Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.10.2011, Blaðsíða 10
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR10 FRÉTTASKÝRING: Hvaða áhrif hafa fjárlögin 2012? Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík Sími 590 2100 · askja.is Opið virka daga frá 9 -18. Laugardaga frá 12-16. Verð kr. 2.390.000 Audi A3 árg. 2007, ekinn 40 þús. km 1595cc, bensín, beinsk. Álfelgur Lítið ekinn gullmoli Verð kr. 4.590.000 Volkswagen Tiguan 4x4 árg. 2008, ekinn 38 þús. km 1968cc, dísel, sjálfsk. Álfelgur Bakkvari Verð kr. 2.290.000 Volkswagen Golf árg. 2008, ekinn 55 þús. km 1600cc, bensín, beinsk. Álfelgur Skyggðar rúður Verð kr. 3.890.000 Audi A6 árg. 2008, ekinn 78 þús. km 1984cc, bensín, sjálfsk. Álfelgur Skyggðar rúður Verð kr. 1.590.000 Peugeot 307 árg. 2006, ekinn 57 þús. km 1400cc, bensín, beinsk. Álfelgur Sparneytinn og vel með farinn Verð kr. 1.990.000 Honda Accord árg. 2006, ekinn 76 þús. km 1998cc, bensín, sjálfsk. Álfelgur Skyggðar rúður Verð kr. 1.190.000 Isuzu Trooper 4x4 árg. 2002, ekinn 221 þús. km 3000cc, dísel, beinsk. Vel með farinn Hokinn af reynslu Verð kr. 3.450.000 Hyundai Santa Fe árg. 2009, ekinn 152 þús. km 2200cc, dísil, sjálfsk. Álfelgur Hlaðinn aukabúnaði Verð kr. 3.490.000 Volkswagen Passat árg. 2007, ekinn 36 þús. km 2000cc, dísel, sjálfsk. Álfelgur Þakbogar Verð kr. 2.590.000 Mitsubishi L200 Instyle 4x4 árg. 2006, ekinn 111 þús. km 2477cc, dísel, beinsk. Pallhús Dráttarkrókur Verð kr. 4.690.000 Nissan Pathfinder 4x4 árg. 2007, ekinn 106 þús. km 2488cc, dísel, sjálfsk. Álfelgur Skyggðar rúður Tilbo ðsve rð kr. 89 0.000 ! Verð kr. 3.450.000 Nissan Qashqai SE árg. 2009, ekinn 41 þús. km 2000cc, bensín, sjálfsk. Álfelgur Skyggðar rúður Nánar á www.askja.is Mercedes-Benz A150 árg. 2006, ekinn 55 þús. km 1500cc, bensín, beinsk. Tilbo ðsve rð kr. 1. 790.0 00! Verð kr. 2.090.000 Álfelgur Framdrif Forstjóri Landspítala segir að draga verði úr þjónustu spítalans til að mæta kröfum fjárlaga 2012 um niðurskurð. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins segir ekki endalaust hægt að taka til í rekstr- inum. Rektor Háskóla Íslands segir allt koma til greina við niðurskurð, jafnvel uppsagnir. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga verður skorið niður um þrjú prósent til almennrar þjónustu og 1,5 prósent í velferðarmálum árið 2012. Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra segir að fjárlögin einkennist af aðhaldi frekar en miklum niðurskurði. Ljóst er hins vegar að starfsemi fjölda stofnana mun breytast, enda hefur verið rík krafa um niðurskurð undanfarin ár og því óvíða hægt um vik í frekari niðurskurði. Róttækar breytingar Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir fjárlögin þýða róttækar breytingar á rekstri spítalans. Þegar sé búið að skera óheyrilega mikið niður í rekstrinum. „Það er alveg ljóst að þetta er það mikill peningur að eitthvað verður að láta undan. Það var það erfitt að ná fram fjárhagsáætlun fyrir þetta ár og við vissum að það var ekk- ert meira eftir. Við fórum alveg út á ystu nöf í alls konar hlutum og höfum verið að fylgja því eftir mánaðarlega og reyna að finna eitt- hvað meira sem við getum gert. Það er ekk- ert meira að hafa.