Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 4
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR4
Borðstofusettin er hægt að skoða hér: www.listinn.is/husgogn.htm
og í Listanum, Akralind 7, virka daga frá kl. 10-17.
Þvermál 150 cm
Kirsuberjaviður
Snúningsplata sem er
auðvelt er að fjarlægja
8 stólar
Ný og glæsileg
hringborðstofusett
Aðeins 275.000 kr.
GENGIÐ 03.10.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,97
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,20 118,76
183,70 184,60
157,97 158,85
21,224 21,348
20,146 20,264
17,206 17,306
1,5361 1,5451
183,74 184,84
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
ALÞINGI „Það eru engar skýringar á þessu,“
segir Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri
Hæstaréttar, spurður hvers vegna enginn
af dómurum réttarins hafi verið viðstaddur
þingsetningu á laugardag. Slíkt hefur ekki
áður gerst frá stofnun Hæstaréttar.
Spurður hvað hann eigi við með þessum
orðum svarar Þorsteinn: „Ég á við að það geti
verið mismunandi skýringar hjá hverjum
manni.“
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, vék að fjarveru dómaranna í pistli
sem hann skrifaði á heimasíðu sína á laugar-
dag og spurði hvert við værum komin, meðal
annars þegar dómarar Hæstaréttar mættu
ekki til þings í fyrsta sinn frá stofnun réttar-
ins.
Þykir Þorsteini það ekki ótrúleg tilviljun að
allir tólf dómarar Hæstaréttar skuli forfallast
á nákvæmlega sama tíma? „Ég get ekki svar-
að því. Það verða engar yfirlýsingar gefnar
um þetta mál,“ segir hann.
En ber að skilja hann svo að það hafi ekki
verið sameiginleg ákvörðun dómaranna að
sniðganga þingsetninguna? „Ég hef ekki hug-
mynd um það,“ segir skrifstofustjórinn.
Fréttablaðið falaðist í kjölfarið eftir viðtali
um málið við Ingibjörgu Benediktsdóttir, for-
seta Hæstaréttar. Hún kvaðst ekki tilbúin að
veita viðtal. - sh
Skrifstofustjóri Hæstaréttar segist ekki vita af hverju hæstaréttardómarar mættu ekki við þingsetningu:
Skýringar fást ekki á fjarveru Hæstaréttar
VIÐ ÞINGSETNINGU Hæstaréttardómarar hafa verið við
þingsetningu svo lengi sem menn muna. Svo var ekki í
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Í HÖFÐA Sagan var skrifuð á fundi
Reagans og Gorbatsjovs.
REYKJAVÍKURBORG Efna á til sér-
staks viðburðar 11. október
vegna þess að þá verða 25 ár
liðin frá upphafi tveggja daga
leiðtogafundar Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta og Mikhails
Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkj-
anna, í Reykjavík.
„Sú skoðun hefur komið fram
meðal sagnfræðinga að fundur-
inn hafi markað upphaf enda-
loka kalda stríðsins.“ segir í til-
lögu sem borgarráð samþykkti
um að leggja 1.170 þúsund krón-
ur í afmælisviðburðinn. Halda á
málþing í þágu friðar og efna til
kvikmyndasýningar og tónleika.
Almenningur fær aðgang að ljós-
myndasýningu í Höfða. Fulltrú-
ar stórveldanna tveggja verða
boðnir til móttöku. - gar
25 ár frá leiðtogafundinum:
Upphaf að endi
kaldastríðsára
Kind skotin með riffli
Lögreglunni á Vestfjörðum var nýverið
tilkynnt um dauða kind sem hafði
verið skotin með kraftmiklum riffli.
Lögreglan fór á staðinn, sem var um
300 metra ofan við skotsvæði skot-
félagsins fyrir ofan Dagverðardal. Lög-
reglan óskar eftir upplýsingum sem
gætu leitt í ljós hver gerandinn er.
LÖGREGLUMÁL
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
25°
22°
15°
23°
21°
16°
16°
27°
18°
30°
18°
28°
15°
21°
19°
15°
Á MORGUN
8-13 m/s, hvassast V-til.
FIMMTUDAGUR
Stíf norðan, hvassast
austast.
