SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 22

SunnudagsMogginn - 13.02.2011, Síða 22
22 13. febrúar 2011 að þau hefðu heyrt James Joseph Wray, 22 ára, hrópa á hjálp þar sem hann lá særður í götunni, ófær um að hreyfa fæturna. Krufningarskýrsla leiddi í ljós að dán- arorsök Wrays var skotsár á höfði af stuttu færi. Í niðurstöðu skýrslunnar segir að hermennirnir hafi misst stjórn á sér og myrt saklausa borgara. Aðgerðir hersins á Bloody Sunday voru með öllu óréttlátar og óréttlætanlegar eins og David Came- ron, forsætisráðherra Bretlands, komst að orði þegar Saville-skýrslan var kynnt. Í kjölfarið bað hann fjölskyldur hinna látnu formlega afsökunar fyrir hönd bresku ríkisstjórnarinnar. Átökin innan samfélagsins Síðasta Bloody Sunday-minningargangan hefst á Creggan-svæðinu og fylgir leið göngumanna daginn örlagaríka árið 1972. Það er kalt í veðri og þúsundir fólks hafa safnast saman í göngunni sem í gegnum árin hefur orðið táknræn fyrir kröfur um mannréttindi og borgaraleg réttindi um heim allan. Auk fána héraðanna fjögurra á Írlandi, Munster, Leinster, Connaught og Ulster má sjá fána Palestínu, regnbogaf- ána samtaka samkynhneigðra og annarra kröfuhópa. Paul Devine og fjölskylda hans hafa tekið þátt í göngunni á hverju ári. Michael McDaid, móðurbróðir Devine, var einn þeirra sem féllu á Bloody Sunday, þá 21 árs gamall. Í útdrætti Saville- skýrslunnar sem aðstandendur þeirra sem létust fengu eintak af, var að finna ná- kvæma lýsing á því hvernig dauða ástvina þeirra bar að. „Michael var að ganga í burtu frá hermönnunum þegar hann var skotinn í andlitið. Kúlan kom út rétt fyrir neðan herðablaðið á honum og af afstöðu kúlunnar að dæma virðist henni hafa ver- ið skotið frá Derry-veggnum sem umlyk- ur svæðið þar sem óeirðirnar náðu há- marki. Hann var skotinn af leyniskyttu,“ útskýrir Devine. Hann kemur frá sterk- um, kaþólskum bakgrunni sem hann seg- ir að hafi gert hermönnunum auðveldara fyrir við að tengja fjölskyldu sína Írska lýðveldishernum. Hann man vel eftir að hafa verið í pössun heima hjá móð- urömmu sinni þegar breskir hermenn ruddust inn og gerðu húsleit, tæpum ára- tug eftir að þeir skutu móðurbróður hans til bana. „Ég og bróðir minn vorum há- grátandi inni í stofu með hendur upp í loft. Amma var inni í eldhúsi og kallaði á okkur að vera rólegir, vera hugrakkir og að segja ekki neitt á meðan hermennirnir sneru öllu á hvolf í húsinu. Við fjölskyldan vorum ekki tengd IRA á nokkurn hátt fyrir Bloody Sunday. Fjöldi manns skráði sig hins vegar í Írska lýðveldisherinn eftir atburðinn og það getur verið að móð- urbræður mínir og aðrir frændur hafi gert slíkt hið sama.“ Herdeildin fór í burtu en bilið milli mótmælenda og kaþólikka í samfélaginu breikkaði og hatrið á milli hópanna varð gríðarlegt. Devine minnist þess að amma hans fékk sent nafnlaust bréf á hverjum einasta laugardegi eftir Bloody Sunday. „Bréfið var sent frá póst- húsinu í The Fountain sem er mótmæl- endabyggð beint á móti The Bogside þar sem við bjuggum. Í bréfinu var bresku hermönnunum hrósað fyrir að drepa son hennar. Hún fékk þetta sama bréf sent á hverjum laugardegi í 17 ár eða þar til hún lést. Átökin eru innan samfélagsins sjálfs og rætin eftir því“, bætir hann við. Síðasta gangan? Bloody Sunday-minningargangan hefur verið haldin á vegum aðstandenda þeirra sem féllu og Sinn Féin, stjórnmálaarms Írska lýðveldishersins. IRA klofnaði hins vegar við samþykkt friðarsamkomulags- ins á föstudaginn langa árið 1998. Klofn- ingshópurinn nefnir sig RIRA, The Real IRA, og lýsti meðal annars sprengju- tilræðinu í Omagh árið 1998 á hendur sér. Þá féllu 29 manns. Stjórnmálaarmur RIRA er 32 County Sovereign Movement sem berst fyrir sameinuðu Írlandi og hyggst halda minningargöngunni um Bloody Sunday áfram þó svo að meirihluti fólks sé Göngumenn voru af öllum stærðum og gerðum. Síðasta minningarganga um þá sem létust í Derry á Norður-Írlandi blóðuga sunnudaginn 1972 var farin á dögunum. Greinarhöfundur var