Fréttablaðið - 04.10.2011, Qupperneq 38
4. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
Einstakt tækifæri til að eignast
2010 árgerð af bíl, á afar hag-
stæðum kjörum.
Eigð’ann!
Leigð’ann!
5,9 l /100 km*VW Polo 1.2
Eigð´ann
Verð 1.690.000
Útborgun 338.000
Mánaðargreiðsla* 28.981
Binditími 60 mánuðir
Engin útborgun!
* M.v. Ergo bílasamning með 80% fjármögnun,
8,8% óverðtryggðum vöxtum og gullvildarkjörum.
Sími 525 8000 · bilaland@bilaland.is
– Breiðhöfða
mánaðargreiðsla miðast
við Ergo fjármögnun
bílasamningur
6,0 l /100 km*Hyundai i20 1.4
Eigð´ann
Verð 1.690.000
Útborgun 338.000
Mánaðargreiðsla* 28.981
Binditími 60 mánuðir
Bjóðum takmarkað magn af bifreiðum, árgerð 2010,
til langtímaleigu.
Einföld og sveigjanleg leið til að leysa bílaþörf
fyrirtækja og heimila.
5,9 l /100 km*VW Polo 1.2
Leigð´ann
Samtals á mán:* 49.900
Leigutími 12 mánuðir
6,0 l /100 km*Hyundai i20 1.4
Leigð´ann
Samtals á mán:* 49.900
Leigutími 12 mánuðir
Innifalið í „leigð’ann“
Tryggingar
Bifreiðagjöld
Vetrar- og sumardekk
Olíuskipti
Allt hefðbundið viðhald
20.000 km á ári
* Verum skynsöm!
Það er ekki lengur nauðsynlegt
að eiga stóran og eyðslufrekan
jeppa. Möguleiki á að fá stærri
bíla tímabundið gegn vægu gjaldi.
www. avis.is sími 591 4000
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
48
0
70
folk@frettabladid.is
Fyrirtækið Caoz vill gera
nokkrar teiknaðar fram-
haldsmyndir um Þór
þrumuguð og persónur
norrænu goðafræðinnar.
Fyrsta myndin verður
frumsýnd 14. október.
Framleiðandinn Arnar Þórisson
hjá fyrirtækinu Caoz vonast til
að þrjár til fjórar teiknimynd-
ir byggðar á þrumuguðinum Þór
og persónum norrænu goðafræð-
innar verði framleiddar hjá fyrir-
tækinu. Þetta kemur fram í viðtali
sem hið virta kvikmyndatímarit
Hollywood Reporter tók við hann.
Undirbúningurinn fyrir næstu
mynd um Þór er þegar hafinn og
á hún að gerast á eftir Legends of
Valhalla: Thor, sem verður frum-
sýnd hér á landi í þrívídd 14. októ-
ber. „Við sjáum til hvernig þessari
mynd vegnar áður en við ráðumst
af fullum krafti í gerð næstu
myndar,“ sagði Arnar í viðtalinu.
Fram kemur Caoz sé búið að
selja myndina til 55 landa, þar
á meðal hinna Norðurlanda-
ríkjanna, Þýskalands, Ítalíu og
Rússlands. Myndin hefur ekki
enn verið seld til Bandaríkjanna
eða Bretlands og segir Arnar ekki
nauðsynlegt að koma henni á hinn
erfiða bandaríska markað til að
myndin gangi upp fjárhagslega.
Kostnaður hljóðar upp á rúma 1,3
milljarða íslenskra króna, sem
er tífalt meira en meðalmynd á
Íslandi kostar, að sögn Arnars.
Í viðtalinu segir hann að banka-
hrunið á Íslandi hafi næstum því
stöðvað framleiðsluna, sem stóð
yfir í sjö ár, jafn langan tíma og
tók Pixar að búa til fyrstu Toy
Story-myndina. Arnar lítur jafn-
framt á það sem kost að leikna
Hollywood-myndin um Þór
hafi komið út í sumar. Hún hafi
opnað augu margra fyrir þrumu-
guðinum og norrænni goðafræði,
þrátt fyrir að hann hafi haft ein-
hverjar áhyggjur af gerð myndar-
innar til að byrja með.
Við þetta er því að bæta að Caoz
hefur skrifað undir samning við
norræna útgáfu- og efnisveitu-
risann Egmont. Samningurinn
felur í sér að Egmont verður
fulltrúi myndarinnar og vöru-
merkisins á Norðurlöndunum og
á völdum mörkuðum í Norður-
Evrópu og mun bera ábyrgð á sölu
allra hliðarvara sem bera vöru-
merkið Legends of Valhalla, eða
Hetjur Valhallar eins og það heitir
á íslensku. freyr@frettabladid.is
GERA FLEIRI MYNDIR UM ÞÓR
FLEIRI Í BÍGERÐ Fleiri teiknimyndir eru í bígerð um Þór þrumuguð og aðrar persónur norrænu goðafræðinnar.
28 ÁR LIÐU áður en Gene Simmons, bassaleikari hljómsveitarinnar Kiss, bað kærustu sinnar og barns-
móður, Shannon Tweed. Parið gekk í það heilaga um
helgina í Beverly Hills að viðstöddum 400 gestum.
Umhverfisþing 2011
14. október á Hótel Selfossi
Á þinginu verður fjallað um náttúruverndarmál,
þar á meðal nýútkomna hvítbók um endur-
skoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar,
ferðaþjónustu, útivist, náttúruvísindi
og viðmið fyrir náttúruvernd.
Heiðursgestur er Ella Maria Bisschop-Larsen,
formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna
sem fagna 100 ára afmæli í ár.
Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar
er að finna á vef umhverfisráðuneytisins.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í þinginu.
Skráning fer fram á www.umhverfisraduneyti.is
eða í síma 545 8600.
Skráningu lýkur 5. október.