Fréttablaðið - 04.10.2011, Page 2
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
Þráinn, heldur þú að Hafnfirð-
ingar gleypi við Fúsa?
„Já, ég er sannfærður um að
Hafnfirðingar gleypa við Fúsa og
Fúsi við þeim.“
Þráinn Óskarsson er formaður Leik-
félags Hafnarfjarðar, sem fagnar 75 ára
afmælisári með nýrri uppsetningu á
barnaleikritinu Fúsa froskagleypi.
SAMGÖNGUMÁL Ferjan Baldur
myndi henta vel til áframhald-
andi siglinga í Landeyjahöfn.
Ferjan hefur undanfarinn mánuð
siglt til Vestmannaeyja.
„Skipið hefur reynst mjög
vel og uppfyllt allar þær vænt-
ingar og viðmiðunarmörk sem
Siglingastofnun setti á sínum
tíma um ölduhæð,“ segir Gísli
Viggósson, forstöðumaður rann-
sókna- og þróunarsviðs Siglinga-
stofnunar. Baldur hefur siglt í
3,6 metra ölduhæð en Herjólfur
siglir í allt að 2,5 metra ölduhæð.
„Þar að auki ristir Baldur ekki
nema 2,7 metra en Herjólfur
4,3,“ segir Gísli. Því þurfi mun
minna viðhald við Landeyjahöfn
þegar grunnristara skip sigli
þangað.
Sökum þess að Herjólfur getur
ekki siglt í meira en 2,5 metra
ölduhæð má gera ráð fyrir að frá-
tafir yfir vetrartímann séu tutt-
ugu til fjörutíu prósent, aðeins
vegna of mikillar öldu hæðar. Þá
yrðu væntanlega einhverjar tafir
vegna dýpkunar. Miklu minni
tafir yrðu af notkun Baldurs.
Herjólfur er nýkominn úr slipp
og þarf á næstunni að sigla milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafn-
ar, þar sem ekki er nægilegt dýpi
fyrir skipið í Landeyjahöfn. - þeb
Minni tafir yrðu af áframhaldandi siglingum ferjunnar Baldurs í Landeyjahöfn:
Auðveldara að sigla Baldri til Eyja
BALDUR Skipið hefur verið notað í stað
Herjólfs undanfarið. Skip eins og Baldur
myndi henta vel til siglinga í Landeyja-
höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DÓMSMÁL Ákvörðun Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra
um endurskoðun tiltekinna þátta
svokallaðs Guðmundar- og Geir-
finnsmáls mun liggja fyrir í þess-
ari viku, að því er hann staðfestir
við Fréttablaðið. Talið er líklegt að
sú endurskoðun verði einskorðuð
við rannsóknaraðferðir í málinu.
„Ég hef verið með þetta mál
til athugunar í ráðuneytinu og
hef fengið eindregna hvatningu
úr þjóðfélaginu þess efnis að
málið verði rannsakað,“ segir
innanríkis ráðherra. „Sjálfur hef
ég einnig lengi verið þeirrar skoð-
unar að málið megi ekki kyrrt
liggja. Fyrir vikulok mun ég taka
ákvörðun um hvað aðhafst verð-
ur.“ - jss
Guðmundar- og Geirfinnsmál:
Ákvörðun um
endurskoðun
tekin í vikunni
SVÍÞJÓÐ Lögregla í Svíþjóð leitar
að manni sem réðist á og nauðg-
aði tólf ára gamalli stúlku í
Malmö á sunnudag. Talið er að
sami maður hafi framið margar
aðrar álíka árásir.
Stúlkan var á gangi þegar
maðurinn greip hana og er tal-
inn hafa haldið klóróformi eða
eter að vitum hennar svo hún
missti meðvitund áður en henni
var nauðgað.
