Morgunblaðið - 01.06.2010, Side 16

Morgunblaðið - 01.06.2010, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Áhrifamenninnanstjórn- málaflokka hafa tjáð sig með af- gerandi hætti í kjölfar kosning- anna. Forystu- menn Sjálfstæðisflokks á Ak- ureyri hafa brugðist ærlega við úrslitum þar. Lykilmenn í Samfylkingu hafa vakið at- hygli á veikri stöðu varafor- manns þess flokks eftir úrslit í Reykjavík. Augljóst er einn- ig að lengur verður ekki vikist undan að taka á þeim vanda sem formaður þess flokks er augljóslega orðinn. Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi talar tæpi- tungulaust um vandamálin hjá Vinstri grænum. Hann verður þó ekki sakaður um að fara offari í sínum málflutn- ingi. Hann gerir sér grein fyr- ir því að forysta Vinstri grænna hefur misst hið póli- tíska samband við það venju- lega fólk í landinu, sem stund- um fær samheitið alþýðan. Hann segir einnig aðspurður: „Kjósendur okkar eru á há- vinstrikantinum og þeir gera ákveðnar kröfur. Þeir upplifa að það sé verið að byggja upp gamla kerfið, að það sé verið að endurreisa fyrirtæki og láta gömlu auðmennina taka við þeim.“ Þorleif- ur hefur mikið til síns máls. Sama verður ekki sagt um Guðmund Steingrímsson, sem er eins konar flugumaður Sam- fylkingar í Framsókn. Hann var í hópi manna með Birni Inga, Pálma í Fons og fleirum sem stóð fyrir hallarbyltingu í Framsókn í Reykjavík og felldu Óskar Bergsson borg- arfulltrúa og settu Einar Skúlason í staðinn, korteri fyrir kosningar. Þessi aðgerð og þær aðferðir sem beitt var hleyptu mjög illu blóði í venjulega stuðningsmenn Framsóknarflokksins. Nýi frambjóðandinn réð ekki við sitt hlutverk og útkoman varð eftir því. Þá fær Guðmundur Steingrímsson innhlaup í fjöl- miðla og ræðst á forystu flokks síns fyrir útkomuna í Reykjavík. Allt er það eins ótrúverðugt og verða kann. Það er alltaf flokkum til óþæginda að hafa menn inn- anborðs sem spila á eigið mark. Því er erfiðara að verj- ast en hefðbundnum and- stæðingum. Guðmundur Steingrímsson var aðstoð- armaður Dags Eggertssonar. Gegnir hann aukastarfi með þingmannsstarfinu? Umfjöllun fólks í stjórnmálaflokk- unum um kosn- ingaúrslitin er at- hyglisverð} Eftirköstin Umfjöllun ísjónvarpi á kosninganótt og daginn eftir kosn- ingar er ábyrgð- arhlutverk, sem Ríkisútvarpið sit- ur eitt að, eftir að Stöð 2 hafði ekki lengur styrk í slíkar útsendingar. Tilburðir til að stýra túlkun niður- staðna í tiltekna átt voru óþarflega áberandi. Útlistun fræðimanna var því miður ekki rismeira en hinna sem minna áttu að vita. Einfeldn- ingsleg framsetning um „fjór- flokkinn“ og örorku hans og jafnvel endalok var fjarri því að vera boðleg. Staða þeirra flokka sem buðu fram í 22 stærstu sveit- arfélögunum er harla ólík eft- ir þessar kosningar. Sjálf- stæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í 8 þeirra og stærstur að auki í 5 eða samtals með yfirburðastöðu í 13 af 22 stærstu sveitarfélög- unum. Framsóknarflokkur er með hreinan meirihluta í einu af þessum sveitarfélögum og er stærstur í 4 að auki. Sam- fylkingin er hvergi með hreinan meiri- hluta, eftir fylgis- hrun í Hafnarfirði en er stærst í 2 sveitarfélögum. Vinstri grænir eru hvergi í hreinum meirihluta og eru hvergi stærstir. L-flokkurinn er í hreinum meirihluta í einu sveitarfélagi og Besti flokk- urinn er stærstur í Reykja- vík, lítið eitt stærri en Sjálf- stæðisflokkurinn. Þetta stutta yfirlit segir mikla sögu. Sem sagt þá að staða stjórnmálaflokkanna er allt önnur en reynt var að koma á framfæri í sjónvarpi ríkisins í kosningadagskrá. Hitt er svo annað mál, að eftir kosningar er að koma á dag- inn að Besti flokkurinn í Reykjavík og Sá næst besti í Kópavogi eru ekki