SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 8

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 8
8 13. febrúar 2011 Kevin Turner er annaðhvort með heilahrörn- unarsjúkdóminn CTE, sem einnig hefur ver- ið kallaður boxaraveiki, eða hreyfi- taugahrörnun. Turner spilaði amerískan fótbolta fyrir New England Patriots og Philadephia Eagles í tæpan áratug og hreykti sér af því að vera harður í horn að taka og ósérhlífinn, hvort sem hann var í leik eða á æfingum. Hann fékk margsinnis heilahristing á leikvellinum og varð fyrir taugaskaða á mænu. Turner hætti atvinnumennsku 1999. Þá var hann farinn að finna fyrir sársauka, sem gat leitt niður í báða handleggi. Nú er hann 41 árs og hefur ekki stjórn á útlimum sín- um. „Ég get enn haldið um stýrið,“ sagði hann í samtali við The Boston Globe í haust. „En ef ég fæ mér íste á veitingastað þarf ég að halda um bollann með báðum höndum, eiginlega eins og tveggja ára barn með stútkönnu. Börnin mín héldu að ég væri að grínast, það er erfitt að segja þeim að ég geti ekki haldið á honum með ann- arri hendi.“ Turner hefur sagt að hann ætli að gefa heila sinn og mænu til rannsókna eftir sinn dag rannsóknarstofu Boston University í heilaskaða. Vísindamenn þar komust að því að atvinnumaðurinn fyrrverandi, Owen Thomas, hefði verið með CTE á byrj- unarstigi þegar hann framdi sjálfsmorð í apríl í fyrra. Andre Waters, sem lék fyrir Philadelphia Eagles, framdi sjálfsmorð 2006. Hann var þá 44 ára, en vefirnir í heila hans voru eins og úr 85 ára gömlum Alzheimers-sjúklingi. Í grein eftir Ben McGrath í The New Yorker er vitnað í ákall frænku Waters um að hætt verði að senda unga, verðandi fóboltaleikmenn til leiks. Heilinn eins og í 85 ára Alzheimers-sjúklingi Kevin Turner er skaddaður eftir feril sinn í NFL. Í byrjun febrúar kom hann fram á fundi í Tex- as til að vekja athygli á hættunum í amerískum fótbolta. Reuters M et var sett í sjón- varpsáhorfi í Bandaríkjunum þegar úrslitaleik- urinn í ameríska fótboltanum, hin svokallaða Ofurskál, fór fram fyrir viku. Talið er að 111 milljónir manna hafi verið límdar við skjá- inn á meðan Green Bay Packers og Pittsburgh Steelers áttust við og 162,9 milljónir hafi að minnsta kosti horft á hluta af leiknum. Am- erískur fótbolti er vinsælasta íþróttin í Banda- ríkjunum. Það kann því að hljóma eins og mótsögn að framtíð íþróttarinnar sé í óvissu, en sú er raunin að margra mati vegna hinnar gríðarlegu slysahættu, sem henni fylgir. Átökin á fótboltavellinum eru gríðarleg og leikmenn nota líkama sína eins og múrbrjóta til að stöðva andstæðinginn. Iðulega er afleið- ingin heila- og mænuskaði. Tilhneiging hefur verið til þess að þegja um þennan fylgifisk íþróttarinnar, en blaðamað- urinn Alan Schwartz hefur með skrifum sínum í The New York Times um algengi heila- og taugahrörnunarsjúkdóma, til dæmis truflanir á útlimastjórn (chronic traumatic encephalo- pathy) og hreyfitaugahrörnun (amyotrophic lateral sclerosis) í leikmönnum, vakið heitar umræður og í vetur hafa þessi mál verið ofar- lega á baugi innan fótboltadeildarinnar, NFL. Um mánaðamótin birtist grein í tímaritinu The New Yorker eftir Ben McGrath um hætt- urnar sem fylgja amerískum fótbolta. „Leik- menn í NFL eru fimm til nítján sinnum líklegri en fólk almennt til að hafa fengið greiningu um heilahrörnun,“ skrifar McGrath. Leikmenn í am- erískum fótbolta nota höfuðið til að stanga andstæð- inginn og höggið getur verið svipað