Morgunblaðið - 19.05.2010, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Dagana 27.-28.
maí nk. verður
ráðstefnan
„Tengslanet V –
völd til kvenna“
haldin á Bifröst.
Bandaríski met-
söluhöfundurinn
Barbara Ehren-
reich verður að-
alfyrirlesari á
ráðstefnunni.
Annar aðalfyrirlesari verður Sig-
ríður Benediktsdóttir, einn höf-
undur rannsóknarskýrslunnar. Auk
þess verða um 30 aðrar konur með
framsögu á ýmsum sviðum.
Konur efla tengsla-
netið á Bifröst
Barbara
Ehrenreich
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti einróma á fundi sínum 20.
apríl sl. að atvinnuleitendur í
Reykjavík og fólk sem nýtur fjár-
hagsaðstoðar til framfærslu fái frí-
an aðgang að sundstöðum borg-
arinnar og frí notendakort í
bókasafni Reykjavíkur og útibúum
þess til ársloka 2010. Þeir sem vilja
nýta sér þetta tilboð geta nú sótt
um sund- og bókasafnskortið hjá
þjónustufulltrúum á þjónustu-
miðstöðvum Reykjavíkur frá 7. til
20 hvers mánaðar.
Ókeypis í sund
Lionsklúbburinn Úlfar í Grafar-
holti hefur gefið öllum grunn-
skólum landsins tvo mynddiska að
gjöf. Myndefnið er kennsluefni um
einelti og til stuðnings hvers konar
forvarnastarfi í skólum. Það er með
stuðningi Reykjavíkurborgar,
Lionshreyfingarinnar, Námsgagna-
stofnunar og liðsmanna Jerico sem
gjöfin er send.
Myndefnið á diskunum er alls 112
mínútur að lengd. Á öðrum diskn-
um er leikin kvikmynd en á hinum
er viðbótarefni, m.a. reynslusögur
gerenda og þolenda eineltis og við-
töl við börn og fagaðila.
Morgunblaðið/Heiddi
Einelti Fræðsluefni um einelti hefur
verið gefið út á diskum.
Einelti í skólum
Á mánudag sl. veitti Auðlind-
Náttúrusjóður sína fyrstu styrki til
verndunar og endurheimtar vot-
lendis. Vigdís Finnbogadóttir,
verndari sjóðsins, afhenti styrkina
við athöfn í Þjóðminjasafni Íslands.
Styrkþegar að þessu sinni voru
Fuglavernd fyrir verkefnið „Vot-
lendisendurheimt – Friðlandið í
Flóa“, Sigurkarl Stefánsson fyrir
verkefnið „Endurheimt votlendis í
landi Setbergs“, og Norræna húsið
fyrir verkefnið „Friðlandið í Vatns-
mýrinni“.
Styrkur Vigdís Finnbogadóttir
ásamt nokkrum styrkþegum.
Náttúrusjóður út-
hlutar styrkjum
STUTT
Eitt nauðsynlegra og mjög þakk-
látra vorverka í grunnskólum er að
gefa ungviðinu tækifæri til þess að
njóta lífsins úti undir berum himni
utan hefðbundinna frímínútna.
Stundum er lífríkið skoðað í návígi;
gengið á fjall, arkað niður í fjöru eða
jafnvel farið á sjó, eða þá að blásið er
til íþróttakeppni, eins og raunin er á
Akureyri um þessar mundir. Tvo
síðustu daga hefur hópi nemenda
verið stefnt á Þórsvöllinn við Gler-
árskóla þar sem fram hefur farið
frjálsíþróttamót í umsjá Ungmenna-
félags Akureyrar. Það voru 5. bekk-
ingar úr öllum skólum sem reyndu
með sér í gærmorgun; í hlaupum og
stökkum, og rúsínan í pylsuend-
anum var skemmtileg og æsispenn-
andi keppni í reiptogi. Keppendur
lögðu sig alla fram en stuðnings-
menn ekki síður eins og sjá má.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hoppað, stokkið og togað
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
20% afsláttur af
30% afsláttur af
stígvélum
Mjódd, sími 557 5900
Vordagar í Fröken Júlíu
Nýjar vörur frá Jensen 15% afsláttur af
öllum vörum frá Jensen á vordögum
Verið
velkom
nar
Dagskrá
1. Fundarsetning
2. „Bankahrunið og lærdómur lífeyrissjóða“
Erindi Salvarar Nordal, forstöðumanns Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands.
Kaffihlé
3. Almenn ársfundarstörf
4. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
5. Önnur mál löglega upp borin
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar og rétthafar
séreignarsparnaðar rétt til setu á fundinum.
Reykjavík 17. maí 2010
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
Ársskýrslu, tillögur til samþykktabreytinga og dagskrá fundarins
má nálgast á skrifstofu sjóðsins og á www.lifeyrir.is
Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn
fimmtudaginn 27. maí nk., kl. 16:00, á Hilton
Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
ÁRSFUNDUR 2010
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Sími 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fall-
ist á kröfu eignaleigufyrirtækisins
Lýsingar um að mega leysa til sín bíl
vegna vanskila umráðamanns. Jafn-
framt úrskurðaði dómurinn að áfrýjun
til Hæstaréttar fresti aðfarargerðinni.
Umráðamaður bílsins var dæmdur til
að greiða Lýsingu 200 þúsund krónur í
málskostnað.
Umráðamaðurinn samdi við Lýs-
ingu í byrjun árs 2008 um fjármögnun
bílakaupa og var samningurinn geng-
istryggður miðað við krónu, japanskt
jen og svissneska franka. Maðurinn
lenti í vanskilum árið 2008 og Lýsing
rifti síðan samningnum haustið 2009 og
sendi dómstólum síðan aðfararbeiðni.
Umráðamaður bílsins mótmælti því
hins vegar að hafa verið í vanskilum og
færði nokkrar ástæður fyrir því,
meðal annars þá að greiðsluáætlun
samningsins hefði verið í krónum og
Lýsing hefði ofkrafið sig um leigu-
gjald.
Nokkrir dómar hafa fallið að und-
anförnu þar sem héraðsdómarar hafa
talið að verðtrygging krónulána mið-
að við gengi erlendra gjaldmiðla hafi
ekki verið heimil. Beðið er niðurstöðu
Hæstaréttar í þessum málum.
Héraðsdómur segir hins vegar að
ekki hafi verið skorið úr um það fyrir
dómstólum hvort efni samnings aðila
hafi verið ólögmætt og hafi umráða-
maður bílsins því ekki upp á sitt ein-
dæmi mátt miða afborganir við aðrar
forsendur en fram koma í samn-
ingnum. kjon@mbl.is
Lýsing mátti
leysa til sín bíl
Héraðsdómur segir umráðamann
ekki mega lækka afborganir einhliða