“ Framlög til Landspítalans verða 630 milljón krónum lægri á næsta ári en því yfir- standandi. Það nemur 1,9 prósentum af ríkis- framlagi og 1,6 prósentum af heildartekjum spítalans. Björn segir þetta mikla upphæð, ekki síst í ljósi þess að frá árinu 2007 hafi framlög til spítalans verið skorin niður um 23 prósent. Gengisþróun skýri hluta af því, en í krónum talið nemi niðurskurður frá árinu 2008 17 prósentum. Björn segir að eftirspurn eftir þjónustu spítalans hafi aukist árið 2011. Daglega séu að meðaltali 41 fleiri sjúklingur liggjandi á spítalanum en í fyrra. Óvíst sé hver sé skýringin, en einhverjir hafi það á tilfinn- ingunni að erfiðara sé að fá þjónustu annars staðar og því leiti fleiri á Landspítalann. Krafa um minni þjónustu Ekki er ljóst hvernig brugðist verður við kröfu um niðurskurð. Ákvörðun um það verður tekin í þessum mánuði. Þriggja mán- aða fyrir vara þurfi til að færa fólk til í starfi og komi til uppsagna sé uppsagnarfrestur almennt 3 til 6 mánuðir. „Það verður að hætta með eitthvað, minnka einhvers staðar og loka. Við erum með starf- semi á svo svakalega mörgum stöðum að við verðum að hætta með eitthvað. Það eru kannski einhverjir hlutir sem við getum lagað áfram, en það er nokkuð sem við erum að gera alla daga. Það er hins vegar ekki verið að skera neina fitu lengur. Það er krafa í frumvarpinu að við veitum minni þjónustu. Það er ekkert flóknara en það.“ Ætlum ekki í uppsagnir Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er gert að skera niður um 1,5 prósent á næsta ári. Að auki bætist viðbótarkostnaður við rekst- urinn, svo sem vegna tölvuleyfa og ýmislegs annars. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir lögregluna verða að sníða sér stakk eftir vexti. Ekki eigi að segja upp fólki. Morgun- ljóst sé hins vegar að þetta þýði breytingar á rekstrinum. „Við höfum á undanförnum árum skorið mjög hraustlega niður með ágætis árangri. Okkur hefur tekist á undanförnum árum ekki bara að halda okkur innan ramma fjárlaga, heldur greitt niður halla sem hefur safnast upp, meðal annars vegna mótmæla og óeirða við þinghúsið. Það er ekki endalaust hægt að taka til og breyta skipulagi eins og við höfum verið að gera. það hlýtur að koma að því að það verður að breyta þjónustunni.“ Löngu sé komið á þann tímapunkt. Stefán segir að niðurskurður hafi hafist hjá embættinu strax í árslok 2008. Deildum hafi verið lokað, laun lækkuð og dregið úr yfirvinnu, svo eitthvað sé nefnt. „Þú skerð ekki niður um á þriðja tug prósenta í lög- gæslu án þess að það komi niður á þjónust- unni, það segir sig sjálft.“ Allt kemur til greina Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir að ekki verði auðvelt að bregðast við kröfu um niðurskurð. Þetta sé fjórða árið í röð þar sem niðurskurðar er krafist, en nú nemur krafan 2 prósentum, eða 185 milljónum króna. Hækkun innritunargjalda er lög bundin og ekki er gert ráð fyrir henni í frum- varpinu. „Það sem gerir okkur sérstaklega mjög erfitt fyrir er að á sama tíma og raun- fjárveitingar til skólans hafa lækkað um 18 prósent hefur nemendum fjölgað um 20 pró- sent. Við erum því með mörg hundruð nem- endur sem ekki er greitt með.“ Kristín segir lítið annað í boði en að minnka starfsemina. Það sé hins vegar erfitt, því lítið sé um fámenn námskeið eftir þessa miklu fjölgun nemenda. Endanlegar ákvarðanir verði teknar í byrjun desember, en allt komi til greina, jafnvel uppsagnir. Niðurskurður þýðir minni þjónustu LANDSPÍTALI Fjárlagafrumvarpið er krafa um minni þjónustu í heilbrigðiskerfinu að mati Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans. Hann segir ljóst að einhverri starfsemi verði að hætta. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI STEFÁN EIRÍKSSON KRISTÍN ING- ÓLFSDÓTTIR Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is BJÖRN ZOËGA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.