Morgunblaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Aska yfir borginni
2. Handtökuskipun alltof harkaleg
3. Lést eftir slys á leikvelli
4. Mikið sprengigos í gangi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Það er erfitt að vera listamaður í
líkama rokkstjörnu“ er yfirskrift sýn-
ingar á verkum Erlings Klingenberg
sem opnuð verður í Hafnarborg ann-
að kvöld kl. 20. Hvað er að vera lista-
maður? spyr Erling. »27
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Að vera listamaður í
líkama rokkstjörnu
Tónlistarkonan
Laurie Anderson
verður sérstakur
gestur Vatna-
safnsins í Stykk-
ishólmi 22. maí
nk. og heldur þar
tónleika kl. 20.
Anderson hefur
ekki áður komið
fram á Íslandi. Miðaverð á viðburðinn
er 1.500 kr. og er tekið við pöntunum
í tölvupósti. Senda skal á netfangið
ragnheidur@stykkisholmur.is.
Laurie Anderson í
Vatnasafninu
Tónlistarmannsins Rún-
ars Júlíussonar verður
minnst með dansleik á
Kringlukránni 21. og
22. maí. Þar kemur
fram hljómsveitin
Hvar er Mjallhvít? með
André Bachmann en
sérstakir gestir verða
synir Rúnars, Baldur
og Júlíus. Þá munu
Sævar Sverrisson og
Hulda Gestsdóttir
einnig taka lagið.
Dansleikur til minn-
ingar um Rúnar
Á fimmtudag og föstudag Hæg breytileg átt, skýjað að mestu en yfirleitt úrkomulítið.
Hiti 7 til 15 stig.
Á laugardag, sunnudag og mánudag (annar í hvítasunnu) Hægviðri og víða bjart, en
líkur á þokubökkum sums staðar við sjóinn. Áfram fremur hlýtt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og væta með köflum, en
styttir upp að mestu á norðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 15 stig.
VEÐUR
Það voru 23 mörk skoruð í
2. umferð Pepsi-deildar
kvenna í knattspyrnu sem
leikin var í gær. Íslands-
meistarar Vals voru á
skotskónum en þeir rót-
burstuðu nýliða FH í
Kaplakrika, 9:0, og hafa
unnið báða leiki sína eins
og KR, sem vann Aftureld-
ingu 4:1, og Stjarnan, sem
marði Grindvíkinga á
gervigrasvellinum í Garða-
bænum. »2-3
Meistararnir
gerðu níu mörk
Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur
vakið athygli fyrir frammistöðu
sína með Fylki sem trónir nú á
toppi úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Ásgeir hafði aldrei leikið sem
miðjumaður þegar Ólafur Þórð-
arson tók við þjálfun liðsins en
kom skemmtilega á óvart í fyrra og
fer vel af stað í ár. Hann er í
úrvalsliði 2. umferðar hjá
Morgunblaðinu sem birt
er í dag. »4
Ásgeir nýtur sín undir
stjórn Ólafs hjá Fylki
Vallarstjórinn á golfvellinum í Herjólfsdal
í Vestmannaeyjum er hæstánægður með
öskuna sem borist hefur frá eldgosinu í
Eyjafjallajökli. Hann segir að búið sé að
sanda völlinn fyrir sig, og það ókeypis.
Grasið sé komið upp í gegnum öskuna og
líti vel út, völlurinn hafi sjaldan verið
jafngrænn á þessum árstíma. Fyrsta
stigamót tímabilsins er einmitt í Eyjum í
lok mánaðarins. »1
Himnasending til Eyja frá
Eyjafjallajökli
ÍÞRÓTTIR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fólk úr öllum heimshornum hefur
fylgst með eldgosinu í Eyja-
fjallajökli í gegnum vefmyndavélar
Mílu (eldgos.mila.is). Nú hafa síð-
unni borist heimsóknir frá nær
öllum löndum veraldar, að sögn
Sigurrósar Jónsdóttur, deild-
arstjóra hjá Mílu.
Nýlega komu fyrstu gestirnir
frá Svalbarða og Sahara í Afríku.
Heimsóknir frá Bandaríkjunum
voru orðnar 636 þúsund í gær, 800
þúsund frá Bretlandi, um 270 þús-
und frá Svíþjóð og álíka margar
frá Noregi og Finnlandi. Gestirnir
koma einnig úr fjarlægustu heims-
hornum á borð við Kína, Ástralíu
og flestum löndum Afríku. Í gær
voru heimsóknir alls orðnar um
átta milljónir talsins og fletting-
arnar 21 milljón.
Nú koma miklu fleiri heim-
sóknir frá útlöndum en frá lands-
mönnum. Aðsóknin hér innanlands
er orðin jafnari en hún var. Um
leið og eitthvað nýtt gerist tekur
aðsóknin kipp. Hitamyndavél var
bætt við fyrr í þessum mánuði og
þá tóku heimsóknirnar kipp.
Skemmtileg þakkarbréf
Sigurrós sagði að fyrirtækinu
hefðu borist mörg tölvubréf og að
sumir í Austur-Evrópu hefðu not-
að þýðingarvél Google til að þýða
bréfin á íslensku. Þau væru oft
mjög skemmtileg aflestrar. Ný-
lega fékk Míla myndskreytt sendi-
bréf í pósti frá Moskvu í Rúss-
landi. Bréfin voru skrifuð á
íslensku og höfðu bréfritarar
stuðst við þýðingarvél Google við
bréfritunina.
Átta milljónir hafa heimsótt
vefmyndavélarnar hjá Mílu
Margir senda
þakkir í tölvupósti
eða sendibréfum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Víðséð eldgos Margar milljónir manna um allan heim hafa skoðað eldgosið í Eyjafjallajökli í beinum útsend-
ingum vefmyndavéla Mílu. Fleiri heimsóknir berast nú frá útlöndum á degi hverjum en frá Íslandi.
„Halló!
Við horfa eldfjall með hjálp int-
ernetið úr sléttum, með fjöll og á hljð
[svo]. Hann lítur áhrifamikill. Mjög
ágætur, en óþægindi af henni núna.
Taka stuðning okkar! Og halda hesta
burt frá ösku. Gangi þer vel!
frá Rússlandi.“
Hitt bréfið skrifar Ivan, 22 ára:
„Halló!
Takk fyrir útsendingu myndir af eldfjall.
Öll fjölskyldan horfir það. Jafnvel kött-
urinn. Bíddu, krakkar! Bless!
Frá Rússlandi með kærleika,
Ivan, 22 ára gamall.
P.S. Þýðing við google, því miður :)“
„Við horfa á“
„FRÁ RÚSSLANDI MEÐ KÆRLEIKA“