Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 24
4. OKTÓBER 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 ● geðhjálp Eskifjörður Fjarðaþrif ehf Kirkjustíg 2 Neskaupstaður Rafgeisli Tómas R Zoëga ehf Hafnarbraut 10 Fáskrúðsfjörður Loðnuvinnslan hf Skólavegi 59 Djúpivogur Hótel Framtíð ehf framtid@simnet.is Vogalandi 4 Höfn í Hornafirði Framhaldsskólinn í Austur - Skaftafellsýslu Nýheimum Sambýlið Hólabrekka Hólabrekku Skinney - Þinganes hf Krossey Selfoss Bílverk BÁ ehf Gagnheiði 3 Búnaðarfélag Grafningshrepps Villingavatni Fjölbrautaskóli Suðurlands Tryggvagötu 25 Kjarna-bókhald ehf Austurvegi 6 Set ehf, röraverksmiðja Eyravegi 41 Veitingastaðurinn Menam Eyrarvegi 8 Þjónustumiðstöðin Þingvöllum Hveragerði Hveragerðisprestakall Bröttuhlíð 5 Þorlákshöfn Fiskmark ehf Hafnarskeiði 21 Járnkarlinn ehf Unubakka 25 Flúðir Kvenfélag Hrunamannahrepps Hvolsvöllur Krappi ehf, byggingaverktakar Ormsvöllum 5 Búaðföng, Hvolsvelli Bakkakoti 1 Vík B.V.T. ehf Austurvegi 15 Kirkjubæjarklaustur Hjúkrunar og dvalarheimilið Klausturhólar Vestmannaeyjar Frár ehf Hásteinsvegi 49 Ísfélag Vestmannaeyja hf Strandvegi 28 Karl Kristmanns, umboðs- og heildverslun Ofanleitisvegi 15-19 Nethamar ehf Flötum 31 Vélaverkstæðið Þór ehf Norðursundi 9 Við þökkum stuðninginn B reytingar urðu á starfi réttindagæslumanna 1. maí. Þjónusta þeirra nær nú yfir alla sem búa í samfélaginu og eiga rétt sam- kvæmt löggjöf um málefni fatlaðra. Þá bættust við einnig þeir sem fatl- ast vegna sjúkdóma. „Réttindagæslumenn fatlaðra hafa ákveðna starfsskyldu sam- kvæmt lögum. Við förum á staði eða stofnanir þar sem fatlaðir búa en fatlaðir geta einnig haft beint samband við okkur. Lögum sam- kvæmt ber að láta vita af málum sem eru ekki í lagi er varða fatl- að fólk og þau mál, sem koma upp geta því verið hvar sem er í sam- félaginu. Réttindagæslumenn eiga einnig að sinna ákveðinni fræðslu til fatlaðra og líka til þjónustu- aðila,“ útskýrir Guðrún Pálma- dóttir, réttindagæslumaður fatl- aðra á Norðurlandi. Hún segir málin sem koma inn á borð réttindagæslumanna misjöfn. Þeim hafi fjölgað eftir að breyting- arnar gengu í gegn og mikilvægt sé að réttindagæslumenn séu sýni- legir og fólk viti hvert skuli leita. „Það eru ákveðin líkindi á því að meðan fólk stríðir við geðræn vandamál hafi það ekki sinnu á að hugsa um málstað sinn almennt eða leita sér hjálpar á þennan hátt. Fólk sem hefur líkamlega fötl- un getur verið meðvitað um rétt sinn en svo geta aðrir bent á mál, til dæmis í tilfellum þroskaskertra einstaklinga sem búa þá jafnvel á stofnunum. Þar er ríkasta eftirlits- skyldan okkar,“ segir Guðrún. Sýnileiki mikilvægur Guðrún Pálmadóttir, réttindagæslumaður fyrir fatlaða á Norðurlandi. MYND/HEIDA.IS L ög um réttindagæslu fatl- aðs fólks voru samþykkt frá Alþingi í vor og í þeim er kafli um réttindagæslu- menn fatlaðs fólks,“ segir Hall- dór Gunnarsson, réttindagæslu- maður fatlaðs fólks í Reykja- vík og á Seltjarnarnesi, spurður hvað í því starfi felist. „Land- inu er skipt í svæði og starfa rétt- indagæslumenn, einn eða fleiri, á hverju þeirra. Hlutverk réttinda- gæslumanns er að fylgjast með högum fatlaðs fólks á sínu svæði og vera því innan handar við rétt- indagæslu. Málin eru af ýmsum toga. Þau geta snúist um þjónustu sem fatlaðir eiga rétt á eða önnur persónu leg réttindi og einkamál. Ákvæði er um það í nýju lögunum að öllum sé skylt að tilkynna það til réttindagæslumanns ef þeir telja að brotið sé á rétti fatlaðs fólks. Auk þess getum við auðvitað tekið upp mál að eigin frumkvæði.