Morgunblaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Í myndbandi sem viðskiptavinir
ferðafyrirtækisins Blue Mountain
tóku í ferð á vegum fyrirtækisins í
fyrra, má sjá utanvegaakstur á há-
lendi Íslands. Á vef annars slíks
fyrirtækis, Enduroiceland.is, sést
m.a. þegar torfæruhjólum er ekið
eftir kindagötu sem einnig er notuð
sem reiðstígur. Í báðum tilvikum
hefur Umhverfisstofnun tilkynnt
myndirnar til lögreglu.
Myndbandið sem um ræðir var
tekið í ferð Blue Mountain með
danska viðskiptavini í fyrra. Það er
um tíu mínútna langt og stærstur
hluti þess sýnir akstur á vegum og
vegslóðum.
Létu ekki að stjórn
Undir lok myndbandsins sést
hins vegar greinilega þar sem ekið
er utan vega, annars vegar upp
langa og bratta brekku og hins
vegar eftir mel.
Sverrir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Blue Mountain, segir
að vðskiptavinirnir hafi ekið þar
upp í óþökk fararstjóra frá fyr-
irtækinu og hann hafi farið og náð í
mennina. Brekkan sem um ræðir
sé svokallað Fun Zone (fjörsvæði)
við Heklu en þar hafi mótorhjóla-
menn mikið ekið í gegnum tíðina.
„Þetta eru kraftmiklir ungir menn
sem eru að koma í ævintýraferð til
Íslands. Þeim hættir til að vera
óstýrilátir og vilja fjör og þá getur
þetta gerst,“ segir hann. Raunar
þurfi starfsmenn fyrirtækisins oft
að leiðrétta þann misskilning út-
lendinga að hér á landi megi aka út
um allt. Þegar slíkt eigi sér stað
séu menn látnir laga eftir sig förin.
Það hafi þó ekki verið gert í þess-
um tilvikum þar sem á þessu svæði
hafi hundruð hjólamanna leikið sér,
einmitt í þessum brekkum. Förin
eftir viðskiptavinina hafi ekki verið
hægt að greina frá öðrum.
Á öðrum stað sést þar sem ek-
ið er vestur með Langasjó. Sverrir
segir að þar sé ekið eftir vegi sem
sé merktur inn á GPS-kort. Á ein-
um stað hafi verið ekið upp brekku
sem ekki er merkt sem vegur, þótt
för eftir jeppa þar um séu greini-
leg.
Sverrir ítrekar að í ferðum á
vegum fyrirtækis síns sé ekki ekið
utan vega og slóða. Þá benti hann á
að ýmislegt á myndum gæti orkað
tvímælis t.d. akstur eftir slóðum
sem sæjust illa.
Torfæruhjólamenn á villigötum
Ljósmynd/Af Youtube
Brot Á myndbandinu sést þegar ekið er á torfæruhjólum upp brekku í
grennd við Heklu og á mel skammt frá. Myndbrot verður birt á mbl.is í dag.
Myndband sýnir utanvegaakstur í skipulagðri ferð danskra ferðamanna með ferðaþjónustufyrirtæki
Segir viðskiptavinina hafa ekið þar upp í óþökk fararstjóra Vegur á sumum kortum en öðrum ekki
Á vef ferðaþjónustufyrirtækisins
Enduroiceland sést þar sem tor-
færuhjólum er ekið eftir slóð eft-
ir hesta og kindur í Þjórsárdal.
Oddviti sveitarfélagsins segir
þetta utanvegaakstur en því neit-
ar forsvarsmaður fyrirtækisins.
Halldór Sveinsson, hjá Endur-
oiceland, segir í svari við fyr-
irspurn Morgunblaðsins að um sé
að ræða vel þekktan slóða sem
sé mikið notaður af göngufólki,
hjólafólki og hestamönnum. Hjá
fyrirtækinu passi menn sig á því
að aka aðeins eftir vel þekktum
slóðum og stundi alls ekki ut-
anvegaakstur. Þá vísaði hann í
málflutning Slóðavina sem hafa
haldið á lofti rétti mótorhjóla-
fólks til að aka m.a. eftir kinda-
götum. Vel geti verið að ekki séu
allir á eitt sáttir um akstur á
vegslóðum sem séu þekktir og
jafnvel verið eknir í áratugi en
það sé samt ekki utanvegaakst-
ur.
För í flestum kindagötum
Gunnar Örn Marteinsson, oddviti
Skeiða- og Gnúpverjahrepps, seg-
ir að þó að slóðinn hafi verið
markaður af kindum og síðan
hestum, sé ekki þar með sagt að
torfæruhjólamenn megi aka þar
einnig. Þetta sé ekkert nema ut-
anvegaakstur. Rétt við hliðina sé
gamall vegslóði sem þeir ættu
frekar að nota.
Gunnar fer töluvert um hálendið
og hann segir að för eftir mót-
orhjól sjáist í flestum kindagöt-
um. Misjafnt sé hvort kindagöt-
urnar hafi skemmst af völdum
akstursins, stundum séu engar
skemmdir. Akstur utan allra
slóða, upp um fjöll og hlíðar sé
mun verri og geti valdið stór-
skemmdum á landi.
„Það þarf að setjast niður og
finna einhverja lausn á þessu.
Það þýðir ekki að vera í einhverju
stríði,“ segir hann. Víða um há-
lendið séu slóðar sem megi
skipuleggja sem mótorhjólaslóða.
„Þýðir ekki að vera í stríði“
MÓTORHJÓLUM EKIÐ EFTIR KINDAGÖTUM
Ljósmynd/Tekin af vef Enduroiceland
Eins og kind Mótorhjólum er
víða ekið eftir kindagötum.Á EINU EN EKKI ÖÐRUM
Vegurinn vestur með Langasjó
er á GPS-korti Samsýnar. Hann
fannst ekki á kortum Landmæl-
inga eða í Kortaatlas Máls og
menningar og er ekki á skipu-
lagsuppdrætti. Framkvæmda-
stjóri Samsýnar segir veginn
vissulega vera þarna og því sé
hann sýndur.
*E
in
un
gi
s
er
gr
ei
tt
up
ph
af
gj
al
d
6
kr
.a
fh
ve
rj
u
sí
m
ta
li.
M
án
.v
er
ð
1.
76
5
kr
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
16
2