Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 6
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 Frá kr. 124.900 Frábært tilboð! Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta ferð til Marmaris í Tyrklandi þann 9. október. Í boði er m.a. frábært sértilboð á Hotel Romance ***+ með hálfu fæði á ótrúlegum kjörum. Einnig önnur mjög góð gisting á sérstökum sérkjörum. Verð kr. 124.900 – 10 nætur með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2 – 11 ára, í herbergi á Hotel Romance ***+ í 10 nætur með hálfu fæði. Netverð á mann í tvíbýli kr. 139.900 Tyrkland 9. október í 10 nætur Helgarnámskeið fyrir skapandi fólk 1. Olíumálunarnámskeið með Þuríði Sigurðardóttur á Sólheimum í Grímsnesi 7. - 9. október 2. Ljósmyndanámskeið með Grétu Guðjónsdóttur á Búðum á Snæfellsnesi 21.-23. október 3. Vatnslitanámskeið með Derek Mundell á Sólheimum í Grímsnesi 29. - 30. október Nánari upplýsingar á www.arttravel.is SAMFÉLAGSMÁL Hátt í helming- ur sextán og sautján ára fram- haldsskólanema, sem tekur þátt í rannsóknum tengdum forvörn- um, segist aðspurður hafa verið ölvaður á síðustu þrjátíu dögum. Hlut fallið meðal nemenda í tíunda bekk grunnskóla er ein- ungis níu prósent. Þetta sýnir að ölvunardrykkja ungmenna eykst hratt eftir að grunnskóla lýkur, að því er segir í tilkynningu um Forvarna- daginn 2011, sem haldinn verður á morgun, 5. október. Þá munu fara fram um ræður nemenda í grunnskólum um hugmyndir þeirra og tillögur að nýbreytni í æskulýðs- og íþrótta- starfi, fjölskyldulífi og öðrum þáttum sem eflt geta forvarnir. Hugmyndirnar eru teknar saman í skýrslu sem birt verður á vef- síðu dagsins, forvarnardagur.is. Þá verður einnig efnt til sam- keppni um myndband sem hald- ið getur ungu fólki frá áfengi sem lengst, eða jafnvel alfar- ið. Sú samkeppni er opin öllum nemendum í framhaldsskólum og jafnframt nemum í 9. og 10. bekk grunnskóla. Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndböndin og nema þau samtals hálfri milljón króna. Frestur til að skila inn myndbandi rennur út 1. nóvem- ber. - sh Efnt til myndbandasamkeppni meðal ungmenna í tilefni Forvarnadagsins 2011: Drykkja rýkur upp í framhaldsskóla ALLIR LEGGJA SITT AF MÖRKUM Meðal þeirra sem kynntu Forvarnadaginn 2011 fyrir fjölmiðlamönnum í gær voru Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Jón Gnarr borgarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FJÁRMÁL Tæplega 26 þúsund ein- staklingar á Íslandi voru í alvar- legum vanskilum nú um mán- aðamótin, samkvæmt tölum Creditinfo. Af 25.685 einstakling- um hafa 572 verið úrskurðaðir gjaldþrota. Alvarleg vanskil varða í flestum tilvikum kröfur sem eru komnar í milli- eða löginnheimtu. Þá hafa mörg mál farið fyrir dóm og sýslu- mannsembætti. Fleiri karlar en konur eru í alvarlegum vanskilum, tæplega sautján þúsund á móti tæpum níu þúsund konum. Ellefu prósent karla yfir átján ára aldri eru í van- skilum. 