Lögreglunni hafa borist vís-
bendingar en enginn hefur enn
verið handtekinn. - þeb
Nauðgaði 12 ára stúlku:
Raðnauðgara
leitað í Svíþjóð
SVÍÞJÓÐ, AP Kanadamaðurinn
Ralph M. Steinmann, einn þriggja
vísindamanna sem fá Nóbels-
verðlaun þetta
árið í lífeðlis-
og læknisfræði,
lést síðastliðinn
föstudag.
Sænska Nób-
elsverðlauna-
nefndin vissi
ekki af and-
láti hans, en
venjan hefur
ekki verið sú
að veita látnum vísindamönnum
Nóbelsverðlaun.
Hinn látni hlýtur verðlaunin
ásamt þeim Bruce A. Beutler frá
Bandaríkjunum og Jules A. Hoff-
man frá Lúxemborg fyrir tíma-
mótarannsóknir þeirra í ónæmis-
fræðum, sem hafa aukið mjög
skilning okkar á virkni ónæmis-
kerfis líkamans. - gb
Nóbelsverðlaun í læknisfræði:
Einn verðlauna-
hafanna látinn
RALPH M.
STEINMANN
ÍSRAEL, AP Leon Panetta, sem tók
við embætti varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna í sumar af Robert
Gates, segir að Ísrael sé að ein-
angrast æ meir. Nauðsynlegt sé
fyrir Ísrael að eiga betri sam-
vinnu við nágrannaríkin.
Ehud Barak, varnarmálaráð-
herra Ísraels, tók að nokkru undir
þetta í gær og sagði það á ábyrgð
Ísraela að draga úr spennunni í
Mið-Austurlöndum og finna leiðir
til að hefja friðarviðræður við
Palestínumenn á ný. - gb
Panetta í Ísrael:
Varar Ísraela
við einangrun
STJÓRNSÝSLA Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar
segir í umsögn um ráðningarferli forstjóra Orku-
veitu Reykjavíkur (OR) að álitamál sé hvort rétt
hafi verið að skipa Helga Þór Ingason, þáverandi
forstjóra, í hæfisnefnd til að meta væntanlega
arftaka. Það sé „nær óþekkt“ eins og segir í um-
sögninni, sem kynnt var á stjórnarfundi hinn 12.
ágúst.
Meginniðurstaða innri endurskoðunar er að
faglega hafi verið staðið að ráðningunni. Athuga-
semdir voru hins vegar gerðar við fundarritun
stjórnar, sem hefði ekki verið nógu ítarleg og því
ekki í samræmi við starfsreglur.
Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokks
í stjórn OR, sagði í bókun á fyrrnefndum fundi að
skýrsla Innri endurskoðunar væri „áfellisdómur
yfir vinnubrögðum meirihluta“ og ferlið hefði ekki
verið gagnsætt eða faglegt.
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður
OR, segir hins vegar að niðurstaðan sýni að vel
hafi verið staðið að ferlinu í flestum atriðum.
„Það var kannski helst ég sem fékk ákúrur fyrir
að hafa ekki verið nógu duglegur að bóka það sem
gerðist á fundum, en ég baðst afsökunar á því á
stjórnarfundinum.“
Haraldur segir aðkomu Helga Þórs að mati
umsækjenda hafa verið rökrétta í þessu tilfelli
„Hann kom inn í OR með afar sérstökum hætti,
meðal annars beinlínis til þess að að ráða nýjan
forstjóra. Þetta var kannski óvenjulegt en staða
OR var óvenjuleg.“ - þj
Stjórnarformaður OR um gagnrýni Innri endurskoðunar á ráðningu forstjóra:
Ver skipun forstjóra í hæfisnefnd
HARALDUR FLOSI
TRYGGVASON
KJARTAN
MAGNÚSSON
DANMÖRK Ný ríkisstjórn Helle
Thorning-Schmidt lofar því
að lækka tekjuskatt, draga úr
útblæstri koltvísýrings um 40
prósent næsta áratuginn, veita
tíu milljörðum danskra króna til
að styrkja atvinnulífið með opin-
berum fjárfestingum og innheimta
gjald af ökumönnum sem ætla að
aka inn í miðborg Kaupmanna-
hafnar.
