Morgunblaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 30
AF CANNES
Birta Björnsdóttir
birtabjorns@gmail.com
Ímaímánuði ár hvert beinist athygli kvik-myndaáhugamanna og stjörnufræðingaað smábænum Cannes í Frakklandi. Þó
að borgin sé ekki stór að flatarmáli flykkjast
þangað árlega þúsundir gesta að þessu tilefni,
kvikmyndastjörnur, leikstjórar, framleiðend-
ur, blaðamenn, ljósmyndarar, bílstjórar og
fleiri og fleiri. Það sama virðist vera upp á ten-
ingnum í ár, þegar hátíðin er haldin í 62. sinn.
Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig aðkoma kvikmyndahátíðinni í Cannes í
startholurnar í ár. Til að byrja með lék veð-
urofsi strandlengjuna grátt, rok og flóð urðu
til þess að vinna þurfti öflugt hreinsunar- og
uppbyggingarstarf við sjávarsíðuna nokkrum
dögum áður en hátíðin hófst. Þá varð gosið í
Eyjafjallajökli til þess að einhverjir sáu sér
ekki fært að mæta til hátíðarinnar og menn á
borð við Sean Penn neyddust til að sitja heima
í sveit í þetta sinn. Fréttaveiturnar Reuters,
Getty TV og AP áttu svo ekki sína fulltrúa við
opnun hátíðarinnar. Hæstráðendur þar á bæ
voru fúlir vegna nýfengins einkaréttar Canal
plus og Orange TV frá útsendingum á hátíð-
inni og ákváðu að skrópa í mótmælaskyni.
Það eru kannski ekki nýjar upplýsingar
að fjöldinn allur af myndum er frumsýndur á
hátíðinni, en myndunum er skipt upp í hópa.
Þannig eru sumar myndanna í keppninni og
eiga þar af leiðandi möguleika á Gullpálm-
anum góða. Það er aðal-dómnefndin sem sér
um að velja þær bestu úr þeim flokki, en for-
seti dómnefndar að þessu sinni er leikstjórinn
Tim Burton. Keppnismyndirnar vekja oftar en
ekki mesta athygli auk þeirra mynda sem
flokkaðar eru utan keppni. Í þeim síðarnefnda
má oft finna svokallaðar stórmyndir, kvik-
myndir sem fá mikla umfjöllun, eru stjörnum
prýddar og eru sýndar í flestum kvikmynda-
húsum víða um heim. Í ár eru myndir á borð
við Robin Hood og Wall Street: Money Never
Sleeps sem sýndar eru í þessum flokki.
Hinn lúsiðni Woody Allen sýndi einnignýjustu mynd sína á hátíðinni í ár utan
keppni. Myndin nefnist You Will Meet a Tall
Dark Stranger og sagði Allen á blaðamanna-
fundi eftir frumsýninguna að titillinn hefði
nokkrar merkingar. „Þegar bandarískar kon-
ur vita að stefnumót við hávaxinn, dökkhærð-
an mann er í uppsiglingu iða þær í skinninu og
ímynda sér menn á borð við Antonio Banderas
eða Warren Beatty. Hin merkingin er svo auð-
vitað hái dökki maðurinn sem við hittum öll á
endanum, maðurinn með ljáinn …“
Þó að Allen hefði slegið á létta strengi á
sínum blaðamannafundi byrjaði samskonar
fundur kollega hans, Mike Leigh, ekki eins vel.
Leigh neitaði að svara spurningu blaðamanns
Sunday Times og sagði blaðamanninn „vita
fullvel hvers vegna“. Getspakir gátu sér til um
að Leigh væri enn móðgaður út í viðkomandi
blaðamann vegna slæmrar gagnrýni um eina
af myndum leikstjórans fyrir nokkrum árum.
Leigh á einmitt mynd í keppninni góðu og
að vanda ægir þar saman ýmiskonar myndum
frá flestum heimshornum. Sjálfur sagði for-
maður dómnefndarinnar, Tim Burton, að hann
væri ánægður með hversu fáar bandarískar
myndir væru í keppninni í ár. Hann gleðst þá
væntanlega yfir að fá að sjá mynd um dauð-
vona fjölskylduföður í hinni spænsku Biutiful,
mynd um hrottalega valdabaráttu mafíósa í
hinni japönsku Outrage og stríðshrjáða fram-
Hrói höttur hittir Gordon Gekko
Reuters
Shia LaBeouf og Michael Douglas Fara með aðalhlutverk í Wall Street: Money Never Sleeps.
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Date night kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i.14 ára
Un Prophéte enskur texti kl. 6 B.i.16 ára
Imaginarium of Dr. P ísl. texti kl. 9 B.i.12 ára
Snabba Cash kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
Robin Hood kl. 6 - 9 B.i.12 ára
The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
I Love you Phillip Morris kl. 10:30 B.i.12 ára
Crazy Heart kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
Robin Hood kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
The spy next door kl. 6 LEYFÐ
The Back-up Plan kl. 8 - 10 LEYFÐ
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
HHH
„Snabba Cash rennir stoðum
undir þá staðreynd að Svíar eru
að verða stórveldi í glæpamynda-
gerð. Virkilega smart krimmi þar
sem kynnt er hægt og rólega
undir áhugaverðum persónum
þangað til allt sýður upp úr.”
Þ.Þ. Fréttablaðið
HHH
„Það er auðvelt að mæla
með þessari spennandi og
tilfinningaríku mynd því að
hún veit svo sannarlega hvar
hún stendur – og gerir allt
sem hún ætlar sér.”
B.I. kvikmyndir.com
HHHH
„Ofursvöl Scarface
Norðurlanda“
Ómar Eyþórsson X-ið 977
HHHH
„Snabba Cash gefur Stig Lars-
son myndunum ekkert eftir.
Áhrifarík og raunveruleg.”
Heiðar Austmann FM 957
HHH
„Sterk, raunsæ og vel
skrifuð glæpasaga. Kom
mér gríðarlega á óvart.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
„Enn tekst Svíunum að
skila frábærri mynd.
Spennandi og geysivel
gerð í alla staði.“
Heimir Karlsson, Bylgjan
sum stefnumót enda með hvelli
SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓwww.graenaljosid.is
VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA SÝNDAR ÁFRAM
VINSÆLASTA MYND
ÁRSINS Í SVÍÞJÓÐ
MAGNAÐUR SÆNSKUR
SPENNUTRYLLIR Í ANDA
STIEG LARSSON MYNDANNA
SÝND Í REGNBOGANUM
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2010