Morgunblaðið - 19.05.2010, Page 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Gisting Akureyri
Glæsileg 2 herb. íbúð til skammtíma-
leigu á Akureyri. Gisting fyrir 4. Uppl.
í s. 864 1816, eydisb3@gmail.com.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
Frelsi frá streitu og kvíða
Hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is,
www.theta.is
Húsnæði í boði
Íbúð í NY til leigu í sumar
Góð 2 herbergja íbúð á Manhattan,
New York til leigu í styttri eða lengri
tíma í sumar. Gisting fyrir allt að 4.
Íbúðin er nálægt lestarstöð. Það er
tvíbreitt rúm og tvíbreiður svefnsófi í
henni, eldhús með öllu nauðsynlegu,
baðherbergi með sturtu og sjónvarp í
stofunni. Internet er líka í boði.
Hún er laus frá 1. júní - 22. ágúst og
kostar 60$ nóttin.
Hafið samband við Ólöfu eða Arnór í
netföngin arnorskuli@simnet.is og
ohgunnars@gmail.com
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Iðnaðarmenn
Sólpallasmíði, girðingar og allt
viðhald
Tökum að okkur sólpallasmíði á góðu
verði. Lausir í júlí. Erum fagmenntaðir
og með margra ára reynslu.
S. 697-5363 og 662-1549.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhald - framtöl
Skattaframtöl fyrir einstaklinga og
rekstraraðila og bókhald fyrir fyrir-
tæki, stofnun EHF., VSK-uppgjör,
erfðarfjárskýrslur o.fl. Framtöl og
bókhald s. 517-3977, framtal@visir.is
Þjónusta
Ljósmyndastofa Gunnars
Ingimarssonar
Suðurveri - Stigahlíð 45 - s. 553 4852
- lgi.is - Myndatökur fyrir alla
fjölskylduna
Bátar
Við viljum minna sjómenn
á okkar frábæru fiskikör!
Upplýsingar í síma 460 5000,
saevaldur.gunnarsson@promens.com
Bílar
2008 Benz ML 420 dísel,
AMG Útlit með 20” álfelgum. 10
milljónir í afslátt frá nývirði. Hefur þú
einhverntíman heyrt um slíkan afslátt
? Verð 11.900 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
KRINGLUBÓN ekið inn stóri-
litli turn. Opið mán.-fös. 8-18,
lau. 10-18. S. 534 2455
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái og leðurhreinsun.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Húsbílar
Hobby FSC 650 - Ford Transit
Lengd 6,89, árg. ‘06, ek. 19 þús.
Beinsk. Glæsilegur bíll m/öllum
aukab. Verð 10,7 millj. Uppl. í síma
421 3656 eða 690 3656.
atvinna
✝ Guðríður Hall-dórsdóttir fædd-
ist 9. maí 1915 í
Bolungarvík. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Höfða, Akra-
nesi, 11. maí 2010.
Foreldrar hennar
voru Halldór Bene-
diktsson, báts-
formaður í Bolung-
arvík, f. 9. maí
1872, d. 14. október
1933, og Guðríður
Víglundssóttir, hús-
freyja í Bolung-
arvík, f. 8. júlí 1873, d. 18. des-
ember 1960. Systkini Guðríðar,
voru Halldór, f. 1907, d. 1979.
Margrét, f. 1908, d. 1995. Ásta
Sigríður, f. 1910, d. 1989. Guð-
mundur, f. 1911, d. 1987, og
Kristín, f. 1913, d. 1989. Hálf-
systir Guðríðar, sammæðra,
Helga Sveinsdóttir, f. 1899, d.
1984.
Guðríður giftist 25. nóvember
1938, Halldóri Guðmundssyni,
skipstjóra frá Sigurstöðum,
Akranesi, f. 19. maí 1911, d. 1.
mars 1989. Foreldrar hans voru
Guðmundur Guðmundsson, sjó-
maður frá Sigurstöðum, f. 4.
september 1884, d. 24. júlí 1937,
og Kristín Jónsdóttir, húsfreyja
júní 1942, gift Þorgeiri Haralds-
syni, f. 27. desember 1935, d. 21.
júní 2005. Börn þeirra: Jón Þór,
kvæntur Vilborgu Helgadóttur.
