Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 12
12 4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 B ankarnir njóta lítilla vinsælda þessa dagana. Það mátti sjá á kröfuspjöldum á Austurvelli í gærkvöldi og ekki síður heyra í ræðum þingmanna í umræðum um stefnuræðu for- sætisráðherra. Þeir stukku hver af öðrum upp á vagninn og dembdu sér yfir bankana í sameiginlegu lýðskrumskasti. Fremstur í flokki fór forsætisráðherrann, sem talaði í öðru orðinu um mikilvægi þess að endurreisa fjármálakerfi landsins en í hinu að hún skildi vel þá reiði sem beindist að bönkunum og gagnrýndi „ótrúlegar tölur“ um „ofurhagnað“ þeirra. Forsætisráðherrann hvatti bankana til að lækka vexti og skila einhverju af hagnaðinum aftur til samfélagsins. Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, var á sömu slóðum og sagði fréttir af hagnaði bankanna valda „ólgu og von brigðum“, af því að búið hefði verið að segja fólki að svigrúmi bankanna til að lækka skuldir heimila og einstaklinga hefði verið ráð- stafað og rúmlega það. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var síðan við sitt sama heygarðshorn og heimtaði almenna skulda- leiðréttingu á kostnað bankanna eina ferðina enn. Það hlýtur að minnsta kosti að mega gera þá kröfu til forsætis- ráðherrans að hún viti hvernig hagnaður bankanna er til kominn og hvaða mælikvarða stjórnsýslan, sem hún stýrir sjálf, leggur á hann. Í fyrra mat Bankasýsla ríkisins það svo að afkoma af reglulegum rekstri Arion banka og Landsbankans væri langt frá því að vera viðunandi út frá því sem kalla mætti eðlilega ávöxtunarkröfu. Í ár telur sama stofnun að hagnaður af reglulegum rekstri bankanna sé að komast í viðunandi horf. Arðsemiskrafan segir til um hvaða afkomu bankarnir þurfa að skila til að vera vænleg fjárfesting sem fólk vill leggja peninga í. Þá er ekki aðeins átt við útlenda kröfuhafa heldur líka íslenzka skattgreiðendur sem eiga Landsbankann nær allan og drjúgan hlut í Arion banka. Hagnaður bankanna af óreglulegum liðum er tilkominn vegna tímabundinna þátta og tæplega varanlegur. Hjá Arion banka og Lands- bankanum kemur til endurmat á lánum til fyrirtækja. Það ættu að vera góðar fréttir að fyrirtæki geti borgað meira en menn töldu áður að þau gætu, en þýðir ekki að afsláttur sem gefinn var af lánum til heimila við færslu þeirra yfir í nýjan banka hafi ekki verið nýttur. Hjá Landsbankanum er stór hluti hagnaðarins til kominn vegna gengis- ójöfnuðar í eignasafninu, sem getur líka virkað í hina áttina og valdið bankanum stórfelldu tjóni. Af þessum ástæðum er varasamt fyrir ríkisstjórnina að vilja setja á nýjan bankaskatt til að ná hagnaðinum af bönkunum. Til lengri tíma litið getur slíkur skattur skaðað bankana og verður alveg örugglega ekki til að hjálpa þeim að lækka vexti. Það er ábyrgðarhluti þegar stjórnmálamenn halda áfram að tala á þann veg að hægt sé að gefa enn meira eftir af skuldum bankanna. Forsætisráðherrann talaði til dæmis af sér í síðustu viku, þegar hún sagðist telja sjálfsagt að skoða slíkt. Ef fólk heldur að enn meiri skuldaniðurfelling geti verið á leiðinni munu margir áfram draga að gera nokkuð í sínum málum. Gjörðir bankanna eftir hrun eru að sjálfsögðu ekki yfir gagnrýni hafnar. En stjórnmálamenn mættu gjarnan ræða þær af meiri virð- ingu fyrir staðreyndum og gæta þess að búa ekki til falsvonir hjá fólki. Miðvikudaginn 5. október kl. 15-17 Háskólatorg, HT-104 Í boði Hagfræðideildar Fátt mannlegt er hagfræði óviðkomandi. Um eina af undirgreinum hagfræðinnar, sem kalla má „hagfræði fjölskyldunnar“ verður fjallað á málstofu. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild flytur erindið: Fjölskylda framtíðarinnar. Helgi Tómasson, dósent við Hagfræðideild flytur erindið: Áhrif hreyfmynsturs og tengsla á birtingarmyndir mældra hagstærða. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Hagfræði fjölskyldunnar FÉLAGSVÍSINDASVIÐ 1911-2011 FÉLAGSVÍSINDASVIÐ HÁSKÓLI ÍSLANDS HALLDÓRÓlafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Á hjartadeild Landspítala meðhöndla ég á hverjum degi fólk sem hefur fengið hjartaáfall af völdum tóbaksreykinga. Meirihluti þess reykir daglega eða hefur reykt stóran hluta ævinnar. Afleiðingarnar eru skemmd á hjartavöðva með óafturkræfu drepi. Meðferðin beinist að því að takmarka það tjón sem orðið er og reyna að koma í veg fyrir endurtekin áföll. En skaðinn er skeður og viðkomandi verður hjartasjúklingur það sem hann á eftir ólifað. Þegar ég ræði við þetta fólk kemur í ljós að flestir byrjuðu að reykja um eða upp úr fermingu. Það var ekki yfirveguð ákvörðun fulltíða einstaklings sem réði því að hann varð háður nikotíni tóbaksins, held- ur urðu þessir einstaklingar á barnsaldri fyrir barðinu á einhverri harðsvíruðustu markaðs setningu sem þekkist. Tóbaksiðnað- urinn hefur það eina markmið að selja tóbak og græða á því. Þetta er iðnaður sem leggur ekkert af gróða sínum til velferðarmála eða uppbyggingar samfélagsins. Annar hver við- skiptavinur tóbakssölufyrirtækjanna deyr fyrir aldur fram af völdum reykinga vegna hjartaáfalls, heilablóðfalls, krabbameins eða lungnabilunar. Þeir sem lifa fram á eftir- launaaldur mega búast við að eyða ævi- kvöldinu með skert lífsgæði vegna krón- ískra sjúkdóma eins og lungnaþembu, mæði, hjartabilunar eða lamana. Margir þurfa að gangast undir krabbameinsmeðferð eða hjartaaðgerðir til að reyna að endurheimta heilsu sem þeir hafa glatað. Þessir einstak- lingar óska þess að þeir hefðu aldrei byrjað að reykja á fermingaraldri. Kostnaður samfélagsins er þó aðallega fjárhagslegur. Þrátt fyrir skatta og álögur ríkisins tapar samfélagið um 2.000 krónum á hverjum seldum sígarettupakka. Skatt- greiðendur borga um 20 þúsund krónur með hverju seldu sígarettukartoni vegna þess kostnaðar sem reykingar valda, í heilbrigðis kerfinu, töpuðu vinnuframlagi, örorku og endurhæfingu reykingamanna. Á hverjum degi byrja tvö ungmenni að reykja á Íslandi. Annað þeirra mun deyja fyrir aldur fram vegna reykinga. Eftir þrjátíu ár verða þessi ungmenni komin með kransæðastíflu eða krónískan sjúkdóm sem heilbrigðiskerfið þarf að takast á við. Milljarðatugir tapast árlega. Nánast allir reykingamenn byrjuðu að reykja fyrir tví- tugt og verða sjúklingar fyrir sextugt. Er ekki tími til að við stöldrum við og áttum okkur á orsök og afleiðingu? Það er ekkert náttúru lögmál að börn byrji að reykja. Það er ekkert sjálfsagt og eðlilegt við það að unglingur verði háður tóbaki. Með því að koma í veg fyrir reykingar barna og ung- linga verður Ísland reyklaust innan fárra ára. Öllum til hagsbóta. Ísland án tóbaks Reykingar Karl Andersen Prófessor í hjartalækningum Orðtakasmíðin Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, er ræðuskörungur. Svo er hún orðhög að henni duga ekki hefðbundin íslensk orðtök til að fanga hugsun sína. Hér hefur áður verið sagt frá því þegar Vigdís sagði ótækt að stinga höfðinu í steininn og þykir bragð af þeirri myndlíkingu. Vigdís hjó í sama knérunn í gær og hélt áfram að prjóna við fátækt myndmál þjóðar- innar tengt steinum. „Það mega sumir kasta grjóti úr steinhúsi,” sagði hún og var hneyksluð á því að þeim gæðum væri misskipt. Óvíst er hvort Bibba á Brávalla götunni lifir enn, en afkomendur hennar lifa allavega góðu lífi. Orðasmíðin Jóhann Hauksson hefur gefið út bókina Þræðir valdsins, þar sem hann skoðar tengsl viðskipta og stjórnmála. Óhætt er að segja að Jóhanni liggi mikið á hjarta og mikið virðist hafa verið að í þessum hulda heimi sem hann segist bregða ljósi á. Jóhann segir: „Valdatengslin verða að eins konar mjúku valdaneti stjórnlyndrar forsjárhyggju sem sprettur upp af langvinnum blóðskammartengslum í viðskiptum og stjórnmálum hér á landi.“ Brigslað um sifjaspell Ljóst er að víða hefur verið pottur brot- inn, ef marka má þetta sérkennilega nýyrði Jóhanns; blóðskammartengsl. Blóðskömm er gamalt hugtak og ekki mörgum tamt á tungu í dag, en það þýðir sifjaspell. Orðabókaskilgreiningin er: „Samfarir milli ættingja í beinan ættlegg eða milli systkina.“ Jóhann virðist því hafa kafað óvenju djúpt í rannsókn sinni og hafa afhúpað ólöglegt athæfi þar sem ekki var vitað um það áður. kolbeinn@frettabladid.is Stjórnmálamenn nýta sér óvinsældir bankanna: Lýðskrumskast

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.