Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2011 15
Mánaðamót án verðtryggingar
Arion banki á hrós skilið fyrir að auglýsa „mánaðamót án
verðtryggingar“ og bjóða óverð-
tryggð húsnæðislán á föstum
vöxtum. Hins vegar mætti vaxta-
prósentan vissulega vera lægri,
en 6,45% ársvextir þýða að bank-
inn fær lánsfjárhæðina til baka á
innan við 12 árum! Íslandsbanki
býður mun lægri vexti á sam-
svarandi lánum, eða 5,4%, sem
gerir 20,3% lægri vaxtagreiðslur.
Á móti kemur að vextir Íslands-
banka breytast í takt við vexti
Seðlabankans og þar er ekki á
vísan að róa. Arion banki býður
hins vegar fasta vexti til fimm
ára í senn, sem er lykilatriði.
Vonandi fá húsnæðiskaupendur
enn betra tilboð frá Landsbank-
anum, banka allra landsmanna,
á næstunni.
Bankarnir bregðast með þess-
um lánum við óskum almennings
um húsnæðislán án verðtrygg-
ingar líkt og tíðkast í öðrum
löndum. Þeir brugðust hins vegar
ekki svona vel við þessum óskum
fyrir bankahrunið, heldur veittu
fólki og fyrirtækjum nær óheft-
an aðgang að erlendum lágvaxta-
lánum þrátt fyrir að þurfa að inn-
heimta þau í íslenskum krónum.
Þetta var auðvitað galin blanda
og þess vegna fór sem fór.
Ef verðbólgan fer aftur á
skrið geta óverðtryggð lán með
breytilegum vöxtum orðið launa-
fólki ofviða, eins og sýndi sig í
kjölfar skattlausa ársins 1987
þegar verðbólgan fór í 21,8%.
Höfuðmeinsemdin og aðal-
ástæðan fyrir hinni almennu
verð tryggingu er verðbólgan og
veikur gjaldmiðill. Hefði verð-
tryggingin hins vegar ekki komið
til á sínum tíma væru Íslend-
ingar nú verr staddir en raun-
in er og ættu lítinn sem engan
lífeyris sparnað. Því er spurning
hvort við getum ekki áfram verð-
tryggt lífeyrinn en eigi að síður
aflagt almenna verðtryggingu á
fjárskuldbindingar almennings.
Snjallir bankamenn eru hvattir
til að svara þessu.
Færa má rök fyrir því að hin
almenna notkun lán veitenda,
stofnana og sumra fyrirtækja
á vísitölum neysluverðs og
byggingarkostnaðar ýti undir
verðbólgu. Þannig er verðlag
hækkað sjálfkrafa hjá sumum
fyrir tækjum og stofnunum eftir
því sem vísitölurnar hækka, án
tillits til þess hvort um raunveru-
lega hækkunarþörf sé að ræða í
hverju tilviki. Þetta fyrirkomu-
lag mætti kalla sjálfnærandi eða
heimatilbúna verðbólgu. Í kjöl-
far bankahrunsins 2008, og verð-
bólgunnar sem fylgdi í kjölfar
falls krónunnar, sáu mörg fyrir-
tæki og stofnanir sig knúin til að
aftengja vísitölu uppreikninginn
(a.m.k. tímabundið) eða þurfa að
öðrum kosti að horfa á eftir við-
skiptamönnum sínum í gjaldþrot.
Við þessar aðstæður sýndi sig að
hin almenna verðtrygging gekk
ekki upp. Sú sjálfnærandi verð-
bólga sem almenn verðtrygging
fjárskuldbindinga og eininga-
verða myndar verður líklega
aðeins stöðvuð með meiri sam-
keppni á fjármálamarkaði, sbr.
tilboð bankanna hér að ofan, og/
eða lagasetningu sem þrengir
notkun verðtryggingarinnar við
tilgreindar tegundir samninga,
líkt og gert var þegar til raunin
með verðtryggingu launa var
afnumin.
Svo virðist sem mörg fyrir-
tæki (þ.m.t. bankar og ýmsar
stofnanir) hafi á einhverjum
tímapunkti gefist upp á sam-
keppninni og sameinast um að
nota verð vísitölur, sem eru frítt í
boði hins opinbera, til að hækka
sjálfkrafa verð á vörum og þjón-
ustu án tillits til annarra þátta,
svo sem áhrifa verðhækkana á
eftirspurnina. Í þessu felst víta-
hringur sjálfnærandi verðbólgu
en einnig tækifæri til aukinnar
markaðshlutdeildar fyrir þau
fyrirtæki sem segja skilið við
vísitölubindinguna og sækjast
fremur eftir aukinni markaðs-
hlutdeild sér til handa á grund-
velli lægra verðs eða lægri vaxta.
Fyrirtæki, einstaklingar og
stofnanir eru hvött til að beina
viðskiptum sínum til þeirra
banka og fyrirtækja sem sagt
hafa skilið við verðtrygginguna.
Vonandi verða „mánaðamót án
verðtryggingar“ hversdagslegur
veruleiki hjá sem flestum.
Verðtrygging
Jens Pétur
Jensen
hagfræðingur
Því er spurning hvort við getum ekki
áfram verðtryggt lífeyrinn en eigi að
síður aflagt almenna verðtryggingu á
fjárskuldbindingar almennings. Snjallir bankamenn
eru hvattir til að svara þessu.