Börn: Helgi, Eva María, Sigrún
Dóra og Ásrún. Anna Júlía, gift,
Alexander Eiríkssyni. Börn:
Andri Geir, Ástþór Ýmir og
Gyða. Halldór Geir, kvæntur
Bryndísi Þórarinsdóttur. Börn:
Snær, Eik, Nói og Ilmur. Hrönn,
sambýlismaður Bjarni Friðrik
Bragason. Börn: Þorgerður,
Bragi Friðrik og Atli Freyr. 3)
Halldór Haukur, f. 29. maí 1948,
kvæntur Hrafnhildi Hannibals-
dóttur, f. 26. nóvember 1950.
Börn þeirra: Hanna Gróa, frá-
skilin. Börn: María Mist, Dag-
björt, Elva Rut, Sara Eir, Eiður
Smári og Gísli Hrafn. Árdís, gift
Guðmundi Inga Sigurðssyni.
Börn: Viktor Örn, Arnar Þór,
Kristel og Helga María. Hanni-
bal, sambýliskona Eygló Hlín
Stefánsdóttir. Börn: Bóas Orri
og Ari Úlrik.
Guðríður var mikil fjölskyldu-
manneskja og velferð annarra
var henni ofarlega í huga. Hún
sinnti húsfreyjustarfinu af ástúð
og alúð og var einstakur gest-
gjafi. Hún hafði gaman af söng
og var í kór eldri borgara á
Akranesi á efri árum. Hún var
alla tíð búsett á Kirkjubraut 51,
Akranesi, en síðustu átta árin
bjó hún á Dvalarheimilinu
Höfða.
Útför Guðríðar verður gerð
frá Akraneskirkju í dag, 19. maí
2010, og hefst athöfnin kl. 14.
á Sigurstöðum, f.
10. ágúst 1881, d. 3.
mars 1966. Börn
Guðríðar og Hall-
dórs: 1) Kristín Guð-
munda, f. 2. maí
1939, d. 29. mars
2010, gift Magnúsi
Davíð Ingólfssyni, f.
11. janúar 1937.
Börn þeirra: Hall-
dóra Guðríður, gift
Lúðvík Björnssyni.
Börn: Davíð Hall-
dór, sambýliskona
Elsa Alexand-
ersdóttir. Barn þeirra: Embla
Rós. Heiðrún Kristín, sambýlis-
maður, Gunnar Örn Gunnarsson.
Börn: Birta Sif, Gabríel Frosti
og Benedikt Jökull. Heimir
Magnús, Björn Markús og Krist-
inn Daði. Ingólfur Friðjón,
kvæntur Sigríði Andrésdóttur.
Börn: Bjarki Már, Ásta Kristín
og Linda Björk. Guðmundur
Halldór, sambýliskona Júlía
Birgisdóttir. Börn: Sólborg
Vanda og Óskar Halldór. Soffía
Margrét, gift Halldóri Braga-
syni. Börn: Kristín Elísabet,
Bragi Þór og Adolf Freyr. Magn-
ús Kristinn, fráskilinn. Börn: El-
ísabet Karen og Stephen Mitch-
ell. 2) Guðríður Halldóra, f. 14.
Elsku amma Guja,
Þá er komið að kveðjustundinni.
Þegar maður kveður ömmu sína er
af mörgu að taka, og þá sérstak-
lega þegar lífshlaupið er langt eins
og hjá þér, konu sem svo sann-
arlega hefur upplifað tímana
tvenna.
Ég ætla því að takmarka þessa
kveðju mína við það sem við áttum
að mínu mati út af fyrir okkur og
það eru hádegismatartímarnir á
fjölbrautaskólaárum mínum. Það
vita það allir sem þekktu þig að
það kom enginn að tómum kof-
unum þegar um mat var að ræða á
Kirkjubrautinni, og því tel ég að
það sé beint samhengi á milli
langrar fjölbrautaskólagöngu minn-
ar og hádegismatartímanna hjá
þér. Ég hreinlega vildi draga það
eins lengi og ég gæti að útskrifast,
svo ég gæti komið oftar í hádeg-
ismat til þín.