5,9 prósent kvenna eru í alvarlegum vanskilum og samtals eru 8,5 prósent allra einstaklinga yfir 18 ára aldri í vanskilum. Flestir þeirra sem eru í alvar- legum vanskilum eru ein hleypir karlar, rúmlega ellefu þúsund. Tæplega þrjú þúsund ein hleypar konur eru í vanskilum auk þess sem rúmlega 2.400 einstæðar mæður eru á skrá. Tæplega 400 einstæðir feður eru á vanskila- skránni, 1.800 barnlaus pör í hjónabandi eða sambúð og þrjú þúsund pör með börn. Hlutfallslega flestir eru í alvar- legum vanskilum á Reykjanesi. Þá eru hlutfallslega flestir á aldrin- um 40 til 49 ára í vanskilum, eða 11,2 prósent. Fólk á aldrinum 30 til 39 ára er 11,1 prósent þeirra sem eru í vanskilum. - þeb Tæplega 26 þúsund einstaklingar voru í alvarlegum vanskilum 1. október: Flestir í vanskilum á Reykjanesi Fæstir í vanskilum á Norðurlandi vestra Búseta Fjöldi Fjöldi í alvarl. vanskilum % Austurland 9.327 606 6,5 Höfuðborgarsvæðið 152.033 14.224 9,4 Norðurland eystra 20.264 1.223 6,0 Norðurland vestra 6.331 375 5,9 Reykjanes 15.159 2.388 15,8 Suðurland 17.209 1.633 9,5 Vestfirðir 5.341 461 8,6 Vesturland 11.291 879 7,8 Erlendis 63.831 3.896 6,1 VIÐSKIPTI Fyrirtækið Pacific Water & Drinks, sem er í eigu Jóns Ólafssonar, hefur fest kaup á kínversku fyrirtækja- samsteypunni China Water & Drinks. Sam- steypan saman- stendur af níu fyrirtækjum sem starfa í Kína og Hong Kong. „Það er með gríðarlegri ánægju sem við tilkynnum um þessi kaup,“ segir Jón og bætir við: „Þessi fyrirtæki verða grunnur Pacific Water & Drinks og munu, ásamt reynslu okkar af dreifingu og átöppun, gera okkur kleift að nýta þau gríðar- legu tækifæri sem eru til staðar á kínverska markaðnum.“ - mþl Jón Ólafsson stórtækur: Kaupir níu fyrirtæki í Kína REYKJAVÍK Á að vera ein helsta við- burðaborg Norður-Evrópu. REYKJAVÍKURBORG Hafinn er undir- búningur að stofnun sérstakrar ráðstefnuskrifstofu á vegum Reykjavíkurborgar. „Ferðaþjónusta tengd ráð- stefnum, fundum og alþjóðleg- um viðburðum af ýmsu tagi er eitt mikilvægasta sóknarfæri Reykjavíkur á næstu árum,“ segir í greinargerð borgarstjóra með tillögunni um stofnun ráð- stefnuskrifstofunnar. Þar segir einnig að yfirlýst markmið sé að gera „Reykjavík að einni af eftir- sóttustu ráðstefnu- og viðburða- borgum í norðanverðri Evrópu“. Upphafsframlag borgarinnar er fimm milljónir króna og ráða á verkefnisstjóra að undirbúningn- um. Vonast er til að hagsmuna- aðilar komi að verkefninu og þre- faldi framlag borgarinnar. - gar Borgin ræður verkefnisstjóra: Ný skrifstofa fyrir ráðstefnur Ljósmæður styðja löggur Ljósmæðrafélag Íslands styður launa- kröfur lögreglumanna og hvetur ríkið til að mæta kröfum þeirra. Í tilkynn- ingu frá félaginu segir að mikilvægi starfa lögreglumanna sé öllum ljóst og eðlilegt sé að þeir geti framfleytt sér á grunnlaunum. KJARAMÁL JÓN ÓLAFSSON LANDSDÓMUR Landsdómur hefur vísað frá tveimur liðum af sex í ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Niðurstaðan er endanleg og málið verður nú tekið til efnislegrar með- ferðar. Liðirnir tveir sem vísað er frá dómi eru þeir fyrstu í ákærunni, númer 1.1 og 1.2. Sá fyrri kveður á um að Geir hafi sýnt af sér alvar- lega vanrækslu á starfsskyldum sínum sem forsætisráðherra and- spænis hættum á fjármálamarkaði. Í þeim síðari er Geir gefið sök að hafa ekki átt frumkvæði að því að gerð yrði „heildstæð og fagleg greining á fjárhagslegri áhættu