“ Hvar getur fatlaður einstaklingur orðið sér úti um upplýsingar um rétt- indagæslumann á sínu svæði? „Allar upplýsingar um réttindagæslu- menn hvers svæðis eru á heimasíðu velferðar ráðuneytisins og einnig á heimasíðum hagsmunasamtaka eins og Öryrkjabandalags Íslands, Lands- samtakanna Þroskahjálpar og Geð- hjálpar. En við eigum auðvitað frum- kvæði að því að fara út á staðina þar sem verið er að vinna með fötluðu fólki eða þar sem það býr og kynna okkur. Síðan hafa verið kynningar- fundir og ýmislegt þess háttar og verið er að vinna prentað kynningar- efni til dreifingar.“ Hvernig mál eru það helst sem hafa komið til þinna kasta? „Það er kannski leitað til mín vegna þess að menn telja verið að brjóta á rétti einstaklings inni á heimili sínu, til dæmis í búsetu þjónustu. Fólk hefur einnig leitað eftir stuðn- ingi til þess að sækja um þjón- ustu eða fylgja eftir málum í kerf- inu, til dæmis hjá félagsþjónustu eða Tryggingastofnun. Önnur mál snúa að ýmiss konar ráðgjöf og má segja að meginhlutverk rétt- indagæslumannsins sé að vera við hliðina á fatlaða einstaklingn- um sem í mörgum tilfellum þekkir ekki rétt sinn en finnur að hlutirn- ir eru ekki eins og þeir eiga að vera. Innan um eru miklir sérfræðingar í því laga- og reglugerðarverki sem snýr að máli þeirra en þeir þurfa oft einhvern til að finna málinu rétt- an farveg og löggilt afl til að knýja rétta niðurstöðu í gegn.“ Halldór leggur mikla áherslu á að vera í virku sambandi við skjól- stæðinga sína og heimsækja heim- ili þeirra og vinnustaði í stað þess að bíða eftir að þeir finni hann. „Ég sit ekkert við símann og bíð,“ segir hann hlæjandi. „En engu að síður vil ég eindregið hvetja alla til að kynna sér hver réttindagæslumaður á þeirra svæði er og hafa samband til að kynna sér málin og hvað við getum aðstoðað með.“ Að standa við hlið hins fatlaða einstaklings Í maí síðastliðnum voru skipaðir um land allt réttindagæslumenn fatlaðs fólks. Halldór Gunnarsson, réttindagæslumaður í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, segir mikilvægt að fólk kynni sér starf þeirra og leiti réttar síns. Hann situr þó ekki og og bíður, heldur fer á vettvang. Halldór Gunnarsson, réttindagæslumaður fatlaðs fólks í Reykjavík, telur mikilvægt að vera í virku sambandi við skjólstæðinga sína. MYND/VILHELM Upplýsingar er að finna á vefsíðu velferðarráðuneytisins. Réttindagæslumenn fatlaðra Reykjavík og Seltjarnarnes Halldór Gunnarsson s. 858 1550 halldor.gunnarsson@rett.vel.is Aðsetur: Borgartún 22, 105 Reykjavík Kópavogur, Garðabær, Álftanes, Mosfellsbær og Kjós Ingibjörg Guðrúnardóttir s. 858 1753 ingibjorg.gyda@rett.vel.is Aðsetur: Hlíðasmára 6, 2. hæð, 201 Kópavogi Hafnarfjörður og Suðurnes Kristín Sigurjónsdóttir s. 858 1798 kristin.sigurjonsdottir@rett.vel.is Aðsetur: Hlíðasmára 6, 2. hæð, 201 Kópavogi Suðurland Kristjana Sigmundsdóttir kristjana.sigmundsdottir@rett.vel.is s. 858 2142 Vesturland og Vestfirðir Jón Þorsteinn Sigurðsson s. 858 1939 jon.t.sigurðsson@rett.vel.is Aðsetur: Rauði kross Íslands, Akranes- deild, Skólabraut 25a, 300 Akranesi Norðurland Guðrún Pálmadóttir s. 858 1959 gudrun.palmadottir@rett.vel.is Aðsetur: Vinnueftirlit ríkisins, Skipagötu 14, 600 Akureyri Austurland Sigurlaug Gísladóttir s. 858 1964 sigurlaug.gisladottir@rett.vel.is Aðsetur: Tjarnarbraut 39a (Vonarland), 700 Egilsstaðir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.