SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 20

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Side 20
20 13. febrúar 2011 viti menn. Bátur kom og sótti ferða- langana. Reyndar hafði Sverrir talað við bróður Ármanns í síma og Runólfur var með kveðjubréf frá Ármanni upp á vas- ann. Á Heggstöðum var vel tekið á móti þríeykinu og veitingar bornar fram. Bátsflutningur yfir þrjá firði sama daginn Kvatt var með þakklæti og gengið áfram yfir Heggstaðanesið að Bálkastöðum, ysta bænum við austanverðan Hrúta- fjörð. Óvænt heimsókn en mönnum eigi að síður vel tekið. Veitingar góðar. Vel var brugðist við fyrirspurn um flutning á bát yfir Hrútafjörðinn. Komið var að landi í vík við bæinn Kolbeinsá eftir 7-8 km siglingu en ekki var við komandi að fá að greiða fyrir flutninginn. Því næst var gengið út með Hrútafirði yfir Stikluháls og inn með Bitrufirði sunn- anvert þar til komið var að Þamb- árvöllum. Enn var beðið um bátsflutn- ing, nú yfir Bitrufjörðinn að Óspakseyri, og var það sjálfsagt. „Þannig höfðum við fengið bátsflutning yfir þrjá firði á einum degi, allt án nokkurs endur- gjalds,“ segir Óttar en á öllum við- komubæjum voru bátar til sjóferða. Á Óspakseyri skildi leiðir enn á ný. Þangað var kominn Rögnvaldur í Ólafs- dal að sækja Sverri. Reiðmenn kvaddir og óskað góðrar ferðar. Af fjallsbrúninni að vestan blasti við dýrðleg sýn, sem aldrei rann náttúruunnandanum Sverri úr minni; Gilsfjörðurinn með sinni fjallaumgjörð, fossinn Gullfoss sunn- anvert og bæirnir Kleifar og Gilsfjarð- arbrekka í botni fjarðar. „Eftir stóðum við Vestfirðingarnir og ekki var laust við að við fyndum til að- stöðumunar,“ segir Óttar. Þeir Runólfur þrömmuðu út með Bitrufirði, sömu leið og Ólafsdælingar hófu sína reið, og komu að kvöldi að bænum Gröf en þar bjó Guðmundur Einarsson sem Runólfur þekkti til. Þar fengu þeir kvöldmat, gistingu og morg- unverð en ekki fékkst að borga fyrir. Á fimmta degi ferðar voru allir ferða- langarnir komnir til síns heima nema Runólfur og Óttar. Eftir góðan næt- ursvefn héldu þeir frá Gröf og yfir Bitruháls. Þeim hafði verið sagt að fylgja símalínunni yfir hálsinn en nú vildi svo til að dimm kafaldshríð skall á, svo dimm að rétt grillti í næsta símastaur er sá næsti hvarf úr augsýn. Allt fór þó vel. „Þetta var í eina skiptið í ferðinni sem ég varð smeykur,“ rifjar Óttar upp. „Mér er minnisstætt þegar ég var kom- inn niður á undirlendið og varð litið upp bratta hlíð Bitruhálsins og sá klettabeltin á hálsbrúninni. Þá hugsaði ég með mér: Hefðum við nú villst þarna uppi á hálsinum!“ Í Stóra-Fjarðarhorni var piltunum veittur góður beini og reiddir yfir tvær ár er falla í Kollafjörðinn svo að þeir blotnuðu ekki í fæturna. Að því búnu var haldið út með og út fyrir Kollafjörð- inn. Horft inn Steingrímsfjörðinn og virtist Óttari gönguleiðin óralöng. Gengið var þar til komið var að bænum Kirkjubóli í Tungusveit, þar sem vel var tekið á móti félögunum og gæddu þeir sér á mjólk og brauði. Eftir hressinguna var áfram haldið og gengið fram á tvo menn við árabát við víkina utan við Hólmavík. Buðust þeir til að skjóta Óttari og Runólfi yfir vík- ina. Á Hólmavík höfðu tvímenningarnir uppi á skólabróður Runólfs, Þórði Björnssyni, sem átti vörubíl. Skutlaði hann hinum göngulúnu mönnum inn að Ósi í Steingrímsfirði en þangað var ferðinni einmitt heitið þennan daginn. Pöntuð hafði verið næturgisting og tók Gunnlaugur bóndi hress á móti gestum. Að morgni sjötta ferðadags, sem var sunnudagur, leyfðu félagarnir sér að sofa út. Saltkjötinu gerð góð skil í há- deginu. Eins og um hafði verið samið kvöldið áður voru nú látnir í té tveir reiðbúnir hestar undir ferðamenn og fylgdi Magnús sonur Gunnlaugs þeim upp allan Staðardal að Kleppustöðum sem var innsti bærinn í dalnum. Óttar telur að sinn hestur hafi lagst til sunds, tekið nokkur sundtök við vaðið yfir Staðarána. „Mér brá, hafði aldrei sundriðið áður. Runólfur taldi þetta raunar ólíklegt en ég held mig við mína upplifun. Áin var í vorleysingum!