Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 7geðhjálp ● 1. Monika Danielewicz og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir taka vel á móti fólki hjá Geðhjálp. 2. Garðar Sölvi Helgason og Eva Hrönn Árelíusdóttir á starfsdegi. 3. Sólrún Lárusdóttir, ráðgjafi Geðhjálpar. Formaður félagsins, Björt Ólafsdóttir, í bakgrunni. 4. Veðurblíðan á Menningarnótt varð til þess að vöfflukaffið flæddi út á sólbaðaða stéttina í garði Túngötu 7. 5. Mynd eftir Guðmund B. Hersi. 6. Sjálfboðaliðarnir frá SEEDS á tröppum Túngötu 7 í veðurblíðu, sælir með dvölina á Íslandi og kynnin af notendum og starfsfólki Geðhjálpar. 7. Félagsmenn á félagsfundi í septem- ber. Félagsstarf Geðhjálpar er fjölbreytt eins og sjá má af þessum myndum sem teknar hafa verið á þessu ári. Geðhjálp hefur tekið að sér sjálf- boðaliða í vetur frá samtökunum Alþjóðleg ungmennaskipti. Monika Danielewicz frá Póllandi mun starfa með Geðhjálp fram í ágúst á næsta ári. Hún hefur unnið með Ingi- björgu í eldhúsinu og tekið á móti gestum, enda vill hún læra íslensku sem fyrst. 2. Stjórn félagsins hittist á starfs- degi í september til þess að ræða starfið og marka félaginu stefnu fyrir veturinn. 3. Starfsmenn félagsins leggja sitt af mörkum til stefnu mótunar og sækja starfsdag með stjórn. Fram- lag þeirra er skilgreint þannig: „Ráðgjafar skulu safna saman upp- lýsingum, ópersónugreinanlegum, sem nýtast framkvæmdastjóra og stjórn við hagsmunabaráttu og stefnumótun félagsins. Samhliða því skulu ráðgjafar safna upplýsingum um þjónustu opinberra aðila og setja fram hugmyndir að úrbótum.“ 4. Geðhjálp hélt upp á Menningar- nótt Reykjavíkurborgar 20. ágúst 2011 með Klúbbnum Geysi. Ákveðið var að hafa opið hús að Túngötu 7 undir yfirskriftinni Gakktu í bæinn“. Vöfflur og kaffi biðu gesta. 5. Guðmundur B. Hersir opnaði myndlistarsýningu í húsi Geð hjálpar á Menningarnótt. Guðmundur, sem hefur verið virkur félagi í Geðhjálp um árabil, stundaði nám við Hand- íða- og myndlistaskólann 1978-1979 en varð frá að hverfa. Hann hefur síðustu ár ræktað hæfileika sína með því sem lagt var upp með. 6. Hópur frá sjálfboðaliðasamtök- unum SEEDS hafði aðsetur á Tún- götu 7 í sumar eins og í fyrrasumar og glöddu gesti með ýmsum ferðum og uppákomum. Samtökin taka við um 800 sjálfboðaliðum á ári í verk- efni sem tengjast umhverfismálum, menningu eða félagsmálum. Hópur- inn setti alþjóðlegan blæ á Túngötu meðan á dvöl hans stóð enda frá ýmsum löndum, þar á meðal frá Finnlandi, Spáni og Englandi. 7. Geðhjálp er eina lýðræðislega kjörna félagið á landinu sem sinnir geðheilbrigðismálum og berst fyrir réttindum geðsjúkra. Félagsfundur var haldinn 23. september undir yfir skriftinni Geðhjálp á vetur setj- andi. Rætt var um stefnu núverandi stjórnar og starfið fram undan í húsi félagsins að Túngötu. Félagið hefur fengið tvö kauptilboð í húsið en meirihluti stjórnar hafnað báðum. Úr félagsstarfi Geðhjálpar Geðhjálp fagnar 32 ára afmæli sunnudaginn 9. október og verður mikið um að vera þá sem endranær á afmælisdaginn. Geðhlaupið hefst klukkan 13 í Nauthólsvík og verð- ur boðið upp á skemmtiskokk og tíu kílómetra hlaup. Klukkan fjögur hefst svo kaffisamsæti í húsakynn- um Geðhjálpar að Túngötu 7. „Þar mun formaðurinn halda tölu, kynna stefnuna og segja frá því sem fram undan er hjá sam- tökunum. Þá verða veitt svoköll- uð frumkvæðisverðlaun en þau eru veitt þeim sem hafa á einhvern hátt skarað fram úr í þjónustu við geðfatlaða eða baráttu fyrir hags- munum þeirra,“ segir Höskuldur Sæmundsson, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Í