Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 26
4. OKTÓBER 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 ● geðhjálp Vin er athvarf og félagsmiðstöð fyrir fólk sem stríðir við geðræn veikindi. Í 19 ár hefur Rauði kross Íslands rekið athvarfið. Nú hefur sú ákvörðun verið tekin að loka því í lok mars 2012 og munu margir sakna Vinjar ef af lokuninni verður. „Fyrir tuttugu árum gerði Rauði krossinn þarfagreiningu í sam- félaginu og kom þá í ljós að mjög stór hópur geðfatlaðra átti við gríðarlega félagslega einangrun að stríða. Á þeim tíma voru engin úrræði fyrir þennan hóp utan Geð- hjálpar. Því var ákveðið að stofna athvarf sem hefði það að mark- miði að rjúfa félagslega einangr- un,“ segir Þórdís Rúnars dóttir, forstöðumaður Vinjar, og bætir við að ekki sé boðið upp á með- ferð í Vin. Þangað geti fólk komið og aukið lífsgæði sín í félagslegu tilliti. „Hingað hafa komið 25 til 30 gestir á dag frá upphafi og það þrátt fyrir að búsetuskilyrði hafi batnað mikið, komið hafi ný þjón- ustutilboð og flóran mun meiri í dag en áður,“ segir Þórdís og nefn- ir þar klúbbinn Geysi, Hugarafl og Hlutverkasetur. „Þau hafa öll sína sérstöðu og starfa eftir ákveðinni hugmyndafræði en okkar sérstaða er sú að við störfum eingöngu í félagslegu tilliti og gerum ekki kröfu um ákveðna virkni eða að við ætlum að skila fólki út á vinnu- markað eða í nám. Hingað kemur það til að ræða málin enda virk- ar Vin sem nokkurs konar fjöl- skylda,“ segir hún. Um 350 einstaklingar fara í gegnum athvarfið á hverju ári og þar af mæta um 100 minnst tvisvar í viku eða oftar. „Þetta er mjög stór hópur en um 80 pró- sent eru karlmenn og stór hluti þeirra með greininguna geðklofi. Margt af þessu fólki hefur veikst mjög ungt og hefur verið veikt lengi, en meðalaldur í Vin er 50 ár,“ segir Þórdís og heldur áfram. „Þetta fólk er búið að fara í gegn- um endurhæfingar mylluna og er komið á þann stað að það er að leita að þessu félagslega.“ Í Vin er unnið mikið starf en eitt af verkefnunum er að kynna fyrir fólki þá þjónustu sem er í boði annars staðar og hvað er að gerast í menningarlífi borgar- innar. „Við reynum að hjálpa fólki til sjálfshjálpar og fá það til að tengjast vinaböndum svo það geti stutt hvert annað til að stunda félagslíf,“ lýsir Þórdís, sem segir flesta sem sæki Vin vera mikið félagslega fatlaða og þurfi því talsverðan stuðning. „Fólk treyst- ir sér til dæmis illa til ferðalaga á eigin vegum. Ferðalögin sem við skipuleggjum hafa verið mjög vinsæl og margir fara aldrei neitt nema með okkur. Við höfum meira að segja farið í utanlandsferðir,“ segir hún glaðlega. Þórdís telur að margir muni sakna Vinjar. „Vin er eins og heim- ili enda í gömlu einbýlishúsi þar sem eldhúsið er hjartað. Þar eru mörg lítil herbergi þar sem fólk getur farið inn í smærri hópum, lagt sig eða hvað sem er. Þeir sem hingað sækja tala um að Vin sé fjölskyldustaðgengill og því munu þeir við lokun Vinjar upplifa að verið sé að sundra fjölskyldu.“ - sg Fjölskyldu sundrað Andrúmsloftið í Vin er heimilislegt enda er athvarfið í einbýlishúsi við Hverfisgötu. Þórdís Rúnarsdóttir, forstöðumaður Vinjar, er hér í einni stofunni. MYND/VALLI Vin hefur verið rekið af Rauða krossi Íslands í nærri 20 ár en ákveðið hefur verið að loka at- hvarfinu í marslok 2012. „Þetta er spurning um kostnað,“ segir Kristján Sturluson, framkvæmda- stjóri Rauða krossins, en talið er að rekstrarkostnaður Vinjar á næsta ári yrði um 25 milljón- ir króna. „Þetta er málaflokkur sem um síðustu áramót fór yfir til sveitarfélaganna og okkur finnst eðlilegt að sé allur undir einum samræmdum hatti.“ Kristján segir leitað hafa verið eftir samræðum við Reykja- víkurborg í september í fyrra vegna málsins. „Við sendum bréf þar sem við sögðumst ekki treysta okkur til að halda rekstri Vinjar áfram á óbreyttum forsendum,“ segir hann en í framhaldi hafi orðið viðræður um ákveðin verk- efni enda vilji hjá borginni til að sinna málaflokki geðfatlaðra vel. „Okkur þótti þó ljóst að borg- in ætlaði ekki að taka við rekstri Vinjar og því var þessi ákvörðun tekin,“ segir Kristján og bendir á að margt hafi breyst frá því Vin var stofnuð; fleira sé í boði fyrir geðfatlaða. Rauði krossinn rekur þrjú önnur athvörf í Kópavogi, Hafnar- firði og Akureyri. „Það er misjafnt hversu mikið sveitarfélögin koma að rekstrinum en yfirleitt eru þau mjög stórir þátttakendur á þessum stöðum,“ segir Kristján. En hvernig myndi hann vilja sjá þessu máli lykta? „Ég vil gjarnan sjá Vin starfa áfram en þá undir sama hatti og hluti af þjónustu við fatlaða í borginni. Eða að til komi önnur tilboð sem eru jafn góð fyrir þá sem nýtt hafa sér Vin.