5
6
2
4
3
4
0
5
7
10
8
10
7
5
8
8
6
12
9
15
6
7
2
2
3
5
6
2 3
3
6
9
RIGNING EÐA
SLYDDA og snjó-
koma til fjalla um
landið norðanvert
næstu daga en
yfi rleitt þurrt og
bjart syðra. Stíf
norðanátt og svalt
í veðri en lítur út
fyrir hægan vind á
föstudag og síðan
sunnanátt með
hlýindum á laugar-
dag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir
sagði í stefnuræðu sinni í gær að
ríkisstjórnin teldi að bankarnir
þyrftu að leggja meira af mörkum
til samfélagsins og uppgjör þeirra
sýndi að þeir væru aflögufærir.
„Á sama tíma og heimilin, fyrir-
tækin og velferðarþjónustan búa
við samdrátt í kjölfar hruns fjár-
málakerfisins er það samfélagsleg
skylda bankanna að skila þessum
mikla hagnaði aftur til samfélags-
ins með einhverjum hætti.“
Jóhanna sagði bankana hljóta að
hugsa sinn gang, þeir hefðu á síð-
ustu árum og jafnvel áratugum
fyrir hrun sagt sig úr siðferðilegu
sambandi við þjóðina.
Bjarni Benediktsson, for maður
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi
í ræðu sinni að ítrekað væri sagt
við fólk að öllu svigrúmi bankanna
til skuldaleiðréttingar hefði verið
ráðstafað og jafnvel rúmlega það.
„En næsta dag berast svo fréttir
af feiknarlegum hagnaði fjármála-
fyrirtækjanna. Er von að slíkt
valdi ólgu og vonbrigðum?“
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra greip þetta á lofti
og sagðist vonast til þess að Bjarni
styddi tillögu um nýjan banka-
skatt, fyrst þessi væri skoðun
hans. Steingrímur sagði mikils-
verðan árangur hafa náðst í efna-
hagsmálum sem hefði vakið athygli
út fyrir landsteinana. Hann hvatti
þá sem gagnrýndu ríkisstjórnina
til að viðurkenna þó það sem vel
væri gert.
Af nógu væri að taka af gagn-
rýnisefnum en þeir sem ýttu
bara undir sundurlyndi gerðu
umræðunni ekkert gagn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði skýrslu fjármálaráðuneytis-
ins um endurreisn bankanna sýna
að meðvituð ákvörðun hefði verið
tekin um að afskrifa minna af
lánum almennings en tilefni hefði
verið til. Erlendir kröfuhafar hefðu
notið ávaxtanna, en ekki heimilin.
„Það svigrúm sem hefði átt
að nýta til að færa niður skuldir
heimil anna er nú þess í stað fært
sem milljarða hagnaður í bókum
bankanna og fer að lokum út
úr þeim sem arður til erlendra
vogunar sjóða.“
Margrét Tryggvadóttir, þing-
maður Hreyfingarinnar, sagði
banka hvorki hafa samvisku né sið-
ferðiskennd og ekki skila fé til baka
nema tilneyddir. kolbeinn@frettabladid.is
Auður banka fari til þjóðar
Þingmenn tókust á um stefnuræðu forsætisráðherra í gær. Forystumenn stjórnarflokkanna boðuðu auk-
inn skatt á banka. Stjórnarandstæðingar töldu bankana hafa meira svigrúm til afskrifta fyrir heimilin.
HLUSTAÐ Á UMRÆÐUR Líkt og oft áður leit hver silfrið sínum augum í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í gær.
Stjórnarliðar gumuðu af góðum árangri í efnahagsmálum en stjórnarandstæðingar gagnrýndu efnahagsstjórnina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þingmenn ræddu stefnuræðu forsætisráðherra undir taktföstum tunnuslætti
mótmælenda. Fjöldi manns var á Austurvelli. Samkvæmt lögreglu gengu
mótmælin snurðulaust fyrir sig en enn var óljóst hve fjölmenn þau voru
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gerðu mótmælin
að umtalsefni. Bjarni sagði að annað árið í röð hefði þingsetning farið fram
í skugga einhverra fjölmennustu mótmæla sem sést hefðu um langt skeið.
Mótmælendur væru ekki mættir til að lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórnina.
Steingrímur J. Sigfússon sagði það rétt hjá Bjarna. Hitt væri hæpið að
mótmælendur væru mættir til að lýsa yfir stuðningi við stjórnarandstöðuna.
Fjöldi mótmælti fyrir utan þinghúsið