að sofa.
20:30 Skelli mér í heita
sturtu eftir langan dag og kem
mér svo vel fyrir í sófanum fyrir
framan tölvuna og kveiki á bíó-
myndinni Prince of Persia, þar
sit ég límd með saltlakkrísís og
kökuís í skál og læt fara rosalega
vel um mig meðan maðurinn
spilar Fifa 2011 í Playstation-
tölvunni.
22:45 Allur ís runninn ljúf-
lega niður og myndin búin.
Ákveð að kíkja aðeins á facebo-
ok til að athuga hvort ég hafi
nokkuð misst af einhverju mik-
ilvægu í dag. Tékka svo aðeins á
póstinum og skrifa niður þessar
línur
23:00 Háttatími kominn hjá
mér, kyssi og knúsa Emilíu sem
liggur steinsofandi inni í rúmi
og skríð svo undir sængina mína
og bý mig undir næsta vinnudag
Dagur í lífi Þóreyjar Þráinsdóttur snyrtifræðings
Morgunblaðið/Kristinn
Brasilíska vaxið vinsælast
Farandsirkusinn Monte Carlo
hefur ferðast um Írak að und-
anförnu, fyrsti erlendi sirkusinn
til að skemmta heimamönnum
um árabil. Meðfylgjandi mynd
er frá sýningu í Basra, sem
gladdi mjög stríðshrjáða íbúa
borgarinnar. Er þetta merki um
aukið öryggi borgaranna í Basra
sem hafa búið við mjög svo
ótryggar aðstæður síðustu ár.
Veröldin
Sirkus í Írak