Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2011 25 Hverfisgata 56, 101 Reykjavík Sími: 552 1630 Opið: sun.-fim. 18:00 - 22:00 fös. og lau. 18:00 - 23:00 www.austurindia.is Indverjum duga ekki færri en fimm dagar til að halda upp á hátíð ljóssins, Diwali, sem nú á hug þeirra og hjörtu. Við hjá Austur-Indíafjelaginu viljum færa örlitla birtu inn í byrjun vetrar og bjóðum því upp á sérstakan fimm rétta Diwali-hátíðarmatseðil í október á afar góðu verði: 4.990 kr. alla daga. Borðapantanir í síma 552 1630. Hátíð ljóssins hjá Austur-Indíafjelaginu DIWALI hátíðarmatseðill 4.990 kr. Fimm rétta FORRÉTTUR Pather Ka Murgh Hlóðagrillaður kjúklingur í kraftmikilli maríneringu, borinn fram með kóríander-chutney. Lostæti úr hringiðu Hyderabad! AÐALRÉTTIR Murgh Rogan Josh Hægeldaðar kjúklingalundir í himneskri sósu með kanil, kardimommum og negul. Eftirlætisréttur frá Norður-Indlandi. og Gosht Mussalam Grillað lambafillet og ríkulega marínerað með engiferi, hvítlauk, kókos, chillí, kóríander og svörtum pipar. Gömul uppskrift frá konungsdæminu Avadh í Norður-Indlandi og Rajma Nýrnabaunir eldaðar í ljúfri sósu með túrmerik, kóríander, garam masla og chillí. Réttur sem þorri manna í Norður-Indlandi gæti ekki lifað án! MEÐLÆTI Raitha Heimalöguð jógúrtsósa með gúrkum og kryddblöndu og Basmati hrísgrjón og Naan brauð Gómsæti úr Tandoori-ofninum EFTIRRÉTTUR Crème Brulée Indversk útgáfa af þessum klassíska rétti með ferskjum og engiferi Austur-Indíafélaginu býður gesti velkomna á Diwali, hátíð ljóssins. PL Á N E TA N 2 01 1 Gamanleikur með þó nokkuð alvarlegum undirtóni er nú kom- inn upp á stóra svið Þjóðleik- hússins með þremur kanónum í íslensku leikhúsi og kannast margir við þá úr sama verki fyrir fjórtán árum. Spurningin er ekki ný af nálinni, það er, hvenær er listaverk listaverk? Sé það frægur maður sem brýtur saman serví- ettu er hún strax (eða kannski eftir dauða hans) orðin að listaverki en sé það algerlega ófrægur maður sem sýnir ofursnilld í meðförum vatnslita er það snoturt af áhuga- málara, en ekki list. Samskipti karlmanna og vin- átta þeirra á greinilega upp á pall- borðið í leikhúsunum nú á þessu hausti. Þeir Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason og Baltas- ar Kormákur fara á kostum í hlut- verki þriggja vina sem greinilega hittast oft og eru nokkuð frekir hver á annan. Samskipti þeirra og hvernig þeir tjá sig hver við annan er inntak verksins fyrir svo utan að gamla góða ævintýrið um nýju föt keisarans er einnig sett á oddinn. Mennirnir þrír, Sergei sem kaupir snjóhvítt listaverk fyrir tvær milljónir og félagar hans, Mark og Ivan, eru mjög vel afmarkaðir karakterar. Flestir áhorfendur hafa líklega hugsað sem svo, já, hann var alveg eins og þessi eða þessi menntaskóla- kennari, já þennan flautaþyril þekki ég vel. Sergei, sem Ingvar ljær líf, er stuttur í spuna, segist ekki þurfa á hinum að halda en er samt á einhvern máta algerlega upp á þá kominn. Ingvar smíðar hér af snilld sinni slíka persónu að það er hrein unun að fylgjast með hans dansandi rússnesku og á köfl- um einstrengingslegu framgöngu. Hvort maður vilji hafa slíka pers- ónu í návist sinni er svo annað mál. Baltasar Kormákur náði fanta- góðum tökum á gömlum besser- visser sem þóttist vera fullur umhyggju en var í raun og veru sá sem alltaf þurfti að hafa síðasta orðið. Hilmir Snær heillaði áhorf- endur með svo örum brúðguma að slíkur orðaflaumur sem upp úr honum vall hefur líklega varla heyrst á leiksviði, eins og þegar hann lýsir hremmingum sínum varðandi boðskortaútsendingar fyrir hið verðandi brúðkaup. Þetta eru vinir sem meta vináttuna mik- ils og eru í raun í sambandi sem um hjónaband væri að ræða. Leik- myndin er uppröðun pappakassa sem hrynur þá er vinátta þeirra er við það að hrynja og allur leikur- inn fer fram á heimili Sergei. Fyrir utan þetta verk þekkja áhorfendur hér einnig leikritið Vígaguðinn eftir sama höfund sem sett var upp á Smíðaverkstæðinu fyrir fáeinum árum. Reza stefnir persónum meistaralega saman. Vandamál karlmannanna hér botn- ar í tilvistarkreppu hins fullorðna vel stæða karlmanns. Hvað á að gera til þess að vera eins og maður á að vera? Sergei, sem nýtur þess að tyggja nafn listamannsins, laumar því út úr sér á einum tíma- punkti að hann sé í raun og veru gjaldþrota. Þannig að leikritið fjallar í raun og veru um að sýn- ast til þess að sjást sjálfur. Ekki víðs fjarri íslenskri dótadýrkun. Hugmyndin að verkinu er góð og hvernig þeir skylmast í orðum er snilldarlega vel gert en það er ekki laust við að leikritið hafi verið einum of langt. Vilji menn sjá verulega góðan leik þriggja karlmanna er óhætt að mæla með þessari sýningu. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Frábær samleikur þriggja leikara í skemmtilegu en helst til löngu verki. Hvenær er list list? Leiklist ★★★ Listaverkið Höfundur: Yasmina Reza. Leikmynd: Guðjón Ketilsson. Búningar: Guðjón Ketilsson og Leila Arge. Þýðing: Pétur Gunnars- son. Leikarar: Baltasar Kormákur, Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason. Leikstjóri: Guðjón Pedersen. Stóra svið Þjóðleikhússins

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.