Fréttablaðið - 04.10.2011, Side 8
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
Tilboð í Október
Litun og plokkun kr. 2900,-
Brasilískt vax kr. 3400,-
Kókos líkamsskrúbb kr. 5500,-
Fótsnyrting kr. 4400,-
Borgartún 26 » 105 Reykjavík
Hafnarstræ 102 » 600 Akureyri
Sími: 545 3200 » Fax: 545 3201
sala@maritech.is » www.maritech.is Gold Enterprise Resource PlanningSilver Independent Software Vendor (ISV)
TM
Maritech veitir fjölbreytta möguleika á að fylgjast með og greina
upplýsingar fyrir stjórnendur í rauntíma. Með stjórnendasýn næst
betri yfirsýn yfir reksturinn sem auðveldar ákvörðunartöku.
Viðskiptagreind
Stjórnendasýn
- tryggir þér samkeppnisforskot
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
GRIKKLAND, AP Fjármálaráðherrar
evruríkjanna sautján komu saman
í Lúxemborg í gær, daginn eftir að
grísk stjórnvöld höfðu viðurkennt
að þau gætu ekki staðið undir kröf-
um Evrópusambandsins og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins um lækkun fjár-
lagahalla niður í 7,6 prósent.
Ráðherrarnir þurfa á næstu
dögum að taka ákvörðun um hvort
Grikkland fær næstu greiðslu
úr neyðarsjóði ESB nú um miðj-
an október, en gríska ríkið getur
hvorki staðið undir afborgunum af
lánum sínum né greitt laun og eftir-
laun nú í þessum mánuði nema fá
þetta fé til ráðstöfunar.
Alls á næsta greiðsla frá ESB og
AGS samanlagt að nema átta millj-
örðum evra, sem dugar til að fleyta
gríska ríkissjóðnum yfir þennan
hjalla.
Grísk stjórnvöld viðurkenndu
á sunnudag að þau gætu ekki náð
fjárlagahalla ársins niður í minna
en 8,5 prósent, en þau höfðu lofað
AGS og EBS að ná hallanum niður
í 7,6 prósent.
Verðfall varð á mörkuðum í
Evrópu ríkjum í gær vegna þessa,
enda hefur óvissan um framtíð
Grikklands og evrunnar aukist á ný.
Grikkir segjast auk þess ekki
geta náð fjárlagahalla næsta árs
niður í þau 6,5 prósent, sem að var
stefnt, heldur verði hann 6,8 pró-
sent.
Olli Rehn, peningamálastjóri
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, sagði óljóst hver við-
brögð evruríkjanna yrðu við þess-
ari stöðu.
„Við erum að leggja mat á það
hvort Grikkland nær markmiðum
í fjármálum með þeim aðgerðum,
sem nú eru fyrirhugaðar,“ sagði
hann, en tók fram að allt bendi til
þess að þau markmið myndu ekki
nást.
Gríska stjórnin segir ástæð-
una vera meiri samdrátt í efnahag
þjóðar innar, frekar en að aðhalds-
aðgerðir dugi ekki til miðað við
fyrri forsendur.
Samdrátturinn hefur í för með
sér minni tekjur fyrir ríkissjóð,
sem þarf þá að skera útgjöld enn
frekar niður eigi markmiðin að
nást. Aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar
hafa bitnað harkalega á almenningi
í Grikklandi, sem fyrir vikið er afar
ósáttur orðinn og efnir reglulega til
mótmælafunda og verkfalla.
Á næsta ári er talið að heildar-
skuldir gríska ríkissjóðsins verði
komnar yfir 170 prósent af þjóðar-
tekjum. gudsteinn@frettabladid.is
Grikkir ná ekki að
standa við markmið
Óvissa er um næstu greiðslu frá AGS og ESB til Grikklands eftir að grísk stjórn-
völd viðurkenndu að geta ekki náð fjárlagahalla niður í 7,6 prósent, eins og þau
höfðu lofað. Fjármálaráðherrar ESB brjóta heilann en bíða með ákvörðun.
MÓTMÆLI Í AÞENU Framhaldsskólanemar héldu út á götur Aþenu að mótmæla
niðurskurði stjórnvalda. NORDICPHOTOS/AFP