“ Á Kleppustöðum sneri Magnús við og var aðstoð þeirra feðga lengi í minnum höfð. Óttar segir þá eitthvað smávegis hafa fengið að borga fyrir lánið á hest- unum en annað ekki. Hvor tveggja Langidalur stóð undir nafni Bóndinn á Kleppustöðum fékk þeim teina í hendur í þeim tilgangi að reka niður í gegnum snjóalög á leiðinni yfir Steingrímsfjarðarheiðina, til að kanna hvort holt væri undir, vatnsrennsli. Gengu félagarnir síðan upp brattann að heiðinni og yfir hana. Komu þeir að Bakkaseli í Langadal seint um kvöldið. Fengu hressingu og gistingu – en aðeins eitt rúm. Eftir morgunverð í Bakkaseli var haldið af stað út Langadalinn í fylgd ráðsmannsins á bænum sem reiddi þá félaga yfir Langadalsána. Í minningu stóð hvor tveggja Langidalur ferð- arinnar undir nafni, að sögn Óttars, en að vísu var þessi ekki genginn allur, heldur beygt af leið og farið yfir hálsinn að vestan. Komið niður að Arngerð- areyri en þaðan voru þeir fluttir yfir Ísafjörðinn til Svansvíkur af Halldóri bónda. Ekkert tekið fyrir, tíðkaðist ekki meðal sveitunga Runólfs. Gengið var yfir báða hálsa á milli Reykjafjarðar og Mjóafjarðar sem voru erfiðari yfirferðar en ætlað var vegna bratta. Komu félagarnir við á bæjum og heilsuðu upp á ábúendur sem voru ann- aðhvort venslafólk eða góðkunningjar Runólfs. Þá var haldið áfram að Skála- vík við Mjóafjörð austanverðan, þar sem þeir fengu enn einn bátsflutninginn, nú yfir fjörðinn að Látrum um kvöldið. Þar með var aldursforsetinn í hópnum, Runólfur, kominn heim til sín að kvöldi sjöunda dags ferðarinnar. Var það að vonum kær heimkoma. Átti Runólfur nokkra aura eftir í buddunni en hann lagði upp frá Akureyri með tuttugu og átta krónur. Hafði hann raunar bak- tryggt sig með lán frá Óttari, sem var með hvorki meira né minna en fjörutíu og fimm krónur, en ekki kom til þess. Óttar gisti um nóttina á Látrum og svaf vært – einn í rúmi. Hoppaði upp á brimbrjótinn Áttunda og síðasta ferðadaginn tók Ótt- ar Djúpbátinn á Látrum út á Ísafjörð en siglt var út Djúpið fyrir alla firðina. Segir hann þetta hafa verið fyrirhafn- arlítinn ferðamáta, kannski nokkrir mjólkurbrúsar á leið í kaupstaðinn Ísa- fjörð. Svo heppilega vildi til að við bryggju á Ísafirði lá bolvískur fiskibátur sem var við það að leggja af stað heim. Fékk Óttar far með honum. Við komuna til Bolungarvíkur hoppaði hann létt- fættur upp á brimbrjótinn og gekk síðan rakleiðis heim til foreldra sinna. Þar með var yngsti göngugarpurinn kominn heim, síðastur þeirra allra. Hvíldarþurfi og þunnur á vangann, eins og hann orðar það í ferðasögu sinni. Fjögur yngri systkini biðu spennt eftir honum og það fimmta á leiðinni. Langþráð stund upp runnin. Óttar segir að foreldrar hans hafi ver- ið afskaplega ánægðir að fá hann heim. Spurður hvernig þeim hafi yfir höfuð litist á ferðalagið svarar hann því til að þau hafi ekki amast við því. „Það mun- aði líka miklu að það var sími á nánast hverjum bæ sem við komum á, þannig að við gátum látið vita reglulega af okk- ur. Þau þurftu fyrir vikið ekki að bíða í rúma viku eftir fréttum af ferðum mín- um. En þeim létti örugglega að sjá mig.“ Spurður hvort hann hafi ekki verið þreyttur við heimkomuna kinkar hann kolli. „Eflaust hef ég verið þreyttur en ánægjan yfir því að vera loksins kominn heim yfirgnæfði allt annað á þessari stundu.“ Hefur ekki gengið þessa leið síðan Eflaust leikur lesendum forvitni á að vita hvort Óttar hafi gengið til baka til Akureyrar um haustið. Svarið er nei. Hann fór með báti. „Ég hef ekki gengið þessa leið síðan og ætli það verði úr þessu,“ segir hann kíminn. Eftir á að hyggja þykir Óttari sláandi hvað menntaskólanemar utan af landi þurftu oft að hafa fyrir hlutunum á þessum árum. „Það tók krakkana á Ak- ureyri yfirleitt um fimm mínútur að ganga heim,“ segir hann brosandi en fellst á að átta dagar séu vitaskuld öfg- arnar í hina áttina. Hafa ber líka í huga að framhaldsskólar voru ekki á hverju strái á þessum árum. „Ekki misskilja mig,“ segir hann síðan eftir svolitla þögn, „ég er ekki að kvarta. Er þvert á móti sannfærður um að þetta hafi mót- að mig og styrkt fyrir lífsbaráttuna sem fór í hönd. Þetta ferðalag hefur alla tíð verið mér hugleikið.“ Fyrirsögn hér Akureyri Bolungarvík Ísafjörður M jó ifj ör ðu r Ísa fjö rð ur Steingrímsfjörður Hólmavík Bit ruf jör ðu r H rú ta fjö rð ur M ið fjö rð ur Blönduós Varmahlíð Öxnada lsheiði Öx na da lu r Gönguleið Óttars, Runólfs og Sverris vorið 1940 Grunnkort: Landmælingar Íslands ’ Eflaust hef ég verið þreyttur en ánægjan yfir því að vera loksins kominn heim yfirgnæfði allt annað á þessari stundu.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.