sem ríkið stóð frammi fyrir vegna hættu á fjármálaáfalli“. Landsdómur fellst á þau rök Andra Árnasonar, verjanda Geirs, að þessir ákæruliðir séu of almennt og óljóst orðaðir til að hann geti með góðu móti gripið til varna gegn þeim. Hins vegar sé ákæran að öðru leyti skiljanleg, nægilega rökstudd og ekki gölluð að því leyti. Eftir standa því fjórir ákæru liðir, sem snúa að meintri vanrækslu Geirs við að tryggja markvisst starf samráðshóps um fjármála- stöðugleika, að draga ekki úr stærð bankakerfisins, að stuðla ekki að flutningi Icesave-reikninganna til Íslands og halda ekki ríkisstjórnar- fundi um mikilvæg málefni. Öðrum frávísunarástæðum Andra og Geirs er hafnað. Þeir töldu að rannsókn málsins væri verulegum annmörkum háð, Sig- ríður Friðjónsdóttir saksóknari væri vanhæf vegna afskipta af undirbúningi ákærunnar á Alþingi, reglur um málarekstur fyrir lands- dómi væru svo óljósar að það bryti á rétti Geirs og að það hefði brotið gegn jafnræðisreglu stjórnar- skrárinnar að höfða aðeins mál á hendur Geir en ekki fleiri ráð- herrum. Öllu þessu er landsdómur ósam- mála. Einn dómaranna fimm- tán, Ástríður Grímsdóttir héraðs- dómari, skilar þó sératkvæði og vill vísa málinu frá í heild sinni vegna vanhæfis saksóknara. Sigríður Friðjónsdóttir saksókn- ari segir niðurstöðuna líklega ekki breyta öllu fyrir málareksturinn, enda sé tekið fram í úrskurðin- um að áfram skuli litið til inni- halds fyrsta liðarins til fyllingar öðrum ákæruliðum og auk þess að liður 1.2 taki að miklu leyti til hins sama og sá næsti á eftir, sem ekki er vísað frá. stigur@frettabladid.is Kvarnast úr ákæru Alþingis gegn Geir Landsdómur vísar frá tveimur liðum af sex í ákæru gegn Geir H. Haarde. Þykja of almennir og óljósir. Breytir ekki öllu, segir saksóknari. Einn dómari af fimm- tán skilar sératkvæði og vill vísa málinu frá í heild vegna vanhæfis saksóknara. BLENDNAR TILFINNINGAR Geir er enn á sakamannabekk en gæti þó þurft að bíða fram á nýtt ár með að bera vitni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Áfangasigur en jafnframt vonbrigði Geir H. Haarde sendi frá sér yfirlýsingu vegna úrskurðarins í gær og fagnaði því að tveimur liðum skyldi vísað frá. „Ég lít á það sem áfangasigur því um er að ræða tvo veigamestu ákæruliðina og jafnframt þyngstu sakargiftirnar,“ segir í yfirlýsingu hans. „Ég og lögmaður minn höfðum á hinn bóginn talið tilefni til að vísa málinu frá í heild og að því leyti veldur niðurstaðan vonbrigðum.“ Hins vegar hafi verið nauðsynlegt að fá mat dómsins á því hvort málsmeðferðin hafi uppfyllt skilyrði laga, meðal annars með tilliti til þess hvernig skuli haga svona málum í framtíðinni. Nú hyggist hann sýna fram á sakleysi sitt. „Ég verð þá loks yfirheyrður fyrir dómi ásamt tugum annarra einstaklinga sem málinu tengjast. Vonandi gengur þá greiðlega að leiða hið sanna í ljós í málinu. Ég ber sem fyrr fullt traust til réttarkerfisins í landinu.“ Er réttlætanlegt að kasta eggjum í þingmenn í mótmæl- um við þingsetningu? Já 40,2% Nei 59,8% SPURNING DAGSINS Í DAG Sóttir þú einhverjar sýningar á RIFF-kvikmyndahátíðinni? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.