Morgunblaðið - 19.05.2010, Qupperneq 11
Daglegt líf 11
smáhléum en hann vann á stað með
Michelin-stjörnu í Frakklandi um
tíma.
Þráinn er 28 ára Sauðkræk-
ingur og segist alltaf hafa stefnt á
kokkanám. „Ég byrjaði að vaska
upp þegar ég var 14 ára á sum-
arhóteli á Sauðárkróki og vann við
þetta alltaf á sumrin til tvítugs en
þá fór ég að læra,“ segir hann.
Norsk lúða og kálfakjöt
Þráinn byrjaði að æfa fyrir Bo-
cuse D’Or-keppnina í janúar, þá
æfði hann þrisvar sinnum í viku
fram í miðjan apríl. Þá tóku við æf-
ingar sex sinnum í viku fram að
mótinu í júní.
„Við erum í sérhönnuðu keppn-
iseldhúsi sem er eftirlíking af eld-
húsinu úti þannig að við erum að
æfa okkur í nákvæmlega eins um-
hverfi og við keppum í. Á æfingu
byrjum við á að finna allt hráefni til
og vikta allt sem má koma með vikt-
að og undirbúa eldhúsið. Þegar við
höfum stillt öllu upp eins og við
myndum gera í keppninni byrjum
við tímaæfingar með öllu aukalegu.
Svo er smakk á tíma, en það er mik-
ið kapp að halda tímanum, og svo
fullkomnum við hlutina betur og
betur með hverri æfingu,“ segir
Þráinn um rútínuna á æfingum.
En hvað ætlar hann að bjóða
dómurunum á Bocuse D’Or upp á?
„Það þurfa allir keppendur að
elda úr norskri lúðu og svissneskum
kálfi. Það er sem sagt fiskréttur og
kjötréttur, við setjum réttina upp á
silfurföt með ákveðnum silfurbúnaði
sem við hönnum sjálfir. Allt fer á fat
og ferðast hring um salinn fyrir
framan dómarana og þeir meta fatið
út frá útlitinu. Síðan setjum við
réttinn á disk og dómararnir
smakka matinn en það eru helstu
toppmatreiðslumenn í heimi sem
skipa dómnefndina.“
– Ertu með einhver brögð uppi
í erminni?
„Já já, ég byrjaði að hanna
matinn í janúar og ákvað þá að
þemað sem ég vinn út frá með fisk-
inn yrði íslenskt hraun og með kálf-
inn íslenskt birki. Svo fengum við
þetta eldgos sem er í raun mjög góð
kynning fyrir mig þarna úti. Ég
vinn svolítið út frá hrauninu og er
með ætilegt humarhraun með fisk-
inum og svo er söguð hraunplata
fatið sem fiskurinn liggur á. Í skál-
inni með heita humarsoðinu er
þurrís svo þegar við hellum því yfir
fiskinn kemur smáeldgosafílingur,“
segir Þráinn.
Heilt lið með í för
Þráinn stendur ekki einn í und-
irbúningnum fyrir keppnina en það
er heilt lið í kringum hann. „Sturla
Birgisson, er dómari Íslands í
keppninni, Hákon Már er þjálfari
minn, svo er ég með þrjá aðstoð-
armenn; Bjarni Siguróli Jakobsson
er aðstoðarmaður minn í keppninni
úti, svo eru tveir á æfingum sem sjá
um undirbúning og skrifa niður,
þeir Atli Þór Erlendsson og Tómas
Ingi Jórunnarson.“
Þráinn segir gott gengi í
keppninni hafa mikla þýðingu fyrir
sig. „Sigur hefur mikla þýðingu,
bæði fyrir Ísland og fyrir mig per-
sónulega. Þessi keppni er mjög virt
úti í Evrópu, það þekkja hana allir
úti í heimi, og allir sem hafa unnið
keppnina eru vel staddir í dag,“ seg-
ir Þráinn og bætir við að þetta verði
vonandi síðasta keppnin sem hann
tekur þátt í. „Ef ég næ mjög góðum
árangri í þessari keppni eru engar
betri keppnir að fara í.“
Morgunblaðið/RAX
Eldgos Þráinn verður með hraun-þema í fiskiréttinum og segir eldgosið hafa komið sér vel, nema það tefji för hans.
Svo fengum við þetta
eldgos sem er í raun
mjög góð kynning fyrir
mig þarna úti.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Ármúla 30 • 108 Reykjavík Sími 560 1600 • www.borgun.is
AUÐVELDAR VIÐSKIPTI
Borgun hefur sérhæft sig í öruggri
greiðslumiðlun í 30 ár. Þekking okkar
og reynsla nýtist viðskiptavinum
á hverjum degi, allan sólarhringinn.
Borgun býður:
Allar gerðir posa á hagstæðum kjörum
Öruggar lausnir fyrir vefverslanir
Skilvirka leið við innheimtu boðgreiðslna
Notendavæna þjónustuvefi
Hafðu samband í 560 1600 eða borgun@
borgun.is og fáðu tilboð í færsluhirðingu.
Með hækkandi sól og vaxandi orku í
sál og líkama er sannarlega ástæða
til að vekja í sér víkinginn. Því er um
að gera að bregða undir sig betri
fætinum um næstu helgi, sem er löng
hvítasunnuhelgi, og fara austur í
Biskupstungur, nánar tiltekið í þétt-
býliskjarnann Reykholt, en þar ætla
félagarnir í víkingahópnum Rimmu-
gýgi að vera með vorhátíð sína. Þessi
hrausti hópur ætlar að hita upp fyrir
sumarið og tjalda sínum glæstu vík-
ingatjöldum, setja upp alls konar
smiðjur og fleira í þeim dúr. Einnig
ætla þeir að sýna gestum og gang-
andi hvernig lífið gæti hafa gengið
fyrir sig á víkingamarkaði fyrir þús-
und árum. Að sjálfsögðu grípa þeir
til vopna og æfa bardagalist og ýmis
tilþrif að hætti vaskra víkinga.
Rimmugýgur er félag áhuga-
manna um menningu og bardagalist
víkinga, en það var stofnað fyrir
þrettán árum og hefur lifað góðu lífi.
Allir eru velkomnir á þessa vorhátíð
og enginn aðgangseyrir verður
rukkaður laugardag og sunnudag
klukkan 12-18.
Víkingarnir verða við tjaldsvæðið
í Reykholti og gera sér þessa sveita-
ferð í samvinnu við Kaffi-Klett,
bjálkaveitingahúsið, sem hentar
málefninu vel, enda verður þar boð-
ið upp á víkingaborgara, vík-
ingasteik og þjóðlegt bakkelsi og
svo verður kaffihlaðborð á hvíta-
sunnudag.
Tjaldsvæðið er einnig opið öllum
tjaldgestum þessa helgi.
www.kaffiklettur.is
Hátíð í sveitinni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tekið á því Þegar barist er að víkingasið þarf að einbeita sér.
Vaskir víkingar hita
upp fyrir sumarið