“ Spurning um kostnað Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. ● ATHVÖRF FYRIR FÓLK MEÐ GEÐ RASKANIR Rauði krossinn rekur eða kemur að rekstri athvarfa fyrir fólk með geðraskanir víða um landið. Ýmislegt er gert í athvörfunum, til dæmis borð- að saman, lesið, spilað, málað eða farið í gönguferðir. Vin, Hverfisgötu 47, Reykjavík, sími 561-2612, netfang vin@redcross.is Dvöl, Reynihvammi 43, Kópavogi, sími 554-1260, netfang dvol@redcross.is Laut, Brekkugötu 34, Akureyri, sími 462-6632, netfang laut@simnet.is Lækur, Hörðuvöllum 1, Hafnarfirði, simi 566 8600, netfang laekur@redcross.is HVER, Kirkjubraut 1, Akranesi, sími 431 2040, netfang hver@akranes.is Ásheimar, Miðvangi 22, Egilsstöðum, sími 470 0795, asheimar@egilsstadir.is Setrið, Árgötu 12, Húsavík, sími 464 1740 Vesturafl, Mánagötu 6. Ísafirði sími 456 4406, netfang vesturafl@isafjordur.is Vin var stofnað 8. febrúar 1993 í kjölfar framkvæmda- áætlunar hreyfingarinnar fyrir tímabilið 1990-2001. Þar kemur meðal annars fram vilji til að bæta hag þeirra sem minnst mega sín, þar á meðal geðfatlaðra. Starfshópur um málefni geðfatlaðra tók til starfa 1992 og hafði það verkefni að kanna með hvaða hætti þörfum þeirra yrði best mætt úti í þjóðfélaginu. Niður- staðan var athvarf sem opið væri á daginn og byði upp á margvíslega þjónustu. Eftir nokkurn undirbúning og meðal annars heimsókn til Svíþjóðar til að skoða sambærilega staði tók húsið til starfa. „Borgarstjórn hefur ekki mótað sér afstöðu gagnvart Vin enda ekki nema mánuður síðan við fréttum að Rauði krossinn hefði einhliða ákveðið að hætta starfsemi Vinjar,“ upplýsir Björk Vilhelmsdóttir, for- maður velferðarráðs Reykjavíkur- borgar, og segir að sú ákvörðun hafi komið á óvart enda hafi borg- in í auknum mæli verið að koma að rekstrinum. Vin hafi haft ókeypis húsnæði og svo hafi borgin komið inn á síðasta ári með aukið rekstrar- fé. „Ég þekki þessa starfsemi og bæði mér og öðrum í borgarstjórn er mjög annt um hana og enginn sem vill sjá að Vin verði lögð niður, annað hef ég ekki heyrt. En áður en við getum tekið ákvörðun um hvað við gerum í þessari stöðu þarf að kanna umfang þjónustunnar, hve margir nýta hana og hvaða þjónustu er verið að bjóða upp á. Nú þegar er starfshópur velferðarsviðs að skoða þessa hluti,“ segir hún. „Við vitum að það má alls ekki minnka dagþjónustu við íbúa borg- arinnar sem búa við alvarlegar geð- raskanir og við vitum líka að dag- þjónustan er of lítil,“ segir Björk en tekur fram að borgin geti ekki bætt á sig úrræðum upp á tugi milljóna króna að óathuguðu máli. „Við eigum eftir að klára fjárhags- áætlun borgarinnar og þetta mál verður skoðað út frá þeirri heildar- mynd en líka út frá brýnni þörf á dagþjónustu.“ Annt um starfsemina Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs Reykjavíkur- borgar. Húsið að Hverfisgötu 47 hefur þá kosti að vera mjög heimilis- legt með sínum mörgu mátulega stóru herbergjum sem er lykil- atriði fyrir marga sjúklinga til dæmis eins og mig sem er búin að vera gestur Vinjar til margra ára. Ég er bæði með víðáttufælni og félagsfælni og gæti því alls ekki „funkerað“ í stóru rými innan um fjölda manns. Enn fremur þjáist ég af þunglyndi og kvíða. Gestir Vinjar eru margir ein- stæðingar. Vin er okkur griða- staður í lífinu, fasti punkturinn þar sem hægt er að hitta kæra vini og kollega í geðröskunum og einnig starfsfólk sem kemur fram við okkur sem jafningja. Vin er staðsett miðsvæðis í borginni og því hittist þar fólk alls staðar að úr borginni. Geð- fatlaðir þurfa að vera innan um sína líka til þess að getað liðið vel og verið öruggir með sig. Ef fólk missir „heimili sitt, Vin,“ og „fjölskyldu sína“‚ sem eru gestir Vinjar, má búast við að illa fari fyrir mörgum gestum athvarfsins. Því Vin hefur fyrir- byggjandi áhrif á innlagnir á geðdeildir sem kosta ríkið stórfé, jafnvel fyrirbyggjandi áhrif á sjálfsvíg einmana sjúks fólks. Búast má við því versta ef sjúk- lingar missa „sitt annað heimili“. Kostnaður ríkisins vegna inn- lagnar fyrir einn sjúkling í tíu daga nemur 700 þúsund krónum. Fyrir 80 sjúklinga inni á geðdeild í 10 daga mun kostnaður ríkisins verða um 56 milljónir króna. Vin gefur tilgang í lífi þeirra sem skugga ber á vegna alls konar illvígra geðsjúkdóma. Vin má ekki loka. Kveðja, gestur Vinjar, Reykjavík 8. september 2011. Bréf frá gesti Vinjar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.