Þá ætlar stjórnin að setja lög
um hjónaband samkynhneigðra,
en árið 1989 varð Danmörk fyrst
landa til þess að heimila sam-
kynhneigðum pörum að skrá sig í
staðfesta samvist. - gb
Stefnumál stjórnar kynnt:
Tíu milljarðar
í efnahagslífið
NÝJA STJÓRNIN Ráðherrar Róttæka
flokksins komu hjólandi til Amalíuborgar
í gær þar sem stjórnin gekk á fund Mar-
grétar drottningar. NORDICPHOTOS/AFP
SLYS „Það var heppilegt að ég
var ekki þarna að sækja mér
neitt í frystikistuna. Ef ég hefði
verið staddur þarna inni hefði ég
væntan lega misst undan mér lapp-
irnar því að frystikistan kastaðist
út í vegg.“
Þetta segir Þorvaldur Þorvalds-
son, byggingarverktaki og hús-
eigandi. Um hádegi á laugardag
ók ungur maður, undir áhrifum
áfengis og fíkniefna, eftir Selja-
vegi og rakleitt á fjölbýlishús við
Holtsgötu í Vesturbæ Reykjavíkur.
Krafturinn var slíkur að útveggur
á geymslu í eigu Þorvalds brotnaði
í gegn og frystikista sem var uppi
við vegginn þeyttist þvert yfir her-
bergið. Aðliggjandi hús léku á reiði-
skjálfi að sögn nágranna.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgar svæðinu
meiddist enginn í slysinu. Tveir
menn voru í bifreiðinni og voru
þeir báðir undir áhrifum áfengis
og fíkniefna. Þeir voru færðir á
lögreglustöð frá slysstað.
Þorvaldur segist einnig hafa lít-
inn efnislager í geymslunni, sem er
um fjórir fermetrar að stærð, og
eiga þess vegna alloft leið þar um.
Því sé heppni að hann hafi ekki
verið staddur þar í þetta skiptið.
Skemmdirnar á húsinu eru mikl-
ar og vonast Þorvaldur til þess að
geta hafið lagfæringar sem allra
fyrst.
„Ég býst við því að þetta verði
dýr viðgerð og ég er búinn að vera
að ýta á eftir tryggingunum að
koma nú og meta tjónið til að ég
geti farið að gera eitthvað í þessu.
Það gengur ekki til lengdar að hafa
þetta svona opið.“
Vel virðist þó hafa sloppið með
skemmdir á innanstokksmunum,
þar sem frystikistan gengur til
dæmis enn, að sögn Þorvalds.
„Ég hef ekki tekið hana úr sam-
bandi og leyft henni að standa þar
sem hún er, en hún gengur í bili.
Sem betur fer helltust ekki niður
hirslurnar með skrúfum og nöglum
af öllum stærðum og gerðum. Það
hefði orðið frekar ókræsilegt
að lesa það allt í sundur úr einni
bendu,“ segir Þorvaldur að lokum
en segir mestu skipta að enginn
hafi meiðst í óhappinu.
thorgils@frettabladid.is
Frystikistan þeyttist
til í harðri ákeyrslu
Betur fór en á horfðist þegar bíl var ekið á íbúðarhús í Vesturbænum um
helgina. Bílstjóri var undir áhrifum áfengis og fíkniefna en slapp án meiðsla.
Gat kom á útvegg og húseigandi segist heppinn að hafa ekki verið á staðnum.
VEGGURINN BROTINN Ráða má af ummerkjum að bíllinn hefur verið á talsverðum
hraða, þar sem hann hefur farið í gegnum útvegginn og kastaði frystikistu veggja á milli.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPURNING DAGSINS