fyrra voru það að- standandinn Anna Valgarðsdóttir og Páll Matthíasson, framkvæmda- stjóri geðsviðs Landspítalans, sem hlutu verðlaunin. „Anna er aðstand- andi og hefur barist fyrir málefn- um geðsjúkra um áratugaskeið og Páll hefur verið með mjög jákvæð- ar hugmyndir hvað varðar þjónustu við geðfatlaða frá því hann tók við,“ segir Höskuldur. Alþjóða geðheilbrigðisdagur- inn verður svo haldinn hátíðlegur 10. október en Höskuldur segir það einungis skemmtilega tilviljun að afmælisdagurinn og alþjóðadagur- inn haldist svona þétt í hendur. „Al- þjóða geðheilbrigðisdagurinn kom til miklu seinna, árið 1992.“ Frumkvæðisverðlaunin veitt í þriðja sinn Hægt er að hefja afmælisdaginn á hressandi geðhlaupi. Boðið er upp á skemmti- skokk og tíu kílómetra hlaup. NORDICPHOTOS/GETTY Þeim sem þjónusta geðfatlaða í búsetukjörnum borgarinnar virðist vera að að takast það ætlunarverk sitt að auka færni íbúanna til að takast á við daglegt líf og fóta sig í samfélaginu. Hjúkrunarfræðingarnir Herdís Hólmsteinsdóttir og Mar- grét Grímsdóttir og iðjuþjálfinn Auður Hafsteinsdóttir eru meðal þeirra sem aðstoða eftir þörfum íbúa og starfsfólk í þjónustukjörnum borgarinnar fyrir geðfatlaða. Þær eru í vettvangsgeðteymi Reykjavíkur sem var stofnað fyrir ári. Í því eru annars vegar starfsmenn geðsviðs Landspítal- ans og hins vegar starfsmenn velferðarsviðs Reykjavíkur- borgar. Í hópnum er fólk úr félagsráðgjöf, hjúkrun, geð- læknisfræði, iðjuþjálfun og sálfræði. Teymið sinnir einstaklings, hóp- og fjölskylduvinnu, einnig stuðningi og ráðgjöf við starfsmenn í þjónustu- kjörnunum og aðstoðar við bráðainnlagnir á sjúkrahús. Margir einstaklingar sem nú búa í fyrrgreindum þjónustu kjörnum áttu heima á Kleppi, Arnarholti og fleiri stofnunum áður. Herdís segir stutt síðan að ekki var talið mögulegt að þeir byggju úti í samfélaginu en þýðingar- mikið sé að auka sjálfstæði þeirra og hjálpa þeim að ná tökum á lífinu í eigin umhverfi. Starfsfólk búsetukjarnanna eru lykilpersónur í að styðja íbúana. Vettvangsgeðteymið kemur svo að málum ef þörf er á enn frekari aðstoð. Herdís Margrét og Auður segja mjög misjafnt hversu mikinn stuðning íbúarnir þurfi. „Sumir þurfa félagslegan stuðning, aðrir þurfa að- stoð við húshald og persónulegar þarfir. Allir þurfa stuðn- ing þegar þeir veikjast og þá kemur teymið í góðar þarfir,“ segir Herdís. Margrét tekur undir það og segir árangur þessa starfs meðal annars mælast í því að spítaladögum hafi fækkað og stefnt sé að því að innlögnum fækki líka. „Aðstoðin fer fram á heimilum fólks en hún fer líka fram í formi iðjuþjálfunar, stuðnings- og sálfræðiviðtala.“ Þær taka fram að íbúarnir hafi að sjálfsögðu notið þjón- ustu áður, hún hafi bara verið á öðrum grunni. „Nú er búið að samþætta þjónustuna betur og hún er orðin markvissari fyrir íbúann, spítalann og borgina,“ segir Auður. Markmiðið er aukin lífsgæði geðfatlaðra Iðjuþjálfinn Auður og hjúkrunarfræðingarnir Margrét og Herdís eru í vett- vangsgeðteymi Landspítalans og Reykjavíkurborgar. MYND/ANTON ● AUGLÝST EFTIR FÉLÖGUM Geðhjálp eru félagasamtök sem eru algjörlega háð velvilja almennings, bæði fjárhagslega og félags- lega. Rödd hvers einasta félagsmanns skiptir máli því sjónarmið okkar og reynsla geta verið mismunandi. Við hvetjum þá sem áhuga hafa á að styrkja og styðja félagið að gerast félagsmenn. Það kostar aðeins 2.000 krónur á ári og má til dæmis gera með því að hringja í síma 570 1700 eða á heimasíðu félagsins: www.gedhjalp.is .

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.