sú nýlunda sem haldið var að kjósendum. Þeir eru lítið annað en enn ein útgáfan af vinstriflokkum. Það tók þann í Kópavogi að- eins fáeinar mínútur eftir kosningar að átta sig á þessu og Besti flokkurinn ætlar fyr- ir siðasakir að taka eins og viku til að láta það koma í ljós. Ríkisútvarpið verður að vanda sig betur en það gerði á kosn- inganótt og í kjölfar hennar} Óboðleg kosningaútlistun Í kringum síðustu aldamót fengum við Björgvin Guðmundsson, sem núna stýrir Viðskiptablaðinu, þá hugmynd að stofna frjálshyggjufélag. Við vorum sammála um að flokkurinn okkar, Sjálfstæðisflokkurinn, hefði villst af leið – langt til vinstri – með þeim afleiðingum að ríkisút- gjöld hækkuðu og skattheimta jókst. Lítið var hlustað á frjálshyggjuraddir innan flokksins. Björgvin heltist úr lestinni, en árið 2002 stofnaði ég, ásamt fleiri mönnum, Frjáls- hyggjufélagið. Í stofnstefnuskrá þess er m.a. sagt að leggja eigi niður Seðlabanka Íslands og færa stjórn peningamála í hendur einkaaðila. Betur ef farið hefði verið að þeirri tillögu og hverjum hefði verið leyft að velja sér mynt við hæfi, í ljósi fjármálahörmunga síðustu missera. Fjölmargir gengu í félagið á þessum fyrstu mánuðum – flestir dauðþreyttir á félagshyggjuflokknum sem þóttist vera flokkur hugsjóna og einstaklingsfrelsis þegar ekki var of stutt í kosningar. Á meðal þeirra sem skráðu sig var Jón Gnarr. Jón mætti á eitt fyrsta kynningarkvöldið og svo ein- hverja viðburði, m.a. hið svokallaða „Jólahvað“ Frjáls- hyggjufélagsins á aðventunni 2002, ef ég man rétt. Þar fékk ég tækifæri til að ræða við þennan skarpgreinda og drepfyndna mann um lífið og tilveruna. Í ljós kom að Jón var alveg með á nótunum. Um leið og við hann var rætt varð bersýnilegt að hann hafði heil- steyptari lífsmynd en flestir aðrir. Rauður þráður í lífs- viðhorfi hans, eins og ég skildi hann, var ábyrgð einstaklingsins á eigin lífi. Hann var mótfallinn þjóðfélagi sem byggð- ist á boðum og bönnum. Hann var sammála mér um að frelsið til að reka sig á væri afar mikilvægt – þannig yrðu manneskjur að mann- eskjum, en ekki einskonar forrituðum svefn- genglum (Jón notaði það orð, man ég), sem færu hugsunarlaust eftir forskrift hins alvitra stóra bróður. Og við vorum líka sammála um að þetta frelsi takmarkaðist að sjálfsögðu af sama frelsi annarra, þannig að einn mætti aldrei skaða annan. Það var flott grín hjá honum að afneita frjálshyggjunni í Morgunblaðinu í gær, alveg eins og þegar hann lofaði „sjálfbæru gegnsæi“ fyrir kosningar. Framboð Besta flokksins er eitursnjallt útspil manns, sem áttar sig á því að fólk er orðið örþreytt á forsjárhyggjunni. Það er orðið yfir sig þreytt á stjórnmálamönnum, sem upphefja sjálfa sig og þykjast vera þess umkomnir að hafa vit fyrir öðrum. Það er orðið þreytt á stjórnmálamönnunum sem svipta borgarana sjálfsaflafé sínu, til þess að sóa í eigin hugð- arefni. Það áttar sig á því að rekstur hins opinbera, eins og hann er núna, mun aldrei ganga upp til lengdar – einfald- lega vegna þess að þjóðfélagið hefur ekki efni á honum. Jón mun skera upp herör gegn forsjárhyggjunni – hann mun seint verða „einn af þeim“ og þröngva eigin gild- ismati upp á aðra, því Jón Gnarr er frjálshyggjumaður. ivarpall@mbl.is Ívar Páll Jónsson Pistill Frjálshyggjan sigrar í borginni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is A f 479 sveitarstjórn- arfulltrúum á landinu eru 187 konur eða sem nemur 39%. Er hlut- deild kvenna í sveit- arstjórnum nú á bilinu 0-60%. Að loknum sveitarstjórnarkosningum árið 2006 voru 35,9% sveitarstjórn- armanna konur og fyrir þær kosn- ingar voru 32% kjörinna fulltrúa konur. Fyrir kosningar 2002 voru konur 28% sveitarstjórnarmanna. Hefur