því að lenda í minniháttar bíl- slysi. Ætla má að þegar tvö at- vinnulið stilla sér upp á leikvellinum séu 20% leikmanna komin með heilahrörnun á byrjunarstigi. Hætturnar eru ekki bara í atvinnumennsk- unni. Á milli 1982 og 2009 mátti rekja 295 dauðsföll beint eða óbeint til amerísks fótbolta á skólastiginu sem sambærilegt er við efstu bekki grunnskóla og fyrstu bekki mennta- skóla. Sunnudag einn í október fengu 11 leikmenn í NFL heilahristing vegna samstuða og var eftir því tekið þótt það væri ekki langt yfir meðal- lagi. Ástæðan var sennilega sú að daginn áður hafði leikmaður Rutgers-háskóla lamast í samstuði í leik. Þrír leikmenn voru sektaðir samanlagt um 175 þúsund dollara og hótað með leikbanni ítrekuðu þeir brot, sem telja mætti að gengju of langt. Hugmyndir um að draga úr ofbeldinu inni á vellinum fengu hins vegar ekki góðar viðtökur og heyrðust kvart- anir um að nú ætti að setja leikmenn í bleik pils. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem ofbeldi í amerískum fótbolta vekur deilur. Um alda- mótin 1900 þótti ofbeldið svo geigvænlegt að fram komu kröfur um að banna íþróttina. Leikmenn voru kallaðir skylmingaþrælar nú- tímans og 1897 birtist teikning í blaðinu New York World af beinagrind merktri orðinu „dauði“ og fyrir neðan stóð „tólfti leikmað- urinn í hverjum fótboltaleik“. Árið 1905 var einstaklega blóðugt. Þá létu 18 leikmenn lífið í háskólaboltanum og 159 slösuðust alvarlega. Eins og McGrath lýsir því í The New Yorker var hugmyndin sú að halda í þau einkenni leiksins, sem þóttu herða unga drengi án þess að fylla líkhúsin. Theodore Roosevelt Banda- ríkjaforseti kvaddi háskólaþjálfara í Hvíta hús- ið til að ræða hvernig mætti koma á umbótum í íþróttinni áður en almenningsálitið snerist alfarið gegn henni. „Ég hef ekki nokkra samúð með yfirgengilegri tilfinningasemi, sem vill pakka ungum mönnum inn í bómull,“ sagði Roosevelt. Eftir inngrip forsetans var leyft að senda boltann upp völlinn og varð það til þess að opna leikinn og draga úr hinum banvænu árekstrum. Nú virðist aftur komið að tímamótum í am- erískum fótbolta. Stöðugt fleiri stórskaddaðir fyrrverandi leikmenn stíga fram á sjón- arsviðið. tíðni alvarlegra áverka er mun lægri í öðrum íþróttum fyrir utan fimleika og hnefa- leika, en iðkendur þeirra greina eru mun færri. Almenningsálitið hefur ekki snúist gegn amerískum fótbolta, en nýjum lækn- isfræðilegum upplýsingum um hætturnar fyrir leikmenn gæti fylgt lagaleg áhætta og skaða- bótaskylda. McGrath greinir frá því að á þessu ári megi búast við tveimur hópmálsóknum fyrir hönd leikmanna, sem nýverið eru hættir, á hendur NFL á þeim forsendum að lífi og lim- um þeirra hafi vísvitandi verið stefnt í hættu á leikvellinum. Vígvöllur ameríska fótboltans Heila- og mænu- skaði hrjáir marga leikmenn Ziggy Hood, varnarmaður Pittsburgh Steelers, jafnar um Aaron Rodgers, leikstjórnanda Green Bay Packers, í úrslitaleiknum í ameríska fótboltanum fyrir viku. Green Bay Packers unnu leikinn. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Dauðinn í fótbolt anum. Ofbeldi er ekki að- eins snar þáttur í fót- bolta; hann er óður til ofbeldis. Þess vegna kunnum við að meta hann. Ef við tökum það í burtu, höldum áfram að reyna að hemja villimennsk- una, verður leikurinn að engu, hvað sem líður aldri og hæfi- leikum. Buzz Bissinger, blaðamaður og dálka- höfundur Óður til ofbeldis

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.