Það var ekki amalegt að rölta úr
FVA upp á Kirkjubraut og fá kjöt-
súpu á þriðjudegi, og ekki nóg með
það heldur var ávaxtagrautur með
rjóma á eftir, kótelettur á fimmtu-
degi og hrært skyr með rjóma á
eftir, og svo mætti lengi telja. Gam-
all heimilismatur en enginn skyndi-
biti, í öll mál, alltaf tví- ef ekki þrí-
réttað og aldrei fór maður svangur
í skólann eftir hádegi. Ég vil meina
að þessir matartímar hafi skilað
sínu, þegar ég byrjaði í FVA 16 ára
gamall var ég 169 cm á hæð, þegar
ég útskrifaðist rúmlega tvítugur
var ég orðinn 196 cm á hæð. Ég er
ekki viss um að pulsa með öllu og
kók hefði skilað þessum sentimetr-
um upp á við, sennilega frekar á
þverveginn.
Ég vil því nota þetta tækifæri til
að þakka þér kærlega fyrir góðu
stundirnar á Kirkjubrautinni öll
þessi hádegi, og að sjálfsögðu fyrir
allt hitt líka. Þú ert og verður alltaf
mögnuð kona, og þessi 95 ár sem
þú lifðir á þessari jörðu staðfesta
það, og mér leið mjög vel þegar ég
kvaddi þig á 95 ára afmælisdaginn,
sem var okkar síðasta stund sam-
an.
Það var Bóasi, eldri syni mínum,
mikil ánægja að eiga langömmu
sem var 95 ára og hann talaði mikið
um að þú værir elsta manneskjan
sem hann þekkti og var mjög stolt-
ur af þér að ná þessum aldri. Nú
stefnir hann á það að ná að verða
eldri en þú, verðugt verkefni það.
Elsku amma, nú ert þú komin á
nýjan stað og ég trúi að þið afi
séuð nú að endurnýja kynni ykkar
eftir langa fjarveru hvort frá öðru.
Eygló og strákarnir senda þér sín-
ar bestu kveðjur og þakkir fyrir
allt.
Megir þú hvíla í friði,
Þinn,
Hannibal Hauksson
og fjölskylda.
Guðríður
Halldórsdóttir
Fleiri minningargreinar um Guð-
ríði Halldórsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
GUNNARS ÁRNASONAR,
Hallakri 1,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar Karitas.
Guðný Jónasdóttir
Hilmir Þór Gunnarsson, Steinunn Lund,
Jónína Gunnarsdóttir, Guðni Ingvason,
Gunnar Már Gunnarsson, Laufey Þórarinsdóttir
og afabörn.
✝
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KARLS L. FRÍMANNSSONAR,
sem andaðist fimmtudaginn 6. maí og var jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14. maí.
Lilja Randversdóttir,
Gunnar Karlsson,
Randver K. Karlsson, Guðrún H. Kristjánsdóttir,
Hólmgeir Karlsson,
Ingvar Karlsson, Ingibjörg Smáradóttir,
Hans L. Karlsson, Guðbjörg Valdórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
SIGURÐAR ARNARS SVANBERGS
EINARSSONAR,
Erluási 2,
Hafnarfirði.
Fyrir einstaka alúð og umönnun í veikindum hans viljum við færa
sérstakar þakkir til heimahlynningar Landspítalans og deildar 11E og
12E á Landspítalanum við Hringbraut.
Guð veri með okkur öllum.
Lísabet Sólhildur Einarsdóttir,
Indíana F. E. Sigurðardóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Viktoría I. Sigurðardóttir, Jón Marías Torfason,
Einar Svanberg Sigurðsson, Dagrún N. Magnúsdóttir,
Sigríður Lísabet Sigurðardóttir, Guðmundur Jónsson,
Sólborg Sigurðardóttir,
Sigurður Arnar Sigurðsson, Birna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.