Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011 ms.is Nýtt HVÍTA H Ú S IÐ /S ÍA Gráða & feta ostateningar í olíu • • • • • Þriðjudagur skoðun 12 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Geðhjálp 4. október 2011 231. tölublað 11. árgangur ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 GEÐHJÁLP Elín Ósk Reynisdóttir hefur upplifað svo alvarlegt þunglyndi að oftar en einu sinni var hún nærri dauðanumMeð é verkfræði, á bara einn kúrs eftir þar og fékk því að byrja strax í meistaranáminu. Ég hef alltaf haftáhuga á umh EINKENNI ÞEGAR ÍÞRÓTTUM LAUKElín segist alltaf hafa verið ff i i og ég ákvað að e d Veikindin eru sársaukafull reynsla en ekki glötuð ár Elín Ósk Reynisdóttir er í meistaranámi í umhverfisverkfræði en hún segist alltaf hafa haft áhuga á umhverfinu sem og stærðfræði. MYND/ANTON ALLTAF VERIÐ HALDIN RÍKRI RÉTTLÆTISKENND Björt Ólafsdóttir, formaður Geð-hjálpar, ætlar að taka til hendinni í geðheilbrigðismálum á Íslandi. Síða 5 LÍKT OG VERIÐ SÉ AÐS MIKILVÆGT AÐ FÓLK ÞEKKI RÉTTINDI SÍNRéttindagæslumenn fatlaðra voru skipaðir um land allt í maí síðastliðnum. Síða 4 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 FLOTTUR teg 9066 - þunnur en styður vel í C D skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.995,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Opið á laugardögum 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is MISTY er nú á ferð um landið, næsti viðkomustaður er Húsavík hjá Önnu RúnuTÖFF FÖT á Garðarsbraut dagana 4. til 11.okt Sölustaðir:10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál Hlynur Gunnnarsson er heimsmethafi í greininni „skateboard stationary manual“. Alþjóðlega íshokkímótið Ice Cup verður haldið í Egilshöll um næstu helgi og munu íslensk og kanadísk íshokkílið etja þar kappi. Mikil eftirvænting ríkir meðal leikmanna, meðal annars vegna komu Sami Jo Small sem er þrefaldur Ólympíumeistari kvenna. Setti heimsmet í annað sinn Þ etta er sætur sigur og líka mikill léttir,“ segir Hlynur Gunnarsson, sem gerði sér lítið fyrir og setti heimsmet í „skateboard stationary manual“ í versluninni Brimi í Kringlunni um helgina. Metið fólst í því að standa sem lengst á framdekkjum á hjólabretti án þess að afturdekkin snertu jörðina. Hlynur hélt jafnvægi í 7,59 mínútur.Þetta er í annað sinn sem Hlynur setur heimsmet í greininni. Í desember á síðasta ári bætti hann met bandaríska hjólabrettamanns-ins Rob Dyrdek. Sá var með 0,49 mínútur en Hlynur náði 3,05 mínútum. Í kjölfarið fékk hann skjal frá Guinness World Records því til stað-festingar. Sú sæla var hins vegar skammvinn því mánuði síðar var metið slegið af öðrum Bandaríkjamanni, Adam Zisa, með tímann 4,55 mínutur. Upp frá því varð Hlynur ákveð-inn í að endurheimta titilinn. 3 Í klóm svindlara Ásmundur Jónsson fórnarlamb óprúttinna svikahrappa á netinu. fólk 34 Ólöf Rún Skúladóttir 50 ára Heldur upp á daginn í París. tímamót 18 Forvörn gegn einelti Ásthildur Bj. Snorradóttir hefur gefið út forvarnabók fyrir börn í Bandaríkjunum. allt 2 ÚRKOMA N-TIL Í dag verða víða norðan 8-13 m/s, hvassast við N- og SA-ströndina. Rigning eða slydda N-til en þurrt syðra. Hiti 1-9 stig. VEÐUR 4 3 2 6 10 5 Hetjur Framara Rætt við Bretana sem björguðu Fram frá falli á ævintýralegan hátt. sport 30 FÓTBOLTI Forráðamenn KSÍ hafa verið þöglir sem gröfin varðandi málefni nýs landsliðsþjálfara en í gær staðfesti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, að sambandið væri í viðræðum við hinn 63 ára gamla Svía Lars Lagerbäck. Svíinn reyndi gerði frábæra hluti með lands- lið heimalands- ins á sínum tíma og kom því á fimm stórmót í röð. Margir vilja sjá hann sem arftaka Ólafs Jóhannes sonar en Ólafur stýrir landsliðinu í síðasta skipti í Portúgal á föstudag. Lagerbäck vildi í samtali við Fréttablaðið í gær ekki tjá sig um viðræðurnar við KSÍ fyrr en að þeim loknum. Hann segist vilja halda trúnað. Lagerbäck hafði áður lýst yfir áhuga á starfinu í samtali við Fréttablaðið. - hbg / sjá síðu 30 Leitin að landsliðsþjálfara: KSÍ ræðir við Lagerbäck LARS LAGERBÄCK VÍSINDI Eyðing ósonlagsins yfir norðurheimskautinu í ár var svo mikil að nú er í fyrsta sinn hægt að tala um að gat hafi myndast þar. Eins og alkunna er hefur verið gat á ósonlaginu yfir suður- heimskautinu síðustu ár en fyrir sérstakar veðuraðstæður hefur það nú þynnst um allt að 80 pró- sentum yfir norðurheimskautinu. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Þessa þróun má rekja til óvenjulangra kuldaskeiða í háloftunum, sem stóðu frá des- ember fram í apríl, en við slíkar aðstæður eru ósoneyðandi efni virkari en ella. Í fræðigrein sem birtist í tíma- ritinu Nature segir að ástæðurnar bak við þessi veðrabrigði séu þó ekki ljósar og það sé rannsóknar- efni út af fyrir sig. Ósonlagið ver jörðina fyrir útfjólubláum geislum sólar innar sem geta valdið húðkrabbameini og öðrum kvillum. Notkun slíkra efna var takmörkuð og loks bönnuð undir lok síðustu aldar en þau munu enn hafa áhrif um ókomin ár. Talið er að ósonlagið verði ekki búið að ná sér að fullu, upp að sama marki og var fyrir iðn- væðingu, fyrr en um miðja þessa öld. - þj Rannsóknir á þynningu ósonlagsins leiða í ljós sláandi þróun síðustu mánuði: Nýtt ósongat yfir norðurskauti ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í stefnu- ræðu sinni í gær að forseti lýð- veldisins yrði að virða stefnu rétt- kjörinna stjórnvalda. Forsetinn þyrfti að vera hafinn yfir dægur- þras stjórn málanna, enda væri hann sameiningar tákn þjóðarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson hefur gagnrýnt ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar dóttur fyrir undanláts- semi í Icesave-málinu. Forsætis- ráðherra tilkynnti í síðasta mánuði að hún hygðist ræða þau ummæli við forsetann. Sá fundur hefur farið fram, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins. Ríkisráð fundaði í gær en gagn- rýni forsetans á ríkisstjórnina bar ekki þar á góma. Jóhanna sagði í stefnuræðu sinni að stjórnarskráin legði forsetanum ákveðnar stjórnarathafnir í hendur, í orði kveðnu, en ráðherrar bæru jafnframt ábyrgð á þeim. Óumdeilan legt væri að forsetinn hefði frelsi til að tjá sig opinberlega. Hann yrði þó að virða í orði og verki stefnu réttkjörinna stjórnvalda. „Það verður ekki ráðið af stjórn- skipun landsins að gert sé ráð fyrir því að forseti lýðveldisins tali fyrir öðrum áherslum í pólitískum álita- málum en þeim sem stjórnvöld hafa mótað,“ sagði Jóhanna. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði í ræðu sinni að forseti lýðveldisins gæti gert betur í sínum athöfnum. Það sagði hann reyndar líka um þingheim allan og fleiri aðila í samfélaginu, þar með talda fjölmiðla. Svandís Svavarsdóttir, um - hverfis-, mennta- og menningar- málaráðherra, gagnrýndi for setann einnig í gær. Hún sagði honum ætlað að flytja boðskap sam einingar og samstöðu en það hefði brugðist við þingsetningu á laugardag. „Forsetinn tók til máls sem stjórnmálamaður en ekki forseti, þingheimur átti þess ekki kost að svara honum á þessum vettvangi, heldur sátum við sem þægur skóla- bekkur undir ræðunni.“ - kóp / sjá síðu 4 Forseti virði stjórnarstefnu Forsætisráðherra segir forseta Íslands verða að virða stefnu og stjórnarframkvæmd réttkjörinna stjórn- valda. Ráðherra hefur átt fund með forsetanum vegna ummæla hans um stefnu ríkisstjórnarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson var harðorður í garð ríkisstjórnarinnar vegna Icesave í septemberbyrjun. Í viðtali við Ríkisútvarpið sagði hann að betra hefði verið að bíða eftir því hvað kæmi út úr þrotabúi Landsbankans en að beygja sig fyrir fáránlegum kröfum Breta og Hollendinga um ábyrgð Íslendinga fyrir skuldinni. „Það var ekki gert heldur var bara látið undan þessum þrýstingi. Menn beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af heldur hlupu Bretar og Hollendingar frá honum strax nokkrum mánuðum eftir að ákveðið var að setja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Sagði ríkisstjórnina hafa beygt sig RAUÐUR LOGINN BRANN Hundruð manna komu saman á Austurvelli í gær til mótmæla á meðan forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína. Mótmælin fóru friðsamlega fram að sögn lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.