Morgunblaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 13
Glíman við skuldir lykilmálið
www.mats.is
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta
(Tölur í milljónum króna) Ársreikningur Ársreikningur
2009 2008
Í milljónum króna –1.681.157 –5.670.030
Rekstrarniðurstaða A hluta –1.513.323 –3.584.734
Skuldir og skuldbindingar samtals 41.662.996 36.829.744
Eigið fé 6.922.018 1.093.979
Íbúafjöldi (Skv. Hagstofunni)
2009 2008
25.850 25.036
Erlend lán
Hlutur lána í erlendri
mynt í skuldum
bæjarins er ríflega 80%
Skuldir á hvern íbúa (milljónir króna)
2009 2008
1,6 1,47
Að meðaltali skuldaði því
fjögurra manna fjölskylda
árið 2009:
6,4milljónir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það sem stendur upp úr fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði
síðar í mánuðinum er hversu lítið ber
á kosningaloforðum. Þung skulda-
byrði í kjölfar hrunsins yfirskyggir
önnur mál en Lúðvík Geirsson, bæj-
arstjóri og oddviti Samfylkingar, tel-
ur hana vel viðráðanlega.
Vinstri grænir hafa gagnrýnt
framkvæmdagleði bæjarins, m.a. að
ráðist skuli hafa verið í byggingu Ás-
vallalaugar og íþróttamannvirkja í
Kaplakrika nær samtímis.
Lúðvík vísar þessu á bug og segir
breiða samstöðu hafa ríkt um þessar
framkvæmdir í bæjarstjórn, auk þess
sem byggð hafi verið minni laug en
fyrri meirihluti ráðgerði.
Þá megi rekja vægi erlendra lána í
rekstrinum til fyrri meirihluta, lána
sem séu til langs tíma og á hag-
stæðum kjörum fyrir bæjarfélagið.
Skuldasöfnun forgangsmálið
Valdimar Svavarsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, telur það for-
gangsverkefni að stöðva skuldasöfn-
un. Þar beri hæst endurfjármögnun
um sex milljarða króna skulda í
haust.
„Ef endurfjármögnunin verður
erfið erum við strax komin í vand-
ræði. Vandamálið er að erlendir
markaðir eru svo til lokaðir fyrir alla
fjármögnun og það er erlent lán sem
um ræðir. Vaxtamunur á erlendu og
innlendu lánsfé er gríðarlegur sem
stendur en það þýðir að rekstrar-
vandræði bæjarins munu aukast ef
við þurfum að leita í dýrari fjár-
mögnun. Ég held að bæjarstjórinn
lifi í einhverjum draumaheimi ef
hann telur að við munum halda sömu
kjörum við endurfjármögnun.“
Guðrún Ágústa gagnrýnir fram-
kvæmdagleði Samfylkingarinnar.
„Við höfum sem fyrr segir rætt að
það þurfi annars konar hugarfar við
stjórn. Við erum þá meðal annars að
vísa til þess hvernig Hafnarfjörður
og höfuðborgarsvæðið hefur verið í
keppni um útþenslu. Þessi útþenslu-
og græðgisstefna sveitarfélaga er af
sama meiði og græðgi útrásarvík-
inga. Hafnarfjörður situr uppi með
þrjú hverfi tilbúin til uppbyggingar,
eitt íbúðarhverfi og tvö iðnaðar-
hverfi,“ segir Guðrún Ágústa.
Aðspurður hvaða mál framsókn-
armenn setji á oddinn í kosningabar-
Átakalínur í Hafnarfirði
Stækkun álvers
í Straumsvík
Óska-sam-
starfsflokkur
Fylgjandi að
uppfylltum
skilyrðum
Opinn fyrir
öllumflokkum
Tilbúin að
skoða kosningu
ummálið
Vinstri grænir
Fylgjandi
Opinn fyrir
öllumflokkum
Andvígir
Samfylking
Framsóknar-
flokkurinn Samfylkingin
Sjálfstæðis-
flokkurinn Vinstri grænir
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar telur fjárhag bæjarins traustan Oddviti Sjálfstæðisflokksins telur
stöðuna mun alvarlegri Framsókn er opin fyrir öllum flokkum VG gagnrýnir skuldasöfnun
áttunni segir Valdimar Sigurjónsson,
oddviti Framsóknarflokksins, að taka
þurfi til í fjárlögum bæjarins og halda
vel utan um endurfjármögnun lána í
rekstri hans.
Inntur eftir því hvernig Framsókn
hyggist halda uppi sama þjónustu-
stigi á sama tíma og niðurskurður
blasir við bendir Valdimar á mögu-
leika til hagræðingar í rekstrinum.
„Það eru ákveðnir þættir sem þarf
að skoða. Við viljum verja störfin,“
segir Valdimar og víkur að atvinnu-
málum: „Næstu stóru tækifærin sem
bjóðast strax eru í ferðaþjónustu.
Annað tekur lengri tíma.“
Samfylkingin kom vel út úr
sveitarstjórnarkosningunum
2006 og fékk þá 7 menn af 11.
Samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2 í lok apríl
fengi flokkurinn nú hins vegar 5
menn en tekið skal fram að
tæpur helmingur aðspurðra gaf
þá upp afstöðu til flokka.
Athygli vekur að oddviti
Framsóknar telur hrunið og
þverrandi traust á flokka kalla á
meiri samvinnu en verið hefur,
áhersla sem er samhljóða af-
stöðu Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur borg-
arstjóra til
borgar-
málanna.
Vinni saman
FRAMSÓKN TELUR TÍMA
SAMSTÖÐU RUNNINN UPP
Lúðvík
Geirsson
Valdimar
Sigurjónsson
Valdimar
Svavarsson
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Dagskrá
• JúlíusVífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, flytur stutt ávarp.
• Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, flytur stutt
ávarp.
• Magnús Skúlason, formaður Íbúasamtaka miðborgarinnar, flytur stutt
ávarp.
• Að loknum ávörpum munu fundarmenn ræða leiðir til að bæta
ástandið í miðbænum. Notað verður svokallað „Air Opera“ fundarform.
Íbúafundur um málefni
miðborgarinnar
Fimmtudaginn 20. maí nk. verður haldinn íbúafundur
klukkan 17.00 í Tjarnarsal Ráðhúsi Reykjavíkur. Stýri-
hópur vegna reglna um staðsetningu og afgreiðslutíma
vínveitingastaða boðar til fundarins með íbúum
miðborgarinnar.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
oddviti Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, tekur undir að
skuldastaðan sé lykilmálið í ár.
Fjárhagsstaðan áhyggjuefni
„Að sjálfsögðu er fjárhagsstaða
bæjarins mikið áhyggjuefni. Það er
mikið hitamál og við höfum rætt um
að hér þurfi annars konar hugarfar
við stjórn. Það er engum hollt að vera
einn við völd, hvað þá tvö kjörtímabil
í röð. Við höfum líka rætt að það þurfi
að auka siðferði í stjórn sveitarfélaga
og þar er Hafnarfjörður ekki undan-
skilinn,“ segir Guðrún Ágústa og lýk-
ur lofsorði á frammistöðu starfsfólks
bæjarins, þ.m.t. Gerðar Guðjóns-
dóttur fjármálastjóra: „Það hefur
verið mikið álag á fjármálastjóra og
hún hefur tekið heilmikið til í rekstr-
inum með þverpólitískri samstöðu.“
Sveitarstjórnarkosningar 29. maí