SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 18

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 18
18 13. febrúar 2011 Þ að var ekkert far að fá, hvorki með báti né bíl, þannig að þau reimuðu bara á sig skóna og gengu heim, áttmenningarnir úr Menntaskólanum á Akureyri vorið 1940. Það sem sætir tíðindum er að heimili ungmennanna voru ekki bein- línis handan við hornið, þau voru úr Dala- og Mýrasýslu, Mjóafirði og Bol- ungarvík. „Grundvöllurinn var heim- þráin,“ segir einn göngumanna, Bolvík- ingurinn Óttar Ísfeld Karlsson, sem var aðeins fimmtán ára á þessum tíma. Fé- lagar hans sjö voru aðeins eldri. Spurð- ur hvort hann hafi gert sér nokkra grein fyrir því út í hvað hann var að fara svarar Óttar með því að skella upp úr. „Nei, það gerði ég ekki.“ Óttar er sá eini úr hópnum sem enn lifir en göngufélagar hans þetta vor voru bræðurnir Gunnar og Héðinn Finnbogasynir frá Hítardal, Mýrasýslu; systkinin Soffía og Gestur Magnúsbörn frá Túngarði, Fellsströnd, Dalasýslu; Snorri Jóhannesson frá Efranesi, Staf- holtstungum, Mýrasýslu; Runólfur Þór- arinsson, Látrum, Mjóafirði og Sverrir Markússon frá Ólafsdal í Dalasýslu. Öll voru þau úr sveit og fyrir vikið vanari að ferðast fótgangandi og á hestum en Óttar sem alinn var upp í sjávarþorpi. Ekki man Óttar hverrar gerðar skórnir sem hann gekk á voru en þeir hljóta að hafa verið býsna slitgóðir. Frásögnin sem hér fer á eftir er ann- ars vegar byggð á samtali við Óttar en hins vegar er stuðst við ferðasögu sem hann skráði og færði afkomendum sín- um og vinum fyrir síðustu jól. Sú frá- sögn byggist á ítarlegri ferðasögu Sverr- is sem einnig hafði að geyma frásagnir þeirra Soffíu og Runólfs. Hópurinn kastaði kveðju á skóla- meistara sinn, Sigurð Guðmundsson, þriðjudaginn 21. maí 1940 og fékk far með bíl út með Eyjafirðinum, að fyrsta óökufæra snjóskaflinum í Öxnadalnum. Hófst þá gangan. Gist var í Bakkaseli um nóttina og greiddu þau þrjár krónur á mann fyrir gistinguna. Ekki var nægur fjöldi rúma í Bakkaseli og þurftu sumir að tvímenna í rúm um nóttina og varð ekki mjög svefnsamt. Morguninn eftir var gengið upp Bakkaselsbrekkuna og haldið vestur Öxnadalsheiði. Snjóskaflar voru víða á veginum, voru þeir harðir undir fót og göngufæri fyrir vikið gott. Þegar þreyta og svengd surfu að var knúið dyra á bænum Ytri-Kotum. Vel var tekið á móti göngumönnum á hlaði úti þar sem húsakostur var þröngur. Bornar fram veitingar, mjólk, brauð og kaffi, og engin greiðsla þegin. Dagverður í torfbæ Síðdegis var komið að Silfrastöðum og snæddur dagverður í torfbænum þar, hangikjöt og uppstúfur, en húsbændur í Bakkaseli höfðu hringt á undan hópn- um. Þaðan var gengið niður fyrir Bólu, þar sem hópurinn fékk bílfar dágóðan veg. Mun það hafa verið pallbíll og stóðu þeir sem ekki komust fyrir inni hjá bílstjóra uppi á pallinum og héldu sér í bílhús og grindur. Gustaði um pallverja. Bíllinn flutti ferðalangana alla leið að Víðimýri að skafl einn mikill hefti för. Mannskapurinn var hins vegar vel hvíldur og ákvað að halda áfram vestur yfir Vatnsskarðið og reyna að fá næt- urgistingu í Bólstaðarhlíð. Sóttist gang- an vel á björtu vorkvöldinu. Ekki reyndist mögulegt að fá gistingu í Ból- staðarhlíð en hópnum tjáð að hann mætti halla sér í fjóshlöðunni. Var það boð þegið. Oft höfðu áttmenningarnir sofið betur en þá nótt. Að morgni þriðja dags var gerð til- raun til að kveðja heimilisfólkið í Ból- staðarhlíðinni og þakka fyrir en dræmt var undir tekið, ekki væri fyrir mikið að þakka. Þegar Óttar rifjar þetta upp í dag undrast hann ekki viðbrögð húsbænda, það hafi verið ungæðisleg tilætl- unarsemi að halda að átta manna hópi fólks sem kom óforvarandis seint um kvöld yrði boðið til svefnskála. Því næst var gengið meðfram Ból- staðarhlíðarfjalli og inn Langadal, áð á Æsustöðum hjá séra Gunnari Árnasyni. Ekki hafði verið neytt matar síðan á Silfrastöðum og brást klerkur af ljúf- mennsku við beiðni um næringu. Voru veitingum gerð góð skil. Eftir hressingu var gengið niður Langadalinn en fljótlega fundu menn að þreytan var farin að segja til sín og vegalengd milli hvílda æ styttri. Skó- tauið var farið að gefa sig og fótsærindi farin að láta á sér kræla. Komið var á Blönduós að kvöldi og brauðfötin þurr- ausin í veitingasölu samkomuhússins áður en hópurinn fékk bílfar vestur að Gljúfurá. Þaðan var gengið vestur Víði- Grundvöll- urinn var heimþráin Vorið 1940 gengu átta nemendur við Menntaskólann á Akureyri til síns heima að afloknum prófum. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þau bjuggu á Vesturlandi og Vestfjörðum. Einn úr hópnum, Bolvíkingurinn Óttar Ísfeld Karlsson, man þetta ævintýra- lega ferðalag eins og gerst hefði í gær. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ljósmynd: Ragnar Axelsson rax@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.