viðstaddur gönguna og komst að því hvers vegna ekki eru allir á eitt sáttir um framtíð göngunnar og áframhaldandi baráttu. Sólveig Jónsdóttir „Þetta er byrjunin – ekki endirinn“ B loody Sunday þann 30. janúar árið 1972 markaði hámark tíma- bils blóðugra átaka í sögu Norð- ur-Írlands sem nefnt hefur ver- ið The Troubles. Í friðsamlegri kröfugöngu fyrir borgaralegum rétt- indum skutu breskir hermenn þrettán al- menna borgara úr röðum kaþólikka og særðu aðra þrettán. Í kjölfarið voru hinir látnu, sem herinn fullyrti að hefðu verið úr röðum Írska lýðveldishersins, sagðir hafa skotið á hermenn að fyrra bragði og því hafi einungis verið um sjálfsvörn að ræða. Í 39 ár hafa fjölskyldur þeirra sem féllu á Bloody Sunday barist fyrir réttlæti og að hið sanna komi í ljós. Með opinber- un niðurstöðu Saville-skýrslunnar í júní árið 2010 fengu flestir þeirra sem létust og fjölskyldur þeirra uppreisn æru og í kjöl- farið var tekin ákvörðun um að gangan í ár yrði sú síðasta í röðinni. „Ofbeldið var hræðilegt og orðið að daglegum viðburði. Kaþólikkarnir fögn- uðu því breska hernum þegar hann kom fyrst í borgina. Færðu hermönnunum te og kex og voru fegnir að fá einhverskonar afl sem gæti mögulega komið reglu á ring- ulreiðina. Síðast en ekki síst voru þeir fegnir því að hafa fengið annað löggæslu- lið en Royal Ulster Constabulary en í því voru eingöngu mótmælendur svo það var verulega hallað á kaþólska hluta íbú- anna,“ útskýrir Michael Craig sem búið hefur í Derry allt sitt líf. Craig kemur frá blönduðum bakgrunni, móðurfjölskylda hans mótmælendatrúar en föðurfjöl- skyldan kaþólsk. Hann sagðist því snemma hafa ákveðið að reyna að halda sig í miðjunni og taka afstöðu með hvor- ugum hópnum. „Það var hins vegar hæg- ara sagt en gert því þá litu báðar hliðar á þig sem svikara við málstaðinn svo þú varst ef til vill í meiru hættu en annars. Eftir Bloody Sunday var eins og þungt ský lægi yfir borginni. Herdeildin fór en eftir sat samfélag þrungið reiði og sorg og tví- skiptara en nokkru sinni fyrr. Við vissum að hermennirnir höfðu komið fyrir vopn- um á líkunum til að láta líta út fyrir að þeir sem féllu hefðu skotið á þá fyrst. Ein- hvern veginn þurfti herinn að breiða yfir og reyna að réttlæta það sem þeir höfðu gert. Þeir frömdu glæp og enn stærri glæp með því að reyna að hylma yfir hann.“ Niðurstaða Saville-skýrslunnar Herdeildin sem átti hlut að máli fékk hins vegar orðu Englandsdrottningar fyrir hugrekki. Árið eftir var skipuð rannsókn- arnefnd um atburði Bloody Sunday, Wid- gery-dómstóllinn undir umsjón Lord Widgery. Rannsóknin tók afar stuttan tíma og var harðlega gagnrýnd fyrir óná- kvæmni og fljótfær vinnubrögð. Í stað þess að lægja öldurnar átti niðurstaða Widgery-dómstólsins hins vegar aðeins eftir að kynda undir reiði almennings þar sem fjölmörg vitni að atburðinum, þar á meðal alþjóðlegir blaðamenn og ljós- myndarar, voru ekki kölluð fyrir dóm- stólinn til að bera vitni. Niðurstaða hans var á þá leið að aðgerðir breska hersins hefðu verið „allskostar ónauðsynlegar“. Í janúar 1998 kallaði ríkisstjórn Tonys Blairs eftir því að skipuð yrði önnur rann- sóknarnefnd, í umsjón Lord Saville, um atburði Bloody Sunday. Tólf árum síðar, eftir viðtöl við um 900 vitni og eftir að hafa loks fengið gögn á borð við ljós- myndir og upptökur úr herþyrlum sem hingað til höfðu verið illfáanlegar frá varnarmálaráðuneyti Bretlands, kynnti Saville niðurstöður nefndarinnar en um var að ræða ítarlegustu og umfangsmestu rannsókn sem stjórnað hafði verið í gjör- vallri breskri réttarfarssögu. Í niðurstöðu Saville kemur fram að aðgerðir bresku hermannanna hafi einkennst af algjöru stjórnleysi þar sem þeir skutu á óvopn- aða, almenna borgara sem ýmist voru að flýja undan þeim eða reyna að koma særðum til hjálpar. Flestir hinna látnu voru skotnir í bakið eða í návígi þar sem þeir lágu særðir á jörðinni. Í viðtölum við vinnslu Saville-skýrslunnar fullyrtu vitni

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.