SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 33

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 33
13. febrúar 2011 33 Þ yrfti fimmtán ára unglingur að komast frá Akureyri til Bolungarvíkur í dag myndi líkast til ekki hvarfla að honum að fara á tveimur jafnfljótum. Hann myndi væntanlega hoppa upp í bíl eða flugvél og skila sér á áfangastað á dagsparti. Í þessu ljósi er fróðlegt að lesa frásögn Óttars Ísfeld Karlssonar í Sunnudagsmogganum í dag en hann gekk einmitt þessa leið vorið 1940. Þetta var fyrsta stríðssumarið og enga ferð að fá, hvorki með bíl né bát, þannig að Óttar og sjö félagar hans úr Menntaskólanum á Akureyri höfðu ekki um annað að velja en að arka af stað ætluðu þeir að komast til síns heima. Óttar skilaði sér í foreldrahús á áttunda degi. Urðu það að vonum miklir fagnaðarfundir. Frásögn Óttars er skemmtileg heimild um tíðarandann í íslenskum sveitum fyrir sjö áratugum. Eins og gefur að skilja þurftu göngugarparnir að koma víða við á bæjum til að nærast og hvílast, stundum áttu þeir pantað pláss, stundum ekki. Alls staðar virðist þeim hafa verið vel tekið og vel við þá gert enda þótt aðstaðan hafi verið misjöfn, eins og geng- ur. Gestristnin og greiðviknin skín í gegnum frásögn Óttars og á mörgum stöðum var engin leið fyrir hina ungu ferðalanga að fá gestgjafa sína til að taka við þóknun. Þá sjaldan það tókst var það til málamynda. Ferðasaga Óttars Ísfeld Karlssonar ber íslensku bænda- samfélagi fyrir miðja síðustu öld fagurt vitni. Skotinn af leyniskyttu Gangan sem Sólveig Jónsdóttir stjórnmálafræðingur tók þátt í á dögunum var af öðru tagi. Hún fór fram í borginni Derry á Norður-Írlandi og er farin árlega til að minnast fórnar- lamba „blóðuga sunnudagsins“ 1972, þegar breskir hermenn skutu þrettán almenna borgara úr röðum kaþólikka til bana og særðu þrettán aðra. Þykir gjörningurinn hafa há- markað tímabil blóðugra átaka í sögu Norður-Írlands. Sólveig hermir af göngunni, sem mögulega verður sú síðasta í röðinni, í blaðinu í dag og ræðir jafnframt við nokkra heimamenn. Átakanleg er lýsing Pauls Devines á vígi móður- bróður síns, Michaels McDaids, þennan örlagaríka dag í janúar 1972: „Michael var að ganga í burtu frá hermönnunum þegar hann var skotinn í andlitið. Kúlan kom út rétt fyrir neðan herðablaðið á honum og af afstöðu kúlunnar að dæma virðist henni hafa verið skotið frá Derry-veggnum sem umlykur svæðið þar sem óeirðirnar náðu hámarki. Hann var skotinn af leyniskyttu.“ Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er Devine ennþá sannfærður um að æskilegt sé að sameina Írland. „Það á að gerast og mun gerast í framtíðinni, hins vegar er ómögulegt að segja nákvæmlega til um hvenær það mun gerast. Það byggist allt á því að ráðamenn þurfa að fara að tala saman, verkalýðsfélögin þurfa að tala saman. Námskráin í skólunum þarf að breytast og kennsla í írsku þarf að byrja hér eins og hún er kennd á Írlandi. Fólk má ekki halda að baráttan hafi verið til einskis. Við erum að stefna að sama marki og alltaf, það gerist bara hægar en við héldum.“ Gengið yfir Ísland „Hann var drullufær gítarleikari.“ Siggi Bach gítarleikari The Jimi Hendrix Project um goðið Hendrix. „Nei, ég held ég láti það vera, hann er svo massaður kvikindið.“ Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri, spurður hvort hann hafi farið inn í hnefaleikahringinn með leikaranum Mark Wahlberg, en þeir vinna saman um þessar mundir. „Ef einhver hefur heyrt það þá er það ekki eftir mér haft!“ Haraldur Helgason á Akureyri á 90 ára af- mælinu; segir ekki standa til að hann hætti að vinna. „Afleiðingin hlýtur að verða afsögn ráð- herrans.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, al- þingismaður um Svandísi Svavarsdóttur umhverf- isráðherra vegna dóms Hæstaréttar um að- alskipulag Flóahrepps. „Akureyri er heimsklassalið í hraðaupphlaupum … Ef þeir hefðu ekki þetta vopn þá væru þeir líklega í botn- baráttu því aðrir þættir leiksins hjá þeim eru ekki samanburðarhæfir við bestu liðin í landinu.“ Sebastían Alexandersson, þjálfari Selfoss, eftir átta marka tap fyrir toppliði Akureyrar. „Það er bara ekki jafnflott að heita Keith Ólafsson og að heita Elvis Ólafs- son.“ Ólafur Daði Helgason, faðir fyrsta Elvisar Ís- lands, en Ólafur segist meiri aðdáandi Stones en Elvis. „Það virðist bara allt vera í steik hjá félaginu, eftir því sem ég kemst næst.“ Sigurbergur Sveinsson, lands- liðsmaður í handknattleik, eft- ir að félag hans, DHC Rhein- land óskaði óvænt eftir gjaldþrotaskiptum í byrjun vikunnar. „Ég fullyrði að málefnið „sjónvarp í almannaþágu“ sé mikilvægara en Ice- save.“ Ragnar Bragason leikstjóri. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal freistaðist til að afla með slíkum hætti þurfti því að skapa fjarlægð frá því. Það yrði að líta svo út að blaðinu hefðu „borist“ upplýsingarnar og það ekki treyst sér til þess, vegna almennra hagsmuna um að veita upplýsingar, að gera annað en að koma þeim á framfæri. Það er von að slíkur felu- leikur sé farinn enda hafa dómstólar fallið fyrir slíku, jafnvel hér á landi. Eru þá ekki réttu viðbrögðin þau að vera var um sig? Segja sem minnst í síma. Senda ekki síma- skilaboð nema um það sem á að kaupa í næstu búð. Og skrifa ekkert í tölvupóst sem ekki mætti birta næsta dag sem opið bréf til almennings. Sjálfsagt eru það réttu viðbrögðin. En þá fer fljótt glansinn af þeirri hagræðingu sem tæknin átti að tryggja. Og mörg skref væru þar með stigin til baka í samskiptaháttum. Og það er ekki víst að sá hraði sem heimurinn hefur vanið sig á síðustu ár og áratugi leyfi mönnum slíka starfshætti. Hin aðferðin er sú að taka jafnhart á slíkum brotum og öðrum afbrotum. Það er sjálfsagt góður kostur, en ekki endilega skilvirkur. Rannsókn slíkra mála er flókin og kallar á mikla tæknikunn- áttu, löggjöf mjög brotakennd og sönnunarfærsla enn flóknari og dómstólaleið ekki nein hraðbraut, bæði þyrnum stráð og kostnaðarsöm. Hugarfars- breyting væri ofarlega á óskalistanum. Almenn fordæming fældi brotamenn frá sinni iðju. En það er ekki víst að slík hugarfarsbreyting liggi í loft- inu. Það sanna dæmin úr bloggheimum, sem vikið var að í upphafi. Þar sjáum við hálaunamenn við sína iðju beinlínis ýta undir söguburð, jafnvel róg- burð og auðvitað sleggjudóma og skæting og fjar- lægja eingöngu af síðum sínum það sem kemur illa við þá sjálfa. Það er enn sem fyrr mála sannast að ekki er allt gull sem glóir og á það enn þá fremur við um þann málminn sem næstur stendur. Skarfar í Hafnarfirði. Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.