hlutur kvenna í sveit- arstjórnum því aukist um ríflega þriðjung síðan fyrir kosningarnar 2002, sem nemur ellefu prósentu- stigum. Eru þessar tölur samkvæmt samantekt Jafnréttisstofu og ljóst er af þeim að hlutfall kvenna í sveit- arstjórnum er enn í lægra lagi en hækkar nokkuð jöfnum skrefum milli kosninga. Samantektin náði til sjötíu af 76 sveitarfélögum á landinu. Í tólf sveitarfélögum eru konur í meirihluta í sveitarstjórn. Eftir kosningar 2006 voru konur í meiri- hluta í ellefu sveitarfélögum og fyrir þær voru þau tíu talsins. Í nítján sveitarfélögum eru kon- ur innan við 30% sveitarstjórn- armanna og þar af eru þær innan við fjórðungur þeirra í tólf sveit- arfélögum. Lægsta hlutfall karla í sveitarstjórn er 40%. Er því ljóst að meðaltal á landsvísu segir ekki alla söguna og nokkrar hæðir og lægðir eru í hinu pólitíska landslagi að þessu leyti. Konur 45% á Vestfjörðum Hæst er hlutfall kvenna 60% og er það svo hátt í fimm sveit- arfélögum. Athygli vekur að þrjú þeirra eru á Vestfjörðum og eru það Tálknafjörður, Árneshreppur og Bæjarhreppur. Er hlutfall kvenna í sveitarstjórnum að meðaltali hæst í þeim hluta landsins, 45%. Lægst er hlutfall kvenna í sveitarstjórnum eft- ir landshlutum 34% á höfuðborg- arsvæðinu og Norðurlandi vestra. Ekkert þeirra sveitarfélaga sem hefur fleiri konur en karla er á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi eða Norðurlandi eystra. Í Akra- hreppi er engin kona í sveitarstjórn en þar fór fram óbundin kosning þar sem enginn framboðslisti kom fram. Fimm karlar skipa stjórn sveitarfé- lagsins Á Álftanesi er ein kona bæj- arfulltrúi en það nemur 14% kjör- inna fulltrúa þar. Sjálfstæðismenn hafa hreinan meirihluta fjögurra bæjarfulltrúa þar og er eina konan í fjórða sæti á þeirra lista. Aðrir listar náðu aðeins einum manni inn og voru allir karlar. Samfylking náði ekki inn manni en oddviti hennar er kona. Fléttulistar ekki alger lausn „Það er leiðinlegt að komast ekki yfir fjörutíu prósentin og miðað við það sem gerðist í alþingiskosn- ingunum eru þetta vonbrigði,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra Jafnréttisstofu, en kveður þróunina vera í rétta átt. Kristín segir að þó að hlutur karla og kvenna á framboðslistum sé nokkuð jafn skili það sér oft ekki í hlutfallið innan sveitarstjórna þar sem karlar séu langoftast efstir á listunum. „Það er fyrsta sætið sem skiptir lang- mestu máli,“ seg- ir hún og bendir á niðurstöðurnar á Álftanesi. Fléttul- istar jafni því ekki endilega hlut kynjanna í sveit- arstjórnum þó þeir stuðli að því upp að vissu marki. Sveitarstjórnirnar fallandi karlavígi Hlutur kvenna í sveitarstjórnum Vesturland 2006 2010 35,2% 41% Höfuðborgarsvæðið 2006 2010 41,4% 34% Suðurnes 2006 2010 37%38,4% Vestfirðir 2006 2010 36,2% 45% Norðvesturland 2006 2010 34%33,3% Norðausturland 2006 2010 38%33% Austurland 2010 39% 2006 37,7% Suðurland 2006 2010 40%34% Landið allt 2010 39% 2006 35,9% Í nýafstöðnum kosningum leiddu konur 46 af 185 fram- boðslistum landsins, en það nemur rétt tæpum fjórðungi oddvitasætanna. Gegndu karlar því langtum oftar oddvitastöðu á listum. Kemur þetta fram í samantekt frá Jafnréttisstofu. Þegar litið er til efstu tveggja sæta listanna eru hlut- föllin nokkuð jafnari, en 44% þeirra sem skipa sæti eitt og tvö eru konur. Í fjórum efstu sætum listanna eru konur 45%. Samtals 2.846 manns eiga sæti á listum um land allt og eru konur 47% þeirra, 1.330 á móti 1.516 körl- um. Samantektin náði til þeirra sveitarfélaga þar sem tveir eða fleiri listar buðu fram. Karlar efstir – konur í öðru KARLAR OFTAR Í FORSVARI Efst Karlar eru efstir á 75% framboðslista.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.